Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isSindri í 16-liða úrslit
bikarkeppni KSÍ /B2
Veron á tveggja ára leikbann
yfir höfði sér /B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM L a u g a r d a g u r16.
j ú n í ˜ 2 0 0 1
JÓN Otti Gíslason lögreglumaður
synti í gær frá Engey inn í Reykja-
víkurhöfn, en Engeyjarsund mun
síðast hafa verið þreytt á sjó-
mannadaginn árið 1961. Þá voru á
ferð fjórir lögreglumenn, þeirra á
meðal Eyjólfur Jónsson, tengdafaðir
Jóns Otta, en Eyjólfur stóð einmitt á
bryggjunni í gær og var meðal
þeirra fyrstu sem fögnuðu Jóni Otta
að loknu sundinu.
„Þetta var óskaplega gaman og
ánægjulegt að hafa tekist það,“
sagði Jón Otti þegar hann kom í land
í Reykjavíkurhöfn eftir sundið. „Um
tíma glímdi ég við ískaldan sjáv-
arstreng utan úr flóanum en þetta
gekk vonum framar og ég var að-
eins á undan áætlun,“ sagði Jón Otti.
Hann segist lítið hafa fundið fyrir
kulda á leiðinni nema í kalda
strengnum mitt á milli lands og Eng-
eyjar. „Það var ekki fyrr en maður
var kominn upp úr, það var það
versta, þá sagði vindkælingin til sín
og hrollurinn náði yfirhöndinni,“
sagði Jón Otti.
Sundið tók rúmlega klukkustund,
en leiðin sem hann synti er um
þriggja kílómetra löng.
Morgunblaðið/Júlíus
Jón Otti Gíslason lögreglumaður kominn á land í Reykjavíkurhöfn. Með
honum eru Eiríkur Jónsson, þjálfari hans, og Eyjólfur Jónsson, tengda-
faðir hans, sem sjálfur þreytti Engeyjarsund fyrir 40 árum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Jón Otti í hafnarkjaftinum milli
Ingólfsgarðs og Norðurgarðs.
Engeyjarsund þreytt
í fyrsta sinn í 40 ár
BRESK yfirvöld handtóku fyrir
skömmu Íslending á Waterloo-
brautarstöðinni í London. Um 1,1
kíló af amfetamíni fannst hjá mann-
inum. Hann hefur verið úrskurðaður
í gæsluvarðhald. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er talið lík-
legt að flytja hafi átt fíkniefnið til Ís-
lands.
Maðurinn var handtekinn laugar-
daginn 2. júní sl. en hann kom til
Bretlands með lestinni um Ermar-
sundsgöng frá Brussel. Ekki tókst
að fá upplýsingar frá Bretlandi um
málið en embættið sér m.a. um lög-
gæslu í lestarkerfi Bretlands og í
neðanjarðarlestarkerfinu í London.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
hefur sent upplýsingar um manninn
til bresku lögreglunnar eftir að fyr-
irspurn barst til Interpol-skrifstof-
unnar hér á landi. Maðurinn er
fæddur árið 1978 og hefur lögheimili
á Íslandi. Hann hefur lítillega komið
við sögu lögreglunnar en aldrei
vegna fíkniefnabrota. Hann mun
hafa farið af landi brott skömmu áð-
ur en hann var handtekinn í Lond-
on.
Tveir Íslendingar sitja nú í gæslu-
varðhaldi á Spáni. Þeir voru hand-
teknir sl. sunnudag þegar um 200
kíló af hassi fundust í bifreið þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu hafa mennirnir
fengið skipaða lögmenn. Pétur Ás-
geirsson, rekstrarstjóri hjá utanrík-
isráðuneytinu segir að hlutverk
ráðuneytisins í slíkum málum sé að
tryggja að Íslendingar hljóti sann-
gjarna málsmeðferð. Pétur segir að
ráðuneytið fylgist vel með málinu en
hafi ekki séð ástæðu til að skipta sér
frekar af því.
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
hefur ekki enn fengið ósk um að
senda upplýsingar um mennina til
spænsku lögreglunnar. Deildin hef-
ur hins vegar vitneskju um hvaða
menn er að ræða en vildi ekki gefa
upplýsingar um hvort mennirnir
ættu að baki brotaferil hér á landi.
Þegar Íslendingur er handtekinn í
útlöndum hvílir ekki skylda á lög-
regluyfirvöldum erlendis að hafa
samband við íslensk yfirvöld nema
sakborningurinn fari fram á það. Því
hafa hvorki dóms- né utanríkisráðu-
neytið tæmandi lista yfir þá Íslend-
inga sem eru í fangelsi í útlöndum.
Ef Íslendingur er dæmdur til
refsingar erlendis getur hann farið
fram á að afplána refsinguna hér á
landi. Bæði íslensk yfirvöld og yf-
irvöld viðkomandi lands verða þó að
samþykkja beiðnina.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins sitja allmargir Íslendingar í
fangelsum erlendis.
Tveir Íslendingar eru í fangelsi í
Bandaríkjunum, annar fyrir kyn-
ferðisbrot og hinn fyrir alvarlega
líkamsárás þar sem hafnarbolta-
kylfu var beitt. Sá fyrrnefndi er í
Texas en hinn er í fangelsi í Virg-
iníu. Báðir afplána þeir þunga refsi-
dóma. Þeir munu báðir hafa óskað
eftir því að fá að afplána dóma sína
hér á landi. Yfirvöld í Texas og Virg-
iníu höfnuðu þeirri beiðni.
