Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 44
MESSUR Á MORGUN
44 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Lýðveldisdagurinn
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Þor-
gils Hlynur Þorbergsson cand. theol.
prédikar. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Hvetjum íbúa Bú-
staðasóknar til þátttöku í hátíðar-
höldum dagsins. Guðsþjónusta í
Dómkirkjunni kl. 11 að lokinni athöfn
á Austurvelli. Fjölmennum á Austur-
völl og í Dómkirkjuna 17. júní.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Hjalti Hugason prédikar. Sr. Jakob
Ág. Hjálmarsson þjónar fyrir altari.
Dómkórinn syngur. Einsöng syngur
Ólafur Kjartan Sigurðsson. Organisti
Kjartan Sigurjónsson.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Alt-
arisganga. Kirkjukór Grensáskirkju
syngur. Organisti Árni Arinbjarnarson.
Ólafur Jóhannsson.
GRUND. dvalar- og hjúkrunarheimili:
Messa kl. 14. Prestur sr. Ingimar
Ingimarsson. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Félag fyrrverandi sóknarpresta.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.
Félagar úr Schola cantorum syngja.
Organisti Lára B. Eggertsdóttir. Sr.
Sigurður Pálsson.
LANDSPÍTALI, Hringbraut: Messa kl.
10.30. Sr. Bragi Skúlason.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Org-
anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas
Sveinsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Hátíðarguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Kristján Valur Ingólfs-
son flytur hátíðarræðu. Kór
Langholtskirkju syngur ættjarðarlög.
Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson.
LAUGARNESKIRKJA: Bent á guðs-
þjónustur í nágrannakirkjum vegna
sumarleyfis starfsfólks Laugarnes-
kirkju.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11.
Prédikun: Árni Helgason, nýstúdent,
fjallar um efnið unga fólkið og kirkjan.
Prestur sr. Halldór Reynisson. Organ-
isti Reynir Jónasson.
SELTJARNARNESKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur sr. María Ágústs-
dóttir. Organisti Lenka Mateova.
Kvartett Seltjarnarneskirkju syngur.
Verið öll hjartanlega velkomin.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Fríkirkjan
verður opin á þjóðhátíðardaginn frá
kl. 14 og fram eftir degi. Organistinn
Kári Þormar verður við orgelið. Kven-
félag Fríkirkjunnar verður með kaffi
og vöfflusölu í Safnaðarheimilinu of-
an við kirkjuna á Laufásvegi 13. Allir
hjartanlega velkomnir. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Þór Hauksson. Org-
anisti: Violeta Smid.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Hátíðarmessa
kl. 11. Organisti: Sigrún Steingríms-
dóttir. Sr. Gísli Jónasson.
DIGRANESKIRKJA: Lýðveldisdagur-
inn 17. júní. Hátíðardagskrá Kópa-
vogsbæjar kl. 11. Létt og glaðleg fjöl-
skyldudagskrá á vegum
Digraneskirkju og Kópavogsbæjar
með söng og hljóðfæraleik.
GRAFARVOGSKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árna-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Grafarvogskirkju syngur. Einsöngvari:
Jóhann Friðgeir Valdimarsson. Organ-
isti: Hörður Bragason. Í kaffisam-
sæti að lokinni messu mun Pálmi
Gestsson leikari og sóknarbarn í
Grafarvogssókn flytja kvæðið Gunn-
arshólmi eftir Jónas Hallgrímsson.
Jóhann Friðgeir syngur nokkur ætt-
jarðarlög.
HJALLAKIRKJA: Nú standa yfir mikl-
ar framkvæmdir í Hjallakirkju. Verið
er að skipta um gólfefni í kirkjuskipi
og sinna ýmsu viðhaldi. Af þeim sök-
um fellur helgihald niður í sumar en
guðsþjónustur hefjast aftur um miðj-
an ágústmánuð. Bent er á helgihald í
öðrum kirkjum Kópavogs eða pró-
fastsdæmisins. Við minnum á bæna-
og kyrrðarstundir sem verða áfram-
haldandi á þriðjudögum kl. 18 á neðri
hæð kirkjunnar. Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta á þjóðhátíðardegi kl. 13
(ath. breyttan tíma). Sr. Ingþór Indr-
iðason Ísfeld prédikar og sóknar-
prestur þjónar fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir
safnaðarsöng undir stjórn Julians
Hewlett organista. Að lokinni guðs-
þjónustu verður, í tilefni dagsins,
boðið upp á kaffi og konfekt í safn-
aðarheimilinu Borgum. Sr. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta fellur
niður. Tökum þátt í hátíðarhöldum
dagsins og hittumst í messu að
kvöldi sunnudagsins 24. júní nk.
