Morgunblaðið - 16.06.2001, Page 54
FÓLK Í FRÉTTUM
54 LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PAPARNIR
Vesturgötu 2, sími 551 8900
gera allt vitlaust í kvöld
HLJÓMPLATA Kanada kom út í
fyrra hjá TMT, undimerki íslensku
útgáfunnar Thule, og hefur nú feng-
ið almenna dreifingu um Evrópu. Og
góðu heilli hefur kvikmyndarokkið
sem sveitin leikur verið að falla vel í
kramið hjá Evrópubúum. Tónlist
sveitarinnar fer um víðan völl,
hljóm- og hljóðbútum er raðað sam-
an að því er virðist á handahófs-
kenndan hátt, stefnur og stílar flökt-
andi inn og út um hljóðrásirnar. Vel
úthugsuð og samansett steypa? Tón-
leikar sveitarinnar eru og kostuleg-
ar sýningar en í kvöld hlotnast sveit-
inni sá heiður að hita upp fyrir
þýsku rokkgoðin í Rammstein.
Dómarnir
Kanada hefur verið að fá dóma í
blöðunum TimeOut, Uncut, Rock-
sound, The Independent og einnig
eru franskir fjölmiðlar hrifnir.
Danska ríkisútvarpið valdi plötuna
svo eina af tíu bestu plötum ársins í
fyrra.
Mér er tjáð af þeim piltum að
dómurinn í TimeOut hafi verið svo-
kallaður „yfirgírsdómur“, fullt af
löngum og fínum orðum og tilvísanir
í myndlistamenn og rithöfunda....eða
þannig. Rokkblaðið Rock Sound fer
hefðbundnari leiðir en það ætti að
segja sitthvað um víða skírskotun
sveitarinnar að „hefðbundið“ rokk
og ról blað taki hana fyrir. Þar segir
að hljómborðið á plötunni sé „sval-
ara en andsk...“, hún geymi „til-
komumikla flóru af dýrahljóðum“ og
lögin séu „nítróknúnir ruslrokksrús-
síbanar“. Niðurstaðan er sú að það
mætti misskilja þetta sem „list-
arokk“ en meðlimir virðast fjarri
slíkum pælingum. „Tilgangslaust en
ári skemmtilegt engu að síður,“ seg-
ir þar að lokum.
Uncut gefur plötunni fjórar
stjörnur af fimm og segir tónlist
sveitarinnar vera blöndu af bílskúr-
spoppi, sýrurokki, kjötkveðjuhátíð-
artónlist, „mexicana“, harðkjarna-
pönki og spagettívestratónlist,
hrært saman með tilraunakenndri
raftónlist. Sá er dæmir er auðsjáan-
lega mjög hrifinn og í enda dómsins
er fólk varað við því að hlusta á alla
plötuna í einu, það gæti valdið sturl-
un!
Þeir félagar eru ánægðir með
veruna á Thule og segja það henta
sér vel. „Þórhallur [yfirmaður
Thule] er alger hugsjónamaður,“
segir Ragnar, þar sem hann situr í
hinum víðfræga gula sófa uppi á
Mogga, ásamt félögunum. „Það er
auðvitað draumastaða að vera hjá
fyrirtæki þar sem útgefandinn
stendur algerlega með því sem hann
er að gera.“
Strákunum líst eðlilega vel á að
leika með Rammstein en sveitirnar
eiga ýmislegt sameiginlegt, einkan-
lega í gjörningalegu tilliti.
„Þetta verður mjög fyndið,“ segir
Ragnar. „Þarna verður fullt af fólki
og enginn þekkir tónlistina okkar.“
„Ætli það verði ekki svona 50
manns þarna sem mætti telja sem
aðdáendur okkar,“ segir Úlfur og
hlær. „Þrátt fyrir það held ég að
þetta séu réttu áhorfendurnir fyrir
okkur.“
Og þeir eru ekki hræddir við sam-
keppnina frá Rammstein.
