Morgunblaðið - 16.06.2001, Blaðsíða 52
MEÐLIMIR Rammstein eru búnir
að vera að kynna sér land og þjóð
undanfarna daga en í kvöld fara
seinni tónleikar þeirra fram og mun
íslenska sveitin Kanada hita upp.
Hljómsveitarmeðlimirnir lentu á
Keflavíkurflugvelli kl. 21.05 á mið-
vikudaginn var og skelltu þeir sér þá
umsvifalaust í Bláa lónið. Þar undu
þeir sér svo vel að afráðið var þegar í
stað að fara aftur áður en þeir yf-
irgefa klakann á morgun.
Þrír þeirra, Till Lindeman söngv-
ari, Paul Landers gítarleikari og
Christoph Doom Schneider trommu-
leikari ráku inn nefið á Ham-tón-
leikana á Gauknum þá um kvöldið og
hlýddu þar á eitt lag, „Musculus“.
Síðar kíktu þeir svo í eftir-á-partíið
og ræddu þar við íslenskar yngis-
meyjar og voru hinir kátustu.
Á fimmtudaginn var svo farið í
bátsferð; „rafting“-ferð niður Aust-
ari-Jökulsá í Skagafirði sem ku víst
vera ansi torfarin.
Meðlimir Rammstein veittu síðan
nokkrum fjölmiðlum viðtöl í gær en
snæddu þar næst síðbúinn hádegis-
verð á Stokkseyri áður en allur hóp-
urinn fór niður í Laugardalshöll til
að veita viðurkenningu fyrir gull-
plötusölu á plötunum Sehnsucht og
Mutter en sú síðastnefnda hefur nú
selst í 6.000 eintökum.
Morgunblaðið tók Paul Landers í
stutt spjall og hann var sýnilega
ánægður með heimsóknina hingað.
Meðlimir hafa löngum verið miklir
áhugamenn um land og þjóð; eiga
myndbönd og bækur um Ísland og
hvaðeina. Paul sagðist hafa verið
nokkuð stressaður fyrir bátsferðina.
„En þegar við vorum komnir af stað
þá hefði þetta mátt vera aðeins
hættulegra og brattara.“
Aðspurður hvernig honum líki
tónlist Ham, en sveitunum er oft líkt
hvorri við aðra, svarar hann stutt og
laggott: „Mér finnst hún mjög fín.“
Hann sagði að lokum að ef hann
hefði vitað hversu fallegt væri hér-
lendis hefði hann reynt að gera ráð-
stafanir til að vera lengur. „Nokkrir
af okkur ætla reyndar að vera aðeins
lengur. En það er bara vika í að við
förum til Ameríku og mínar áætlanir
voru því aðrar. En einhverjir okkar
koma alveg örugglega hingað aftur í
frí.“
Rammstein á Íslandi
Stoltir strákar með litað hár og gullplötur ásamt Halldóri Baldurssyni frá Skífunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Palli
Paul Landers (1. frá vinstri) og Till Lindeman (3. frá vinstri). Á milli
þeirra er Finnur Jóhannsson en hann hefur verið sérlegur aðstoðar-
maður Rammstein hérlendis.
Gullplötur og bátsferðir
FÓLK Í FRÉTTUM
52 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Stóra sviðið kl. 20.00:
> - ?@?
"@?
@?
!@?
3@?
8@?
- @?
!
"#
$
%&!
'(" )) % *#
'+
- @?
+,+-! .! /01 ,, 2 + 3 4.++ -! 4 5 !
!
,6! +++7
,6!
4 +++ 8 ,! 9: .5,++ ++ ;++!
'.+++
8!<= ! ,! 9>39? .!3! ,! 9></:!
HEDWIG KL. 20
Frumsýning fös 29/6 UPPSELT
lau 30/6 A,B,C,D,E,F,G,H&I kort gilda
örfá sæti laus
fös 6/7
Hádegisleikhús KL. 12
RÚM FYRIR EINN
fim 21/6 nokkur sæti laus
fim 28/6 nokkur sæti laus
FEÐGAR Á FERÐ KL. 20
mið 20/6 UPPSELT
fim 21/6 nokkur sæti laus
sun 24/6 nokkur sæti laus
Allar sýningar hefjast kl. 20.
Miðasalan er opin frá kl 10-14 alla virka daga og
frá kl 17-20 á sýningarkvöldum. Hópasala er í
síma 530 3042 og skrifstofusími er 530 3032 eða
530 3037.
midasala@leik.is — www.leik.is
Miðasölusími er 530 3030
MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney
Í KVÖLD Lau 16. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös 22. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Lau 23. júní kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fim 28. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Fös 29. júní kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau 30. júní kl. 20- NOKKUR SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eve Ensler
Í KVÖLD Lau 16. júní kl. 19-ÖRFÁ SÆTI
Í KVÖLD Lau 16. júní kl. 22 - UPPSELT
Þri 19. júní kl. 20 - UPPSELT
Sýnt á Stóra sviði í tilefni 19. júní,
eftir sýningu flytur Ragnheiður
Eiríksdóttir, hjúkrunarfræðingur og
kynlífspistlahöfundur, erindi tengt
Píkusögum.
