Morgunblaðið - 27.04.2001, Blaðsíða 30
LISTIR/KVIKMYNDIR
30 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Frumsýningar
MEMENTO
Bíóhöllin, Nýja Bíó, Keflavík.
WAY OF THE GUN
Kringlubíó, Nýja Bíó, Akureyri.
THE MEXICAN
Laugarásbíó, Háskólabíó.
CHERRY FALLS
Stjörnubíó.
MALÉNA
Regnboginn.
SÖGUR Á TJALDI
ÍSLENSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ
Filmundur/Háskólabíó.
Lalli Johns
Íslensk. 2001. Leikstjóri og handrit: Þorfinnur
Guðnason. Lífshlaup síbrotamannsins Lalla í
hálfan áratug, séð með vökulli linsu eins okkar
besta kvikmyndagerðarmanns og viðfangsefnið
er sérkapítuli útaf fyrir sig. Mr. Johns er flottur á
sinn hátt með skopskynið í lagi. Óborganleg og
gráglettin. Háskólabíó.
Traffic
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Steven Soderbergh.
Handrit: Stephen Gaghan. Aðalleikendur:
Michael Douglas, Benicio Del Toro, Don
Cheadle, Luis Guzman.Yfirgripsmikil, margþætt
spennumynd um dópsmyglið frá Mexíkó til
Bandaríkjanna, þó glædd mikilli frásagnargleði
og flestir kaflarnir trúverðugir í heimildarmynd-
arstíl. Bíóhöllin, Bíóborgin, Háskólabíó.
Almost
Famous
Bandarísk. 2000. Handrit og leikstjórn: Camer-
on Crowe. Aðalleikendur: Patrick Fugit, Billy
Crudup, Kate Hudson, Frances McDormand.
Endurminningar höfundar af tónlistargerjun átt-
unda áratugarins eru sagðar á óvenju trúverð-
ugan og skemmtilegan hátt í mynd sem hefur
fjölmargt til síns ágætis. Ekki síst vel skrifaðar og
ekki síður leiknar persónur. Regnboginn.
Billy Elliot
Bresk. 2000. Leikstjórn: Stephen Baldry. Hand-
rit: Lee Hall. Aðalleikendur: Jamie Bell, Julie
Walters, Gary Lewis. Einföld, falleg og fyndin
mynd um baráttu 11 ára drengs að fá að vera
hann sjálfur og pabba hans við að finna ein-
hverja von. Háskólabíó.
Finding Forrester
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Gus Van Sant.
Handrit: Mike Rich. Aðalleikendur: Sean Conn-
ery, Rob Brown, F. Murray Abrahams. Fyrisjáan-
leg mynd um ótrúverðuga vináttu, borin uppi af
persónutöfrum Connerys og fagmannlegri leik-
stjórn. Bíóhöllin
The Gift
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Sam Raimi. Handrit:
Billy Bob Thornton. Aðalleikendur: Cate Blanch-
ett, Giovanni Riblisi, Keanu Reeves. Fínasta
draugamynd frá Raimi og Thornton, um konu
með skyggnigáfu sem hjálpar lögreglunni í
morðmáli. Frábær leikur, einkum hjá Riblisi og
Blanchett. Háskólabíó.
Krjúpandi tígur –
Crouching Tiger
Bandaríkin. 2000. Handrit og leikstjórn: Ang
Lee. Mögnuð ástarsaga frá Lee úr gamla Kína,
sem yfirvinnur þyngdarlögmálið í glæsilegum
bardagaatriðum. Regnboginn.
102 Dalmatians
Bandarísk. 2000. Leikstjórn: Kevin Lama. Hand-
rit: Dodie Smith. Aðalleikendur: Glenn Close,
Alice Evans, Gerard Depardieu. Það stormar af
Close sem leikur Krúellu hina ægilegu af sann-
færandi fítonskrafti og hundarnir eru afbragð.
Gott fjölskyldugrín. Bíóborgin, Kringlubíó.
Kirikou og galdrakerlingin
Frönsk. 1998. Leikstjórn og handrit: Michel
Ocelot. Aðalraddir: Óskar Jörundarson, Stefán
Karl Stefánsson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Ein-
falt ævintýri um gott og illt í frumskógum svört-
ustu Afríku. Góð fyrir yngstu börnin. Háskólabíó.
Leiðin til Eldorado
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Eric Bergeron.
Handrit: Don Paul. Teiknimynd. Segir frá tveimur
svindlurum sem finna gulllandið El Dorado. Útlit-
ið fullkomið, einsog vænta má, hið sama er ekki
hægt að segja um söguna eða tónlistina. Bíóhöllin.
