Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 50
DAGBÓK 50 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Haukur og Bjarni Sæmundsson koma í dag. Triton fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ontik kemur í dag. Fréttir Kristniboðssambandið þiggur með þökkum alls konar notuð frí- merki, innlend og út- lend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða umslagið í heilu lagi (best þannig). Útlend smámynt kemur einnig að notum. Mót- taka í húsi KFUM og K, Holtavegi 28, Reykjavík, og hjá Jóni Oddgeiri Guðmunds- syni, Glerárgötu 1, Ak- ureyri. Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17:30. Mannamót Norðurbrún, Furu- gerði og Hæðargarður. Fimmtudaginn 21. júní verður farið að Ljósa- fossvirkjun, lagt af stað frá Norðurbrún kl. 12:30, síðan verða far- þegar teknir upp í Furugerði og Hæð- argarði, ekið verður um Mosfellsheiði og Þing- velli að virkjuninni, þar sem skoðaðir verða m.a. munir í eigu Þjóðminja- safns Íslands. Ekið verður til baka um Þrengslin. Farþegar taki með sér nesti og hlýjan fatnað. Skráning í Norðurbrún, s. 568 6960, Furgerði, s. 5536040, og Hæð- argarði, s. 568 3132. Bólstaðarhlíð 43. Farið verður norður Kjöl, fimmtudaginn 21. júní kl. 8. Þingeyrarkirkja í A- Hún skoðuð. Kvöld- verður í Hreðavatns- skála. Nesti og góður klæðnaður. Upplýsingar og skráning í síma 568- 5052 fyrir þriðjudaginn 19. júní. Félag eldri borgara í Garðabæ Þjónustubók 2001 - 2002 er komin, og geta félagar nálgast hana á skrifstofu félagsins í Kirkjuvoli. Skrifstofan er opin þriðjudaga og fimmtu- daga frá kl 10:30 til 11:30, en verður lokuð í júlí. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Laugardagsgangan verður kl. 10 frá Hraunseli. Gíróseðlar fyrir ársgjöldum hafa verið sendir út. Félags- skírteini fást í Hrauns- eli gegn kvittun félags- gjalds. Þriggja daga ferð til Hornafjarðar þriðjudagin 3. júli til 5. júlí, nokkrir miðar laus- ir .Haustferðin 1. okt. til Prag, Búdapest og Vínar , kynning verður miðvikudaginn 27. júní nk. kl. 14. Orlofið að Hótel Reykholti í Borg- arfirði 26.-31.ágúst nk. Skráning og allar upp- lýsingar í Hraunseli sími 555- 0142 Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10 til 13. Matur í há- deginu. Sunnudagur: Félagsvist fellur niður. Dansleikur kl. 20 Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Mánudagur: Brids kl. 13. Dagsferð 18. júní. Söguferð í Dali, skoðaðir verða Ei- ríksstaðir, Höskulds- staðir í Laxárdal, Hjarðarholt, Búð- ardalur, Krosshólar og landnámsbærinn Hvammur. Brottför frá Glæsibæ kl. 9. Leið- sögumaður er Sigurður Kristinsson. Miðviku- dagur: Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Hlemmi kl. 9:45 undir stjórn Ingvars Björns- sonar. Dagsferð 10.júlí Þórsmörk – Langidalur. Leiðsögn Þórunn Lár- usdóttir og Pálína Jóns- dóttir. Eyjafjörður – Skagafjörður – Þingeyj- arsýslur 6 dagar. 26.-31. júlí. Ekið norður Sprengisand til Ak- ureyrar. Farið um Eyjafjarðardali, Svarf- aðardal, Hrísey, Sval- barðsströnd og fl. Ekið suður Kjalveg um Hveravelli til Reykja- víkur. Leiðsögn Þórunn Lárusdóttir. Eigum nokkur sæti laus. Ath: Vegna mikillar aðsókn- ar í hringferð um Norð- austurland viljum við biðja þá sem eiga pant- að að koma og greiða inn á ferðina sem fyrst. Silfurlínan er opin á mánu- og mið- vikudögum frá kl. 10 til 12 f.h. í síma 588-2111. Upplýsingar á skrif- stofu FEB kl. 10 til 16 í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar á vegum ÍTR eru byrjaðar aftur í Breið- holtslaug á þriðjudög- um og fimmtudögum kl. 