KFUM & K v/Holtaveg: Kl. 15.30.
Félagar úr Kristilegu stúdentafélagi
bjóða upp á vöfflukaffi til ágóða fyrir
starf kristilegu skólahreyfingarinnar.
Fólk er eindregið hvatt til að koma við
og væta kverkarnar. Samkoma kl.
17. Einsöngur: Bylgja Dís Gunnars-
dóttir. Ræða: Sr. Ólafur Jóhannsson,
formaður KFUM. Heitur matur eftir
samkomuna á vægu verði. Komið og
njótið uppbyggingar og samfélags.
KEFAS, Dalvegi 24: Almenn bæna-
stund þriðjudag kl. 20.30. Samveru-
stund unga fólksins miðvikudag kl.
20.30.
BOÐUNARKIRKJAN: Samkoma í dag
kl. 11-12.30. Lofgjörð, barnasaga,
prédikun og biblíufræðsla þar sem
ákveðið efni er tekið fyrir, spurt og
svarað. Á laugardögum starfa barna-
og unglingadeildir. Súpa og brauð eft-
ir samkomuna. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KLETTURINN: Almenn samkoma kl.
20 fyrir alla fjölskylduna. Mikil lof-
gjörð og tilbeiðsla. Ath. breyttan sam-
komutíma. Bæna- og lofgjörðarstund
fimmtudag kl. 20. Bæn, lofgjörð og
orð guðs. Allir velkomnir.
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11.
Ræðumaður G. Theodór Birgisson.
Almenn samkoma kl. 20. Lofgjörðar-
hópur Fíladelfíu syngur. Ræðumaður
verður Robert Solomon, sem er
staddur hér á landi á vegum ABC
hjálparstarfs. Allir hjartanlega vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Hin árlega
kaffisala verður á þjóðhátíðardaginn,
17. júní, í Herkastalanum, Kirkju-
stræti 2. Kaffisalan verður frá kl. 14-
18. Stutt söng- og hugvekjustund
verður kl. 18. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: 17. júní–24.
júní .
Reykjavík – Dómkirkja Krists kon-
ungs: Sunnudagur 17. júní: Dýridag-
ur: Hámessa kl. 10.30. Að messu
lokinni er helgiganga innan kirkjunn-
ar. Messa á ensku kl. 18. Alla virka
daga: Messa kl. 18.
Reykjavík - Maríukirkja við Raufar-
sel: Sunnudaga: Messa kl. 11.
Sunnudaginn 17. júní: Messa á
pólsku kl. 15. Virka daga: Messa kl.
18.30. Riftún: Sunnudagar: Messa
kl. 17.
Hafnarfjörður - Jósefskirkja: Sunnu-
dagur 17. júní: Messa og helgiganga
kl. 10.30. Miðvikudagur: Messa kl.
18.30.
Karmelklaustur: Sunnudaga: Messa
kl. 8.30. Alla virka daga: Messa kl. 8.
Keflavík - Barbörukapella: Skólavegi
38: Sunnudagur 17. júní: Messa og
helgiganga kl. 14. Fimmtudag kl.
19.30: Skriftir. Kl. 20: Bænastund.
Grindavík: 16. júní kl. 18: Messa í
Kvennó.
Akranes: 16. júní: Messa kl. 11.
Borgarnes: 23. júní: Messa kl. 11.
Stykkishólmur: Austurgötu 7.
Sunnudaga: Messa kl. 10.
Tálknafjörður: Sunnudagur 17. júní:
Messa kl. 14.
Patreksfjörður: Sunnudagur 17. júní:
Messa kl. 18.
Ísafjörður: Jóhannesarkapella:
Sunnudaga: Messa kl.11.
Flateyri Laugardaga: Messa kl. 18.
Bolungarvík: Sunnudaga: Messa kl.
16.
Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl.
19.
Akureyri, Péturskirkja, Hrafnagils-
stræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18.
Sunnudaga messa kl. 11.
FÆREYSKA SJÓMANNAHEIMILIÐ:
Samkoma á morgun kl. 16.
LANDAKIRKJA, Vestmannaeyjum:
Kl. 11 hátíðarguðsþjónusta á lýðveld-
isdaginn. Kór Landakirkju flytur hátíð-
arsöngva undir stjórn Guðmundar H.
