Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Spurning: Ég var að lesa gömul Morgunblöð, sem ég fæ send til mín þar sem ég bý erlendis, og rakst á svör þín við spurningum lesenda um „Þunglyndislyf og lík- amsþyngd“. Þú talaðir um þessa mismunandi lyfjaflokka. Konan mín var greind með þunglyndi (manic depression eða geð- hvarfasýki) fyrir um 20 árum og hefur hún tekið lyf síðan. Fyrst tók hún Anafranil (klómipramín) í nokkurn tíma en varð að hætta að taka það lyf vegna þess að hún datt niður einhvers staðar og var flutt á spítala. Læknirinn okkar (sérfræð- ingur á þessu sviði) gaf henni svo Tolvon (míanserín) sem hún hefur tekið síðan og Neurotop (karbama- zepín). Þessi lyf hafa virkað sæmi- lega en ekki alveg 100% og hafa aukaverkanir. Einhvern veginn finnst mér þó að þetta séu gam- aldags lyf (sérstaklega Tolvon) og að það séu mun betri lyf notuð nú til dags. Það er mjög erfitt fyrir mig að fá upplýsingar um þessi efni svo mér datt í hug að spyrja þig ráða Svar: Þunglyndi er af nokkrum mismunandi gerðum og meðferðin fer dálítið eftir því. Þunglyndi má skipta í þrjá meginflokka: 1) þung- lyndi vegna utanaðkomandi erf- iðleika, 2) þunglyndi án augljósrar ástæðu og 3) geðhvarfasýki þar sem skiptast á þunglyndi og oflæti (æði). Um 60% tilfella tilheyra fyrsta flokknum og þessi tegund er meðhöndluð með þunglynd- islyfjum, um 25% tilheyra flokki tvö og eru sömuleiðis meðhöndluð með þunglyndislyfjum og um 15% tilheyra síðasta flokknum sem er meðhöndlaður með þunglynd- islyfjum og auk þess með ýmsum lyfjum sem draga úr geðsveifl- unum. Flest bendir til að þunglyndi stafi af skorti á taugaboðefnum á vissum stöðum í heilanum og að um sé að ræða taugaboðefnin noradr- enalín og serótónín. Taugaboðefni eru efnasambönd sem losna úr taugaendum og flytja taugaboð frá einni taugafrumu til annarrar. Þunglyndislyf voru fyrst þróuð á sjötta áratugnum og verka þannig að þau auka framboð á þessum taugaboðefnum í heilanum en þau gera það á mismunandi hátt. Þessi lyf gera oft mikið gagn og bjarga mörgum mannslífum. Þunglynd- islyfjum má skipta í nokkra meg- inflokka: þríhringlaga lyf (klómipr- amín, nortriptýlin og mörg fleiri), MAO-hemlar (móklóbemíð o.fl.), serótónín endurupptöku-hemlar (flúoxetín (m.a. selt undir nöfn- unum Fontex og Prozac), sertralín og nokkur fleiri) og að lokum ýmis önnur lyf sem verka svipað og þrí- hringlaga lyfin en eru flest nýrri og með heldur minna af aukaverk- unum (míanserín, venlafaxín o.fl.). Þeir sem eru með geðhvarfasýki eru einnig meðhöndlaðir með lyfj- um sem draga úr geðsveiflum og er aðallega um að ræða litíum (t.d. litíumsítrat) og sum flogaveikilyf (valpróat, karbamazepín o.fl.). Ár- angur og aukaverkanir af meðferð með hinum ýmsu lyfjum er mjög einstaklingsbundinn og oft þarf að prófa sig áfram til að finna heppi- leg lyf fyrir hvern sjúkling. Nýrri lyfin, eins og serótónín endur- upptöku-hemlar, eru ekki endilega betri en þau gömlu og henta ekki öllum sjúklingum. Eitt náttúrulyf við vægu þunglyndi er hér á mark- aði, Jóhannesarjurt, sem inniheld- ur efni sem eru serótónín endur- upptöku-hemlar. Almennt gildir að árangur af þunglyndismeðferð er nánast aldr- ei 100% og algengt er að 6-7 af hverjum 10 fái mjög mikinn eða talsverðan bata. Sumar rannsóknir benda til þess að vægt þunglyndi eða depurð svari lyfjameðferð verr en alvarlegt þunglyndi en um þetta eru þó ekki allir sammála, en svo mikið er víst að heilbrigðir ein- staklingar verða ekki glaðari eða hressari við að taka þunglyndislyf. Mörg lyf eru til við þunglyndi MAGNÚS JÓHANNSSON SVARAR SPURNINGUM