Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 39
✝ Jón MagnúsFinnsson fædd- ist í Purkey á Breiðafirði 30. ágúst 1927. Hann andaðist á Landspít- alanum við Hring- braut 7. júní síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Kristín Sigríður Magnús- dóttir frá Gerð- hömrum í Dýrafirði f. 11. febrúar 1907, d. 8. júní 1931 og Finnur Karl Jónsson frá Purkey f. 16. febrúar 1898, d. 29. janúar 1979. Jón var eina barn þeirra hjóna. Finnur Karl kvæntist aftur Hólm- fríði Einarsdóttur f. 7. október 1903, d. 1. janúar 1992. Jón átti tvö hálfsystkini, Ólöfu Karlsdótt- ir f. 10. júlí 1935, dáin 23. desem- ber 2000 og Einar Karlsson f. 25. september 1937. 1983. 3) Jón Helgi f. 6. nóvember 1961, maki Ragna Sólveig Eyj- ólfsdóttir f. 28. apríl 1963. Börn þeirra Jón Magnús f. 1984, Eyjólf- ur Fannar f. 1987 og Almar Þór f. 1993. 4) Gunnar Magnús f. 15. september 1967, maki María Stef- ánsdóttir f. 27. mars 1975. Barn þeirra Sólveig Lilja f. 1998. Jón ólst upp í Stykkishólmi til þriggja ára aldurs. Þegar hann missti móður sína aðeins þriggja á gamall fluttist hann í Purkey þar sem hann ólst upp hjá föð- ursystkinum sínum Jóni, Hólm- fríði og Jónínu. Jón varð búfræð- ingur frá bændaskólanum á Hvanneyri 1949 og vann næstu ár við ýmis landbúnaðarstörf. Jón og Sólveig settust að í Borgarnesi 1954 og áttu þar sitt heimili. Jón hóf þá störf sem veghefilsstjóri hjá Vegagerð ríkisins og gegndi því starfi allt þar til hann hætti vegna heilsubrests árið 1994. Jón keypti jörðina Dagverðarnes á Fellsströnd árið 1954 og nýtti hlunnindi hennar flest sumur eft- ir það. Jón verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju í dag, laugar- daginn 16. júní, kl. 14:00. Jón kvæntist 29. desember 1959 eftir- lifandi eiginkonu sinni Sólveigu Gutt- ormsdóttur húsmóð- ur, f. 28. maí 1927, frá Svínafelli í Hjalta- staðaþinghá. Foreldr- ar hennar voru Gutt- ormur Sigri Jónasson f. 12. október 1896, d. 12. mars 1962 og Jó- hanna Magnúsdóttir f. 29. ágúst 1893, d. 12. apríl 1949. Börn Jóns og Sólveigar: 1) Guttormur 13. janúar 1958, d. 28. janúar 1961. 2) Krist- ín Finndís f. 19. ágúst 1960, maki Stefán Kalmansson f. 9. febrúar 1961. Barn þeirra Jóhanna Katrín f. 2001. Kristín var áður gift Kristjáni Eðvarðssyni f. 19. maí 1957, d. 23. mars 1997. Börn þeirra Ingvar Arndal f. 1978, Óm- ar Arndal f. 1978 og Anna Ólöf f. Við þökkum samfylgd á lífsins leið, þar lýsandi stjörnur skína, og birtan himneska björt og heið, hún boðar náðina sína. En alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. Elsku pabbi. Það er sárt að þurfa að kveðja þig sem alla tíð varst máttarstólpi í lífi mínu. En ég hugga mig við það að nú ertu laus úr heftum líkama eftir að þú lam- aðist fyrir sjö árum og getur aftur hlaupið um eyjarnar þínar sem þér þótti svo vænt um. Með þessari litlu kveðju vil ég þakka þér allt það sem þú varst börnunum mín- um. Betri afa gátu þau ekki átt. Við Stefán biðjum guð að styrkja fjöl- skylduna og að hjá þér ríki náð og friður. Þín dóttir Kristín Finndís. Í dag verður til moldar borinn Jón Finnsson. Hann starfaði sem veghefilsstjóri til margra ára í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Allir sem þekktu til starfa hans á þess- um sviðum minnast