Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 20

Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 20
VIÐSKIPTI 20 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi yf- irlýsing frá Aðalsteini Karlssyni og Lárusi Blön- dal um mál Lyfjaverslunar Íslands: „Í tilefni af viðtali Morgunblaðsins 14. júní 2001 við Grím Sæmundsen, formann stjórnar Lyfja- verslunar Íslands hf., óskum við undirritaðir eftir að taka fram eftirfarandi: Það er hrein fjarstæða, að kominn hafi verið á samningur við Jóhann Óla Guðmundsson um kaupin á Frumafli ehf. með minnisblaðinu í janú- ar. Þetta blað var aðeins innanhússplagg hjá Lyfjaverslun Íslands hf. Á það settu upphafsstafi sína þáverandi stjórnarmenn félagsins en ekki „viðsemjandinn“, eigandi Frumafls ehf. Aðalsteinn Karlsson gaf á sama tíma yfrirlýs- ingu til Lyfjaverslunar, sem fyrst og fremst fól það í sér, að hann myndi ekki leggjast gegn því innan félagsins að farið yrði út í þá nýbreytni í rekstrinum sem fólst í fyrirhuguðum kaupum á Frumafli ehf. Allir vissu, að hann hafði ekki kynnt sér þær forsendur sem lágu til grundvallar tölum á minnisblaðinu, sem reyndar var svo mikil leynd um, að hann fékk ekki einu sinni afhent eintak þess. Engin kaup höfðu verið samþykkt í stjórn félagsins, svo sem nauðsynlegt var, og enginn kaupsamningur gerður. Hann vísar því á bug, að hafa samþykkt að Lyfjaverslun Íslands hf. keypti þetta félag á hærra verði en eðlilegt væri miðað við hlutlaust mat á verðmæti þess. Slíkt samþykki væri líka andstætt lögum. Yfirlýsingin sem hann gaf fól ekki í sér samning við Jóhann Óla Guð- mundsson um kaup á Frumafli ehf.. Henni var að- eins beint að Lyfjaverslun Íslands hf. og stjórn hennar, þ.e.a.s. aðila sem höfðu, eins og Aðal- steinn, þeim brýnu skyldum að gegna, að ekki væri hyglað einum stærsta hluthafa félagsins með því að greiða honum of hátt verð fyrir þetta fyr- irtæki. Skal bent á að lög um hlutafélög hafa að geyma ákvæði, sem eiga að tryggja, að verðmæti sem afhent eru félagi fyrir nýja hluti, þegar greitt er með öðru en peningum, samsvari verðmæti af- hentra hlutabréfa, sjá hér 37. gr., sbr. 6.–7. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög. 2. Framangreindum atriðum til staðfestingar vísast til yfirlýsingar sem fjórir af fimm fyrrver- andi stjórnarmönnum í Lyfjaverslun Íslands hf. hafa gefið og er væntanlega birt í Morgunblaðinu um leið og þessi yfirlýsing. Þar að auki er ljóst, að núverandi stjórn félagsins og stjórnarformaður- inn Grímur Sæmundsen hafa ekki við umfjöllun sína um málið á undanförnum vikum talið að samningur um þessi kaup hafi verið kominn á. Þannig hafði fréttastofa Stöðvar 2 eftir formann- inum 1. júní 2001, að alltaf hafi staðið til að bera ákvörðun um kaupin undir hluthafafund í félag- inu. Í fréttatíma Ríkissjónvarpsins sama dag var ennfremur haft eftir honum, að unnið væri fag- lega „í viðræðum um kaup á Frumafli“. 3. Hið sama sýnir einnig samþykkt stjórnar- fundar í Lyfjaverslun Íslands hf. 22. maí 2001, þar sem fjallað var um málið. Þar var gerð svo- felld bókun: „Samþykkt var að formaður hefði samband við Árna Tómasson, bankastjóra Bún- aðarbanka, viðskiptabanka félagsins, um að fá ráðgjöf við að verðmeta verkefnið.“ Í rafbréfi for- mannsins til stjórnarmanna 29. maí 2001 er sagt, að fresta verði fyrirhuguðum stjórnarfundi þá m.a. vegna þess, að ekki hafi fengist niðurstaða frá Búnaðarbanka vegna Frumafls sem hafi átt að vera aðalefni fundarins. Nú er komið í ljós, að formaðurinn afpantaði álit Búnaðarbankans, sýni- lega af þeirri ástæðu að honum líkaði ekki efni þess! Hverra hagsmuna er hann þar að gæta? Því hlýtur hver maður að geta svarað fyrir sjálfan sig. 4. Í rafbréfinu 29. maí til stjórnarmanna var þeim tilkynnt að vegna fjarveru stjórnarmanna á næstunni væri meðferð Frumaflsmálsins frestað á vettvangi stjórnarinnar, þangað til allir aðal- menn gætu verið viðstaddir. Þrátt fyrir þetta var málið tekið fyrir á síðkvöldsfundi 11. júní, án þess að Lárus L. Blöndal væri boðaður, en hann hafði sent sérstök fyrirmæli um hvert senda bæri boð- anir til sín á meðan hann væri fjarverandi. Á þessum fundi virðist meirihluti stjórnarinnar hafa verið búinn að hanna þá leikfléttu, að „staðfesta“ þegar gerðan samning um málið! Daginn eftir 12. júní lögðum við fram lögbannsbeiðni við samn- ingsgerðinni og tókst þannig, að minnsta kosti í bili, að koma í veg fyrir, að meiri hluti stjórn- arinnar kæmist upp með þetta furðulega fram- ferði sitt. 5. Á aðalfundi Lyfjaverslunar Íslands hf. fyrr á þessu ári gerði Aðalsteinn Karlsson ekki athuga- semdir við, að Jóhann Óli Guðmundsson fengi að ráða þremur aðalstjórnarmönnum af fimm og báðum varamönnum stjórnarinnar. Var Aðal- steinn þó stærsti hluthafinn í félaginu. Það er því sérkennilegt, að lesa það haft eftir formanni stjórnarinnar, að þetta mál snúist um „valdabar- áttu“ innan félagsins. Aðalsteinn átti hins vegar ekki von á öðru en fulltrúar Jóhanns Óla myndu innan stjórnarinnar vilja standa að samningsgerð við Jóhann þannig að gætt væri á forsvaranlegan hátt hagsmuna Lyfjaverslunar Íslands hf. 6. Formaður stjórnarinnar reynir að drepa þessu máli á dreif með því að gera tortryggilegan samning Lyfjaverslunar Íslands hf. (og þar með sjáfs sín) um kaupin á A. Karlssyni hf. Allt slíkt er fjarstæða. Þar var um að ræða samruna tveggja fyrirtækja og um hann í einu og öllu farið að ákvæðum laga. Eftir að sá samningur var gerður, kom upp, að forsendur um rekstur A. Karlssonar hf. á síðasta ári stóðust ekki að öllu leyti og var við því brugðist með viðaukasamningi í mars sl., þar sem kaupverð var lækkað. Þetta var gert þó að í yfirlýsingunni frá janúar 2001 væri berum orðum sagt, að frá umsömdu kaup- verði yrði ekki vikið, en Morgunblaðið birti þessa yfirlýsingu 14. júní. Ekki er annað vitað en samn- ingsaðilar séu að öllu leyti sáttir um efni við- aukasamningsins. 7. Meginatriði þessa máls er að verið er að gera samning í þessu almenningshlutafélagi við einn stærsta hluthafann í félaginu, sem fengið hefur að ráða meiri hluta stjórnarinnar. Krafa okkar hefur aðeins verið sú, að slíkur samningur sé ekki gerð- ur nema fyrir liggi hlutlaus athugun á kaupverð- inu. Vekur mikla undrun, að meiri hluti stjórn- arinnar skuli ekki hafa viljað standa þannig að málum. Reykjavík, 15. júní 2001, Aðalsteinn Karlsson og Lárus L. Blöndal.