Morgunblaðið - 16.06.2001, Síða 36
Í GREIN eftir
Gunnlaug Árnason í
Stykkishólmi, sem birt
var í Morgunblaðinu sl.
fimmtudag, er Sam-
herji hf. vændur um
óheilindi í tengslum við
sölu bátsins Sæþórs
EA 101. Sú ásökun er
úr lausu lofti gripin.
Málavextir eru þeir
að útgerðarfyrirtækið
Sólborg hf. í Stykkis-
hólmi gerði Samherja
tilboð í Sæþór EA og
var það tilboð sam-
þykkt. Síðan gerðist
það að sveitarfélagið,
sem samkvæmt lögum átti forkaups-
rétt að viðkomandi bát, nýtti sér
þann rétt og gekk inn í kaupin. Við
því gat Samherji vitanlega ekkert
gert og kom þar hvergi nærri.
Það kann vel að vera að ég hefði
átt að greina Sólborgarmönnum fyrr
frá hugmyndum manna á Dalvík um
að ganga hugsanlega inn í kaupin á
grundvelli forkaupsréttar. Það gerði
ég hins vegar ekki. Fréttir um fyr-
irhuguð kaup voru mjög á reiki og
óstaðfestar. Við hjá Samherja höfum
á liðnum árum selt og keypt tugi
Skipasala
Samherji, seg-
ir Aðalsteinn
Helgason,
gekk ekki á
bak orða sinna.
skipa. Í þeim viðskipt-
um hefur venjan verið
sú að viðkomandi
skipasali sér um að
sveitarfélaginu sé boð-
inn forkaupsréttur með lögformleg-
um hætti. Ég get alveg tekið það á
mig að hafa ekki kannað hvort geng-
ið hafi verið frá málum með þessum
hætti við söluna á Sæþóri.
Það er deginum ljósara að Sam-
herji gekk á engan hátt á bak orða
sinna. Ég harma þau óþægindi sem
Sólborg hf. hefur orðið fyrir vegna
þessa máls og óska félaginu alls hins
besta í framtíðinni.
Samherji borinn
röngum sökum
Aðalsteinn Helgason
Höfundur er framkvæmdastjóri
landvinnslu Samherja.
UMRÆÐAN
36 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
GAMAN er að því, hvernig
mál geta undið upp á sig, eins
og sést hér á eftir. Miklar þakk-
ir færi ég Ásgeiri Guðmunds-
syni í Reykjavík fyrir þá fyr-
irhöfn sem hann hefur gert sér
vegna þessara pistla og þá
fræðslu sem hann veitir okkur.
Þessi þáttur hefði kannski átt
að heita „Enskt mál“, en ég er
ekkert hræddur, þó að hann sé
bæði íslenskt mál og English
language. Um revíutextann og
aðdraganda hans veit ég nokk-
uð meira, en læt kyrrt liggja að
sinni, en hér kemur bréf Á.G. og
má Billy Boy vel við una.
„Komdu sæll, Gísli.
Ég hef að undanförnu fylgst
með umfjöllun í þætti þínum um
dægurlagatextann við lagið
Billy Boy og þær margvíslegu
útgáfur, sem eru til af honum. Í
1101. þætti kom fram, að þér
finnst það ekki að bera í bakka-
fullan lækinn að halda áfram að
fjalla um þetta efni, og hef ég
því ákveðið að láta slag standa
og leggja líka orð í belg. Tilefnið
er það, að fyrir síðustu jól
áskotnaðist mér geislaplata
með söng Franks Crumits.
Hann var kunnur skemmti-
kraftur í Bandaríkjunum á 3. og
4. áratug síðustu aldar, kom
einkum fram í útvarpi en söng
einnig inn á fjöldann allan af
hljómplötum. Á plötu þessari er
m.a. lagið um Billy Boy. Það er
þjóðlag, og ekki er heldur kunn-
ugt um, hver samdi textann,
sem Frank Crumit hljóðritaði í
desember 1925, en hann er á
þessa leið (ég held, að mér hafi
tekist að ná honum nokkurn
veginn réttum):
Where have you been, Billy Boy, Billy Boy,
oh where have you been, charming Billy?