hans með hlýju og virðingu, þá sérstaklega þeir sem áttu leið um Holtavörðuheiði í vondum vetrarbyljum. Þá var gott að eiga hauk í horni er óblíð veðr- átta geisaði. Þú varst alltaf síðastur af heiðinni. Ég kynntist fyrst Jóni og hans eftirlifandi góðu konu Sólveigu, er ég kom til kennslustarfa í Borg- arnesi haustið 1967. Einnig kenndi ég börnum þeirra þremur, en eitt barna þeirra lést á unga aldri. Ekki bjóst ég við því þá, að Jón Helgi sonur ykkar yrði seinna tengdasonur minn, en milli mín og hans hefur ætíð verið góður vin- skapur. Eftir þann aðburð efldist eðlilega kynning milli fjölskyldu þinnar og minnar. Hún bar alltaf vitni um hlýhug, hjálpsemi og sér- stakt vinarþel okkur til handa. Svo vel þekkti ég Jón Finnsson að ekkert myndi hafa verið honum meira að móti skapi en að kast- ljósið beindist að honum í orð- mörgu lofi. Hann kom mér fyrir sjónir sem hlédrægur einfari með rætur djúpt í íslenskri bændamenningu, er vildi komast undan fánýti hversdagsins og alls tildurs. Það var nú samt, Jón minn, ómetanleg reynsla að kynnast þér, njóta þinnar andagiftar, upp- fræðslu af sögum þínum og sögnum úti í Purkey á góðum sumardegi í júnímánuði. Þar skynjaði ég þína djúpu réttlætiskennd með öllu sem lifir á þessari jörð. Með glettni í augum, góðlátlegu gríni og tilheyr- andi snurli í pípu þinni, horfðum við borgarbörnin opinmynnt með spurul augu á þig. Þá flugu margar sögur af þínum vörum með náttúr- una alla í fyrirrúmi. Nú er þinni sögu lokið á þessari jörð og þú siglir yfir móðuna miklu á vit feðra þinna. Sólveigu og ástvinum þínum sendi ég og fjölskyldan mín okkar dýpstu samúðarkveðjur. Hér er góður drengur kvaddur. Eyjólfur Magnússon Scheving. Vorið er gengið í garð og sum- arið komið en það var sá tími árs- ins sem pabbi hélt hvað mest upp á. Annríki vetrarins var að baki en hann starfaði sem veghefilsstjóri hjá vegagerðinni í Borgarnesi en þar var vinnudagurinn oft langur og strangur. Þegar vorið kemur kviknar allt líf í náttúrunni, fuglinn fer að setjast upp og undirbúa varp bæði í Purkey og Dagverðarnesi. Þá var allur búnaðurinn tíndur til og Broncoinn hlaðinn svo að fjaðr- inar sneru öfugt. Ferðinni var heit- ið vestur til að sinna varpinu, tína dún og fleira. Hugur pabba var fyr- ir vestan og hugmyndaflugið um hvernig landið skyldi nýtt var frjótt í meira lagi. Hann var flinkur véla- maður það kom ekki á óvart að hann var frumkvöðull í því að nýta slátturpramma sem þörungarverk- smiðjan á Reykhólum leigði út til þangsláttar, en menn höfðu ekki komist upp á lag að nota þá við JÓN MAGNÚS FINNSSON slátt á þangi. Við bræðurnir reynd- um að fylgja honum í verki og fag- mensku en við komust ekki með tærnar þar sem hann hafði hælana, því dugnaðurinn og áhuginn var svo mikill. Samverustundir með pabba voru okkur lærdómsríkar, hann þekkti hvern stein í Purkey og Dagverðarnesi. Hann miðlaði okkur að reynslu sinni því margar eru hætturnar þegar siglt er um eyjarnar. Það voru ófá örnefnin sem hann kunni lagði hann mikla áherslu á að þau gleymdust ekki. Minkaveiðin var sér kapítuli, það voru ófáir minkarnir sem hann veiddi en þeir skipta hundruðum, engin var eins fær að skjóta þá á færi og var unun að horfa á þegar hann mundaði byssuna. Pabbi sagði líka