9:30. (Ath. breyttur tími) Umsjón Edda Baldursdóttir íþrótta- kennari. Boccia á þriðjudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 9:30, umsjón Óla Stína. Dans hjá Sig- valda á mánudögum kl. 15:30, allir velkomnir (ekkert skráning- argjald). Veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Allar upplýsingar á staðnum og í síma 575 7720. Félag eldri borgara Kópavogi. Púttað verðu á Listatúni í dag laug- ardag kl. 11. Mætum öll og reynum með okkur. Sjálfsbjörg félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, efnir til ferðar dagana 16. til 20 júlí. áætlað að fara til Hríseyjar, gista þar í fjórar nætur. 2. dagur farið til Akureyrar, 3. dagur farið til Grenivík- ur, Mývatns og Húsa- víkur, 4. dagur, farið til Dalvíkur, Ólafsfjarðar og Siglufjarðar. Uppl. og pantanir í síma fyrir 1. júlí í síma 551-7868. Einnig uppl. í síma 892- 5567 Ómar. Tómstundastarf eldri borgara í Reykja- nesbæ, fer sína árlegu sumarferð miðvikudag- inn 20. júní. Fyrir val- inu í ár var ferð að Sól- heimum í Grímsnesi. Lagt verður af stað kl. 13 frá S.B.K. og komið við í Hvammi og Selinu. Þeir sem hafa áhuga á að fara með í þessa ferð, láti skrá sig í síma 861-2085 eða 421-4322. Ellimálaráð Reykjavík- urprófastsdæma, Breið- holtskirkju við Þang- bakka. Skálholtsskóli, Ellimálanefnd Þjóð- kirkjunnar og Elli- málaráð Reykjavík- urprófastsdæma efna til sumardvalar fyrir eldri borgara í Skálholti. Boðið er til fimm daga dvalar í senn og raðast þeir þannig: 25. til 29. júní, 2. til 6. júlí og 9. til 13. júlí. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Elli- málaráðs Reykjavík- urprófastsdæma f.h. virka daga í síma 557-1666. Minningarkort Minningarkort Kven- félagsins Seltjarnar eru afgreidd á bæjarskrif- stofu Seltjarnarness hjá Ingibjörgu. Minningarkort Kven- félags Háteigssóknar. Kvenfélagskonur selja minningarkort, þeir sem hafa áhuga á að kaupa minningarkort vinsamlegast hringi í síma 552-4994 eða síma 553-6697, minning- arkortin fást líka í Há- teigskirkju við Háteigs- veg. Minningarkort Kven- félags Langholtssóknar fást í Langholtskirkju sími 520 1300 og í blómabúðinni Holta- blómið, Langholtsvegi 126. Gíróþjónusta er í kirkjunni Minningakort Kven- félags Neskirkju fást hjá kirkjuverði Nes- kirkju, í Úlfarsfelli, Hagamel 67 og í Kirkjuhúsinu v/ Kirkjutorg. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði fást í blómabúðinni Burkna, hjá Sjöfn s. 555 0104 og hjá Ernu s. 565 0152 (gíróþjónusta). Minningarkort ABC hjálparstarfs eru af- greidd á skrifstofu ABC hjálparstarfs í Sóltúni 3, Reykjavík í síma 561- 6117. Minningargjafir greiðast með gíróseðli eða greiðslukorti. Allur ágóði fer til hjálp- ar nauðstöddum börn- um. Minningarkort Barna- heilla til stuðnings mál- efnum barna fást af- greidd á skrifstofu samtakanna á Lauga- vegi 7 eða í síma 561- 0545. Gíróþjónusta. Í dag er laugardagur 16. júní, 167. dagur ársins 2001. Orð dagsins: En það varð, meðan hann var að blessa þá, að hann skildist frá þeim og var upp numinn til himins. (Lúk. 24, 51.) Víkverji skrifar... VÍKVERJI átti leið um Suðaust-urland í blíðskaparveðri í síð- ustu viku. Hann varð heillaður af landslaginu á leiðinni, fossunum, jöklasýninni, tignarlegum fjöllunum, söndunum og víðáttunni en hann varð fyrir von- brigðum með afþreyingarmöguleika sumsstaðar á leiðinni. Fyrst lá leiðin til Víkur í Mýrdal og þar átti jafnvel að fara á hestbak. Á hinn bóginn kom í ljós að enginn vissi til þess að hestaleiga væri í ná- grenninu. Hjá upplýsingamiðstöð- inni var bent á hestaleigu