“ Yfirlýsing Aðalsteins Karlssonar og Lárusar Blöndal um mál Lyfjaverslunar Fjarstæða að samning- ur hafi verið kominn á TILKYNNT var á Verðbréfa- þingi Íslands í gær að þingið hefði ákveðið að verða við ósk stjórnar Lyfjaverslunar Ís- lands hf. um að færa bréf félagsins tímabundið á athug- unarlista í ljósi þeirrar óvissu sem upp væri komin í stjórn félagsins. Vísað var til 36. greinar reglna um skráningu verðbréfa á VÞÍ. Samkvæmt upplýsingum frá Finni Sveinbjörnssyni, framkvæmdastjóra VÞÍ, felst í færslu félags á athugunar- lista hvatning til væntanlegra kaupenda og seljenda að fara varlega, gæta að sér, þegar þeir hyggjast eiga viðskipti með hlutabréf í viðkomandi félagi. Í þessu felist enginn dómur, áminning, viðvörun eða annað þess háttar. Fimm önnur félög á athugunarlista Í gær voru fimm félög á at- hugunarlista VÞÍ auk Lyfja- verslunar, sem var þó eina félagið á aðallista þingsins á þessum lista. Finnur segir að Lands- bankinn og Búnaðarbankinn hefðu verið fyrstu félögin til að lenda á athugunarlista VÞÍ. Það hafi verið á síðasta ári þegar óvissan hafi verið mest um hvað stjórnvöld hefðu í hyggju að gera með bankana. Lyfja- verslun á athug- unarlista VÞÍ FJÓRIR af fimm stjórnarmönnum í Lyfjaverslun Íslands hf., starfs- árið 2000-2001, sendu Morgun- blaðinu eftirfarandi yfirlýsingu í gær: „Reykjavík, 15.6. 2001. Til hluthafa í Lyfjaverslun Ís- lands hf. Við undirritaðir, fjórir af fimm stjórnarmönnum í Lyfjaverslun Ís- lands hf., starfsárið 2000-2001, lýs- um furðu og undrun yfir staðhæf- ingum sem fram koma í bréfi Hróbjartar Jónatanssonar, hrl. f.h. Jóhanns Óla Guðmundssonar dags. 11.6. 2001 til eins okkar, Arnar Andréssonar, sem einnig situr í núverandi stjórn. Svipaðar stað- hæfingar koma fram í tilkynningu núverandi stjórnar til Verðbréfa- þings Íslands dags. 15.6. 2000 og í umfjöllun í Morgunblaðinu í gær. Stjórnin starfsárið 2000-2001 var fullkomlega samstillt í vinnu sinni við kaup á fyrirtækjunum A. Karlssyni hf. og Thorarensen Lyfjum ehf. Um þau mál ríkti al- ger samstaða. Þar höfðum við að leiðarljósi hagsmuni allra hluthafa Lyfjaverslunar og má benda á dóm hlutabréfamarkaðarins á þeim gjörningum okkar. Hlutabréf Lyfjaverslunar Íslands hafa hækk- að í verði eftir þau kaup á sama tíma og langflest önnur íslensk hlutabréf hafa lækkað verulega. Varðandi kaup á Frumafli hf. eða „Sóltúnsverkefninu“ hlaut á hverjum tíma að gilda sama regla, slík viðskipti komu aðeins til greina að þau væru öllum hlut- höfum til hagsbóta. Að gefa það í skyn að við höfum verið tilbúnir til að veita eiganda Frumafls hf. sér- staka umbun fyrir að kjósa ekki gegn öðrum málum á hluthafa- fundum, á kostnað almennra hlut- hafa, er fráleitt. Aðild að „Sóltúnsverkefninu“ var vissulega áhugaverð fyrir Lyfjaverslun Íslands enda kynnt- um við okkur málið vel. Kaup á því komu að sjálfsögðu aðeins til greina á eðlilegu samningsverði, eftir ýtarlega áreiðanleikakönnum á öllum forsendum. Með samninga um það fyrirtæki giltu auðvitað sömu grundvallarreglur og um samninga við kaup á öðrum fyr- irtækjum. Stjórnarmenn settu upphafsstafi sína á minnisblað með tölum sem seljandi verkefnisins var með í huga. Var þetta gert fyrir hlut- hafafund í félaginu þannig að ljóst væri hvað seljandinn væri að fara fram á. Eins og blaðið ber með sér var það vinnugagn stjórnar, sem krotað var inn á og hefur aðeins þýðingu sem slíkt. Yfirlýsing frá Aðalsteini Karlssyni fyrir sama hluthafafund sem fjórir af fimm stjórnarmönnum