Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 16
AKUREYRI 16 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ SJÖFN hf. á Akureyri er eina efnaverksmiðja landsins sem notar engin niðurbrotsefni í framleiðsluvörur sínar. „Fyrir- tækið tók þá stefnu fyrir tveim- ur árum að skipta þessum efn- um út fyrir dýrari og umhverfisvænni efni og við er- um staðráðnir í því að fylgja framþróun á því sviði. Við höld- um því hiklaust fram að Sjöfn sé umhverfisvænasta efnavöru- fyrirtæki landsins,“ sagði Bald- ur Guðnason framkvæmdastjóri Sjafnar í samtali við Morgun- blaðið. Í OSPAR-samkomulaginu sem svo er kallað og Íslend- ingar eiga aðild að er kveðið á um að dregið verði úr notkun efnanna nónýlfenól-etoxýlöt og þrátt fyrir tilmæli um að notkun þeirra í iðnaði verði hætt á þessu ári eru þau enn fyrir hendi í efnum frá öðrum ís- lenskum verksmiðjum, eins og kom fram í Morgunblaðinu í síð- ustu viku. Neikvæð áhrif nónýlfenóla, sem eru eitt niðurbrotsefna nónýlfenól-etoxýlata, og nón- ýlfenól-etoxýlatanna sjálfra á líf- ríkið eru þekkt og m.a. hafa rann- sóknir vísindamanna leitt í ljós að nónýlfenól og jafnvel nónýlfenól- etoxýlöt hafi svipuð áhrif og kven- hormónin estrogen. Þau geta þann- ig haft alvarleg áhrif á frjósemi dýra og manna. Niðurbrotsefnin nónýlfenól eru þrávirk, safnast fyrir í fæðukeðj- unni og geta borist í menn, t.d. við neyslu sjávarafurða. „Umrædd efni hafa verið bönnuð í Svíþjóð og má teljast undarlegt að yfirvöld holl- ustu- og umhverfismála á Íslandi skuli ekki fara að dæmi Svía. Ráða- menn Sjafnar hf. ákvaðu 1999 að hætta alveg að nota nonýlfenól- etoxýlöt í framleiðslunni, það var ekki sársaukalaust því vörur án þessara efna eru jafn- an dýrari í framleiðslu og gera má ráð fyrir að keppinautarnir hér innanlands, sem enn nota nonýlfenól-etoxýlöt í sinni fram- leiðslu, hafi náð að auka eitt- hvað markaðshlutdeild sína tímabundið með því að geta boðið ódýrari vöru,“ sagði Bald- ur Guðnason. Ásgeir Ívarsson, efnaverk- fræðingur hjá Sjöfn, undirstrik- ar að notkun nonýlfenól-etox- ýlata sé lögleg, enn sem komið er, „en segja mætti að hún sé að vissu leyti siðlaus,“ eins og hann orðaði það, vegna vitneskju um hve hættuleg þau geta reynst. Hann segir líklegt að umrædd efni séu í tjöruhreinsum sem mikið séu notaðir til að þvo bíla hérlendis, aðallega á vetrum. Hann segir að í ársbyrjun 1999 hafi þáverandi forráða- menn Sjafnar fyrst byrjað að minnka notkun nefndra efna, en „fljótlega var markvisst hafist handa við að hætta notkun efn- anna og þau voru öll komin úr notkun hér þá um sumarið.“ Ásgeir segir eitthvað hafa dregið úr notkun efnanna í framleiðslu hérlendis, „en yfirvöld eiga að beita sér og banna hreinlega þessi efni fyrst framleiðendur sjá ekki sjálfir sóma sinn í að hætta að nota þau, líkt og Sjöfn gerði forðum,“ sagði Ásgeir Ívarsson. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Baldur Guðnason, framkvæmdastjóri Sjafnar hf. á Akureyri, til vinstri, og Ás- geir Ívarsson, efnaverkfræðingur hjá fyrirtækinu. Sjöfn eina efnaverksmiðja landsins sem notar ekki niðurbrotsefni í hreinsivörur Notkunin lögleg, en að vissu leyti siðlaus DAGSKRÁ þjóðhátíðardags- ins hefst kl. 13.30 á Hamar- kotsklöppum á Akureyri. Þar leikur Lúðrasveit Akureyrar, Kór Glerárkirkju syngur, sr. Guðmundur Guðmundsson stjórnar helgistund og Sig- urður J. Sigurðsson forseti bæjarstjórnar flytur hátíðar- ávarp. Skrúðganga verður kl. 14.15 frá Umferðarmiðstöð- inni að Skautahöllinni þar sem hátíðardagskrá fer fram við syðri tjörnina við Skauta- höllina. Karías og Baktería