Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 53

Morgunblaðið - 16.06.2001, Side 53
„ÁSTÆÐAN fyrir því að platan kom ekki út í fyrra, þegar myndin var frumsýnd, er að útgáfan á að fylgja eftir útgáfu myndarinnar um allan heim,“ segir Einar Örn. „Nú er verið að sýna myndina í Bretlandi, hún verður sýnd í Frakk- land einhverntímann í júní og svo koll af kolli. Plötunni er dreift samhliða „Það tók okkur mjög stuttan tíma að semja tónlistina,“ svarar Einar Örn. „Undirbúningstíminn var alveg samt alveg frá því að tökur mynd- arinnar hófust og fram að því þegar klippingin var búin, svo það var alveg eitt og hálft ár þar sem við vorum að fylgjast með.“ – Höfðuð þið Damon unnið saman áður? „Nei við höfðum ekki unnið saman áður þó við höfum þekkst síðan 1991,“ segir Einar Örn. „Þetta var svona hopp út í djúpu laugina fyrir okkkur báða, í sam- starfi. Sérstaklega því að ég fékk það skrítna hlutverk að semja trommutaktana og önnur óhljóð og ég hef ekki beint verið þekktur fyrir að vera góður trommuleikari.“ – Etu að semja eitthvað þessa dag- ana? „Já, ég er að semja hús. Það er ágætis skáldskapur og kveðskapur,“ segir Einar Örn að lokum. Gefin út um allan heim hjá EMI-Soundtracks úti um allan heim.“ Undirbúningur í eitt og hálft ár „Við Damon Albarn erum skrifaðir fyrir allri tónlistinni í myndinni nema litlu stefi sem við fengum lánað frá Ray Davis úr lagi sem heitir „Lola“,“ segir Einar Örn aðspurður um tón- listina á hinum nýútkomna geisla- diski. „Þegar við vorum búnir að semja tónlistina kviknaði svo sú hugmynd að fá íslenska tónlistarmenn, reyk- víska tónlistarmenn til að gera þeirra útgáfur af nokkrum af þeim lögum og stefjum sem við sömdum. Jafnvel að búa til sjálfstæð lög út úr þeim.“ „Við sömdum tónlistina út frá bíómyndinni sjálfri,“ upplýsir Ein- ar Örn. „Um leið og bíómyndin var tilbúin settumst við niður með allar hugmyndirnar okkar og byrjuðum að semja.“ Hvað tók þetta langan tíma? Á dögunum kom út diskur með tónlistinni úr kvikmyndinni 101 Reykjavík. Birta Björnsdóttir ræddi af því tilefni við annan tón- listarhöfundinn, Einar Örn Benediktsson. Einar Örn Benediktsson og Damon Albarn sömdu tónlistina í 101 Reykjavík FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 53 SVEITASÖNGVADROTTNINGIN Dolly Parton mun leika leikkon- una Mae West í kvikmynd sem stendur til að gera um skrautlegt líf þessarar bústnu skellu. Parton sem er viðlíka fyrirferðarmikil og West er í sjöunda himni yfir því að hafa krækt í hlutverkið og segir að valið á sér hljóti að stafa af því hún sé talin sama brussan. Um er að ræða sjónvarpsmynd sem til stendur að sýna á vetri komandi. Þegar Parton var heiðruð fyrir framlag sitt til dægurlagasmíða fyrr í vikunni mætti hún klædd í skrautlegan fiðrildakjól í anda West og hermdi eftir henni. Segja viðstaddir að henni hafi tekist vel upp og þær söngstöllur séu slá- andi líkar. Dolly Part- on leikur Mae West Dolly Parton var ofsakát áður en hún tók við viðurkenningu fyrir lagasmíðar sínar. ÞJÓÐHÁTÍÐARDANSLEIKUR Dansleikur í kvöld í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima frá kl. 22.00. Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur leika fyrir dansi. Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Dönsum inn í þjóðhátíðina. Allir velkomnir, ungir sem aldnir. Grand Rokk Tónleikar í kvöld Fræbbblarnir og 3 G's hefjast á miðnætti. Smiðjustíg 6, s. 551 5522.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.