í Öræfa- sveit en þangað er um 2 klst. akstur frá Vík. Á Kirkjubæjarklaustri var lítið um að vera. Meiningin var að skreppa í sund um miðjan dag en laugin var lokuð og þegar farið var að athuga með gistingu þar á Eddu-hótelinu kom í ljós að það átti ekki að opna fyrr en um miðjan júní. Enga hestaleigu var hægt að koma auga á við Kirkjubæjarklaustur. Næsta sundlaug var Flosalaug í Öræfasveit svo þangað var nú haldið. Flosalaug reyndist lokuð líka en það var hægt að komast á hestbak á Hofi. Víkverji hefur heyrt talað um að ferðamenn komi æ fyrr á sumrin til landsins og hann veit til þess að ís- lenskar fjölskyldur eru farnar í sum- arfrí í júníbyrjun. Hvers vegna er ferðaþjónustan ekki komin í fullan gang í byrjun júní? x x x ÞÁ fannst Víkverja líka skrítið aðsjá víða á Suðausturlandi sömu verslanirnar, 11-11 og KÁ. Mikið saknaði hann gömlu kaupfélaganna þar sem hver búð hafði sinn sérstaka sjarma og hægt var að gramsa í alls kyns dóti. Víkverji getur þó ekki annað en hælt veitingunum sem honum stóðu til boða. Hann snæddi meðvitað hjá vegasjoppunum sem halda sig við hamborgara, pitsur, franskar og pylsur en reyndi að borða á nokkrum af þeim veitingastöðum sem búið er að opna á þessum slóðum. Það var t.d. gaman að sjá að á Halldórskaffi í Vík í Mýrdal er hægt að fá sér súpu og salat í hádeginu, einnig hjá Systrakaffi á Kirkjubæjarklaustri og mikið er frábær staðurinn Kaffi- hornið á Höfn í Hornafirði. Staður- inn er í fallegu bjálkahúsi og þar er boðið upp á ýmsa létta rétti á góðu verði og þjónustan eins og hún gerist best. Og af því Víkverji er nú orðinn svo jákvæður þá má hann til með að hæla sundlauginni sem hann heimsótti í bakaleiðinni, Seljalandslaug. Laugin er ekki alveg við veginn og hún er að vísu lítil en afar snyrtileg og heitur pottur með nuddi stendur til boða. Ekki spillir fyrir að laugin er umlukt fallegum fjallahring. x x x OG yfir í allt aðra sálma. Víkverjiveltir því fyrir sér hversvegna hvergi eru gefnar upplýsingar um hvaða ávextir og grænmeti eru upp á sitt besta núna, t.d. á þessum árs- tíma. Er uppskeran á kirsuberjum í hámarki núna eða á appelsínum? Hvers vegna er ekki keypt mikið magn af glænýrri uppskeru og hún sett á sérstakt tilboð með fræðslu um næringarinnihald og viðskiptavinum gefið að smakka? Víkverji á svo erfitt með að skilja hvers vegna engin búð skilur sig úr með svona upplýsingar og þjónustu. FYRST vil ég þakka gatnamálastjóra fyrir það framtak að senda íbúum borgarinnar bréf, þar sem látið er vita fyrir fram hvenær von er á hreinsun gatna. Eitt af því sem svekkir okkur er þegar maður sér að búið er að reyna að sópa rennustein- ana og verkið sést ekki eftir á vegna bíla sem voru fyrir vinnuvélunum. Þarna er mikil sóun á fjármagni og vinnuafli. Nú er annað sumarið sem ég fæ bréf um væntanlega gatnahreinsun, en í upp- talningu gatna og dag- setninga er Háaleitis- braut ekki talin með. Í fyrrasumar kvartaði ég undan þessum mistökum, bæði við embætti gatna- málastjóra og við verk- takann, sem er Hreinsi- tækni. Það er slæmt þegar góðar ábendingar eru ekki teknar til greina. Mér sýnist af bréfinu að Háaleitisbraut flokkist helst með hreinsun 19.06, en óska eftir að fá það staðfest. F.h. íbúa Háaleitis- brautar. Sólveig Ásgeirsdóttir, Háaleitisbraut 125, R.vík. Skelfilegar veðurfregnir JÁ, undarleg fyrirsögn nú í miðnætursólinni, en þessi hugsun er ekki ný, raunar sent Velvakanda nokkrar línur um þetta áður. Hvað er þá að? Margir eiga erfitt með að túlka það sem veðurfræð- ingar segja eða sýna á skjánum. Hvers