stjórna dagskránni, en m.a. verða flutt ávörp nýstúdenta frá Menntaskólanum á Akur- eyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Kristján Þór Júl- íusson bæjarstjóri flytur ávarp, fluttur verður leikþátt- ur og leikin tónlist auk þess sem flutt verða dans- og söngatriði. Skátatívolíið Með sól í hjarta verður á svæðinu og einnig þrautabraut fyrir börnin. Um kvöldið verður sam- koma á Ráðhústorgi sem þau Þorsteinn Bachmann og Laufey Brá Jónsdóttir stjórna. Þar verður m.a. tón- list af ýmsu tagi og eldatriði frá fjöllistahópi. Gömlu dans- arnir verða leiknir í göngu- götu. Kassabílarallý Klakks verð- ur í Langholti kl. 11 um morguninn og þá verður bíla- sýning Bílaklúbbs Akureyrar við Oddeyrarskóla opin frá kl. 10 til 18. Fjölbreytt dagskrá á þjóðhátíð- ardaginn HÖLDUR ehf., umboðsaðili Heklu hf. á Akureyri, er helsti samstarfs- aðili knattspyrnudeildar KA í sum- ar eins og undanfarin ár og er aug- lýsing frá Mitsubishi Motors sem fyrr á keppnisbúningi meist- araflokks. Gengið var formlega frá samningnum kvöld eitt í vikunni, að viðstöddum leikmönnum KA sem voru að ljúka æfingu en það voru tveir fyrrverandi leikmenn félags- ins sem staðfestu samninginn með undirskrift. Á myndinni mundar pennann Bjarni Jónsson, stjórn- armaður í knattspyrnudeild KA, en til vinstri er Steingrímur Birgisson, framkvæmdastjóri Hölds, sem áður hafði ritað nafn sitt á plaggið – á baki Erlings Kristjánssonar, fyrr- verandi fyrirliða KA og núverandi aðstoðarþjálfara Þorvalds Örlygs- sonar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Höldur í samstarfi við KA MENNTASKÓLANUM á Akur- eyri verður slitið að morgni þjóðhá- tíðardagsins, 17. júní, í Íþróttahöll- inni á Akureyri. Flutt verður tónlist og fulltrúar afmælisárganga ávarpa samkomuna auk þess sem Tryggvi Gíslason skólameistari flytur ræðu. Opið hús verður í skólanum frá kl. 14 til 17 þar sem gestum verður boðið að skoða húsakynni, búnað og listaverk í eigu skólans og þiggja kaffisopa og kökubita. Á Hólum verður sýning á verkum nemenda, m.a. kvikmyndum, vefsíðum, rit- gerðum, bókum og veggspjöldum. Hátíðarveisla nýstúdenta verður í Íþróttahöllinni um kvöldið og er útlit fyrir að hana sæki allt að 1.000 manns að þessu sinni. Skólaslit MA VERULEGUR skriður er kominn á þróun þekkingarþorps eða hátækni- garða í Garðabæ. Hefur skipulags- nefnd samþykkt að kynna breytingu á aðalskipulagi bæjarins, með það að markmiði að hægt verði að byggja upp slíka starfsemi í Urriðaholtslandi sem áður var ætlað undir íbúðabyggð. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist á svæðinu strax á næsta ári. Eins og Morgunblaðið greindi frá á haustmánuðum er hugmyndin að byggja á þessu svæði sérstakt sam- félag fyrirtækja sem tengjast há- tækniiðnaðinum og hefur verið stofn- að sérstakt fyrirtæki, Þekkingarhúsið ehf. um þá hugmynd. Landið er í eigu Oddfellow-reglunnar en að sögn Ing- vars Kristinssonar, stjórnarmanns hjá Þekkingarhúsinu, eru samnings- viðræður um leigu á landinu á loka- stigi. Hann segir að deiliskipulagsvinna á svæðinu hafi hafist strax eftir síðustu áramót en hönnun þess er í höndum arkitektafyrirtækisins Tekton og bandarísku arkitektastofunnar Arr- owstreet. „Deiliskipulagið er að okkar mati nánast að verða tilbúið og þegar það er frá er næsta skrefið að fara að teikna byggingar. Við reiknum með því að á haustmánuðum verði gengið til samninga við hönnuði varðandi gatnahönnun og skolplagnir svo eitt- hvað sé nefnt, fyrir utan húsin sjálf,“ segir Ingvar. 