Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 51

Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 51 DAGBÓK LJÓÐABROT BARMAHLÍÐ Hlíðin mín fríða hjalla meður græna og blágresið blíða og berjalautu væna, á þér ástaraugu ungur réð ég festa, blómmóðir bezta! Sá ég sól roða síð um þína hjalla og birtu boða brúnum snemma fjalla. Skuggi skauzt úr lautu, skreið und gráa steina, leitandi leyna. Blómmóðir bezta, beztu jarðargæða gaf þér fjöld flesta faðir mildur hæða. Hver mun svo, er sér þig, sálar þjáður dofa, að gleymi guð lofa? Jón Thoroddsen REYNDIR spilarar eru inn- an við mínútu að sjá vinn- ingsleiðina á fjórum spöð- um. Tekurðu tímann? Suður gefur; NS á hættu. Norður ♠ Á8743 ♥ K8 ♦ G65 ♣ DG9 Vestur Austur ♠ 5 ♠ K9 ♥ 763 ♥ G109542 ♦ ÁKD984 ♦ 102 ♣1086 ♣K42 Suður ♠ DG1062 ♥ ÁD ♦ 73 ♣Á753 Vestur Norður Austur Suður -- -- -- 1 spaði 3 tíglar 4 spaðar Allir pass Vestur byrjar á þremur efstu í tígli og suður trompar í þriðja slag. Líttu nú á úrið. Stökk vesturs í þrjá tígla er hindrun og því er mjög ólíklegt að hann eigi svartan kóng til hliðar. Miðað við þá forsendu, tekur sagnhafi spaðaás, síðan tvo slagi á hjarta og spilar austri inn á spaðakóng. Austur verður þá að gefa slag, annaðhvort með því að spila hjarta í tvö- falda eyðu eða laufi frá kóngnum og eyðileggja tíu vesturs. Þetta var fljótlegt. En nú er að finna vörnina og það gæti tekið lengri tíma. Vissulega gæti vestur skipt yfir í spaða í öðrum slag (þótt enginn myndi gera það við borðið), en það dugir bara ekki til. Sagnhafi tæki með ás, síðan tvisvar hjarta og spilaði tígli. Aust- ur lendir í sömu klípunni. Hins vegar er vörn til mið- að við það að vestur spili fyrst ÁKD í tígli. Austur trompar einfaldlega þriðja tígulinn með kóng og losar sig út á spaða! Vörnin fær þá alltaf slag á lauf. Hvað tók þetta langan tíma? BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarsson GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 16. júní, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Margrét S. Magnúsdóttir og Bogi Pétursson, fyrrverandi forstöðumaður Sumarbúðanna að Ástjörn, til heimilis að Víðimýri 16, Akureyri. GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 16. júní, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Þórunn Pálsdóttir og Óli Gunnars- son, Skógum, Kópaskeri. Fjölskyldan kemur saman í tilefni dagsins í Pakkhúsinu á Kópaskeri. Árnað heilla STAÐAN kom upp á Evr- ópumóti einstaklinga sem er nýlokið í Ohrid í Makedóníu. Alls tóku fjórir íslenskir skákmenn þátt. Núverandi Íslandsmeistari, Jón Viktor Gunnarsson (2366), hafði hvítt gegn franska stór- meistaranum Igor Nataf (2552). 27.Hxh6! Da5+ Hvorki gekk upp að leika 27...gxh6 28.Rxg4+ Kg8 29.Rxh6# né heldur 27...gxf6 28.Hxf6 Hxf6 29.Dg5 og hvítur vinnur. 28.Kd3! gxf6 29.Hxf6 Hxf6 30.Df4? Grátleg mistök sem missa skákina niður í jafntefli. Eftir 30.Bxf6+ Kg8 31.Kxc4 er hvíta staðan gjörunnin þar sem útilokað er fyrir svartan að þráskáka þar sem hvítur hefur algjör yfirráð yfir svörtu reitunum. Í fram- haldinu tekst svörtum að bjarga sér á meistaraleg- an hátt. 30...Kg8 31.Dxf6 Be2+! 32.Ke3 32.Kxe2 hefði verið hættu- legt hvítum eftir 32...Hc2+ 33.Kf3? Dh5+ og svartur vinnur. 32...Dc5+ 33.Bd4 Da3+ 34.Kf2 Df3+! og jafnt- efli samið enda eftir litlu að slægjast eftir 35. Dxf3 Bxf3 36. Kxf3 Hxd4. Mjóddarmót Hellis verður haldið í dag, 16. júní, í göngugötunni í Mjódd. Taflið hefst kl. 14.00 SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Hljómsveitarnámskeið fyrir börn og unglinga Viltu spila í hljómsveit á trommur, gítar, hljómborð eða bassa? 