Guðjónssonar.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur sr. Bragi Friðriksson
fyrrverandi prófastur. Einsöngur Gyða
Björgvinsdóttir. Trompetleikur Sveinn
Birgisson. Kirkjukór Lágafellssóknar.
Organisti Jónas Þórir. Jón Þorsteins-
son.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta á
þjóðhátíðardag. Sjá hátíðardagskrá í
Hafnarfirði. Sigurður Helgi Guð-
mundsson.
VÍDALÍNSKIRKJA: Hátíðarhöld
þjóðhátíðardagsins hefjast í kirkjunni
kl. 13 með hátíðarhelgistund. Her-
mann Sigurðsson, nýstúdent úr FG,
flytur ávarp dagsins. Kór Vídalíns-
kirkju syngur undir stjórn Jóhanns
Baldvinssonar organista. Sr. Friðrik
J. Hjartar þjónar. Skrúðgangan fer frá
kirkjunni kl.14. Prestarnir.
BESSASTAÐAKIRKJA: Helgistund á
þjóðhátíðardegi verður í kirkjunni kl.
13.30. Álftaneskórinn syngur. Organ-
isti Gróa Hreinsdóttir. Sr. Hans Mark-
ús Hafsteinsson þjónar. Skrúðgang-
an fer frá kirkjunni að lokinni athöfn.
Prestarnir.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Hátíðarguð-
sþjónusta kl. 12.30. Prestur sr. Hjört-
ur Hjartarson. Organisti Örn Falkner.
Kirkjukór Grindavíkurkirkju leiðir
safnaðarsöng. Harmonikkuhljóm-
sveit leikur fyrir og eftir guðsþjón-
ustuna undir stjórn Arnar Falkner.
Sóknarnefndin.
KEFLAVÍKURKIRKJA: Hátíðarguð-
sþjónusta 17. júní kl. 12.30. Prestur
sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór
Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti
og söngstjóri Ester Ólafsdóttir. Með-
hjálpari Björgvin Skarphéðinsson.
SELFOSSKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 11. Morguntíð sungin kl. 9 frá
þriðjudegi til föstudags. Kaffi og
brauð að henni lokinni. Foreldrasam-
vera kl. 11 á miðvikudögum. Sókn-
arprestur.
HVERAGERÐISKIRKJA: Hátíðarguð-
sþjónusta 17. júní kl. 11. Bæjar-
fulltrúar lesa ritningarlestra. Jón
Ragnarsson.
ODDASÓKN: Hátíðarguðsþjónusta
17. júní á Lundi kl. 13. Organisti
Magnús Ragnarsson. Sóknarprestur.
KELDNAKIRKJA á Rangárvöllum:
Hátíðarguðsþjónusta 17. júní kl.
10.30. Organisti Magnús Ragnars-
son. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa
sunnudag kl. 11. Sóknarprestur.
TORFASTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 13. Sóknarprestur.
AKRANESKIRKJA: Hátíðarguðs-
þjónusta kl. 13. Ræðumaður Sigrún
Ósk Kristjánsdóttir nýstúdent. Sr.
Björn Jónsson messar. Sóknarprest-
ur.
HÓLADÓMKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11. Prestur sr. Gísli
Gunnarsson. Organisti Jóhann
Bjarnason. Allir velkomnir.
ÍSAFJARÐARKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Stína Gísladóttir.
EGILSSTAÐAKIRKJA: Hátíðarguð-
sþjónusta kl. 13.30 við upphaf hátíð-
ardagskrá. Sóknarprestur.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA: Messa laugar-
daginn 16. júní kl. 11. Prestur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Rosmary Hewlett. Fermd verður Kol-
brún Tinna Guttormsdóttir, Fögruhlíð.
MJÓAFJARÐARKIRKJA: Messa laug-
ardag 16. júní kl. 14. Prestur sr. Jó-
hanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Kristján Gissurarson. Fermd verður
Aðalheiður Elfrid Heiðarsdóttir.
KIRKJUBÆJARKIRKJA: Hátíðar-
messa sunnudag kl. 14. Prestur sr.
Jóhanna I. Sigmarsdóttir. Organisti
Rosmary Hewlett. Fermdar verða: El-
ín Adda Steinarsdóttir, Hallfreðar-
stöðum og Árný Birna Árnadóttir,
Straumi. Allir velkomnir. Sóknar-
prestur.
VESTURHÓPSHÓLAKIRKJA: Ferm-
ingarmessa 17. júní kl. 14. Prestur
sr. Sigurður Grétar Sigurðsson.
Fermdar verða Elín Ósk Björnsdóttir,
Neðri-Þverá og Sólveig Hulda Benja-
mínsdóttir, Þorfinnsstöðum.
