Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 48
48 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENN á ný hefur „ribbaldaflokkur“
ríkisstjórnarinnar farið af stað til
að nema lönd. Það var hin fagra
sveit Mýrdalur í Vestur-Skafta-
fellssýslu sem varð fyrir barðinu á
landtökumönnum í þetta sinn. Ég,
undirrituð, ásamt systkinum mín-
um, á jörðina Hjörleifshöfða í Mýr-
dal, en land þetta hefur verið í eigu
ættarinnar í rúmlega 100 ár. Svo
sá ég það í blaði einn góðan veð-
urdag að búið var að hirða af land-
inu góða spildu sem ganga á til rík-
isins. Því ekki krjúpa þessir „háu
herrar“ sem vinna að eignaupptöku
landa, svo lágt að eyða orðum á
löggilta eigendur fasteignanna,
sem verið er að taka af þeim. Hins
vegar er okkur heimilt að sækja
mál og kosta til þess ærnu fé til að
sanna það fyrir misvitrum embætt-
ismönnum að við séum, þegar allt
kemur til alls, löggiltir eigendur
eigna okkar.
Ekki eru fréttamenn heldur að
æsa sig yfir smámununum, þess er
tæplega getið í fjölmiðlum að rík-
isstjórn herra Davíðs Oddssonar sé
að gera upptækar eignir fólks í
stórum stíl. Það er víst vegna þess
að við búum „austan Elliðaáa“ að
við eigum okkur fáa eða enga mál-
svara í þessu máli, en samkvæmt
nýjustu heimildum er óvíst hvort
líf sé á þessum slóðum. Samanber
ágætan þátt í RÚV fyrir
skemmstu. Þar sagði frá manni
sem flutti til Reykjavíkur í ein-
hverjar óbyggðir fyrir norðan og
hefur ekkert til hans spurst síðan.
Vinir hans fyrir sunnan hafa þó
samband við hann öðru hvoru, lík-
lega í gegnum miðla, og telja að
hann sé dáinn. Oft hef ég horft á
bíómyndir úr villta vestrinu og
undrað mig á yfirgangi hvíta
mannsins þegar hann ruddist yfir
lönd indíánanna og hrakti þá af
arfleifðum sínum og hirti lönd
þeirra fyrir sig. Ég hef þó alltaf
álitið að þetta væri liðin tíð og
svona atburðir heyrðu sögunni til.
Allra síst gat mig órað fyrir að
slíkt gæti gerst hér uppi á Íslandi
á því herrans ári 2001.
Ég velti því fyrir mér hvað verði
um aðrar fátæklegar eigur mínar
s.s. hús og bíl sem ég telst eiga til
hálfs með eiginmanni mínum.
Hvort einhvern vanhagi um þessa
hluti. En vísast þarf ég ekki að
vera mjög óttaslegin um það, því
bíllinn er orðinn garmur og húsið
er á alröngum stað, það er í Þor-
lákshöfn og þar er fiskilykt –
ennþá. En ef ráðslag stjórnvalda
heldur áfram sem horfir verður
engin fiskilykt í Þorlákshöfn eða
annars staðar á landinu. Þá verður
gaman og hægt að dansa í kringum
súlur allan liðlangan daginn, eða
naga blýanta. Gamalt máltæki seg-
ir að „þeir þurfi að fela sem stela“,
það hefur víst verið út af því að
einu sinni skömmuðust menn sín
sem freistuðust til að taka eigur
annarra og þurftu líka að gjalda
fyrir ef upp komst. En nú er öldin
önnur, nú takast lögvitringar á um
hlutina og sá sem fær best borgað
vinnur gjarnan málin. Ég verð þó
að segja að einn hlut er ég afar
ánægð með, ég þarf ekki að segja
mig úr Sjálfstæðisflokknum, eins
og sumir frændur mínir í Skafta-
fellssýslunni, þeim flokki hef ég
aldrei tilheyrt og mun aldrei gera.
Á þann flokk hef ég aldrei eytt
bleki í kjörklefa og mun aldrei gefa
atkvæði mitt og heldur ekki skó-
sveinum þeirra sem verma nú ráð-
herrastóla þessa lands.
HALLA KJARTANSDÓTTIR,
Heinabergi 16, Þorlákshöfn.
Villta vestrið
á Íslandi
Frá Höllu Kjartansdóttur:
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
BRÝNT er að skerpa línurnar milli
andstæðra fylkinga. Annarsvegar er
Jón Steinar, lögm., talsmaður frelsis
í orði og hugsun (e.t.v. í athöfnum
líka). Hinsvegar er Óskar Magnús-
son, lögm. og fyrrum framkvæmda-
stjóri Baugs hf., talsmaður kúgunar,
arðráns og fjötra. Jón Steinar er
vafalaust fær um að svara fyrir sig
sjálfur en hér á landi hefur það ekki
verið lenska að mæra sjálfan sig.
Óskar reynir vissulega að gera til-
raun til þess þegar hann segist ekki
reykja. Jón Steinar hefur sjálfur sagt
að hann hafi hætt drykkju og óreglu
en hann er ekki að mæra sjálfan sig.
Hann er að berjast fyrir sjálfsögðu
og eðlilegu skoðana- og tjáningar-
frelsi jafnvel þó skoðanir séu „óheil-
brigðar“ og allt aðrar en í samræmi
við meirihluta þjóðarinnar. Hann er
réttilega að gæta hagsmuna margra
skjólstæðinga sinna nokkuð vel.
Hvert var síðan verkefni þitt, Ósk-
ar, sem framkvæmdastjóri Baugs
hf.? Er hægt að halda því fram að þú
hafir gætt hagsmuna skjólstæðings
þíns nokkuð vel eða er pínulítill
svartur blettur á samviskutetrinu
hjá þér? Þú hefur að mínu viti fullan
rétt á að verja þinn málstað jafnvel
þó vondur sé. Ég er sannfærður um
að Jón Steinar er mér sammála um
að slæmur málstaður á fullan rétt á
varnarviðbrögðum jafnvel þó að þinn
málflutningur sé öndverður við skoð-
anir okkar Jóns Steinars.
Hvernig gengur annars að flá
sama köttinn tvisvar? (tilv. í grein í
Morgunblaðið 22, maí sl.) Við Jón
Steinar höfum báðir fengið nöfn okk-
ar birt í bridsdálkum dagblaðanna.
Ég minnist ekki að hafa séð þitt nafn
í þeim dálkum. Brids veitir vissa
þjálfun í rökhugsun. Þú klikkaðir
væntanlega á þessu. Við Jón Steinar
eigum brids og frelsisbaráttuna sam-
eiginlega jafnvel þó í minnihluta
séum. Á tímum millistríðsáranna
urðu þjóðernissinnar í meirihluta í
Þýskalandi en þeir eru það ekki leng-
ur. Frelsið sigraði í þeirri orrahríð.
SIGURÐUR LÁRUSSON,
Klapparstíg 11, Njarðvík
Ekki setja lög
á Jón Steinar
Frá Sigurði Lárussyni: