Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 22
ERLENT
22 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
mönnum og samherjum“. Sagðist
hann leggja höfuðáherslu á að „koma
á trausti“ milli sín og Pútíns á þess-
um fyrsta fundi þeirra.
Bush lýsti þó áhyggjum af því að
Rússar sæju óvinveittum ríkjum fyr-
ir vopnum og kvaðst myndu taka
málið upp á fundinum með Pútín.
Bandarískir embættismenn sögðu
á fimmtudag að forsetinn myndi fara
þess á leit við hinn rússneska starfs-
bróður sinn að háttsettir ráðamenn
drægju sig út úr viðræðum ríkjanna
um afvopnunarmál og lægra settir
embættismenn og sérfræðingar
tækju við. Í forsetatíð Bills Clintons
og Borísar Jeltsíns stýrðu þáverandi
varaforseti og forsætisráðherra, Al
Gore og Viktor Tsjernómyrdín,
nefnd sem hafði yfirumsjón með mál-
um er vörðuðu samskipti ríkjanna,
en Bush vill nú leggja hana niður.
Embættismennirnir sögðu enn-
fremur að Bush myndi falast eftir
frekara samstarfi við Rússa í við-
leitni til að sporna gegn hryðjuverk-
um.
Pútín með yfirhöndina
Vladímír Pútín var hins vegar
harðorðari á fréttamannafundi í
rússneska utanríkisráðuneytinu í
gær. Ítrekaði hann andstöðu Rússa
við eldflaugavarnaáform Banda-
ríkjastjórnar og sagði þá ekki myndu
líða brot á Gagneldflaugasáttmálan-
um.
Pútín varaði jafnframt við því að
frekari stækkun NATO til austurs
myndi vera „alvarleg mistök“, en
Rússar eru einkum mótfallnir því að
Eystrasaltslöndin fái inngönu í
bandalagið.
Fundurinn með Pútín er álitinn
ein helsta prófraun Bush í utanrík-
ismálum frá því hann tók við emb-
ætti fyrir fimm mánuðum. Að mati
margra fréttaskýrenda hefur Pútín
yfirhöndina, bæði hvað varðar mál-
efnastöðu og reynslu á sviði alþjóða-
stjórnmála. Töldu þeir víst að Pútín
hefði það á valdi sínu hvort fundur-
inn skilaði árangri eður ei og bentu á
að hann hefði engu að tapa, ólíkt
Bush, sem hefði á sér orð fyrir
reynsluleysi og vankunnáttu í utan-
ríkismálum.
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti og Vladímír Pútín Rússlandsfor-
seti hittast í fyrsta sinn að máli í
Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, í dag.
Fundur leiðtoganna mun standa í
tvær klukkustundir, en öryggis- og
varnarmál verða efst á baugi.
Fréttaskýrendur áttu von á að við-
ræður Bush og Pútíns yrðu nokkuð
stífar, enda hafa samskipti ríkjanna
einkennst af vaxandi tortryggni á
undanförnum mánuðum. Rússar
hafa harðlega mótmælt áformum
Bandaríkjastjórnar um að koma upp
eldflaugavarnakerfi, sem þeir segja
ganga í berhögg við Gagn-
eldflaugasáttmálann frá 1972, og
hafa áhyggjur af stækkun Atlants-
hafsbandalagsins (NATO). Víst þyk-
ir að Pútín muni koma mótmælum
Rússa á framfæri við Bush á fund-
inum.
Bandaríkjamenn eru á hinn bóg-
inn uggandi yfir kjarnorkumálum
Rússa og sölu þeirra á vopnum og
tækni til „útlagaríkja“ á borð við Ír-
an. Þeir eru jafnframt sagðir óttast
að Rússar taki upp nánari samskipti
við Kína og að ríkin tvö sameinist
gegn Bandaríkjunum á alþjóðavett-
vangi.
Bush leggur áherslu
á að koma á trausti
Bush sagði við upphaf opinberrar
heimsóknar sinnar til Póllands í gær
að hann vildi gera Rússa að „banda-
Fyrsti fundur Bush Bandaríkjaforseta og Pútíns Rússlandsforseta í Slóveníu
Öryggis- og varnarmál
verða efst á baugi
Reuters
George W. Bush Bandaríkjaforseti og Aleksander Kwasniewski, forseti
Póllands, veifa fréttamönnum fyrir utan forsetahöllina í Varsjá í gær,
þar sem Bush var í opinberri heimsókn.
Varsjá, Washington. AFP, AP.
Alsírstjórn
neitar
fregnum
um skotárás
Algeirsborg. AFP, AP.
ALSÍRSKA innanríkisráðuneytið
neitaði því í gær að lögregla hefði
skotið á fólk, sem var meðal þeirra
sem efndu til mótmælaaðgerða í Al-
geirsborg í fyrradag. Hefðu stjórn-
völd reynt að halda ró sinni þrátt fyrir
óeirðir, sem brutust út þegar kveikt
var í húsum og rúður brotnar. Tveir
menn létust og 400-500 særðust, að
sögn sjúkrahússyfirvalda.
Lögreglan beitti vatnsbyssum og
táragasi gegn mótmælendum, sem
gengu til forsetahallarinnar og kröfð-
ust aukins lýðræðis. Eykur þetta enn
á vanda alsírsku ríkisstjórnarinnar,
sem nýtur stuðnings hersins, en hún á
einnig í höggi við múslímska upp-
reisnarmenn í landinu.
Engar opinberar tölur hafa verið
birtar um hversu margir tóku þátt í
mótmælaaðgerðunum, en að sögn
bandaríska sjónvarpsins CNN er tal-
ið að fjöldinn hafi numið allt að hálfri
milljón. Aðrar heimildir segja mót-
mælendurna hafa verið allt að einni
milljón.
Frumbyggjar N-Afríku
Það voru Berbar sem áttu frum-
kvæðið að mótmælaaðgerðunum í Al-
geirsborg, en þeir eru taldir frum-
byggjar Norður-Afríku. Hafa
samskipti þeirra við alsírsk stjórn-
völd verið stirð í marga áratugi, en
Berbar krefjast þess m.a. að móður-
mál þeirra, Tamazight, hljóti opin-
bera viðurkenningu og að endir verði
bundinn á það misrétti sem þeir séu
beittir.
Mótmælaaðgerðirnar í Algeirsborg
í fyrradag komu í kjölfar þess að að
minnsta kosti 52 hafa fallið í óeirðum
er staðið hafa í allt að einn og hálfan
mánuð í heimahéraði Berba, fjalla-
héraðinu Kabýla, en héraðsmörk þess
eru um það bil 100 km austur af Al-
geirsborg. Aðgerðir Berba hlutu fljót-
lega hljómgrunn meðal fólks úr öðr-
um þjóðfélagshópum, að því er CNN
greinir frá og fjöldi óánægðra lands-
manna gekk til liðs við þá. Í Alsír eru
miklar gasauðlindir, en spilling er út-
breidd í stjórnkerfinu og atvinnuleysi
fer hratt vaxandi.
TIL óláta kom á þingfundi í Rúss-
landi í gær, þar sem rætt var um um-
bætur í jarðnæðismálum. Hindruðu
stjórnarandstæðingar ráðherra í að
ávarpa þingið og hundruð ástríðu-
fullra mótmælenda söfnuðust saman
fyrir utan þinghúsið og veifuðu rauð-
um fánum.
Forseti þingsins, Gennadí Selezní-
jov, stöðvaði umræðurnar „til að
menn geti slakað á“ eftir að Nikolai
Kharitonov, leiðtogi flokksbrots í
Bændaflokknum, skundaði í pontu
veifandi brauðhleif og varaði við því,
að ef umbæturnar yrðu samþykktar
myndu Rússar ekki lengur verða
sjálfum sér nógir um brauð.
„Ennþá ræktum við korn á rúss-
neskum ökrum svo við getum bakað
okkar brauð,“ sagði hann við troðfull-
an þingsalinn og dreifði brauðmolum
til leiðtoga mið- og hægriflokka, sem
eru hlynntir tillögum um breytingar á
lögum um ríkisjarðir.
Þingmenn kommúnista og banda-
menn þeirra í Bændaflokknum veif-
uðu borða sem á stóð: „Að selja jarðir
er að selja landið.“ Aðrir andstæðing-
ar umbótatillagnanna komu í veg fyr-
ir að efnahagsþróunarráðherra, Ger-
man Gref, gæti tekið til máls.
Áður hafði leiðtogi Kommúnista-
flokksins, Gennadíj Zjúganov, ávarp-
að mótmælendur fyrir utan sali neðri
deildar þingsins og varað við því, að ef
tillögurnar yrðu samþykktar myndi
flokkur sinn hvetja til þegnlegrar
óhlýðni, m.a. með „tálmum á vegum
landsins.“
Reiðir mótmælendur, flestir fyrr-
verandi kommúnistar og herskáir
félagar í hópi vinstrimanna, veifuðu
rauðum fánum og borðum sem á stóð:
„Landið er móðir okkar. Maður selur
ekki móður sína.“
Kommúnistar og bandamenn
þeirra fullyrða að jarðnæðisfrum-
varpið, sem stjórnvöld vilja fá sam-
þykkt sem lög, muni leiða til þess að
allt að 98% af rússnesku landi verði
falt. Síðan 1994 hefur einkaeign á
jörðum verið leyfð með staðbundnum
lögum, sem hafa verið samþykkt á
þingum í einstökum héruðum eða
með staðbundnum tilskipunum. Hef-
ur þetta aftur á móti stangast á við al-
ríkislög.
Vladimír Pútín, forseti Rússlands,
hefur lagt áherslu á umbætur í jarð-
næðismálum og bent á mikilvægi þess
að greiða úr ruglingnum. Heldur
hann því fram að skortur á lögum um
eignarhald á jörðum komi í veg fyrir
fjárfestingu og valdi spillingu. Frum-
varpið sem nú er til umræðu snýst um
jarðir þar sem ekki er ræktarland.
Ákvæði um eignarhald á bújörðum
eiga að verða hluti af öðru frumvarpi,
sem semja á eftir samninga við bænd-
ur. Umbótasinninn Vjatsjeslav Vol-
ódín, sem er þingmaður vinstri-
miðjuflokksins Rússland allt, sagði að
Pútín hefði staðið við loforð um að
strika út úr frumvarpinu greinar um
bújarðir, og varaði hann við því að ef
ekki yrði fundin lausn á málinu yrðu
jarðir „seldar til héraðsbaróna án
þess að nokkur alríkislög næðu yfir
þær.“
Heitar umræður í Dúmunni um sölu ríkisjarða
Kommúnistar hóta
þegnlegri óhlýðni
AP
Hundruð liðsmanna rússneska kommúnistaflokksins efndu til fundar
við húsakynni neðri deildar þingsins í Moskvu í gær til að mótmæla
áformunum um sölu jarðnæðis.
Moskvu. AFP.
Coloss-
eum reist
fyrir
ránsfeng?
Róm. Daily Telegraph.
FORNLEIFAFRÆÐINGAR
hafa nú fundið vísbendingar
um að Colosseum, hringleika-
húsið í Róm sem notað var til
dýrasýninga og bardaga
skylmingaþræla, hafi verið
byggt fyrir ránsfeng úr gyð-
ingahofi í Jerúsalem. Áletrun
á minnisvarða sem nýlega var
ráðið fram úr þykir benda til
þessa.
Á minnisvarðann, sem sýnd-
ur var opinberlega sl. fimmtu-
dag, er ritað að árið 443 e. Kr.
hafi öldungadeildarþingmaður
að nafni Lampaudius látið
endurgera hringleikahúsið.
Fornleifafræðingar ráku hins
vegar augun í aðra áletrun úr
bronsi undir þeirri fyrrnefndu
sem hafði áður verið grafin í
steininn. Sú áletrun hefur ver-
ið þýdd: „Sesar Vespasian
Ágústus keisari lét reisa þetta
nýja hringleikahús fyrir her-
fang úr stríðinu.“
Hernám Jerúsalem-
borgar árið 70
Haft er eftir Cinzia Conti,
stjórnanda viðgerða á Coloss-
eum sem nú standa yfir, að
enginn vafi sé á því að hér sé
átt við ránsfeng frá Jerúsal-
em.
Ránið á gyðingahofinu í
Jerúsalem átti sér stað þegar
Titus, þáverandi keisari
Rómaveldis, hernam Jerúsal-
em og lagði í rúst árið 70 e.
Kr.
Rómaveldi
Skrefi nær
WTO-aðild
Peking. AFP.
KÍNVERJAR hafa fallist á að há-
mark niðurgreiðslu í landbúnaði
verði lægra en þeir höfðu upphaflega
farið fram á að það yrði eftir að þeir
yrðu aðilar að Heimsviðskiptastofn-
uninni (WTO), að því er fram kemur
á minnisblaði um samkomulag Kín-
verja og Bandaríkjamanna.
Í því augnamiði að draga úr
áhyggjum bænda í Bandaríkjunum
munu Kínverjar takmarka niður-
greiðslur við 8,5% af heildarverðgildi
landbúnaðarframleiðslu, í stað 10%,
sem þeir höfðu farið fram á.
„Við fórum fram á lægri [niður-
greiðslur] við Kínverja vegna þess
að Kína er einn stærsti landbúnaðar-
vöruframleiðandi heims og veitir
harða samkeppni í framleiðslu nokk-
urra vörutegunda,“ segir á minnis-
blaði bandarískra stjórnvalda.
Niðurgreiðslur sem Kínverjar
veita þarlendum bændum hafa verið
ein helsta hindrunin fyrir aðild
landsins að WTO. Vildu Kínverjar
teljast þróunarland, sem hefði leyft
þeim að veita allt að tíu prósent nið-
urgreiðslur, en Bandaríkjamenn
höfðu hafnað þeirri kröfu á þeim for-
sendum að Kína væri of stórt.
Samkomulag Kínverja og Banda-
ríkjamanna náðist á fundum við-
skiptafulltrúa Bandaríkjanna og ut-
anríkisráðherra Kína sem hittust
óformlega á ráðstefnu viðskiptaráð-
herra Kyrrahafsríkja í Shanghai í
síðustu viku.
♦ ♦ ♦