ATH. ekki er hleypt inn í salinn eftir
að sýningin hefst.
SÍÐUSTU SÝNINGAR Í SUMAR.
SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í HAUST
Miðasala: 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu
sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga.
Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is
Stóra svið
3. hæðin
Nemendadansflokkur
Listdansskóla Íslands
Pronto!
í Íslensku óperunni
laugardaginn 16. júní
kl. 20.00
„JÁ, SÁ ER mað-
urinn,“ þannig
svarar Óskar Al-
bertsson listamað-
ur, þegar blaða-
maður kannar
hvort hann hafi
slegið inn rétt
símanúmer.
Óskar opnaði á
dögunum mynd-
listarsýningu í
Gallerí Geysi,
Hinu húsinu þar
sem hann sýnir af-
urðir sköpunar-
gáfu sinnar.
„Ég sýni þar
pennateikningar,“ útskýrir Óskar.
„Ég er mikið fyrir form og línur og
allskonar skúlptúr inn í línunum. Ég
veit ekki alveg hvernig á að lýsa
þessu, það er kannski bara best fyr-
ir fólk að koma hingað niður eftir á
Gallerí Geysi og sjá þetta hjá mér.“
Og ef fólk leggur leið sína á sýn-
ingu hans er ekkert svo víst að allir
verði sammála um hvað fyrir augu
ber.
„Það sér enginn það sama út úr
myndunum. Það geta komið hundr-
að manns og skoðað myndirnar og
þeir sjá allir eitthvað nýtt út úr
hverri mynd, mér finnst það mjög
heillandi. Ég er ekki formfastur í
neinu.“
Það er oft sagt að listamenn
„vinni innan vissra ramma.“ Óskar
vinnur hinsvegar ekki aðeins innan
rammanna, heldur vinnur hann
rammana sjálfa.
„Ég er að sýna þau verk sem ég
hef unnið á þessu ári. Ég byrja á því
að gera línu og svo vinn ég mig út
frá henni. Svo gerði ég rammana
sjálfur. Við gerðum það í handverk-
stæðinu Ásgarði, þar sem ég er að
vinna. Þetta eru trérammar. Þeir
eru eiginlega hluti af sýningunni.
Ég málaði þá rauða og bláa, þeir
gefa svona heildarsvip á sýninguna.“
En Óskar fær ekki einungis útrás
fyrir sköpunargleði sína í gegnum
myndlistina.
„Ég var að gefa út mína fyrstu
ljóðabók með sjö ljóðum. Ég hef
verið að reyna að selja hana. Hún
heitir bara Óskar Albertsson 2001.
Ég er bara að semja svona um lífið
og tilveruna. Ég er búinn að hafa
þetta í tölvunni minni í fimm til sex
ár og hef alltaf ætlað að koma þessu
út. Loksins ákvað ég að láta þetta
verða að veruleika, með sýning-
unni.“
Þegar blaðamaður bað Óskar um
nánari lýsingu á innihaldi ljóðanna,
brást skáldið þannig við;
„Ég skal bara lesa eitt stutt ljóð
sem er í bókinni:
Prestur knýr dyra,
í litla húsinu við götuna.
Eftir smá stund heyrist grátur,
og prestur gengur út.
Eða var það sorgin sem knúði
dyra í litla húsinu við götuna.
Sýning Óskars Gallerí Geysi er
opin á opnunartíma Hins hússins.
Óskar Albertsson sýnir í Galleríi Geysi
Línur, form, ramm-
ar, lífið og tilveran
Listamaðurinn Óskar Albertsson, utan
og innan ramma.
Morgunblaðið/Golli
JÚLÍUS Vífill Ingvarsson borg-
arfulltrúi, lögmaður og óp-
erusöngvari fékk óvænta heim-
sókn eldsnemma í gærmorgun.
Hann áttaði sig fyrst á að eitthvað
undarlegt væri á seyði utan við
heimili sitt er hann heyrði koma
þaðan lúðrablástur og söng. Hann
komst brátt að því að þar voru á
ferð félagar hans í Hverfafélagi
Sjálfstæðisflokksins í Nes- og
Melahverfi.
Þeir komu líka færandi hendi,
færðu honum blóm og forláta ís-
lenskan blaðahníf, áletraðan og
skreyttan ópalsteini.
Tilefnið var líka alveg sérstakt
því Júlíus Vífill fagnaði fimmtugs-
afmæli sínu í gær. Að afloknum
hlýjum orðum í garð Júlíusar Víf-
ils, sólríkum söng og kampavíns-
skál í plastglösum bauð Svanhild-
ur Blöndal eiginkona
afmælisbarnsins til morgunkaffis.
Óvænt
morgun-
heimsókn
Morgunblaðið/Billi
Júlíus Vífill og eiginkona hans, Svanhildur Blöndal, skála í tilefni af
stóra áfanganum í lífi Júlíusar.
Til að auglýsa á þessari síðu hafðu
samband við okkur í
síma 569 1111 eða sendu okkur
tölvupóst á augl@mbl.is