6 tíma námskeið. Nýtt námskeið hefst 18. júní. Verð kr. 8.000. Innritun í síma 567 0399. Tónskóli Hörpunnar, Gylfaflöt 5 í Grafarvogshverfi. Til hamingju!!! Við óskum eigendum Hótels Klappar við Klapparstíg innilega til hamingju með nýtt og glæsilegt hótel, og þökkum um leið fyrir samstarfið.Skeifan 7 sími 525 0800 Sérverslun með vönduð teppi á hótel, skrifstofur, stigaganga fjölbýlishúsa og heimili. STJÖRNUSPÁ ef t i r Frances Drake TVÍBURAR Afmælisbarn dagsins: Þú ert gæddur ótrúlegum aðlögunarhæfileikum og leggur mikið á þig til þess að kynnast nýjum hlutum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Láttu það ekkert á þig fá þótt einhverjir séu að gera grín að forvitni þinni því það er hún sem hefur leitt þig á ókunnar slóðir og oftar en ekki fært þér happ. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú gætir átt von á því að ein- hver sem þú hélst að væri horfinn úr lífi þínu snýr aftur og þá reynir á hvort þú vilt gleyma og fyrirgefa. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Láttu hið liðna vera liðið og líttu fram á veginn. Þú þarft enga yfirbót að gera en verð- ur umfram allt að losa þig við pirringinn og reiðina. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þótt alltaf sé gaman að kynn- ast nýju fólki skaltu fara þér hægt og kynna þér málin áður en þú tekur nokkra ákvörðun um framhald. Mundu að lengi má manninn reyna. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vilji er allt sem þarf hvort heldur þig langar að ræða eitthvað eða leysa einhverja manndómsþraut. Leggðu metnað þinn í að vinna vel það sem þú tekur þér fyrir hend- ur. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þótt þeir sem þú réttir hjálp- arhönd hafi ekki mörg orð um þakklæti sitt skaltu ekki láta það slá þig út af laginu. Þín gleði er að hafa gert góðverk. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Tækifærin eru á hverju strái og það er bara að vera nógu snöggur að grípa gæsina þeg- ar hún gefst. Mundu samt að þú þarft að taka afleiðingum gjörða þinna. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Þú mátt alveg slá svolítið af stjórnsemi þinni því þegar hún gengur út í öfgar skemm- ir þú mjög fyrir þér í augum þess sem síst skyldi. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Flanaðu ekki að neinu varð- andi fjárfestingu heldur veltu hlutunum vandlega fyrir þér og skoðaðu málin frá öllum hliðum. Óvænt heimsókn lífg- ar upp á daginn. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú þarft að skipuleggja um- hverfi þitt bæði heima og á vinnustað því þegar það er í lagi þá líður þér vel og ert vinnufús og afkastamikill. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er engin ástæða til þess að hætta þótt einhverjar smá- hindranir séu í veginum. Þær eru bara til þess að sigrast á þeim og gefa lífinu lit. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú skalt ekki hika við að rétta fram hjálparhönd ef þér finnst á annað borð að ein- hver sé hjálparþurfi. Gættu þess svo að miklast ekki af hjálpseminni. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 16. júní, verður níræður Guð- bjartur Ó. Ólason, fyrrver- andi skipstjóri frá Bíldudal, Skipholti 6, Reykjavík. Guðbjartur dvelur í dag á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Nesgötu 35, Neskaupstað. FRÉTTIR SJÓRN Stúdentaráðs samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum síðdegis í á fimmtudag: „Stjórn Stúdentaráðs fagnar áliti umboðsmanns Alþingis sem birt var í dag. Með því er tekið undir mál- flutning stúdenta um að Lánasjóður íslenskra námsmanna taki ekki nægilegt tillit til félagslegra að- stæðna lánþega. Fulltrúar SHÍ hafa margsinnis bent á að yfirstjórn LÍN fari ekki að þeim lögum og reglum