Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 49 EVRÓPUMÓTINU í skák er nú lokið og var ánægjulegt og árangurs- ríkt fyrir Íslendinga, að öðru leyti en því að ekki tókst að tryggja sæti á heimsmeistaramótinu í skák. Há- punktur mótsins og það sem á eftir að halda merki þess á lofti í minningunni er áfangi Braga Þorfinnssonar að al- þjóðlegum meistaratitli. Þessum ár- angri náði Bragi þrátt fyrir að mæta til leiks beint úr vorprófunum og hafði því ekkert getað undirbúið sig fyrir mótið. Hannes Hlífar Stefánsson hefur nú teflt á þremur skákmótum í striklotu, en honum var ekki kunnugt um mik- ilvægi Evrópumótsins þegar hann gerði sínar áætlanir fyrir sumarið. Ástæðan var sú, að FIDE hefur enn á ný breytt reglum sínum um heims- meistarakeppnina. Hannes hefur þeyst heimshornanna á milli undan- farnar vikur. Hann tefldi fyrst í Egyptalandi, síðan á Kúbu og nú í Makedóníu. Ljóst er að hann var far- inn að lýjast undir lok Evrópumótsins og náði því ekki að sýna sama árangur og á mótunum í Egyptalandi og á Kúbu. Þannig fékk hann t.d. 3½ vinn- ing í fyrstu 5 umferðunum á Evrópu- mótinu, en í síðustu 8 umferðunum náði hann einungis 3½ vinningi til við- bótar. Þrátt fyrir þetta er ljóst, að Hannes hefur náð dágóðri stigahækk- un út úr þessum þremur skákmótum. Auk þess hefur Hannes sýnt mjög markviss vinnubrögð í undirbúningi sínum undanfarna mánuði og því er enn frekari framfara að vænta hjá honum á næstu mánuðum. Jón Viktor Gunnarsson hækkar töluvert í stigum og sýndi að hann stefnir óðfluga að stórmeistarastyrk- leika. Stefán Kristjánsson bætir við sig skákstigum fyrir frammistöðuna á mótinu og á tímabili var hann hárs- breidd frá því að tryggja sér alþjóð- legan áfanga. Fyrir þá sem fylgdust náið með skákmótinu var það kærkomin nýj- ung að geta heyrt beint frá keppend- unum eftir umferðir í Skákhorninu, umræðuvettvangi skákmanna. Ýmis- legt fróðlegt kom fram í umræðunni þar. T.d. tók sjálfur Viktor Korchnoi Stefán Kristjánsson tali eftir fimmtu umferðina þeg- ar Stefán hafði sigrað Rússann Pavel Smirnov (2.511). Korchnoi hældi Stefáni fyrir góða tafl- mennsku, sagðist hafa fylgst með skákinni en aldrei getað giskað á leiki Stefáns. Það er ekki ónýtt að fá svona hrós frá þessum mikla meistara. Svo vikið sé að loka- umferðinni á mótinu þá klykktu Íslendingarnir út með ágætri frammi- stöðu. Hannes Hlífar Stefánsson og Bragi Þorfinnsson sigruðu í sínum skákum, Stefán Kristjánsson gerði jafn- tefli en Jón Viktor Gunn- arsson tapaði: Hannes - Gad Rechlis (2.525) 1-0 Konstantin Cherny- shov (2.536) - Jón 1-0 Bragi - Farid Abbasov (2.439) 1-0 Stefán - Beat Zueger (2.448) ½-½ Sigur Braga Þorfinns- sonar í lokaumferðinni þýðir, að hann er kom- inn með 13 skáka áfanga að alþjóðlegum meist- aratitli. Alls þarf hann 30 skákir, sem þýðir að tvö níu umferða mót til við- bótar með sambærilegum árangri mundu tryggja honum titilinn. Röð efstu manna á mótinu varð þessi: 1.-2 Ruslan Ponomariov (2.673, Úkraína), Emil Sutovsky (2.604, Ísr- ael) 9½ v. 3.-4. Judit Polgar (2.678, Ungverja- land), Zurab Azmaiparashvili (2.670, Armenía) 9 v. Röð Íslendinganna varð sem hér segir: 69.-89. Hannes H. Stefánsson 7 v. 118.-147. Jón V. Gunnarsson 6 v. 118.-147. Bragi Þorfinnsson 6 v. 173.