I have been to seek a wife,
she is the joy of my life.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
Did she ask you to come in, Billy Boy, Billy
Boy,
did she ask you to come in, charming Billy?
Yes, she asked me to come in
with a dimple in her chin.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
Did she set for you a chair, Billy Boy, Billy
Boy,
did she set for you a chair, charming Billy?
Yes, she set for me a chair,
combing down her hair.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
Did she ask you for a ride, Billy Boy, Billy
Boy,
did she ask you for a ride, charming Billy?
Yes, she asked me for a ride,
said she would sit by my side.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
But why should you wed, Billy Boy, Billy
Boy,
but why should you wed, charming Billy?
I can find my happiness,
if she will only tell me yes.
But she is a young thing and cannot leave
her mother.
Has she often seen the church, Billy Boy,
Billy Boy,
Has she often seen the church, charming
Billy?
Yes, she has often seen the church
With a bonafide birch.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
Can she bake a cherry pie, Billy Boy, Billy
Boy,
can she bake a cherry pie, charming Billy?
She can bake a cherry pie
quicker than a cat can wink her eye.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
But how old is she, Billy Boy, Billy Boy,
how old is she, charming Billy?
She is six times seven
twenty eight and eleven.
She is a young thing and cannot leave her
mother.
Eins og sjá má, er þessi texti
frábrugðinn því textabroti, sem
þú birtir í 1097. þætti. Í bækl-
ingi, sem fylgir plötunni, segir
m.a. á þessa leið: „Billy Boy still
survives in the English oral
tradition, and this American
variant of the West Country
song was first noted down in
1824.“ Samkvæmt þessu virðist
hér um að ræða amerískt til-
brigði við upphaflega enska
textann, og það er sennilega sá,
sem þú birtir hrafl úr.
Þá langar mig að víkja að
öðru. Í 954. og 1092. þætti birtir
þú revíubrag, sem byrjar svona:
„Við Eyjafjörð eru átök hörð...“
Nú vill svo til, að fyrir nokkru
gaf Ríkisútvarpið út geislaplötu
með hljómsveit Bjarna Böð-
varssonar. Þar er þetta lag í
flutningi hljómsveitar Bjarna
og Róberts Arnfinnssonar og
heitir Norðanlands og sunnan.
Ég geri ráð fyrir því, að þér sé
kunnugt um tilefni þessa brags,
en það tengist atviki, sem henti
Guðbrand Hlíðar dýralækni í
Barnaskóla Akureyrar árið
1929 og segir frá í ævisögu
hans, sem kom út árið 1992 og
heitir Eyrnatog og steinbítstak.
Með bestu kveðjum.“
Þá þakka ég Erlingi Dags-
syni í Reykjavík fyrir glepsur
úr kveðskapnum um Billy Boy,
bæði á ensku og íslensku. Þar
kemur fátt nýtt fram, svo að
Billaþáttum er hér lokið um
sinn.
Hlymrekur handan kvað:
Fögur er Freygerðar stefna,
en frið má að vísu ekki nefna,
og haldi Jón fram
hjá um eitt gramm,
skal þess harðlega á ’onum hefna.
Auk þess er frá því að segja
að mér hefur borist langt bréf
frá Kristínu Pétursdóttur í
Reykjavík til varnar íslensku
máli, og birtist það innan
skamms tíma, í tvennu eða
þrennu lagi vegna lengdar, og
er þá nokkurt mótvægi við alla
enskuna í þessum þætti.
Þar að auki sá ég eða heyrði
merkan mann nota fleirtöluna
„skotspónarnir“. Ég hélt að
fleirtalan spænir væri svo snar-
lifandi, að mér dauðbrá.
Athuga: Síðasti þáttur var
ekki tandurhreinn. Lakast var
að á hafði fallið niður í tilvitnun
(feitletraðri úr Mergi málsins).
