Morgunblaðið - 12.06.2001, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚNÍ 2001 63
DAGBÓK
Nýbýlavegi 12,
Kópavogi,
s. 554 4433.
Kvartbuxur
Vinsælu kvartbuxurnar með
uppábrotinu eru komnar.
Kr. 1.990.
Pantanir óskast sóttar
Skipholti 35 sími 588 1955
King
Koil
Ein mesta selda heilsudýnan í heiminum
Alþjóðasamtök Chiropractora mæla með
King Koil heilsudýnunum.
Amerískar lúxus
heilsudýnur
Tilboð!
Verðdæmi:
King áður kr. 173.800 nú kr. 121.700
Queen áður kr. 127.200 nú kr. 89.000
Árnað heilla
MEÐ 25 punkta á milli hand-
anna er eðlilegt að melda
þrjú grönd í NS, en ekki er
samningurinn beysinn. Hins
vegar er legan sagnhafa
óvenju hagstæð og þegar all-
ar hendur eru skoðaðar lítur
út fyrir að spilið vinnist:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 9432
♥ DG54
♦ DG
♣ ÁD10
Vestur Austur
♠ 8765 ♠ ÁG10
♥ 762 ♥ K1083
♦ K5 ♦ Á64
♣ 5432 ♣ 876
Suður
♠ KD
♥ Á9
♦ 1098732
♣ KG9
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Útspil vesturs er spaða-
átta og austur tekur fyrsta
slaginn með ásnum. Vörnin á
tvo slagi á tígul og eins og
liggur í spaðanum er ekki
nema tvo slagi þar að hafa.
Hjartakóngurinn liggur auk
þess fyrir svíningu, svo það
ber ekki á öðru en að sagn-
hafi vinni spilið. En með
bestu vörn má hnekkja
þremur gröndum og spurn-
ingin er: Hver er sú vörn?
Förum yfir möguleikana.
Það skilar engu ef austur
spilar spaða um hæl í öðrum
slag. Sagnhafi hefur þá tíma
til að brjóta tígulinn og gefur
aðeins tvo á tígul og tvo á
spaða, þökk sé spaðaníunni.
En austur gæti tekið upp á
því að skipta yfir í smátt
hjarta. Dugir það? Nei, suður
fær þá slaginn níuna
og fer í tígulinn. Nú er
sama hvort vörnin heldur
áfram með hjartað eða snýr
sér aftur að spaðanum – að-
eins einn slagur fríast og það
dugir skammt.
En austur er á réttri leið ef
hann íhugar að spila hjarta.
Hins vegar verður hann að
velja tíuna! Þá á suður tvo
kosti. Hann getur hleypt á
gosann, en austur tekur fyrri
tígulslaginn og spilar hjarta-
þristi á ásinn. Þar með hefur
myndast gaffall í hjartanu og
þegar vestur kemst inn á tíg-
ulkóng sendir hann hjarta í
gegnum D5 þar sem makker
hans liggur með K8 á eftir.
Sagnhafi gæti reynt að
bregðast við þessari hættu
með því að taka strax á
hjartaás. En þar með er búið
að fría slag á hjartakóng og
vörnin getur síðan skipt aftur
í spaða og skapað sér þar
fimmta slaginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt gott með að laga þig
að aðstæðum og ert öðrum
fljótari að færa þér þær í nyt.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt ekki gefast upp þótt á
móti blási. Sérhver verður að
standa á sínu og berjast
ótrauður áfram. Þinn tími
kemur.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þegar allt kemur til alls eru
vinirnir það dýrmætasta í
þessum heimi. Veraldleg vel-
gengni er ágæt en andlegur
auður er öðru dýrmætari.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vinnufélagarnir beita þig
þrýstingi til að breyta um
verklag, en það er þér á móti
skapi. Láttu ekki undan, því
þeirra aðferðir eru rangar.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Einbeittu þér að því sem til
þíns friðar heyrir og láttu mál
annarra eiga sig. Þú hefur nóg
með þitt og aðrir eiga að leysa
sín verkefni sjálfir.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það eru miklar breytingar í
gangi og þú verður að hafa þig
allan við til þess að fylgjast
með og læra ný vinnubrögð.
