Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. STJÓRN Reykjavíkur – Menn- ingarborgar Evrópu árið 2000 kynnti í gær lokaskýrslu sína og þar kemur m.a. fram að heildarvelta verkefna var 1.842.748 kr. og aðsókn að við- burðum ársins var um fimmföld íbúatala landsins eða 1.476.724. Fjöldi framkvæmdaaðila var 20.273 og fjöldi verkefna á dag- skrá M2000 var 284 og fjöldi viðburða var 2.549. Framlag M2000 til verkefna voru rúmar 367 milljónir. Menningarborg- arverkefnið Veltan tæpir 2 milljarðar  Þáttaskil /12 TALIÐ er að um 6.000 manns hafi hlýtt á tónleika þýsku rokk- hljómsveitarinnar Rammstein í Laugardalshöll í gærkvöld. Að sögn tónleikahaldara voru fleiri sam- ankomnir í Laugardalshöll í gær- kvöld en nokkru sinni fyrr. Rammstein hóf leikinn á slaginu korter yfir níu með leikþætti, en mikið var lagt upp úr öllum sviðs- umbúnaði og léku eldglæringar um sviðið þegar hljómsveitarmeðlimir kveiktu í sprengjum, á neyð- arblysum og meira að segja í eigin fatnaði. Óhætt er að segja að áhorf- endaskarinn hafi ærst þegar Rammstein steig á svið en gríðarleg stemmning hafði þegar myndast meðal tónleikagesta við leik hljóm- sveitarinnar Ham. Vegna fjöldans var mikill viðbún- aður, bæði lögreglu og slökkviliðs, á staðnum. Einnig höfðu verið smíð- aðar sérstakar stálgrindur sem hafðar voru fyrir framan sviðið. Tónleikagestir voru á öllum aldri, þó að ungt fólk hefði verið í miklum meirihluta og nokkuð var um að börn og yngri unglingar væru í fylgd með foreldrum sínum. Rammstein spilaði í eina og hálfa klukkustund og fór allt vel fram. Einn maður var þó handtekinn fyrir utan Höllina þegar hann var stað- inn að því að selja falsaða tónleika- miða. Seinni tónleikar Rammstein verða í kvöld og er búist við álíka fjölda. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aldrei fleiri í Höllinni MEIRIHLUTI nefndar sem sjávar- útvegsráðherra skipaði til að gera samanburð á núverandi starfsum- hverfi sjó- og landvinnslu leggur meðal annars til að útflytjendum á óunnum fiski verði gert skylt að bjóða hann rafrænt til sölu á inn- lendum fiskmarkaði áður en hann er fluttur úr landi. Gunnar Birgisson, alþingismaður og formaður nefndarinnar, segir að þetta sé gert í þeim tilgangi að gefa innlendum vinnslum tækifæri til að bjóða í fiskinn en deilt hafi verið á það að fiskur hafi verið fluttur út í gámum í auknum mæli. Auk hans voru Elínborg Magnúsdóttir, vara- formaður verkalýðsfélags Akraness, og Guðrún Lárusdóttir fram- kvæmdastjóri í nefndinni, en Guðrún skilaði séráliti. Hún fellst ekki á nefnda tillögu og segir að það eigi að vera ákvörðun hvers og eins hvar afl- inn er seldur, hvernig hann er verk- aður og með hvaða skipum hann sé veiddur. Nefndin leggur til að leyfilegur hluti undirmálsfisks í hverri veiði- ferð verði 10% í stað 7% nú og að undirmálsfiskur teljist 35% til afla- marks í stað 50% nú. Gunnar Birg- isson segir að samkvæmt „brott- kastskönnun“ nefndarinnar og stærðarmælingum Hafrannsókna- stofnunar á þorski sé ljóst að gífur- legum verðmætum sé hent í hafið og illa sé gengið um auðlindina, en til- lögurnar miðist að því að breyta þessu. Með þeim séu sjómenn hvatt- ir til að koma með aflann að landi og vinna úr honum verðmæti fyrir þjóð- arbúið, þannig að brottkast verði úr sögunni. Í þriðja lagi er lögð áhersla á að styrkja rafræn viðskipti með fiskaf- urðir og hráefni og í fjórða lagi að hvalveiðar verði hafnar strax. Meirihluti nefndarinnar leggur jafnframt til að afli sé vigtaður inn á vinnslulínur frysti- og fullvinnslu- skipa, en gefinn verði nokkurra ára aðlögunartími vegna breytinganna. Guðrún Lárusdóttir er andvíg þessu vegna þess að um sé að ræða millj- óna króna kostnað fyrir hvert skip og því sé þetta mjög íþyngjandi fyrir sjóvinnsluna. Nefnd um sjó- og landvinnslu Vinnslan fái að bjóða í gámafisk  Hagur landvinnslu/21 ÁFRÝJUNARNEFND samkeppn- ismála staðfesti í gær í úrskurði niðurstöðu samkeppnisráðs um að Fengur hf., Sölufélag garðyrkju- manna svf. (SGF), Bananar ehf., Ágæti hf. og Mata ehf. hafi brotið gegn ákvæðum samkeppnislaga. Áfrýjunarnefndin telur sannað að SGF, Ágæti og Mata hafi haft með sér ólögmætt samráð um verð og skiptingu markaða varðandi við- skipti með grænmeti, kartöflur og ávexti. Nefndin fellst hins vegar ekki á niðurstöður samkeppnisráðs í nokkrum tilvikum um að ólög- mætt samráð hafi átt sér stað eða teljist sannað. Fellst nefndin heldur ekki á það með samkeppnisráði að í aðgerðunum hafi falist sérstakt samsæri gegn hagsmunum neyt- enda. Sektir fyrirtækjanna lækkaðar um 58 milljónir króna Áfrýjunarnefndin lækkar einnig þær sektir sem félögunum er gert að greiða úr 105 milljónum í 47 millj. kr. Er sekt Fengs, Sölufélags garðyrkjumanna og Banana lækk- uð úr 40 milljónum í 25 milljónir, sekt Ágætis er lækkuð úr 35 millj- ónum kr. í 17 millj. og Mötu úr 30 millj. í 5 milljónir. Áfrýjunarnefndin segir m.a. í niðurstöðu sinni að fyrirtækin séu uppvís að brotum á samkeppnislög- um. Telja verði sannað að þau hafi beitt verðsamráði, framleiðslustýr- ingu, markaðsskiptingu og öðrum þeim aðgerðum til að skipta mark- aði varðandi viðskipti með græn- meti, kartöflur og ávexti, draga úr framboði og halda uppi verði. Hins vegar kemur fram í úr- skurðinum að ekki hafi sannast samráð SFG og Mötu um viðskipti með banana á Suðurnesjum og við Nóatúnsverslanirnar. Ekki er fall- ist á að Ágæti hafi átt aðild að ætl- uðu ólögmætu verðsamráði og markaðsskiptingu í viðskiptum félagsins við Mötu. Um Mötu segir m.a. að þótt félagið hafi orðið upp- víst að brotum á samkeppnislögum eigi það hvorki við um viðskipti með banana á Suðurnesjum né til Nótatúnsverslananna. Ekki er fall- ist á að félagið hafi átt aðild að ólögmætu verðsamráði eða mark- aðsskiptingu í viðskiptum við Ágæti. Þá kemur fram í úrskurð- inum að ekki hafi heldur sannast samráð fyrirtækjanna þriggja varð- andi garðyrkjustöðina í Sólbyrgi. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfestir ólögmætt samráð á grænmetismarkaði Brot á lögum talin sönn- uð en sektir lækkaðar  Talið sannað/9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.