Beðist er velvirðingar á þessu.
ÍSLENSKT MÁL
Umsjónarmaður Gísli Jónsson
1114. þáttur
ÞAÐ ER engin tilvilj-
un, að Reykjavík skuli
hafa yfirburðastöðu
gagnvart öðrum sveit-
arfélögum í landinu
hvað styrkleika og
stærð varðar. Margt
kemur til, en ekki sízt
ber að nefna, að stjórn-
endur Reykjavíkur hafa
jafnan verið framsýnir,
þegar uppbygging at-
vinnulífsins er annars
vegar og hafa í því
sambandi beitt sér fyrir
stórhuga framkvæmd-
um á sviði hafnar- og
orkumála, sem leitt
hafa til öflugra atvinnulífs og bættra
búsetuskilyrða í borginni. Í kjölfarið
hefur Reykjavík síðan styrkst sem
miðstöð stjórnsýslu og verzlunar.
Í byrjun 20. aldar var Reykjavík
nánast eins og stórt þorp, án stein-
lagðra stræta. Þá var hvorki rafmagn
né rennandi vatn í húsum og engar
hafnarbryggjur. Það er ekki fyrr en
ráðist er í stórhuga hafnarfram-
kvæmdir og vatnsveita er lögð, að
hjólin fara að snúast og fólkinu að
fjölga í Reykjavík. Síðan er ráðist í
virkjun Elliðaánna og í framhaldi af
því er Sogið virkjað og hitaveita er
lögð í Reykjavík.
Allt voru þetta stórframkvæmdir,
sem kostuðu gífurlegt fé, sem fjár-
magnaðar voru með er-
lendum lánum, sem
höfnin og veitufyrir-
tækin greiddu sjálf nið-
ur með tekjum sínum af
hinum arðbæru fjár-
festingum. Raunar
komu þessar fram-
kvæmdir öðrum lands-
mönnum einnig til góða.
Þannig má segja, að
Sogsvirkjanirnar hafi
orðið upphafið að raf-
orkuvæðingu landsins
alls og íbúar nágranna-
sveitarfélaga Reykja-
víkur nutu góðs af sam-
býlinu við Reykjavík
bæði hvað varðaði raforku og hita,
sem þeir fengu á sama verði og höf-
uðborgarbúar.
Núverandi meirihluti borgar-
stjórnar hefur ekki látið deigan síga
með framkvæmdir á sviði orkumála
og atvinnumála. T.d. hafði Norðurál
ekki orðið að veruleika, nema með
Nesjavallavirkjun. Næstu daga verð-
ur þriðja vélasamstæða Nesjavalla-
virkjunar tekin í notkun og stækkar
hún þá úr 60 MW í 90 MW. Þá er haf-
inn undirbúningur að nýrri virkjun á
Hellisheiði í landi, sem Orkuveitan
keypti nýlega.
Allar þessar framkvæmdir skila
Reykvíkingum milljarða tekjum og
lægra raforkuverði en ella hefði verið.
Þessar framkvæmdir, eins og allar
fyrri virkjunarframkvæmdir á vegum
Reykjavíkurborgar og Landsvirkjun-
ar, eru fjármagnaðar með lánsfé. Af-
borganir og vextir af þeim lánum eru
greiddar af Orkuveitunni sjálfri og
íþyngja ekki borgarsjóði á nokkurn
hátt.
Styrkleiki Reykjavíkurborgar er
ekki sízt fólginn í öflugu fyrirtæki
eins og Orkuveitu Reykjavíkur, sem
skilar eigendum sínum góðum arði og
eflir og styrkir atvinnulífið í borginni.
Af hverju er Reykjavík
jafnsterk og hún er?
Alfreð Þorsteinsson
Framkvæmdir
Meirihluti borgarstjórn-
ar, segir Alfreð Þor-
steinsson, hefur ekki
látið deigan síga með
framkvæmdir á sviði
orku- og atvinnumála.
Höfundur er borgarfulltrúi og
stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur.
ÍÞRÓTTIR