vegna? Vegna þess að það er eins og metnaður hjá þeim að hver hafi sína persónu- legu „stæla“. Frumleikinn er raunar furðulegur og þar af leiðandi varla Ís- lendingur undir fertugu sem ekki þarf að ávarpa sér eldri og reyndari mann til að túlka veður- spána þegar ferðalag er fyrirhugað. Hvað þarf að hafa í huga? Að 10–15 þúsund landsmanna skilja ekki íslensku sérlega vel en erustoltir af afbragðs þekkingu sinni á tölustöf- um (minnir á gamla land- ið) og sumir hreinrækt- aðir Íslendingar bæði sjóndaprir og heyrn- arsljóir, auk þessa að vera næstum upp til hópa illa að sér í örnefnum. Gott dæmi um skynsamlega af- lagða ást á örnefnum er nýleg athugunarstöð, „Mývatn“. Allir vita hvar sá fagri staður er og varð- ar ekkert um hvort mæl- irinn er norðan eða sunn- an við vatnið. Til athugunar: 1. Sýna hámarks- og lágmarkshita sólarhringsins bæði hér- lendis og erlendis. 2. Nota ekki íslenskan tíma held- ur staðartíma hvers lands. 3. Sömu hugtök handa Norðlendingum sem Sunnlendingum (átt er við hálendis- og láglendishug- tök), Sunnlendingum finnst háttarlag þeirra fyrir norðan heldur und- arlegt þegar þeir byrja heyskap tveimur vikum eftir að þeir draga fé úr fönn. 4. Heldur fleiri veður- lýsingar úr innsveitum. Árið 2001 eru sjómenn- irnir nokkuð vísir til að sjá um sig en borgarbarn- ið er fávíst. Ferðamaður- inn er frekar inn til lands- ins en á ystu nesjum. Bragi Melax. Hraði og spenna í nútímasamfélagi ÉG las í Velvakanda grein eftir Sigrúnu Ármanns Reynisdóttur, þar sem fyrirsögnin var „Merkir tómur ísskápur góðæri?“ Ég vil þakka henni fyrir góða grein og stuðning við þá sem minna mega sín. Ég er gömul kona sem man tímana tvenna. Ríkisstjórnir hafa komið og farið í tímans rás. Ég man samt ekki eftir neinni stjórn sem hefur haft eins lítinn áhuga á að hjálpa þeim sem erfitt eiga, eins og þessi sem nú er við völd. Það ber líka lítið á mannkærleika í nú- tímasamfélagi sem ein- kennist af hraða og spennu. Fólk talar minna saman en áður var og margir eru ósköp ein- mana. Nóg er að vera með tóman ísskápinn þótt fólk sé ekki einmana líka. Blessuð börnin verða líka oft út undan vegna mik- illar vinnu foreldra. Hér áður höfðu afar og ömmur meiri tíma fyrir þau held- ur en núna. Þau fara því oft á mis við þá hlýju og skilning sem þau þurfa. Sigríður Guðmundsdóttir. Tapað/fundið Karlmannsjakki og ökklasíð kápa töpuðust SVARTUR mittissíður karlmanns ullarjakki tap- aðist á Skuggabar þann 2. júní sl. Farsími og linsu- box með vökva var í vasa jakkans. Einnig tapaðist ökklas- íðgrásvört, aðskorin kven- mannskápa með gráum loðkraga á Skuggabar þann 9. júní sl. Skilvís finnandi er vinsaml. beð- inn að hringja í Siggu Dögg í s. 698-4665. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Háaleitis- braut gleymdist 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 nærfötin, 8 burðarviðir, 9 ginnir, 10 blundur, 11 slagi, 13 lykt, 15 sverðs, 18 hinar, 21 ungviði, 22 úðar, 23 ilmur, 24 þrjósk- ir menn. LÓÐRÉTT: 2 þjálfun, 3 svæfill, 4 reiðri, 5 vondum, 6 ótta, 7 þrjóskur, 12 mergð 14 að- stoð, 15 ráma, 16 bylgjur, 17 hávaði, 18 stétt, 19 trufla, 20 heimili. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 rotta, 4 sálin, 7 tafla, 8 ormur, 9 nið, 11 agns, 13 enda, 14 eljan, 15 stól, 17 nýtt, 20 ónn, 22 efast, 23 afurð, 24 gutla, 25 glata. Lóðrétt: 1 rytja, 2 tófan, 3 aðan, 4 stoð, 5 lamin, 6 narra, 10 iðjan, 12 sel, 13 enn, 15 skegg, 16 ósatt, 18 ýsuna, 19 tíðka, 20 ótta, 21 nagg. K r o s s g á t a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.