Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
MENGUNARSLYS varð í Varmá í
Mosfellsbæ í fyrrakvöld þegar heitt
vatn frá Orkuveitu Reykjavíkur lak í
ána.
Tugir fiska sem og nokkrir and-
arungar drápust. Ljóst er að um bil-
un var að ræða hjá Orkuveitu
Reykjavíkur.
Páli Kristjánssyni, hnífasmið, sem
búsettur er við Álafossveg í Mos-
fellsbæ, varð litið út um eldhús-
gluggann sinn í fyrrakvöld og sá að
það rauk úr Varmá. „Það er svo sem
ekki óvanalegt að áin sé óeðlileg,
stundum er hún rauð, stundum blá
og stundum er froða í henni en það
hefur aldrei rokið úr henni fyrr. Ég
fór og athugaði þetta og þá kom í
ljós að hún var svo heit að ég gat
ekki haldið hendi í henni,“ segir
Páll.
Fljótlega fór hann að sjá dauða
fiska fyrir neðan Álafoss og að-
spurður segir hann að þeir hafi skipt
tugum. Þá sá hann einnig þrjá til
fjóra dauða andarunga.
Þegar Guðmundur Þóroddsson,
forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur,
var inntur eftir ástæðu slyssins
sagði hann að í augnablik hefði
stöðvast vatnsrennsli til Reykjavík-
ur en við það fylltust skiljurnar sem
taka við vatninu frá borholunni. Það
vatn hefði því runnið í Varmá. „Tal-
ið er að heita vatnið hafi lekið í ána í
10 mínútur en það var rúmlega 80
gráða heitt.“
Spurður hvað fyrirtækið hygðist
gera í framhaldi sagði hann að nú
væri búið að laga bilunina í stjórn-
lokanum. Honum var ekki kunnugt
um að slíkt hefði komið fyrir áður.
Slæmar afleiðingar
fyrir lífríkið
Þorsteinn Narfason, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Kjósarsvæðis, hafði rétt nýlokið að
skrifa Orkuveitunni bréf þegar
blaðamaður náði tali af honum. Þar
var þess óskað að fá nánari skýringu
á því sem gerst hafði sem og að
hvatt var til að boðaður yrði fundur
þar sem hægt væri að ræða fyr-
irbyggjandi aðgerðir.
„Við gengum nokkrir upp með
allri ánni og fundum enga orsök
þannig að ég hafði samband við hita-
veitustjóra hjá Mosfellsbæ og hann
sagði mér frá því að bilun hefði orð-
ið hjá Orkuveitunni,“ segir Þor-
steinn og bætir við að þetta hafi
slæmar afleiðingar fyrir lífríkið í og
umhverfis ána sem verið sé að reyna
að byggja upp. „Heilbrigðiseftirlitið
er búið að vinna kerfisbundið í nokk-
ur ár við að hreinsa ána en það hef-
ur verið endalaust álag á hana eins
og fram hefur komið í fjölmiðlum.“
Morgunblaðið/Billi
Páll Kristjánsson við Álafoss í Varmá með hluta þeirra dauðu fiska sem hann fann.
Tugir fiska og
nokkrir andar-
ungar drápust
Heitt vatn rann í Varmá í Mosfellsbæ
KIRKJUDAGAR á Jónsmessu
verða haldnir á Skólavörðuhæð
föstudaginn 22. og laugardaginn 23.
júní næst komandi með þátttöku
fólks hvaðanæva af landinu og lýkur
þeim aðfaranótt 24. júní.
Á Kirkjudögum verður fjölbreytt
dagskrá. Hún var kynnt á blaða-
mannafundi í Hallgrímskirkju af
skipuleggjendum daganna, þeim sr.
Bernharði Guðmundssyni, verkefn-
isstjóra Kirkjudaga, Birgittu Thor-
steinsson, fulltrúa Reykjavíkurpró-
fastsdæmis eystra, sr. Gísla
Jónassyni prófasti í Reykjavík-
urprófastsdæmi eystra, Gyðu Karls-
dóttur, framkvæmdastjóra lands-
sambands KFUM og K og Guðna
Má Harðarsyni, starfsmanni
Kirkjudaga.