oft að mikil er þeirra ábyrgð sem tóku þá ákvörðun að flytja mikinn inn í viðkvæma Íslenska náttúru. Árið 1994 veiktist hann al- varlega og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús fyrsta skipti á ævinni. Þetta varð honum mjög þungbært og í kjölfarið hætti hann að vinna og erfiðara var fyrir hann að fara vestur vegna fötlunar sinnar. Þetta varð nú ekki til þess að hann hætti að sinna fjölskyldunni eins hann var vanur að gera, hjálpa til og sinna barnabörnunum sínum. Hringingarnar hans voru frægar í fjölskyldunni því hann vildi fylgjast með því sem var að gerast, þá not- að hann símann óspart. Hann var hrókur alls fagnaðar og gamansam- ur, hafði mikla frásagnarhæfileika og það var hrein unun að heyra hann segja frá því sem í gegnum daga hans hafði drifið. Nú er komið að leiðarlokum ferð- irnar verða ekki fleiri vestur og símtölin ekki fleiri. Minningin um góðan föður og afa lifir. Biðjum góðan Guð að gefa mömmu og ömmu styrk á þessari sorgar- stundu. Jón Helgi og fjölskylda, Gunnar Magnús og fjölskylda. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 39 ✝ Guðrún Magnús-dóttir (Stella frá Búðum) fæddist á Búðum þann 29. júní 1937. Foreldrar hennar voru Magnús Valdimar Einarsson, f. 28.9. 1899, d. 2.12. 1991, og Guðný Ólöf Oddsdóttir, f. 18.6. 1906, d. 16.5. 1969, bændur á Búðum í Staðarsveit. Hún ólst upp á Búðum og var næst elst sjö systk- ina. Þann 1. desember 1961 giftist hún eftirlifandi eigin- manni sínum Emanúel Ragnars- syni, f. 13.12. 1941. Mestallan sinn búskap bjuggu þau í Ólafsvík, fyrst á Dvergasteini og síðan að Stekkjarholti 6. Þau eignuðust þrjú börn: Magnús Guðni, f. 15. nóvember 1961, kvæntur Arndísi Þórðardóttur frá Vík í Mýrdal. Synir þeirra eru Emanúel 18 ára, Jón Þór 12 ára og Guðlaugur 10 ára. Unnur, f. 28. mars 1965, í sambúð með Aðalsteini Kristóferssyni frá Ólafsvík. Þeirra syn- ir eru Magni Jens 8 ára og lítill drengur rúmlega 2 mánaða. Jarðsungið verður frá Ólafsvík- urkirkju í dag klukkan 13. Jarð- sett verður í Búðakirkjugarði sama dag. Einn af stofnfélögum Lions- klúbbsins Ránar í Ólafsvík, Guðrún Magnúsdóttir, verður jarðsungin frá Ólafsvíkurkirkju í dag. Það eru aðeins tæpir 2 mánuðir síðan hún greindist með krabba- mein, svo það má segja að baráttan hafi verið stutt. En við sem þekkt- um hana vissum að hún var búin að vera lasin í marga mánuði. Það var ekki hennar stíll að kvarta eða gera meira úr hlutunum en efni stóðu til. Stella, eins og hún var jafnan kölluð, var vönduð, dugleg og af- skaplega hlédræg manneskja. Hún var traustur og góður félagi í Rán. Þau verkefni sem hún tók að sér voru vel afgreidd af hennar hálfu. Það var aðeins eitt sem hún vildi alls ekki gera, það var að fara í ræðustól. Það var gott að lenda í sama flokki og Stella við verkefna- skipan, allt undirbúið með góðum fyrirvara. Hún virtist aldrei fara hratt að hlutunum, en það gekk allt svo ljúft og fljótt fyrir sig, það sem hún tók sér fyrir hendur. Emanúel eiginmaður Stellu er einnig Lionsmaður og það má segja að heimili þeirra hafi oft verið skrifstofa Lions á staðnum. Þar var Emmi í fararbroddi og Stella studdi hann í því starfi. Þau hjónin virtust vera svo ólík, en þó var eins og þau hefðu áhuga á því sama. Sumarbústaðurinn