En þetta er nauðsynlegt ef þú
vilt ekki dragast afturúr.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þótt þér finnist þú lítið hafa
lært á undanförnum dögum
skaltu ekki örvænta því undir-
meðvitundin er vakandi og
þangað getur þú sótt vitneskju
þegar aðstæður krefjast.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ert á eilífum þönum og
verður lítið úr verki þess
vegna. Sestu niður, skipu-
leggðu tíma þinn svo þú getir
komið því í verk sem þú átt að
gera.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er margt sem má gleðjast
yfir þótt skiptist á skin og
skúrir en þegar illa árar er
gott að geta sótt upplyftingu í
skemmtilegar minningar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Hlutir kunna oft að hverfa fyr-
irvaralaust svo þú skalt hafa
auga á þeim sem þér er sárt
um. En gættu þess þó að
verða ekki of háður einhverj-
um hlutum.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sköpunarþráin ólgar innra
með þér og þú verður að finna
þér tóm til þess að leyfa henni
að njóta sín. Árangurinn mun
koma þér á óvart og afrakst-
urinn koma þér til góða.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að gefa fjármálunum
gætur því þótt engin hætta sé
beinlínis á ferðum geta þau
verið fljót að fara úr skorðum
ef agaleysið ræður ríkjum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það dugar ekki að svamla ein-
hvernveginn í gegnum daginn.
Settu þér markmið og sæktu
að því af dugnaði og festu.
Þegar markinu er náð geturðu
slakað á.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Gefðu mér, jörð
Gefðu mér, jörð, einn grænan hvamm,
glitrandi af dögg og sól,
að lauga hug minn af hrolli þeim,
sem heiftúð mannanna ól.
Gefðu mér lind og lítinn fugl,
sem ljóðar um drottins frið,
á meðan sólin á morgni rís
við mjúklátan elfarnið.
Kyrrlátan dal með reyr og runn,
rætur og mold og sand,
sólheita steina, – ber og barr,
– blessað, ósnortið land.
Þar vil ég gista geislum hjá,
gefa mig himni og sól,
gleyma, hve þessi góða jörð
margt grimmt og flárátt ól.
Hulda
(Unnur Benediktsdóttir Bjarklind )
80 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 12.
júní, verður Fjóla Sigur-
jónsdóttir áttræð. Hún er til
heimilis á Droplaugarstöð-
um við Snorrabraut. Hún
tekur á móti gestum á heim-
ili dóttur sinnar, Laufrima
17, 112 Reykjavík, nk. laug-
ardag, 16. júní, eftir kl. 15.
70 ÁRA afmæli. Í dag,12. júní, verður sjö-
tug Margrét Ólafsdóttir
leikkona. Margrét fæddist
12. júní 1931 í Vestmanna-
eyjum. Hún og maður henn-
ar Steindór Hjörleifsson
leikari verða að heiman á af-
mælisdaginn.
ÍSRAELSKI stórmeistar-
inn Emil Sutovsky (2604) er
sókndjarfur með afbrigðum
en stundum jaðrar tafl-
mennskan við fífldirfsku og
verður hann þá að súpa
seyðið af því. Staðan kom
upp á minningarmóti Bor-
owski í Essen þar sem
Christopher Lutz (2614)
hafði svart gegn ísraelska
hagfræðinemanum.
18...exf2! 19.Kxf2 Rxg3!!
20.Kxg3 Hhg8+ Hugmynd
svarts byggist á því að
hvíti kóngurinn lendi á
hrakhólum eða að hann
vinni manninn til baka
ef kóngurinn reyni að
koma sér í öruggt skjól.
Hvítur vildi láta reyna á
hvort kóngur hans
myndi sleppa óskaddað-
ur úr ógöngunum en
eins og framhaldið ber
með varð honum ekki að
ósk sinni. 21.Kh4Hd7
22.Hf1 Re7 23.Rh6
23.Rxe5 gekk ekki upp
sökum 23...Hd5 24.Rg4
Rg6+ og svartur vinnur.