BARÐSKIRKJA í Fljótum: Hátíðar-
messa laugardaginn 16. júní kl. 13.
Prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir.
Fermd verður Sigurlaug Jónína Ólöf
Þorsteinsdóttir, Helgustöðum, Fljót-
um.
BJARNARHAFNARKIRKJA: Ferming
sunnudag kl. 16. Prestur sr. Gunnar
Eiríkur Hauksson. Fermdur verður
Kristján Hildibrandarson, Bjarnar-
höfn.
VALÞJÓFSSTAÐARKIRKJA: Ferming-
armessa sunnudag 17. júní kl. 11.
Fermd verður Helga Eyjólfsdóttir frá
Melum í Fljótsdal. Organisti er Krist-
ján Gissurarson. Kór Valþjófsstaðar-
kirkju syngur. Sr. Lára G. Oddsdóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa 17. júní
kl. 14.
Ríki maðurinn
og Lasarus.
(Lúk. 16.)
KIRKJUSTARF
Á MORGUN, sunnudaginn 17. júní,
verður eins árs vígsluafmæli Grafar-
vogskirkju haldið hátíðlegt. Hátíð-
arguðsþjónusta verður kl. 11:00, séra
Ólafur Skúlason biskup prédikar og
sóknarpresturinn séra Vigfús Þór
Árnason þjónar fyrir altari. Kór Graf-
arvogskirkju syngur undir stjórn
Harðar Bragasonar. Fluttir verða há-
tíðarsöngvar séra Bjarna Þorsteins-
sonar.
Einsöngvari er Jóhann Friðgeir
Valdimarsson.
Að lokinni guðsþjónustu verður
boðið upp á kaffi. Þar mun Pálmi
Gestsson leikari og sóknarbarn flytja
ættjarðarljóð og stórsöngvarinn Jó-
hann Friðgeir mun syngja nokkur vel
valin lög. Allir eru boðnir velkomnir
til hátíðarguðsþjónustu þennan dag,
17. júní, en Grafarvogskirkja var vígð
þann 18. júní árið 2000 af biskupi Ís-
lands, herra Karli Sigurbjörnssyni.
Arkitektúr hennar hefur vakið
mikla athygli bæði erlendis og hér
heima. Arkitektar kirkjunnar eru
þeir Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Björnsson.
Hljómburður hefur fengið mikið lof
allra sem best þekkja og safnaðar-
starfið hefur blómstrað í hinni ný-
vígðu kirkju.
Fyrir slíkar gjafir vill söfnuðurinn
þakka á vígsluafmæli.
Grafarvogskirkja.
Grafarvogskirkja.
Vígsluafmæli Grafarvogskirkju
Fríkirkjan
í Reykjavík opin
FRÍKIRKJAN í Reykjavík verður
opin á þjóðhátíðardaginn frá kl. 14 og
fram eftir degi. Organistinn Kári Þor-
mar verður við orgelið. Kvenfélag
Fríkirkjunnar verður með kaffi og
vöfflusölu í Safnaðarheimilinu ofan
við kirkjuna að Laufásvegi 13. Allir
hjartanlega velkomnir.
Hjörtur Magni Jóhannsson.
Hátíðarguðs-
þjónusta í
Kópavogskirkju
Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17. júní
verður hátíðarguðsþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 13 (ath. breyttan tíma).
Í guðsþjónustunni mun séra Ingþór
Indriðason Ísfeld prédika og sóknar-
prestur þjóna fyrir altari. Kór Kópa-
vogskirkju syngur og leiðir safnaðar-
söng undir stjórn Julian Hewlett
organista og kórstjóra kirkjunnar. Að
lokinni guðsþjónustu verður, í tilefni
dagsins, boðið upp á kaffi og konfekt í
safnaðarheimilinu Borgum. Þeir
kirkjugestir sem eiga þess kost eru
hvattir til að koma til kirkju í íslensk-
um búningi eða hátíðarbúningi.
Séra Ægir Fr. Sigurgeirsson.
Safnaðarstarf
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir
8., 9. og 10. bekk kl. 20-23.
Fíladelfía. Almenn samkoma kl. 20.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu syngur.
Ræðumaður Aril Edvardsen frá Nor-
egi. Allir velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
KEFAS, Dalvegi 24: Almenn bæna-
stund þriðjudag kl. 20.30. Samveru-
stund unga fólksins miðvikudag kl.
20.30.
Hvammstangakirkja. Sunnudaga-
skóli kl. 11.