sem um sjóðinn gilda. Þetta er í annað sinn á nokkrum mánuðum sem umboðsmaður Alþingis gagn- rýnir málsmeðferð LÍN og kemst að þeirri niðurstöðu að sjóðurinn brjóti þau lög sem um hann gilda. Umboðsmaður hefur nú til umfjöll- unar enn eitt málið sem varðar félagslegt tillit til lánþega. Málið er afar svipað því máli sem álitið frá í dag fjallar um og varðar móður með sjúkt barn sem ekki fékk und- anþágu frá endurgreiðslu námslána. Umboðsmaður hefur ítrekað skrifað málskotsnefnd og óskað eftir gögn- um og skýringum en án árangurs. Í tæpt hálft ár hefur nefndin ekki svarað óskum umboðsmanns Al- þingis. Það er sjóðnum til skammar að fá reglulega álit frá umboðs- manni um að stjórnin fari ekki að lögum og reglum og að ekki skuli vera staðið undir þeirri lágmarks- skyldu að veita umboðsmanni nægi- legar upplýsingar. Það er löngu tímabært að stjórn LÍN taki meira tillit til félagslegra aðstæðna og sinni þannig grundvallarhlutverki sínu að tryggja öllum jafnan að- gang að námi.“ LÍN taki meira tillit til félagslegra aðstæðna Lánasjóðurinn fer ekki að lögum ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17. júní nk. verður vígt nýtt aðstöðuhús og tjaldsvæði við Félagsheimilið Þjórs- árver í Villingaholtshreppi í Flóa. Húsbyggingin er nokkuð sérstæð fyrir þær sakir, að ungmennafélagið Vaka sá um alla vinnu við hana ásamt umsjónarmanni Þjórsárvers. Sýnir þetta þann eldmóð og áhuga, sem enn er í ungmennafélagsstarf- semi í þessu fámenna byggðarlagi, segir í fréttatilkynningu. Húsið er 60 fermetrar að stærð og skiptist þannig, að í öðrum hlutanum er áhaldageymsla fyrir íþróttavöll og félagsheimilið. Í hinum hlutanum er fullkomin hreinlætisaðstaða fyrir tjaldsvæðin, ásamt sturtu, þvottavél, gossjálfsala, slökkvibúnaði o.fl. Jafnframt verða tekin í notkun ný tjaldsvæði við Þjórsárver og verður aðstaða nú hin ákjósanlegasta fyrir tjaldstæðisgesti. Félagsheimilið Þjórsárver hefur notið vaxandi vinsælda sem sam- komustaður fyrir skipulagða hópa s.s. ættarmót og starfsmannasam- komur. Þar er nú boðið upp á sér- staka ættarmótaþjónustu, en í henni felst að Þjórsárver hefur milligöngu um að útvega viðskiptavinum alla nauðsynlega þjónustu, s.s. ferðir, veislukost o.fl. og gerir heildartil- boð. Aðstaða hefur verið bætt á ýms- an hátt t.d. með nýjum myndvarpa, endurnýjuðu hljóðkerfi, útigrillum o.fl. Flestar helgar eru bókaðar yfir hásumarið og farið að spyrjast fyrir um næsta ár. Þann 17. júní munu einnig verða teknir í notkun nýir búningar Ung- mennafélagsins Vöku. Ungmenna- félagið Vaka er mjög virkt og þar er haldið uppi öflugu íþrótta- og félags- starfi. Félagið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar m.a. fyrir sérstak- lega þróttmikla barna- og unglinga- starfsemi. Vígja nýtt húsnæði og tjaldsvæði ÞJÓÐDANSAFÉLAG Reykjavíkur fagnar 50 ára afmæli sínu sunnudag- inn 17. júní. Af því tilefni verður efnt til veislu í sal félagsins að Álfabakka 14a, laug- ardaginn 16. júní. Boðsgestir eru á þriðja hundrað. „Hápunktur afmælisársins verður svo dagana 18. – 22. júlí þegar BARNLEK 2001 barna- og unglinga þjóðdansa- og þjóðlagamótið verður haldið hér í Grafarvogi. Þjóðdansa- félag Reykjavíkur var stofnað á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, 1951. Meginhlutverk félagsins er að kanna og kynna þær menningarhefð- ir sem þjóðin á í þjóðdönsum og öllu sem að þeim lýtur, eða eins og segir í lögum þess; vekja áhuga á innlend- um og erlendum þjóðdönsum og stuðla að kennslu þeirra og út- breiðslu. Safna og skrásetja dans- skýringar, kvæði og lög,“ segir m.a. í fréttatilkynningu. Þjóðdansafélagið 50 ára

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.