-181. Stefán Kristjánsson 5 v. Eins og áður hefur komið fram var íslenskum skákmönn- um ekki kunnugt um mikilvægi þessa móts fyrr en örstuttu áður en það hófst. Skáksam- band Íslands verður að gæta þess í framtíðinni að betur sé fylgst með breytingum á reglum FIDE, eins og þegar Evrópumótið tók við af svæðamótunum sem forkeppni heimsmeist- arakeppninnar. Þetta er sérlega mikilvægt um þessar stundir þeg- ar mikil breytingagleði ríkir innan FIDE. Ný stjórn Skáksambands- ins brást að vísu hratt og vel við eftir að hún tók við stjórnartaum- unum þegar alvarleiki málsins varð ljós. Mjóddarmót Hellis í dag Mjóddarmót Tafl- félagsins Hellis verður haldið í dag, laugar- daginn 16. júní, og hefst klukkan 14. Öll- um er heimil þátttaka og er þátttaka ókeypis. Skráning fer fram á mótsstað, en teflt verð- ur í göngugötunni í Mjódd. Keppendur draga út fyrirtæki sem þeir síðan tefla fyrir. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi og hefur hvor keppandi sjö mínútur á skákina. Verðlaun: 1. verðlaun 10.000, 2. 6.000, 3. 4.000. Bakarameistarinn, sem Þorsteinn Þorsteinsson tefldi fyrir, sigraði á Mjóddarmótinu í fyrra. Úr mótaáætlun Skáksambandsins 16.6. Hellir. Mjóddarmótið 22.6. TG. Íslandsm. 60 ára og e. 23.6. TR. Helgarskákmót Árangursríkt Evrópumót SKÁK O h r i d , M a k e d ó n í a EVRÓPUMÓTIÐ Í SKÁK Daði Örn Jónsson Bragi Þorfinnsson Hannes Hlífar Stefánsson ÍSLENSKIR bridsspilarar verða önnum kafnir á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, því þá hefst 45. Evrópumótið í sveitakeppni á Tenerife á Kanar- íeyjum og íslenska landsliðið, skipað spilurum 25 ára og yngri, hefur einn- ig keppni á Norðurlandamóti yngri spilara sem haldið er í Trelleborg í Svíþjóð. Íslendingar taka að þessu sinni að- eins þátt í opnum flokki á Evrópu- mótinu og freista þess að ná einu af fimm efstu sætunum, en það gefur rétt til þátttöku í næstu keppni um Bermúdaskálina, sem haldin verður á Bali í Indónesíu í haust. Kjarni ís- lenska landsliðsins er sá sami og þess sem náði svo góðum árangri á Ól- ympíumótinu í Hollandi í fyrra, en þá komst Ísland í átta liða úrslit. Í liðinu eru Matthías Þorvaldsson, Þorlákur Jónsson, Magnús Magnússon, Þröst- ur Ingimarsson, Karl Sigurhjartar- son og Jón Baldursson. Þeir Jón og Karl eru nýtt par sem myndað var sérstaklega fyrir þetta mót, en báðir hafa yfir gífurlegri reynslu að ráða og er gaman að sjá þá spila aftur í lands- liði eftir nokkurt hlé. Ljóst er að róðurinn verður erfiður á Evrópumótinu, en Guðmundur Páll Arnarson, fyrirliði liðsins, segist vera hóflega bjartsýnn. Hann segist telja að um 15 þjóðir hafi burði til að taka þátt í baráttunni um fimm efstu sæt- in. Mjög ólíklegt sé að íslenska liðið endi í einhverju af þremur efstu sæt- unum, en liðið eigi nokkra möguleika á 4. eða 5. sæti, ef allt gengur í hag- inn. Raunhæft mat sé hins vegar að Ísland endi í kringum 8. sæti. „Það þarf enginn að efast um getu íslensku spilaranna en þá skortir samæfingu. Þetta eru allt menn sem stunda krefjandi vinnu og þeir eru því ekki í eins góðri spilaæfingu og spil- arar frá öðrum toppþjóðum, svo sem Ítalíu, Póllandi og Frakklandi. Á mörgum undanförnum Evrópumót- um hafa íslensku liðin verið í efstu sætunum þar til í lokin að úthaldið bregst,“ segir Guðmundur Páll. Ítalar sigurstranglegastir Ítalar eru að sjálfsögðu sigur- stranglegastir á mótinu. Þeir hafa unnið þrjú undanfarin Evrópumótog sl. haust urðu þeir einnig Ólympíu- meistarar. Liðið er skipað þeim Alf- redo Versace, Lorenzo Lauria, Nor- berto Bocci, Giorgio Duboin, Dano deFalco og Guido Ferrari. Pólverjar, sem spiluðu til úrslita við Ítala á