200–250 þúsund fermetrar Hann segir stefnt að því að hefjast handa við framkvæmdir upp úr ára- mótum. „Við sjáum þetta verkefni teygja sig yfir 25–30 ár og á þeim tíma verður heildarbyggingamagn um 200–250 þúsund fermetrar. Fyrsti áfangi er eitthvað um 57 þúsund fer- metrar og hann sjáum við rísa á svona þremur til fimm árum. Til saman- burðar má geta þess að Smáralind er um 61 þúsund fermetrar þannig að þetta er töluvert mikið bygginga- magn,“ segir Ingvar. Að sögn Ingvars er það lykilatriði í uppbyggingu hátæknigarðanna að fá háskóla inn á svæðið. „Við höfum ver- ið að kynna okkur rekstur á svona há- tæknigörðum erlendis og það er alls staðar sama módelið – árangurinn hefur verið bestur þar sem háskóli, iðnaður og rannsóknarstofnanir koma saman að uppbyggingunni. Þess vegna höfum við kynnt málið fyrir háskólunum hérna í Reykjavík og fengið mjög jákvæð viðbrögð. Hann segir sterka fjárfesta á bak við verkefnið og nefnir í því sambandi þá bræður Sigurð Gísla og Jón Pálmasyni og Íslenska hugbúnaðar- sjóðinn. „En við munum auðvitað bæði afla okkur hlutafjár í þessu og svo leita til annarra fjárfesta og það er eitt af því sem verður unnið í strax í haust.“ „Ætlum að verða fyrstir“ En hvað með samkeppni á þessu sviði í ljósi nýkynntra hugmynda um hátæknimiðstöð í Kópavogi og víðar? „Við vitum af þessum svæðum og auð- vitað skiptir máli að vera fyrstur í þessu. Við höfum reyndar sagt að þessi svæði sem menn eru að horfa á annars staðar séu of lítil, því þau ná ekki að byggjast upp með tímanum eins og við viljum en allstaðar erlend- is þar sem við höfum komið hefur ver- ið varað við því að hugsa of smátt í upphafi.“ Hann segir ljóst að ekki sé rúm fyr- ir marga hátæknigarða á landinu og því sé enn mikilvægara að vera fyrstir á ferðinni. „Við erum með fjárfesta og fyrirtæki sem ætla að koma þarna inn og við erum með nægjanlegt svæði til að koma háskólum og öðrum stofn- unum fyrir. Þetta er ekki fyrir hendi á öðrum stöðum þannig að við ætlum okkur að verða fyrstir og við verðum það,“ segir hann að lokum. Tölvumynd/Landmat og Tekton Hugmynd að skipulagi hátæknigarða við Urriðaholtsland. Hafist handa á næsta ári Garðabær Breyting á aðalskipulagi kynnt með hátæknigarða fyrir augum AÐ SÖGN Ásdísar Höllu Bragadótt- ur bæjarstjóra er skriður kominn á málið með tillögu skipulagsnefndar um að kynna fyrir Hafnarfjarðarbæ, Kópavogi, umhverfisnefnd Garða- bæjar og Náttúruvernd ríkisins breytingu á aðalskipulagi bæjarins. „Þetta er fyrsta stóra ákvörðunin sem er tekin í þessu máli og ef bæj- arstjórn samþykkir þessa tillögu skipulagsnefndar þá færir ákvörð- unin okkur miklu nær því að þetta geti orðið að veruleika,“ segir hún og bætir því við að gert sé ráð fyrir því að þessi hugmynd fari í almenna og opna kynningu í lok þessa mán- aðar. Hún staðfestir að gangi allt að óskum ætti uppbyggingin að geta hafist strax á næsta ári. Þá segir hún viðræður hafa staðið við Vegagerðina um að tengja þetta svæði við Reykjanesbrautina sem gerði það mun meira miðsvæðis en nú er. „Þær viðræður hafa gengið vel og við erum með í sjónmáli ákveðna skammtímalausn á teng- ingu fyrir næstu árin og svo erum við í samvinnu við Vegagerðina að skoða lausn til lengri tíma,“ segir Ásdís Halla. Hún segir verkefnið afskaplega spennandi. „Hvort þetta verður að veruleika veit maður aldrei því það eru margir áfangar á leiðinni. Fram til þessa hefur þessari hugmynd þó miðað ákaflega vel áfram og ég held að það sé stór áfangi fyrir allt höf- uðborgarsvæðið að það skuli loksins vera búið að skilgreina jafn stórt svæði fyrir hátæknigarð.“ „Miðar vel áfram“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.