vottuðu getur engan veginn þýtt að almennings- hlutafélagið Lyfjaverslun Íslands hf. væri bundið í ívilnandi sam- komulag til stærsta hluthafans þá. Við ítrekum að í fyrri stjórn var enginn samningur gerður um áð- urgreint verkefni eða Frumafl hf. Sá skilningur hefur verið staðfest- ur af núverandi stjórn Lyfjaversl- unar Íslands hf. sem m.a. hefur farið þess á leit við Búnaðarbanka Íslands hf. að bankinn meti tilboð um kaup á meirihluta í Frumafli hf. Slíkt mat óháðs aðila virðist þó enn ekki liggja fyrir. Ef meirihluti núverandi stjórnar vill gera samn- ing við næststærsta hluthafa félagsins, án þess að fyrir liggi mat óvilhallra sérfræðinga, áreið- anleikakönnun og samþykki hlut- hafafundar, er það á alla ábyrgð hans. Meirihlutinn verður að standa skil á slíkum gjörningi á væntanlegum hluthafafundi í félaginu. Við þrír undirritaðir, Margeir Pétursson, Ólafur Njáll Sigurðs- son og Sverrir Sverrisson, vikum úr stjórn Lyfjaverslunar Íslands hf. á aðalfundi hinn 2. apríl 2001. Undirritaður, Örn Andrésson, þriðji stærsti hluthafi félagsins, var áfram í stjórn og hélt áfram að starfa samkvæmt bestu sannfær- ingu sinni í þágu allra hluthafa félagsins, smárra sem stórra. M.a. hefur hann bent núverandi stjórn- armönnum á það sem fram kemur í þessari yfirlýsingu. Það er von okkar að deilum um félagið linni hið bráðasta og það haldi áfram farsælu starfi sínu í þágu allra hluthafa, starfsmanna og viðskiptavina. Virðingarfyllst, Ólafur Njáll Sigurðsson (sign), Sverrir Sverrisson (sign), Margeir Pétursson (sign), Gunnar Jónsson, hrl. (sign), f.h. Arnar Andréssonar.“ Yfirlýsing frá 4 af 5 stjórnarmönnum Lyfjaverslunar Lýsa furðu og undrun yfir staðhæfingum SELJENDUR Thorarensen – Lyfja ehf. hafa ekki fengið afhent þau hlutabréf í Lyfjaverslun Íslands hf. sem samkvæmt samningi voru hluti af greiðslum Lyfjaverslunar fyrir félagið, að sögn Stefáns Bjarnason- ar, framkvæmdastjóra Thorarensen – Lyfja. Hann segir að einungis hafi verið gengið frá peningagreiðslu vegna sölunnar en engin skýring hafi fengist hjá stjórnendum Lyfjaversl- unar á drætti á afhendingu hluta- bréfanna. Einu svörin sem fengist hafi séu á þá leið að hlutabréfin komi í næstu viku. Hlutabréfin afhent eftir helgi Um er að ræða hlutabréf í Lyfja- verslun Íslands að fjárhæð 50 millj- ónir króna að nafnvirði. Lokaverð hlutabréfa í Lyfjaverslun á Verð- bréfaþingi Íslands í gær var 5,50. Miðað við það er um að ræða 275 milljónir króna. Grímur Sæmundsen, stjórnarfor- maður Lyfjaverslunar Íslands’ segir að eigendur Thorarensen – Lyfja muni fá hlutabréfin afhent eftir helgina. Skýringin á drættinum á af- hendingu þeirra sé sú að einhver formleg gögn hafi vantað. Auk þess hafi Jóhannes Sigurðsson, lögfræð- ingur Lyfjaverslunar, sem annast þessi mál, þurft að ráðfæra sig við endurskoðanda fyrirtækisins vegna þessara mála. Endurskoðandinn hafi hins vegar verið í fríi en mæti til vinnu næstkomandi mánudag. Grím- ur segir að þar að auki hafi Jóhannes verið mjög upptekinn vegna þeirra mála sem upp hafi komið hjá Lyfja- verslun að undanförnu en staðið verði við það að afhenda hlutabréfin eftir helgina. Dráttur á afhend- ingu hlutabréfa Kaup Lyfjaverslunar Íslands á Thorarensen – Lyfjum ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.