Ókeypis
aðgangur
Þetta er í fyrsta sinn sem Kirkju-
dagar eru haldnir hér á landi en
þeir eiga sér langa hefð í nágranna-
löndum okkar. Bernharður Guð-
mundsson, verkefnisstjóri, segir að
kirkjan sé með þessu að bjóða til
samtals og samveru, til sameigin-
legrar uppbyggingar og stefnu-
mörkunar, ekki með ályktunum eða
yfirlýsingum heldur með upplifun-
um.
„Yfirskrift Kirkjudaga er, eins og
biskup segir; „Komdu fagnandi til
kirkjudaga“. Þetta verða látlausir
dagar en glaðir og gagnlegir og það
er ókeypis aðgangur.“
Áhersla lögð á börn
og unglinga
Hann segir að þjóðkirkjan sé
einnig að láta það sjást og heyrast
að hún eigi samleið með íslensku
þjóðinni og að hún vilji halda áfram
að eiga veigamikinn hlut í mótun
nýrrar kynslóðar. „Þess vegna höf-
um við lagt mikla áherslu á dagskrá
fyrir börn sem við skiptum niður í
fjóra hópa eftir aldri. Þá verður
haldið Kirkjuþing unga fólksins og á
það koma tveir fulltrúar úr hverju
prófastsdæmi,“ en framkvæmda-
stjóri þess er Guðni Már Harðar-
son.
Guðni segir að þar sé um að ræða
fólk á aldrinum 15 - 22 ára. „Fengn-
ir voru tíu einstaklingar víðsvegar
að af landinu til að koma með hug-
myndir um hvað þeim þætti mik-
ilvægast að kirkjan myndi ræða um
á nýrri öld. Við ætlum meðal annars
að ræða um hvernig kirkjan getur
náð til ungs fólks, hvernig bæta
megi markaðssetningu, hvernig
nýta megi Netið og skoða hvar
sóknarfærin liggi helst.“
„Trú og efi í textum U2“
Á Kirkjudögum verður eins og
áður segir um fjölbreytta dagskrá
að ræða. Boðið verður upp á tónlist,
leiklist og myndlist. Þá verða um 50
málstofur haldnar sem standa í
klukkustund þar sem rætt verður
um genarannsóknir og siðfræði,
mannréttindi, umhverfisvernd,
trúarbrögð, samskipti hjóna og upp-
eldismál svo eitthvað sé nefnt. Sem
dæmi um málstofur má nefna „Eru
stelpur trúaðri en strákar?“, „Trú
og efi í textum U2“ og „Afnám
skulda fátækustu ríkja heims, leið
til betri framtíðar“.
Á Kirkjudögum taka ritstjórar,
skáld, leikarar og fjöldi tónlistar-
manna þátt í kvöldsamverum.
Dagskrá Kirkjudaga fer fram í
Iðnskóla Reykjavíkur, Vörðuskóla,
Hallgrímskirkju og í tjaldi úti á
hlaði. Boðið verður upp á barna-
gæslu á staðnum og enn fremur
verður matsala á staðnum.
Hægt er að nálgast dagskrá
kirkjudaga í öllum kirkjum, á slóð-
inni www.kirkjan.is og á Biskups-
stofu.
Kirkjudagar haldn-
ir á Skólavörðuhæð
Morgunblaðið/Golli
Dagskrá Kirkjudaga kynnt: Birgitta Thorsteinsson, Guðni Már Harð-
arson, Bernharður Guðmundsson, Gyða Karlsdóttir og Gísli Jónasson.
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra opnar sýningu á íslenskri
skurðlist úr Þjóðminjasafni í Ljósa-
fossstöð kl. 14.00 í dag.