Þá situr Íslendingur í fangelsi í
Þýskalandi en hann var handtekinn í
tengslum við fíkniefnasölu.
Bresk fangelsi geyma a.m.k. einn
Íslending. Hann situr nú af sér sex
ára fangelsisdóm. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins mun hann
hafa ráðist inn á heimili aldraðrar
konu og hrint henni. Konan lést
skömmu síðar, en ekki voru þó talin
tengsl á milli árásar mannsins og
dauða konunnar. Í undirrétti fékk
maðurinn þungan dóm, um 20 ár, en
hann var síðan styttur í sex ár. Mað-
urinn mun hafa óskað eftir því að fá
að ljúka refsivistinni hér á landi en
ekki er komin niðurstaða í það mál.
Þá er nokkur fjöldi Íslendinga að
afplána dóma í Danmörku.
Tekinn í London með
1,1 kíló af amfetamíni
Nokkur fjöldi Ís-
lendinga í fang-
elsum erlendis
HÁTÍÐ í tilefni þjóðhátíðardagsins
var haldin af starfsfólki og börnum
á leikskólunum Hálsaborg og
Hálsakoti við Hálsasel, Jöklaborg
við Jöklasel, Seljaborg við Tungu-
sel og Seljakoti við Rangársel í
gær. Markmið hátíðarinnar var efl-
ing þjóðarvitundar barnanna með
fræðslu um íslenska fánann og
þjóðhátíðardaginn. Þátttakendur
voru á aldrinum 1–6 ára og var ým-
islegt gert til skemmtunar.
Dagurinn hófst á því að útivist-
arsvæði voru skreytt og svo var far-
ið í skrúðgöngu frá Hálsaseli að
Seljahlíð, vistheimili aldraðra, þar
sem börnin tóku lagið. Var þetta
liður í að efla samskipti þeirra
yngstu og elstu í hverfinu. Að lok-
um héldu allir til baka á sína leik-
skóla þar sem farið var í leiki og
grillað.
Morgunblaðið/Billi
Forskot á þjóðhátíðina
skeiði til Hveragerðis og niður
Þrengsli ef til lántöku kæmi vegna
lýsingarinnar. Kynnt var í bréfinu
að ætlað væri að til útboðs kæmi á
árinu 2001. Undanfarin ár hafa allir
aðalfundir SASS hvatt einróma til
lýsingar austur fyrir Fjall og síð-
astliðinn vetur söfnuðust um sex
þúsund undirskriftir á Suðurlandi á
skömmum tíma til stuðnings við
lýsingu auk sérstakrar hvatningar
frá ýmsum sveitarfélögum.
„Þetta mál er nú í góðum farvegi,
það komst á skrið með fjölmörgum
fundum með forsvarsmönnum
sveitarfélaga og orkustofnana. Ég
hef einnig rætt það, fyrir hönd
þingmanna Suðurlands, við sam-
gönguráðherra og fjármálaráð-
herra með jákvæðum viðbrögðum
og Vegagerðin hefur hafið undir-
búning að framgangi málsins,“
sagði Árni Johnsen. „Málið hnýtist
því vonandi upp eins og þingmenn
Suðurlands hafa stefnt að með út-
boði á árinu.“
STEFNT er að því að bjóða út nú í
haust framkvæmdir við lýsingu
Hellisheiðar, frá Sandskeiði austur
fyrir fjall og um Þrengsli.
„Staða málsins er sú,“ sagði Árni
Johnsen, fyrsti þingmaður Suður-
landskjördæmis, er hann var spurð-
ur um verkefnið, „að við, þingmenn
kjördæmisins, vinnum að því að
verkið verði boðið út í haust án þess
að sveitarfélögin eða orkustofnanir
þurfi að taka á sig fjárhagslegar
skuldbindingar varðandi vexti og
verðbætur eins og um var að ræða
þegar málið var kynnt síðla vetrar.“
Árni sagði að alþingismenn Suð-
urlands væru mjög þakklátir sveit-
arfélögunum, Hveragerðisbæ, Ár-
borg og Ölfusi, einnig veitu-
fyrirtækjunum RARIK og Orku-
veitu Reykjavíkur fyrir jákvæð
viðbrögð við bréfi sem allir þing-
menn Suðurlands sendu þeim síð-
astliðinn vetur með ósk um að sveit-
arfélögin og stofnanirnar kæmu að
framkvæmd lýsingar frá Sand-
Stefnt að útboði
lýsingar austur
fyrir fjall í haust
Selfossi. Morgunblaðið.
SAMKVÆMT könnun á ferða-
venjum í Breiðholtshverfum vet-
urinn 2000–2001 ferðast 76,9%
fólks með einkabílum þegar horft
er til allra einstaklinga á aldrinum
6–80 ára. Þar af ferðast aðeins
15,2% sem farþegar en 61,7% sem
ökumenn. 3,7% ferðast með al-
menningsvögnum, 0,1% á hjóli og
19,3% ganga.
Þegar einungis er horft á ferðir
til og frá vinnu þá ferðast 91,8%
með einkabílum, þar af 85,6% sem
ökumenn og 6,2% sem farþegar,
2,3% með almenningsvögnum,
0,2% hjóla og 5,7% ganga til vinnu.
76,9% með bílum