Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 18

Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 18
SUÐURNES 18 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HÁTÍÐARHÖLD í tilefni þjóðhátíð- ar landsmanna 17. júní verða að venju með fjölbreyttu sniði á Suð- urnesjum. Þjóðhátíðarnefndir bæj- arfélaga hafa sett saman dagskrá þar sem saman fer hátíðleiki dagsins og sprell og fjör fyrir unga sem aldna. Listamaður Reykjanesbæjar Í Reykjanesbæ keppa drengir í 7. flokki Keflavíkur og Njarðvíkur á Njarðvíkurvelli klukkan tíu. Flug- módelfélag Suðurnesja kynnir flug- flota sinn og og rafmagns- og bens- ínbílakeppni verður við Kaffi Duus. Safnahúsið verður opið frá 13 til 17 og sýning verður í bókasafni Reykjanesbæjar. Klukkan tvö hefst myndlistarsýning á Glóðinni þar sem nemendur Reynis Katrínar sýna og kl. 16 hefst málverkasýning Sossu í Svarta pakkhúsinu. Hátíðarmessa verður í Keflavík- urkirkju og kl. 13.20 hefst skrúð- ganga frá kirkjunni. Hátíðardag- skrá hefst í skrúðgarðinum klukkan 14.00. Karlakór Keflavíkur flytur þjóðsönginn, ávarp fjallkonu flytur Anna Steinunn Jónasdóttir og ræðu dagsins flytur Eydís Eyjólfsdóttir. Jónína A. Sanders, formaður bæj- arráðs, hefur síðan umsjón með út- nefningu á listamanni Reykjanes- bæjar 2001. Karlakór Keflavíkur, Gunni og Felix, Ávaxtakarfan, Jóhanna Guð- rún, Bjarni töframaður, djasshópur frá Kramhúsinu, Einar Ágúst og Ei- ríkur Rósberg eldgleypir sjá um að skemmta hátíðargestum. Klukkan 18–20 verður haldið barna- og fjölskylduball í Stapa og kvöldskemmtun á Tjarnargötutorgi hefst klukkan 20:30 og stendur til miðnættis. Kvölddagskrá á Vitatorgi Í Sandgerði veður haldið víða- vangshlaup fyrir krakka fædda 1987 og síðar kl. 11:00 við Reynisheimilið. Hátíðardagskrá hefst á Vitatorgi kl. 15:00 þar sem boðið verður upp á skemmtiatriði fyrir alla fjölskyld- una. Þjóðhátíðarræðuna í ár flytur Johan D. Jónsson ferðamálafulltrúi. Veitingahúsið Vitinn mun bjóða upp á kaffihlaðborð. Kvölddagskrá verður á Vitatorgi og hefst hún kl. 20:00. Þar verða grillaðar pylsur fyrir gesti og gang- andi og munu Gummi, Kiddi, Óli og Smári halda uppi fjörinu af sinni al- kunnu snilld. Söngvarakeppni í Garði Dagskráin í Garði hefst kl. 14 við íþróttamiðstöðina með hátíðarræðu, fánahyllingu og ávarpi fjallkon- unnar. Ungir Garðbúar skemmta með söng og dansi ásamt ferðaleik- húsinu. Í söngvarakeppni fá ungir söngvarar tækifæri,Karlakór Kefla- víkur mætir á svæðið og tekur lagið og hljómsveitin Sóldögg leikur fyrir dansi. Börnin geta tekið sér far með bíla- lest sem ekur um hátíðarsvæðið eða brugðið sér á hestbak. Skátarnir munu sjá um leikbása og trúðar skemmta hátíðargestum. Fallhlífarstökk og fótbolti Grindvíkingum verður boðið í Bláa lónið klukkan tíu en hátíð- arguðsþjónusta hefst klukkan 12.30. Þá safnast bæjarbúar saman við íþróttavöllinn og þar verður m.a. karamelluregn og fallhlífarstökk. Skrúðgangan fer frá íþróttavell- inum að Festi og hátíðardagskrá hefst þar klukkan 14 með ræðu bæj- arstjóra. Steinn Erlingsson syngur einsöng, fjallkonan flytur ávarp og kammerkór Brimkórsins syngur. Þá skemmta Bergur Ingólfsson og Benedikt Erlingsson og haldin verð- ur söngkeppni unga fólksins. Gunni og Felix mæta á svæðið og börnin fá að skreppa á hestbak og ferðast í hestakerru. Keppni verður í köku- bakstri og þeir sem smakka gefa einkunn. Á íþróttavellinum hefst leikur Grindavíkur og F.C. Vilash í Int- ertoto-keppninni klukkan 16.00. Klukkan 16.30 sýnir Bernd Ogrod- nik brúðuleik við Festi. Kvöld- skemmtunin hefst klukkan 21 við Festi en þar skemmtir m.a. ung- lingahópur