Ól- ympíumótinu, eru einnig með mjög sterkt lið á Kanaríeyjum, þá Cezary Balicki, Adam Zmudzinski, Michal Kwicien, Jacek Pszczola, Krzysztof Martens og Marcin Lesniewski. Þessir menn hafa allir margsinnis spilað í pólskum landsliðum síðasta áratuginn. Þá eru Norðmenn með lið sem er til alls líklegt en það skipa Geir Helgemo, Tor Helness, Terje Aa, Glen Grötheim, Boye Brogeland og Erik Sælensminde. Ekki kæmi á óvart ef þessi þrjú lið myndu skipa verðlaunasætin á mótinu. Af öðrum sterkum liðum má nefna Frakka, sem senda að þessu sinni Michel Abecassis, Jean-Christophe Quantin, Patrick Allegrini, Jean- Jacques Palau, Franck Multon og Philippe Soulet, allt þrautreynda landsliðsmenn. Svíar eru einnig með gamalreynda refi í liðinu, þá Per-Olof Sundelin og Tommy Gullberg, en með þeim spila Johan Sylvan, Lars Anderson, Fredrik Nystrom og Pet- er Bertheau. Í danska liðinu spila Dorthe Schaltz, Peter Schaltz, Tom Norgaard, Henrik Caspersen, Lars Blakset og Mathias Bruun. Þá er vert að geta enska liðsins, sem komst í undanúrslit á Ólympíumótinu á síð- asta ári en í því spila Gunnar Hall- berg, Colin Simpson, David Burn, Brian Callaghan, Joe Fawcett og Glyn Liggins. Þá má búast við að Búlgarar, sem komu mjög á óvart á síðasta Evrópu- móti, Hollendingar, Spánverjar og Ísraelsmenn, ætli sér allir að komast til Bali í haust. Fullkomin vörn Það er því ljóst að íslensku spil- ararnir þurfa góðan byr ætli þeir að ná árangri á Kanaríeyjum. En ef þeir sýna reglulega tilþrif á borð við þessi ættu þeir að eiga góða möguleika: Norður ♠ DG ♥ KD10953 ♦ DG6 ♣ D3 Vestur Austur ♠ 109852 ♠ 642 ♥ 6 ♥ Á82 ♦ Á98 ♦ K742 ♣G984 ♣K106 Suður ♠ ÁK7 ♥ G74 ♦ 1053 ♣Á752 Þetta spil kom fyrir á Ólympíumótinu sl. haust í leik gegn Norðmönnum. Við annað borðið spiluðu Aðalsteinn Jörgensen og Sverrir Ármannsson 4 hjörtu í NS sem unnust auðveldlega því hægt var að henda laufatapara niður í spaða. Við hitt borðið fóru Helgemo og Helness í 3 grönd og Matthías spilaði eðlilega út spaðatí- unni þótt laufaútspil hefði verið ár- angursríkara. Helness yfirdrap drottningu blinds með kóng og spilaði hjarta. Þorlákur í austur gaf tvisvar en tók þriðja hjartað með ás; Matth- ías henti spaðaníu og spaðaáttu. Nú lagðist Þorlákur undir feld um tíma. Spilið var sýnt á sýningartöflu og áhorfendur sáu færa leið til að hnekkja spilinu: Austur spilar tígli á ás vesturs sem skiptir í lauf og brýtur þannig tvo laufaslagi. Þorlákur sást taka tígultvistinn og búa sig undir að spila honum. Áhorf- endur töldu að þar með væri spilið unnið, því Matthías myndi örugglega spila tígli áfram í þeirri von að austur ætti laufaásinn og 4-lit í spaða. En að lokum stakk Þorlákur tígultvistinum niður og lagði tígulsjöuna á borðið. Þá var komið að Matthíasi að hugsa. Tígulsjöan sýndi ekki áhuga á tíglinum og eftir drykklanga stund tók Matthías slaginn með kóng og skipti í laufafjarkann. Áhorfendur fögnuðu ákaft og spilið fór einn niður og Íslendingar græddu 10 stig. Norðurlandamót yngri spilara Norðurlandamót yngri spilara verður haldið í Trelleborg í Svíþjóð dagana 17. til 22. júní. Í íslenska lið- inu spila þeir Sigurbjörn Haraldsson, Birkir Jónsson, Bjarni Einarsson, Guðmundur Þ. Gunnarsson og Heið- ar Sigurjónsson en Anton Haralds- son er fyrirliði. Svíningar á sólarströnd BRIDS U m s j ó n G u ð m u n d u r S v . H e r m a n n s s o n Evrópumótið í brids, sveitakeppni, er haldið á Kanaríeyjum dagana 16.