23...Hg2! 24.Ra3 Rg6+
25.Kh3 Hg5 26.Hf5 Hd3+
27.Kh2 Hgg3 28.Rf7 Rh4
29.Hf2 Hh3+ 30.Kg1
Hdg3+ 31.Kf1 Hh1+ 32.Ke2
Hxa1 33.Rd6+ Kd7 34.Re4
Hg2 35.Rxc5+ Kc6 36.Rd3
Hxf2+ 37.Kxf2 Rg6 og hvít-
ur gafst upp saddur lífdaga.
Að loknum 9 umferðum í
Evrópumóti einstaklinga í
Ohrid í Makedóníu er staða
íslensku keppendanna þessi:
55.-90. Hannes Hlífar Stef-
ánsson 5 vinninga, 91.-124.
Jón Viktor Gunnarsson 4½
v. , 125.-152. Bragi Þorfinns-
son 4 v. og 179.-186. Stefán
Kristjánsson 3 v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Hlutavelta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 2.748 kr. til styrktar Hjálp-
arstarfi kirkjunnar fyrir börn í Afríku. Þær heita Guðný
Helga Lárusdóttir og Agla Eir Sveinsdóttir. Á myndina
vantar Steinunni Helgadóttur.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF
EINS OG undanfarin ár verða sum-
arguðsþjónustur eldri borgara í
Reykjavíkurprófastsdæmum í júní-
mánuði. Guðsþjónusturnar færast á
milli kirknanna í prófastsdæmunum.
Að þessu sinni verður guðsþjónustan
í Langholtskirkju miðvikudaginn 13.
júní kl. 14. Sr. Jón Helgi Þórarinsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Á eftir
verða kaffiveitingar í boði Langholts-
sóknar. Þessar guðsþjónustur eru
samstarfsverkefni Ellimálaráðs
Reykjavíkurprófastsdæma, og safn-
aðanna sem taka á móti okkur hverju
sinni. Nánari auglýsingar eru í öllum
kirkjum í prófastsdæmunum og einn-
ig í félagsmiðstöðvum aldraðra í
Reykjavík og Kópavogi. Þess er
vænst að sem flestir sjái sér fært að
koma og eiga saman góða stund í
kirkjunni. Allir eru velkomnir.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa í neðri safnaðarsal kl. 10-14.
Bæna- og fyrirbænastund í kirkjunni
kl. 12 í umsjá Guðrúnar K. Þórsdótt-
ur, djákna. Léttur hádegisverður á
vægu verði eftir stundina. Samvera
foreldra ungra barna kl. 14-16 í neðri
safnaðarsal.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Neskirkja: Tíðasöngur kl. 12.
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl.18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í við-
talstímum hans.
Fella- og Hólakirkja: Göngustund. Á
þriðjudögum kl. 10.30 er lagt af stað
frá Fella- og Hólakirkju í göngu í um-
sjón Lilju G. Hallgrímsdóttur,
djákna. Gangan er ætluð fólki á öllum
aldri. Á eftir er boðið upp á djús eða
kaffi í safnaðarheimilinu.
Hjallakirkja: Bæna- og kyrrðarstund
kl.18.
Kópavogskirkja: Foreldramorgunn í
dag kl. 10-12 í safnaðarheimilinu
Borgum.
Víðistaðakirkja. Aftansöngurog fyr-
irbænir kl. 18.30.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir
10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strand-
bergi, kl. 17-18.30.
Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13-16 í safnaðarheimili
Vídalínskirkju. Kaffi á könnunni.
Hægt að grípa í spil, rabba saman og
yfirleitt að hitta mann og annan í góðu
tómi.
Lágafellskirkja. Fjölskyldumorgunn
í safnaðarheimili Þverholti 3, 3. hæð
frá kl. 10-12.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. TTT tíu – tólf ára
starf á þriðjud. kl. 17-18. Helgistund í
kirkjunni sömu daga kl. 18.15-19.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar
þriðjudögum kl. 10-12.
Hvammstangakirkja. Æskulýðs-
fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30
í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíuskóli
í kvöld kl. 20.
Sumardagar
í kirkjunni