LESENDA Nýrri lyfin ekki endilega betri en þau gömlu  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn- inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrir- spurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhannssonar: elmag@hot- mail.com. UM allan heim eru notaðir upp- þvottasvampar í eldhúsum. Þeir eru bæði notaðir til að þvo upp leirtau og svo til þess að þurrka af borðum og bekkjum. Á fréttavef Reuters er sagt frá lokaverkefni Eliane Endres, háskólanema í Brasilíu, sem fólst í að skoða hvað væri í holunum og nið- urstöðurnar eru langt frá því að vera geðslegar. Eliane, sem er nemandi í örverufræði, skoðaði 50 svampa sem höfðu verið í notkun í þrjár vikur á venjulegum heimilum og leitaði í þeim að E. coli-bakteríum sem geta fundist í jarðvegi, vatni, þörmum og saur. Hún leitaði einnig að klasa- bakteríum (staphilococcus aureus) en þær má finna á húð. Báðar þessar bakteríutegundir geta valdið sýking- um í mönnum. „Í uppþvottasvampi eru milljónir af holum og þær geta allar verið fullar af bakteríum,“ sagði Eliane er hún kynnti niðurstöður sínar á árlegum fundi The American Society of Microbiology. Mikill gróður Í rannsókn hennar kemur fram að í 86 prósent af holunum var bakt- eríugróður, allt frá nokkur hundruð milljónum upp í billjónir af örverum. Yfir 70 prósent af svömpunum inni- héldu mikið magn af coli-bakteríum, þar af 38 prósent þeirra saurgerla. Staphilococcus aureus mátti finna í 34 prósent svampanna sem Eliane telur ekki óeðlilegt þar sem þeir eru almennt á höndum fólks. „Fjöldi og tegundir gerla í svömpunum ræðst meðal annars af því hvað þú ert að þvo, hvernig vatn þú notar og hvern- ig þú þværð,“ segir Eliane en bætir við að ekki þurfi að koma á óvart að bakteríurnar komi úr matarleifum, hráu kjöti, kjúklingum og grænmeti. Góð ráð Eliane ráðleggur öllum að þvo sér um hendurnar áður en þeir hefja uppvaskið en það gleymi sumir að gera eftir klósettferðir eða þegar þeir hafa skipt á bleiu á barninu. Að uppvaski loknu eigi að skola svamp- inn vel og skilja hann svo eftir eins þurran og hægt sé. Lokaaðvörunin er hins vegar sú að nota svampinn aldrei til að þrífa skurðarbretti. Á þeim séu gjarnan rispur og séu þau nudduð með svampi þrýstist bakter- íurnar ofan í rispurnar og það geti verið ávísun á matareitranir eða sýk- ingar. Morgunblaðið/Jim Smart Er burstinn betri en svampurinn? Svampar eru fullir af sýklum Uppþvottasvampar eru allir í holum og samkvæmt nýrri könn- un eru þær langt frá því að vera tómar. Bakteríur sem þar leyn- ast geta dreifst í borð- búnað og valdið mat- areitrunum! Reuters. HEILASKIMUN á börnum í fjöl- skyldum þar sem nokkrar kynslóðir hafa þjáðst af áfengissýki leiðir í ljós að sá hluti heilans sem tengist helstu tilfinningum er frábrugðinn heilanum í börnum í fjölskyldum þar sem engin áfengismisnotkun var. Dr. Shirley Y. Hill við Háskól- ann í Pittsburgh í Bandaríkjunum og samstarfsfólk hennar greina frá þessum niðurstöðum í júníhefti Bio- logical Psychiatry. Er þetta fyrsta rannsóknin sem sýnir fram á að sá hluti heilans sem er hluti af hringrás er tengist bæði tilfinningum og hugarstarfi kunni að vera smærri í unglingum úr fjöl- skyldum þar sem áfengisneysla er mikil, áður en unglingarnir byrja að drekka, að því er Hill greinir frá. Teknar voru segulsneiðmyndir af 17 unglingum úr fjölskyldum sem töldust vera í mikilli hættu á að verða áfengissjúklingar vegna mik- illar áfengisneyslu skyldmenna. Meðalaldur þátttakenda var 17 ár og hafði enginn þeirra neytt áfengis. Voru þessir unglingar bornir saman við 17 unglinga sem komu úr fjöl- skyldum þar sem áfengisneysla var lítil. Í ljós kom að í þeim sem tilheyrðu fjölskyldum þar sem áfengisneysla var mikil var hægri hluti svonefnds amygdala-svæðis í heilanum minni. Vitað er að á þessu svæði eru stjórnstöðvar helstu tilfinninga og það er hluti af „umbunarhringrás- inni“ í heilanum sem talin er tengj- ast ýmiss konar fíknaratferli, þar á meðal kókaínneyslu og fjárhættu- spili, að sögn Hills. Hún bætti við að ef amygdala- svæðið sé minna kunni það að benda til tafar á þroska og hafi áhrif á um- rædda hringrás. Hill nefndi enn- fremur að fyrri rannsóknir hafi bent til að hægri hluti þessa svæðis kunni að vaxa hraðar á unglings- árum og heilaþroski þessara ung- linga kunni að verða eðlilegur með aldrinum. „Það er enn fremur mikilvægt að unglingarnir sem tóku þátt í rann- sókninni voru yfirleitt mjög gáfaðir og höfðu greindarvísitölu yfir með- allagi og komu úr fjölskyldum í mið- eða efri miðstétt,“ sagði Hill. Hún bætti við að þrátt fyrir það eigi þessir krakkar fremur á hættu að verða háðir áfengi vegna þess að áfengissýki sé algeng í fjölskyldum þeirra. Heilaþroski hjá börnum alkóhólista rannsakaður New York. Reuters. HVORT Bretar eru meiri hrak- fallabálkar en aðrar þjóðir er óstaðfest en víst er að þar eru slys á heimilum býsna algeng og væg- ast sagt af ýmsu tagi eins og fram kemur á fréttavef BBC. Þar má sjá að í skýrslu viðskipta- og iðn- aðarráðuneytisins um árlega at- hugun á slysum á heimilum kemur fram að sex þúsund Bretar slös- uðu sig á síðasta ári þegar þeir voru að klæða sig í buxurnar. Annaðhvort flæktu þeir sig í bux- unum eða þá þeir féllu niður stiga á meðan þeir voru að hysja þær upp um sig. Ekki er getið um hvort Bretar klæða sig almennt í buxur á leiðinni niður stiga en þetta eru alls ekki einu óhöppin tengd fötum eða þvotti á breskum heimilum og í sömu skýrslu kemur fram að tæplega 3.500 manns slasa sig þar í landi í umgengni við þvottakörfur og ekki færri en 11 þúsund á sokkum eða sokkabux- um. Það eru stundum mjög alvar- lega óhöpp og jafnvel dæmi þess að börn vefji þessum fatnaði um háls sér með voveiflegum afleið- ingum. Reuters Skyldu þeir vera á æfingu? Bretar í buxnastreði ÞEGAR frægir menn deyja ótíma- bærum dauða verða til margar kenn- ingar um orsökina. Nú hefur enn ein slík litið dagsins ljós um dauðdaga Wolfgang Amadeusar Mozart en samkvæmt henni var Mozart hvorki myrtur né framdi sjálfsmorð. Nú er það svínakjöt sem nefnt er til sögunnar eða nánar tiltekið sjúk- dómurinn fleskormaveiki (trichinos- is) sem kemur fram þegar borðað er illa steikt eða soðið svínakjöt sem mengað er af sníkjudýrinu trichina. Að sögn dr. Jan W. Hirchman við há- skólann í Washington sem heldur fram þessari kenningu þá dregur þessi sjúkdómur fólk til dauða á 2 til 3 vikum. Dr. Hirschman fór í gegn- um mikið af gögnum um Mozart og þar á meðal var bréf sem hann skrif- aði eiginkonu sinni um 6 vikum áður en hann veiktist og í bréfinu kemur fram að á meðan hann var að skrifa það kom þjónninn hans inn með kvöldmatinn sem voru svínarif og gætu þau verið sökudólgurinn. Máli sínu til enn frekari stuðnings bendir dr. Hirschman á að ólíklegt sé að langvinnur sjúkdómur hafi herjað á Mozart því að afköst hans verið svo mikil allt fram að þeim tíma er hinna hræðilegu einkenna fór að gæta. Gátan verður nú samt óleyst því eng- ar líkamsleifar hafa varðveist sem varpað gætu ljósi á málið. Sjö árum eftir dauða Mozart var gröf hans um- turnað og kirkjugarðurinn notaður aftur til jarðsetninga. Fleskormaveiki banamein Mozarts?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.