Men of Honor
Bandarísk. 2000. Leikstjóri George Tillman, jr.
Handrit: Scott Marshall Smith. Aðalleikendur:
Robert De Niro, Cuba Gooding, jr., Charlize Ther-
on. Gamaldags mynd um þrákálf sem brýtur
blað í sögu sjóhersins og kemst til metorða þar
sem lituðum var áður úthýst. De Niro og Gooding
jr. kraftmiklir og sperrtir. Regnboginn, Bíóhöllin, Borgarbíó, Akureyri.
Miss Congeniality
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Donald Petrie.
Handrit: Mark Lawrence. Aðalleikendur: Sandra
Bullock, Benjamin Bratt, Michael Caine. Prýðileg
gamanmynd um FBI löggu sem tekur þátt í feg-
urðarsamkeppni gegn vilja sínum. Bíóhöllin, Kringlubíó
Nýi stíllinn keisarans
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal. Hand-
rit: Thomas Schumacher. Það kveður við nýjan
tón í nýjustu Disney-myndinni, sem fjallar um
spilltan keisara sem breytist í lamadýr og lærir
sína lexíu. Bráðfyndin mynd fyrir born og full-
orðna. Bíóhöllin, Kringlubíó, Regnboginn.
Pay It Forward
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mimi Leder. Hand-
rit: Leslie Dixon. Aðalleikendur: Kevin Spacey,
Helen Hunt, Haley Joel Osment. Mynd um strák
sem vill breyta heiminum, er byggð á góðri og
fallegri hugmynd. Þótt farið sé yfir strikið í væmni
hefur hún marga góða punkta og leikurinn auð-
vitað afbragð. Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó, Nýja Bíó, Ak-
ureyri, Nýja Bíó, Keflavík.
Save the Last Dance
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Thomas Carter.
Handrit: Duane Adler. Aðalleikarar: Julia Stiles,
Sean Patrick Thomas. Unglingamynd um ball-
erínu sem lærir hipp hopp hjá kærastanum.
Reynt að taka á of mörgu í mynd sem hefur þó
ýmsa, ágæta punkta og leikararnir fínir. Kringlubíó, Háskólabíó.
Enemy at the Gates
Þýsk/Bresk. 2001 Leikstjóri og handrit: Jean-
Jacques Annaud. Aðalleikendur: Jude Law, Jos-
eph Fiennes, Ed Harris. Nokkrar, góðar sríðs-
senur, tónlist og tjöld. Vont handrit og Holly-
wood-tilbeiðsla. Laugarásbíó, Bíóborgin.
The Little Vampire
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Uli Edel. Handrit:
Angela Sommer-Brodenburg. Aðalleikendur:
Jonathan Lipnicki, Richerd E. Grant, Alice Krige.
Þótt sagan af tveimur vinum úr sitt hvorum heim-
inum sé góð í grunninn er hún ekki nógu vönduð.
Bíóhöllin.
Thirteen Days
Bandarísk. 2000. Leikstjóri Roger Donaldson.
Handrit: Philip D. Zelikow. Aðalleikendur: Kevin
Costner, Bruce Greenwood. Vandlega gerð kvik-
mynd um framgang mála í Hvíta húsinu í Kúbu-
deilunni 1962. Fróðleg, en frekar leikin heimild-
armynd en bíómynd. Bíóhöllin
What Women want
Bandarísk. 2000. Leikstjórn og handrit: Nancy
Meuers. Aðalleikendur: Mel Gibson, Helen Hunt,
Marisa Tomei. Að mestu ófyndin langloka um
mann sem heyrir hvað konur hugsa. Regnboginn.
The Wedding Planner
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Adam Shankman.
Handrit: Pamela Falk. Aðalleikendur: Jennifer
Lopez, Matthew McConaughey, Bridget Wilson.
Rómantísk gamanmynd sem hefur ekki erindi
sem erfiði, er dæmigerð Hollywood-vella. Laugarásbíó, Stjörnubíó, Borgarbíó, Akureyri.
Rocky and Bullwinkle
Bandarísk. 2000. Leikstjóri: Des McAnuff.
Handrit: Jay Ward. Aðalraddir: Robert De Niro,
Rene Russo, Jason Alexander. Teiknimyndasería
gerð að bruðlmynd í Hollywood. De Niro í hlut-
verki einræðisherra sem ráða vill heiminum.
Bíóhöllin.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir