Morgunblaðið - 27.04.2001, Page 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2001 43
Gullsmiðir
Amerískir lúxus nuddpottar
Við seljum ekki ódýra potta. Við seljum potta ódýrt.
VESTAN ehf., Auðbrekku 23, Kópavogi.
Sími: 554 6171, farsími: 898 4154
Nýkomnir glæsilegir nuddpottar
í sedrusviðargrind, með loki,
ozone bacteríuvörn, vetraryfir-
breiðslu, tröppu, höfuðpúðum
o.fl.
Engar leiðslur nema rafmagn.
Einangrunarlok með læsingum.
Verð frá aðeins kr. 490 þús.
Í DAG mun félags-
málaráðherra, Páll
Pétursson, opna form-
lega nýja heimasíðu
Vinnueftirlitsins á árs-
fundi stofnunarinnar.
Heimasíðan verður
gagnagrunnur um
vinnuverndarmál og
mun bæta aðgengi að
upplýsingum og gögn-
um um málefni vinnu-
verndar. Hægt verður
að nálgast lög, reglur
og reglugerðir ásamt
ýmsu öðru efni af fjöl-
breyttu tagi.
Evrópskur vefur
Heimasíðan er hluti af sam-evr-
ópskum vef sem Vinnueftirlitið er nú
að tengjast og er hún notuð í ESB-
ríkjunum en EFTA-ríkjunum hefur
einnig verið boðinn aðgangur að net-
inu. Á heimasíðunni er nú þegar
hægt að tengjast heimasíðum Vinnu-
eftirlits Bandaríkjanna og Kanada
og munu Ástralía og Japan einnig
vera á leiðinni til samstarfs inn á net-
ið. Þannig má segja að vefurinn sé
orðinn hnattrænn nú þegar.
Evrópunetið hefur verið í þróun
síðan 1997 en var formlega opnað
haustið 1999 af Vinnuverndarstofn-
un ESB í Bilbao á Spáni (The Europ-
ean Agency for Safety and Health at
Work). Í hverju landi fyrir sig er vef-
hópur eða stýrihópur sem er ráðgef-
andi um viðkomandi heimasíðu og
kallast hópurinn „Focal Point“ og
hefur vefurinn stundum verið
kenndur við hópana og kallaður
„Focal Point-vefurinn“.
Málefnið á erindi til allra
Þessi nýja heimasíða mun gagnast
öllu fólki á vinnumarkaði og þar að
auki er hún fengur fyrir alla sem
áhuga hafa á málefnum vinnuvernd-
ar. Hún mun t.d. auð-
velda námsmönnum og
rannsóknarfólki að ná í
upplýsingar þar sem
hér er verið að safna
saman öllu því efni sem
til er um vinnuverndar-
mál á Íslandi. Hún er
ekki síst fengur fyrir
alla þá öryggistrúnað-
armenn og öryggis-
verði sem starfa í fyr-
irtækjum og stofn-
unum og hafa nú aukna
möguleika á að kynna
sér málefni líðandi
stundar, geta sent inn
spurningar, kynnt sér
nýtt útgáfuefni o.s.frv.
Vinnuvernd.is
Ef farið er inn á tiltekið málasvið á
heimasíðunni, t.d. löggjöf, er hægt
að „smella á milli“ landanna innan
þess sviðs og þannig má á auðveldan
hátt fá samanburð á hinum ýmsu
vinnuverndarmálefnum landa á
milli. Nokkur mismunur er á því
hversu miklar upplýsingar eru sett-
ar fram á öðrum tungum en þjóð-
tungu viðkomandi, en öll löndin hafa
eitthvert efni á ensku. Ennþá er hin
nýja heimasíða Vinnueftirlitsins ein-
göngu á íslensku en unnið er að því
brýna verkefni að birta upplýsingar
á öðrum tungum. Birtingarefni verð-
ur af fjölbreyttum toga en nú þegar
er þar að finna lög, reglur og reglu-
gerðir, leiðbeiningar um vinnuvernd,
yfirlit yfir rannsóknir og útgáfuefni
svo eitthvað sé nefnt
Menn eru hvattir til að opna og
kynna sér nýjan vef Vinnueftirlitsins
sem hefur slóðina www.vinnueftir-
lit.is til að skoða og fá upplýsingar
um málefni vinnuverndar.
Nýr gagna-
grunnur um
vinnuvernd
Inghildur
Einarsdóttir
Höfundur er með BA-próf í stjórn-
málafræði og er ritstjóri nýrrar
heimasíðu Vinnueftirlitsins.
Vefur
Hægt verður að nálgast
lög, reglur og reglu-
gerðir, segir Inghildur
Einarsdóttir, ásamt
ýmsu öðru efni af fjöl-
breyttu tagi.
EIGNIR manna eru
gerðar upptækar ýmist
með beinum aðgerðum
ríkisvaldsins, eins og
t.d. í Rússlandi með yf-
irlýsingu stjórnar
kommonista 1917 og
meðfylgjandi morðum
á landeigendum og
sjálfseignarbændum
eða laumast er til að
svipta bændur yfirráð-
um yfir löndum sínum
og afréttum með laga-
boðum.
Vorið 1998 voru
hafðar hraðar hendur
af ríkisstjórn landsins
við að lauma í gegn
tveimur lagafrumvörpum sem voru
bein eignaupptaka, rétt fyrir þing-
lok.
Lög um rannsóknir og nýtingu á
auðlindum í jörðu. Lög nr. 57. 9.6.
1988. Samkvæmt þeim fékk iðnaðar-
ráðherra vald yfir öllum auðlindum í
jörðu á landi og einnig undir hafs-
botni svo langt sem netalagnir ná á
þeim eignum sem lágu að sjó. Bænd-
ur máttu nota grunnvatn en aðrar
nytjar úr jörðu voru þeim bannaðar
nema leyfi iðnaðarráðherra kæmi til.
Lög nr. 58. 10.6. 1998 um þjóð-
lendur og ákvörðun marka milli
eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.
Samkvæmt þessum lögum fékk
forsætisráðherra vald yfir hálendi og
aðliggjandi svæðum, afréttum og
eignarlöndum bænda, sem lágu að
hálendinu eða á því. Ríkið gat krafist
eignar á þinglýstum
eða hefðbundnum af-
notarétti lands og af-
rétta. Til framkvæmda
þessara aðgerða var
fjármálaráðherra skip-
aður ásamt meðfylgj-
andi óbyggðanefnd,
sem skal auglýsa kröf-
ur ríkisins í umboði
fjármálaráðherra sem
starfar í umboði for-
sætisráðherra.
Þessir tveir laga-
bálkar voru til þess
gerðir að auðvelda ríki,
Landsvirkjun og verk-
tökum – nú Íslenskum
aðalverktökum að
standa að óheftum og frjálsum
mannvirkja- og stíflugerðum hvar
sem væri haganlegast á hálendi Ís-
lands, það sem ónýtanlegt væri fyrir
stíflugerðir, uppistöðulón og línu-
lagnir og byggingar mætti afgangi
sem þjóðlendur.
Á Ítalíu hafa öðru hverju komið
upp hneykslismál, og reyndar víðast
í löndum þar sem óprúttnir verktak-
ar og önnur vafasöm fyrirtæki hafa
fengið stjórnmálamenn til að hliðra
til í stjórn viðkomandi ríkis, til þess
að auðvelda sömu verktökum, verk-
efnaúthlutun á snærum ríkisins. Af
þess háttar tilburðum hafa hlotist
rannsóknir þingnefnda og uppljóstr-
anir, og hafa óprúttnir stjórnmála-
menn orðið illa úti. Slíkur samtvinn-
ingur stjórnmálamanna, óvandaðra
og framkvæmdafyrirtækja eru
nefndar „mafíur“, heitið dregið af
samtvinningi glæpagengja á Sikiley.
Nú eiga íslenskir jarðeigendur og
bændur í höggi við samtvinning sem
er ríkisvald, sem leitast við að svipta
þá eignum sínum til þess eins að svo-
nefnd „stóriðjustefna“ megi blómg-
ast hér á landi með framkvæmdum
Landsvirkjunar og verktaka þess
fyrirtækis og gjörlegt verði að
„lokka hingað“ eins og segir í grein í
der Spiegel á sl. haustdögum, álfyr-
irtæki með því að hálfgefa þeim raf-
magn til álframleiðslu. En til þess að
gjörlegt sé að „lokka þá hingað“
verður einhver að greiða kostnaðinn
við rafmagnsframleiðsluna.
Það eru notendur rafmagns, ís-
lenskir skattborgarar og íslensk fyr-
irtæki bæði í sjávarútvegi og land-
búnaði þ.m. gróðurhúsabændur.
Þegar allt kemur heim og saman
þá má skrifa hátt verð á paprikum
þessa dagana á reiking stóriðju-
stefnunnar. Og nú er næsta skrefið
hjá ríkisstjórn, verktökum og
Landsvirkjun að ráðast til atlögu við
Þjórsárver, líklega með því að
þurrka þau upp. En frumskilyrðið er
að svipta bændur jörðum og afrétti
þar sem virkjanamafían telur sér
hentast.
Eignaupptaka
Siglaugur
Brynleifsson
Eignir
Tvö lagafrumvörp frá
1998, segir Siglaugur
Brynleifsson, voru
hrein eignaupptaka.
Höfundur er rithöfundur.
UM þessar mundir
má vænta þess að stór
hópur nemenda sem er
að ljúka framhalds-
skólanámi sé að velta
fyrir sér hvert skuli
stefna. Ástæða er til
að vekja athygli þessa
hóps á grunnskóla-
kennaranámi. Nú
standa yfir miklar
breytingar á skóla-
starfi sem skapa ný og
áhugaverð starfsskil-
yrði. Þá er verið að
gera ýmsar breytingar
á kennaramenntun og
öðru námi við Kenn-
araháskóla Íslands
sem gera það nám að góðum und-
irbúningi fyrir fjölmörg störf bæði
innan og utan skólakerfisins.
Breytingar á kennaranáminu fel-
ast einkum í stórauknu vali og nýrri
uppsetningu kjörsviða. Nám á kjör-
sviðum hefur verið aukið til muna.
Sem dæmi má nefna að þeir nem-
endur sem svo kjósa geta varið allt
að helmingi kennaranámsins til að
fást við íslensku og móðurmáls-
kennslu. Þeir sem áhuga hafa á
raungreinum geta varið allt að
þriðjungi kennaranámsins til við-
fangsefna á því sviði. Þá má nefna
nýtt kjörsvið um nám og kennslu
ungra barna sem hentar þeim sem
vilja verða umsjónarkennarar í
neðstu bekkjum grunnskólans. Ný-
ir kjarasamningar við grunnskóla-
kennara beina einmitt sjónum mjög
að umsjónarkennaranum og hinu
mikilvæga hlutverki hans.
Mörg fleiri atriði gera kennara-
nám að spennandi kosti um þessar
mundir.
Nýlega kom út ný aðalnámskrá
með áhugaverðum nýmælum. Með-
al þeirra eru nýjar námsgreinar,
t.d. lífsleikni. Stóraukin áhersla er
lögð á virka kennsluhætti og skap-
andi skólastarf. Þá er mikil áhersla
lögð á tölvu- og upplýsingatækni og
þessu er reynt að mæta í kennara-
náminu. Þeim nemendum sem
áhuga hafa á þessu sviði standa nú
til boða fjölmörg námskeið um
tölvu- og upplýsinga-
tækni, auk þess sem
grunnur hefur verið
lagður að fartölvuvæð-
ingu skólans.
Gjörbreyting er að
verða á aðstöðu til
kennaranáms en á lóð
Kennaraháskólans er
að rísa glæsileg ný-
bygging sem m.a. mun
hýsa menntasmiðju
skólans, bókasafn,
gagnasmiðju og
kennslugagnasafn. Í
þessu húsi verður af-
bragðs aðstaða til
náms og kennslu.
Kennarastarfið
stendur um margt á tímamótum.
Tölvu- og upplýsingatæknin setur
sinn svip, foreldrasamstarf er að
stóraukast, aukin áhersla er lögð á
samvinnu kennara við þróunarstarf
og endurmenntun er fastur hluti af
starfinu. Þá hefur orðið bylting á
möguleikum kennara til framhalds-
náms. Í ársbyrjun voru auglýstar
fjórtán námsbrautir í framhalds-
deild Kennaraháskólans og nú er
unnt að ljúka námi þar með þrenn-
um hætti; með sérstakri viðurkenn-
ingu (diplómu), meistaragráðu og
doktorsgráðu, en fyrstu doktorsefn-
in munu innritast í framhaldsdeild
skólans nú í vor.
Það setur mark sitt á kennara-
námið að mikil gróska er í uppeldis-
og kennslufræðum. Meðal áhuga-
verðra efna má nefna samvinn-
unám, tölvustutt nám, útikennslu og
vettvangsnám, kennslu byggða á
kenningum um fjölgreind, leikræna
tjáningu og skapandi starf, þem-
anám, einstaklingsbundna kennslu
og heildtæka skólastefnu, en þessi
síðastnefnda hugmyndafræði miðar
að því að öll börn sæki heimaskóla
sinn. Rannsóknir og þróunarstarf á
sviði uppeldis- og skólamála er
mjög að eflast og skilningur á þess-
um þýðingarmiklu viðfangsefnum
að vaxa. Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskólans hefur verið efld og
hefur á prjónunum rannsóknar-
verkefni sem kennaraefnum og
kennurum og þroskaþjálfum í fram-
haldsnámi verður gefinn kostur á að
tengjast.
Vettvangsnám er mikilvægur
hluti kennaranámsins og fara kenn-
araefni í starfsnám á öllum náms-
árum, í þrjár til fimm vikur í senn.
Ein merkasta nýjungin í kenn-
aranáminu er fólgin í fjarnámi, en
nám við Kennaraháskólann hefur
um skeið verið í boði bæði sem fjar-
nám og staðbundið nám. Þeim sem
áhuga hafa á að kynna sér hvernig
kennaranám með fjarnámssniði fer
fram er bent á að heimsækja t.d.
heimasíður námskeiðsins Náms- og
kennslufræði og sérkennsla og
kynnast af eigin raun dæmi um
uppbyggingu grunnskólakennara-
náms í fjarnámi, slóðin er: http://
www.khi.is/~ingvar/namogser/
Uppeldis- og skólamál eru nú mjög í
deiglunni og er það mikil breyting
frá því sem áður var. Þegar sá sem
þetta ritar var að hefja kennslu fyr-
ir 30 árum bar skólastarf sjaldan á
góma í opinberri umræðu. Nú er
þessi málaflokkur orðinn forgangs-
verkefni flestra stjórnmálahreyf-
inga sem mark er á takandi og varla
er opnað svo dagblað að ekki sé þar
umfjöllun um skólamál. Flestum er
nú orðið ljóst að öflugt menntakerfi
er einn af hornsteinum framtíðar.
Þeir sem vilja leggja þar af mörkum
með virkum og skapandi hætti ættu
að íhuga alvarlega að leggja fyrir
sig kennaranám.
Kennaramenntun
á tímamótum
Ingvar
Sigurgeirsson
Menntun
Nú standa yfir miklar
breytingar á skólastarfi,
segir Ingvar Sigur-
geirsson, sem skapa
ný og áhugaverð
starfsskilyrði.
Höfundur er prófessor í kennslu-
fræði við Kennaraháskóla Íslands.
Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
lím og fúguefni