þeirra í Breiðuvíkinni hefur verið þeirra athvarf til fjölda ára. Þar hafa margir átt skemmtilegar og góðar stundir hjá þeim hjónum. Það vantaði aldrei uppá að húsmóð- irin hefði ekki nóg að borða. Hún var dugleg að baka og gerði mjög góðan mat. Börnin hennar Stellu eiga nú um sárt að binda. Hún var þeim svo góð og þau vonuðust öll eftir lengri tíma með henni, sumarið átti að vera fyrir hana. Barnabörnin elsk- uðu ömmu sína og hændust að henni, hún var þeim svo mikils virði. Nú þegar þessu stutta stríði er lokið þá er eins og þau viti ekki alveg hvar þau standa. Það er eins með okkur konurnar í Rán, félagið okkar er ungt, aðeins 14 ára, og Stella er sú fyrsta sem fellur frá. Eftir stöndum við meyr- ar og sorgmæddar. Það er gott að geta hugsað um allar ánægjustund- irnar sem við áttum saman. Lions- fólk í Ólafsvík hefur ferðast mikið saman, bæði innanlands og utan. Þau hjónin Stella og Emmi voru oftast eða kannske alltaf með. Þessi þægilega kona sem Stella var verður okkur öllum minnisstæð fyrir jákvæðni sína og dugnað. Hún var í vinnu allt til þess síðasta. Fiskvinna og þrif voru lífsstarf hennar. Hún fór ánægð til vinnu og vinnufélagarnir urðu vinir hennar, þannig var Stella. Við viljum þakka Stellu fyrir ósérhlífni og vel unnin störf fyrir félagið. Kæri Emmi, við vottum þér og allri fjölskyldunni innilega samúð. Guð blessi minningu Guðrúnar Magnúsdóttur. Lionsklúbburinn Rán, Ólafsvík. Kom, huggari, mig hugga þú, Kom, hönd og bind um sárin, Kom, dögg, og svala sálu nú, Kom, sól og þerra tárin, Kom, hjartans heilsulind, Kom, heilög fyrirmynd, Kom, ljós, og lýstu mér, Kom, líf, er ævin þver, Kom, eilífð, bak við árin. (V. Briem.) Í dag kveðjum við í hinsta sinn Guðrúnu Magnúsdóttur eða Stellu eins og hún var ávallt kölluð. Við eigum erfitt með að sætta okkur við að svona yndisleg og góð kona hafi verið tekin frá okkur allt of fljótt því betri sál var vand- fundin. Ég sé hana fyrir mér hlæj- andi og þegar ég hugsa til baka þá man ég að ég hef aldrei séð Stellu skipta skapi, hún var glaðvær og tók lífinu eins og það var, hún tal- aði aldrei illa um einn eða neinn. Hún var einstaklega lagin við allt sem hún tók sér fyrir hendur og gat saumað kjóla og fleira þótt hún hefði aðeins séð þá einu sinni og þurfti því ekki snið af flíkinni. Ég vil þakka Stellu fyrir að hafa reynst móður minni góð vinkona og hennar skarð verður aldrei fyllt, það kemur enginn í staðinn fyrir hana. Móðir mín gat alltaf leitað til hennar ef eitthvað bjátaði á og stóð Stella þá ávallt eins og klettur við bak hennar, ekki síst þegar faðir minn var fjarverandi vegna vinnu sinnar. Ég bið góðan guð um að varð- veita þig, elsku Stella mín, og þakka þér fyrir allt. Elsku Emmi, Maggi, Unnur, Teddi og fjölskyldur, megi góður guð veita ykkur styrk í þessari miklu sorg. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér fylgja í friðarskaut. (V. Briem.) Blessuð sé minning hennar. Petrína Sæunn. Elsku amma. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Emanúel Þórður, Jón Þór, Guðlaugur, Magni Jens og óskírður drengur. Elsku Stella mín. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Arndís Þórðardóttir. GUÐRÚN MAGNÚSDÓTTIR Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.