Brimkórsins og hljóm- sveitin Citrus leikur fyrir dansi. Fjölbreytt þjóðhátíð Reykjanes NÝGERÐUR kjarasamningur Stéttarfélags sálfræðinga á Ís- landi (SSÍ) og launanefndar sveitarfélaga vegna sálfræð- inga hjá Reykjanesbæ, frá 31. maí s.l., var felldur í atkvæða- greiðslu félagsmanna SSÍ. Hins vegar var samningur SSÍ við launanefndina vegna sál- fræðinga hjá öðrum sveitar- félögum samþykktur. Ástæðan fyrir tvenns konar samningum við sveitarfélögin er sú að SSÍ samdi sérstaklega við Reykjanesbæ árið 1998. Reykjanesbær framseldi síðan samningsumboðið til launa- nefndarinnar þegar samning- urinn varð laus í júlí á síðasta ári. Aðilar tóku fljótlega upp viðræður og frá áramótum fóru þær fram samhliða vegna beggja samninganna. Störf þeirra sálfræðinga sem hér um ræðir felast aðallega í sérfræðiþjónustu við leik- og grunnskóla, sem og við félags- málastofnanir eða barnavernd- arnefndir. ÓMAR Jónsson, Sjálfstæðis- flokki, var endurkjörinn forseti bæjarstjórnar Grindavíkur á síðasta fundi stjórnarinnar fyr- ir sumarleyfi og Hallgrímur Bogason, Framsóknarflokki, verður áfram formaður bæjar- ráðs. Með Hallgrími í bæjarráði er Ólafur Guðbjartsson, Sjálf- stæðisflokki, og fulltrúi minni- hlutans er Hörður Guðbrands- son, Samfylkingunni. Er þetta skipan helstu embætta síðasta ár kjörtímabils bæjarstjórnar- innar en sveitarstjórnarkosn- ingar verða 25. maí á næsta ári. Embættis- menn end- urkjörnir Grindavík Sálfræð- ingar fella samninga Reykjanesbær SOSSA, Margrét Soffía Björnsdóttir, opnar í dag sýningu í Svarta pakkhús- inu í tilefni þess að hún kveður nú sem bæjarlistamaður en Sossa var út- nefnd listamaður Reykjanesbæjar hinn 17. júní 1997 til fjögurra ár. Þeim tíma er nú að ljúka og verður nýr listamaður útnefndur við athöfn í skrúðgarðinum á 17. júní. Í sýningunni kveður við nýjan tón í verkum Sossu sem afréð að taka skrefið alla leið yfir í abstrakt listmál- un á þessum tímamótum. Þegar blaðamaður heimsótti Sossu í vinnu- stofu hennar við höfnina í vikunnni blasti þar við fjöldi abstrakt verka. Hlýir litir ráða ferðinni og birtan skín í gegn þannig að ekki er laust við að sálartetrið lifni eilítið við að horfa í skemmtilegt samspil og form litanna sem byggja upp sterkar myndrænar heildir. Þó hefur Sossa ekki alveg sagt skilið við fígúrumálun, þegar grannt er skoðað má sums staðar greina kunnugleg form er tengjast fyrri verkum hennar. Sama hvar maður er ef maður er sáttur við sjálfan sig Að hennar sögn kviknaði hug- myndin um að mála abstrakt þegar afráðið var að hún myndi kveðja sem bæjarlistamaður með sýningunni. „Ég er búin að vera á leiðinni en ekki tekið stökkið alveg, þannig að stór partur og meginhluti af sýningunni eru abstraktmyndir. Það tók svolítið á að taka þetta stökk og ég fór til Aust- urríkis og fékk þar lánaða íbúð í tæp- an mánuð þar sem ég byrjaði. Ég hef verið mikið í fígúrum sem hafa verið að leysast upp síðustu árin. Það má svo sem ennþá sjá fígurur í þessum verkum, ef maður rýnir vel, en þetta er meira brotið upp en venjulega. Það var alveg meðvitað að ég gerði þetta svona og lét slag standa og láta reyna á þetta. Það er líka gaman að breyta til.“ Aðspurð hvaða þýðingu það hafi haft að vera bæjarlistamaður segir Sossa það fyrst og fremst felast í titl- inum og upphefðinni sem því fylgir. Sú breyting varð þó að hún opnaði vinnustofuna meira fyrir bæjarbúum og hefur undanfarin ár tekið á móti bæði einstaklingum og hópum, allt frá leikskólabörnum og upp úr. „Vegna þessa titils hef ég verið sýnilegri og hef alltaf haldið jólaboð hérna á vinnustofunni og boðið þá fólki að koma og skoða hvað ég er að gera, svona í byrjun aðventu, og það er orð- ið hefðbundið.