-30. júní. Ísland sendir lið til keppni í opnum flokki. Netslóð mótsins er www.eurobridge.org. Landsliðið í brids. Frá vinstri eru Magnús Magnússon, Þorlákur Jónsson, Matthías Þorvaldsson, Guð- mundur Páll Arnarson, Karl Sigurhjartarson, Jón Baldursson og Þröstur Ingimarsson. Guðm. Sv. Hermannsson FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir líkt og undanfarin ár til göngu- ferðar á þjóðhátíðardaginn 17. júní um gömlu þjóðleiðina milli Hval- fjarðar og Þingvalla. Brottför er kl.10.30 og verður ekið upp í Botnsdal, en þaðan gengiðtil Þing- valla, 5 - 6 klst. göngu. Stansað verður við fallegar nátt- úruperlur, m.a. við útfall Sand- vatns og söguríkir staðir eins og Biskupskelda eru á leiðinni. Far- arstjóri er Ragnheiður Óskars- dóttir og miðar eru seldir í farmiðasölu BSÍ, en verð er 1.700 kr fyrir Útivistarfélaga og 1.900 kr. f. aðra. 17. júní ganga yfir Leggjabrjót FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir í dag, laugardaginn 16. júní til fjöl- skyldugöngu í Heiðmörk og er brott- för kl. 13.00 frá BSÍ. Ekið verður að nýja fjölskyldurjóðrinu Furulundi og gengið þaðan um skógarstíga m.a. í Skógarhlíðarkrika og að norska húsinu. Í lokin verður áning í fjöl- skyldurjóðrinu og boðið upp á pyl- sugrill. Gangan tekur aðeins um 1,5 klst. og fararstjóri er Anna Soffía Óskarsdóttir. Verð 700 kr. fyrir félaga og 900 kr. fyrir aðra og pylsur fylgja. Frítt er fyrir börn 15 ára og yngri með forráðamönnum. Fjölskyldu- ganga í Heiðmörk Vantaði höfundarnöfn í minningargrein Í minningargrein um Magnús Jó- hannsson, sem birtist í blaðinu í gær, föstudag, vantaði tvö nöfn höfunda undir greinina. Rétt undirskrift er Davíð, Vala Rut og Sjöfn. Tókst að hækka lægstu laun Í frétt sem birtist á Suðurnesja- síðu í blaðinu í gær er sagt frá því að skrifað hafi verið undir nýja kjara- samninga á milli Starfsmannafélags Suðurnesja og ríkisins. Þar er haft eftir Ragnari Erni Péturssyni, for- manni félagsins, að tekist hafi að lækka lægstu laun, en að sjálfsögðu er átt við að tekist hafi að hækka lægstu laun. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Fjallabaksleið nyrðri Í frétt um fjallvegi á bls. 6 í gær var ranglega sagt að Fjallabaksleið nyrðri væri opin. Rétt er að Fjallabaksleið nyrðri er opin að Eldgjá, en lokuð þaðan um Jökuldali í Landmannalaugar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Féll út nafn í varastjórn Hringsins Í tilkynningu sl. þriðjudag, frá kvenfélaginu Hringurinn féll út nafn Ingibjargar Jónasdóttur sem situr í varastjórn félagsins. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT HANDKNATTLEIKSDEILD Umf. Selfoss stendur fyrir dansleik í Hótel Selfossi laugardagskvöldið 16. júní. Stuðmenn leika fyrir dansi og mun þetta vera í fyrsta sinn í langan tíma sem hljómsveitin sækir Sunn- lendinga heim.Forsala fer fram í Shell-skálanum á Selfossi og versl- unum 10-11. Sætaferðir verða farnar af öllu Suðurlandi og Reykjavík. Miðaverð er 2000 kr. í forsölu og 2200 kr. á staðnum. Stuðmenn á Selfossi ♦ ♦ ♦ Á AÐALFUNDI 17. maí sl. var kjör- in ný stjórn Vinafélags Blindrabóka- safns Íslands. Hin nýja stjórn hefur nú skipt með sér verkum á eftirfarandi hátt: For- maður er Hildur G. Eyþórsdóttir og varaformaður Þorbjörg Guðmunds- dóttir. Hafþór Ragnarsson er ritari, Þórhallur Þórhallsson gjaldkeri og Birna Stefánsdóttir meðstjórnandi. Ný stjórn í Vina- félagi Blindra- bókasafns ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.