Þjóðminjasafn Íslands gengst í
samvinnu við Landsvirkjun og
Byggðasafn Árnesinga fyrir sýningu í
kynningarsal Landsvirkjunar í
Ljósafossstöð við Sog. Sýningunni
var valið heitið Skáldað í tré – Íslensk
skurðlist úr Þjóðminjasafni en þar er
lögð áhersla á að kynna fyrir sýning-
argestum sem fjölbreyttast úrval út-
skorinna muna úr tré, beini og horni
sem varðveittir eru í Þjóðminjasafn-
inu. Varpað er ljósi á hina íslensku
tréskurðarlist sem var stunduð hér á
landi allt frá landnámsöld. Hið elsta
sem til sýnis er eru Flatatungufjal-
irnar frá 12. öld og það yngsta frá of-
anverðri tuttugustu þar sem eru
munir eftir útskurðarmeistara sem
áttu þess kost að leggja stund á fag-
legt nám í greininni.
Norski fræðimaðurinn Ellen Marie
Magerøy hefur í áratugi stundað
rannsóknir á íslenskri tréskurðarlist
og eru rannsóknarniðurstöður henn-
ar lagðar til grundvallar á sýningunni
og innan skamms mun birtast yfirlits-
grein í Árbók Hins íslenzka fornleifa-
félags. Í tengslum við sýninguna var
gefin út vönduð sýningarskrá, segir í
fréttatilkynningu. Þar ritar Þór
Magnússon stutt yfirlit um íslenskan
útskurð og birtar eru ljósmyndir af
völdum gripum.
Steinþór Sigurðsson listmálari
hannaði sýninguna í Ljósafossstöð.
Aðrir sem komu að uppsetningu
hennar frá Þjóðminjasafni eru
Margrét Gísladóttir, Árni Guðmunds-
son, Gunnar Smári Þorsteinsson og
Lilja Árnadóttir. Jafnframt aðstoð-
uðu starfsmenn Ljósafossstöðvar á
ýmsa lund.
Sýningin verður opin fram á vetur
en í sumar er hún opin alla virka daga
kl. 13:00 til 17:00 og um helgar kl.
13:00 til 18:00.
Skurðlist úr
Þjóðminjasafni
í Ljósafossstöð
HIÐ árlega Kvennahlaup ÍSÍ
fer fram í tólfta sinn í dag, laug-
ardaginn 16. júní. Aðalhlaupið
verður við Garðaskóla í Garða-
bæ og hefst dagskrá þar klukk-
an 13:30, en ræst verður í
hlaupið sjálft klukkan 14:00.
Einnig verður hlaupið í Mos-
fellsbæ klukkan 12 og á meira
en 100 stöðum bæði hérlendis
og erlendis. Nánari upplýsingar
um hlaupin má finna á heima-
síðu Kvennahlaupsins í gegnum
sjova.is.
Gígja Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kvennahlaupsins,
segir undirbúning þess hafa
gengið afar vel og að um þrjú
þúsund konur hafii þegar skráð
sig. Hún segir að mjög góð
stemning sé fyrir hlaupinu, alls
staðar um landið, en búist sé við
að um 20 þúsund konur á öllum
aldri taki þátt, þar af sex til
áttaþúsund í hlaupinu í Garða-
bæ.
Gígja segir að Kvennahlaupið
sé orðið árviss viðburður hjá
fjölda kvenna og að margar hafi
tekið þátt frá upphafi og geti
ekki hugsað sér að missa af því.
Þannig miði þær sumarfrí og
annað við þátttöku í hlaupinu.
Búist er við þátttakendum á
öllum aldri að vanda, en í fyrra
var yngsta konan fáeinna vikna
gömul og sú elsta níutíu og níu
ára.
Mikill áhugi á
kvennahlaupi
KARLMAÐUR meiddist þegar
hann varð fyrir þungri járnstöng í
steypuskála álversins á Grundar-
tanga um klukkan 11 á fimmtudags-
morgun.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi fékk maðurinn
stöngina í kviðinn þegar verið var að
hreinsa gjall af kerjum. Maðurinn
var fluttur á sjúkrahús til læknis-
skoðunar.
Vinnuslys
í álverinu
á Grund-
artanga