“ Hugmyndir sínar sækir Sossa ekki síst í hafið og náttúruna og segist hafa tekið eftir því í Austurríki að litirnir hafi breyst og háhýsi og annað komið inn í myndirnar sem ekki hafi sést þar áður. „En það hefur allt áhrif á mann, bæði fólk sem maður hittir, umhverf- ið og náttúran.“ Sossa segist líta á málaralistina sem hverja aðra vinnu og mætir hún á hverjum degi í vinnustofuna og þá oft um helgar. „Þetta byggist allt á því að maður fari alltaf einu skrefi lengra og þá er þetta auðvitað bara vinna. Það er líka þannig að þegar maður vinnur hjá sjálfum sér verður maður að vera harður húsbóndi, af því að það er svo auðvelt að koma ekki. Ég gæti verið myndarleg húsmóðir, en er það ekki og vinn frekar við þetta,“ segir Sossa. Á næsta ári mun Sossa færa sig um set þegar ný vinnustofa, sem nú er byrjað að byggja, verður tilbúin við heimili hennar. Sossa segir það ótví- ræðan kost að hafa vinnustofuna heima fyrir því hugmyndirnar geri ekki alltaf boð á undan sér. Þá er gott að geta farið strax í vinnustofuna og hafist handa sem getur verið snúið þegar stofan er fjarri og sér í lagi þeg- ar hugmyndir fæðast seint að kvöldi. Sýning Sossu hefst í dag klukkan 16 og stendur yfir til 24. júní. Bæjarlistamaður kveður með sýningu í Svarta pakkhúsinu Tók stökkið yfir í abstrakt listsköpun Morgunblaðið/Eiríkur P. Sossa í vinnustofu sinni við höfnina með nýmáluð verk að baki. Reykjanesbær SPRENGJA fannst rétt utan við svæðið þar sem gamla ratsjárstöðin í Rockville er staðsett og var lögregl- an á Keflavíkurflugvelli kölluð til ásamt herlögreglumönnum. Í ljós kom að um var að ræða vissa tegund af reyksprengju sem notuð er við æf- ingar og gefur frá sér gulan reyk. Sprengjan var ósprungin. Það voru tveir Svisslendingar á vegum með- ferðarstöðvarinnar í Rockville sem fundu sprengjuna, en þeir þorðu ekki að snerta á henni þar sem pinn- inn var ennþá í sprengjunni og líktist hún handsprengju. Herlögreglu- mennirnir sem mættu á staðinn út- skýrðu um hvaða hlut væri að ræða. Lögreglan hvatti jafnframt til þess að slíkir hlutir væru ekki snertir, ef þeir fyndust, heldur að kallaðir væru til sérhæfðir menn til að fjarlægja slíka hluti. Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Herlögreglumenn virða fyrir sér reyksprengjuna sem fannst við Rockville ásamt fulltrúa lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Fundu sprengju við Rockville Miðnesheiði LABRADORTÍKIN Ugla, sem er tæplega þriggja ára gömul, hefur aðstoðað við að bera út Morgunblaðið síðan hún var fimm mánaða en hún lét ný- lega af störfum og flutti norð- ur á Strandir. Vakti eigandann og fylgdist með töskunum Ugla hefur séð til þess að áskrifendur í Innri-Njarðvík hafa fengið blaðið sitt í tíma og vakti alltaf eigandann, Arn- heiði Guðlaugsdóttur, sam- viskusamlega klukkan hálfsex á morgnana og linnti ekki lát- um fyrr en farið var af stað því hún ætlaði ekki að verða of sein í vinnuna. Hún þekkti líka húsin þar sem kaupendur blaðsins búa og hljóp alltaf á undan að tröppunum. Ekki mátti heldur hreyfa Mogga- töskuna innanhúss, þá stillti hún sér upp við útidyrnar. Myndin er tekin þegar Ugla afhendir Margréti Birnu Valdimarsdóttur Morg- unblaðið síðasta útburðardag- inn og þiggur bein að launum en Magrét Birna hefur verið áskrifandi Morgunblaðsins í tæp 40 ár. Morgunblaðið/Arnheiður Ugla ber út Morgunblaðið til Margrétar Birnu Valdi- marsdóttur í Innri-Njarðvík. Ugla lætur af störfum Reykjanesbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.