„Við erum ekki að setja upp ein-
hverja sýningu vegna þess að þeir
[Rammstein] eru með einhverja
sýningu,“ segir Þorvaldur. „Það
þýðir ekkert að keppa við svona
hluti.“
„Við höldum bara okkar sýningu,“
bætir Ragnar við. „Sem er mjög
rússnesk. Blóð, glimmer og brjósta-
hristingar. Þetta verður Kanada-
Þýskaland í Höllinni.“
Þeir halda áfram að velta fyrir sér
muninum á Kanada og Rammstein
og styðjast við líkingar úr heimi
knattspyrnunnar.
„Við höfum verið að æfa öll okkar
sóknarkerfi,“ segir Þorvaldur.
„Og við höfum verið að skoða
myndbönd með Rammstein,“ upp-
lýsir Ragnar. „Þjóðverjarnir spila
alltaf vörn. Þeir eru stórir, þéttir og
spila lokaðar stöður. Við höfum engu
að tapa hins vegar og spilum opnari
stöður.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Kanada-skössin tamin: Frá vinstri: Úlfur, Óli Björn, Ragnar, Egill og Þorvaldur. Gítarleikarinn Haukur er staddur erlendis um þessar mundir.
Nítróknúnir rusl-
rokksrússíbanar
Hljómsveitin Kanada hefur vakið talsverða
athygli erlendis fyrir fyrstu plötu sína, sam-
nefnda sveitinni. Arnar Eggert Thorodd-
sen tók saman helstu dóma og ræddi við þá
Úlf, Ragnar og Þorvald.
Kanada leikur með Rammstein í kvöld
arnart@mbl.is
ÁRLEGA fer fram vinsæll brúð-
kaupsleikur í Brúðkaupsblaði
Morgunblaðsins, sem margir taka
þátt í. Í ár var vinningurinn tveggja
vikna ferð til Krítar með Úrvali-
Útsýn, auk flugs og gistingar í tvær
vikur á Golden Bay hótelinu við
Apostoliströndina rétt hjá Chania,
annarri stærstu borg Krítar.
Það eru brúðhjónin tilvonandi
Þórey Birgisdóttir og Guðlaugur
Guðmundsson, sem duttu í lukku-
pottinn og eru nú á leið til Grikk-
lands í haust, en þau gifta sig í Há-
teigskirkju 8. september nk.
„Ég var búin að ákveða að taka
þátt í leiknum, ef hann væri í ár,“
segir Þórey, sem hefur safnað
Brúðkaupsblaðinu frá 1996, en
henni finnst mjög gaman að skoða
hvernig skreytingar og annað
breytist frá ári til árs. „Ég átti samt
ekki von á því að vinna,“ segir hún
hæstánægð. Guðlaugur við-
urkennir að íþróttasíðurnar veki
venjulega meira áhuga hjá honum
en brúðkaupsblaðið.
Þar sem Þórey og Guðlaugur
reiknuðu ekki með því að vinna
voru þau þegar farin að athuga
með brúðkaupsferðina. „Stefnan
var fyrst sett á San Diego eða Krít
og þegar dollarinn hækkaði upp úr
öllu ákváðum við að fara til Krít-
ar,“ segir Guðlaugur, og Þórey
segist því ekki hafa trúað því þegar
hún fékk símtalið um vinninginn.
„Þetta er ótrúleg tilviljun. Við höf-
um farið til Mallorca og Portúgal
og langaði að prófa eitthvað nýtt
og allt við Krít er mjög heillandi,
bæði bæjarlífið og fornminjarnar,“
bætir Þórey við, en Guðlaug langar
mest að kafa í tærum sjó.
Þau búast við að leggja af stað
nokkrum dögum eftir brúðkaupið,
og ætla að leyfa tveggja ára syn-
inum Elíasi að njóta ferðarinnar
með þeim, og jafnvel fleiri fjöl-
skyldumeðlimum.
Ótrúleg tilviljun
Morgunblaðið/Emilía
Þórey og Guðlaugur voru ánægð þegar þau tóku við gjafabréfinu úr
hendi Steinunnar Tryggvadóttur, þjónustustjóra Úrvals-Útsýnar.
Brúðkaupsleikur Morgunblaðsins
ÞAÐ SKÁKAR enginn Em-
inem þegar kemur að því að
gera lítið úr félögum sínum í
skemmtanabransanum. Fræg
eru orðin ófögur ummæli
hans um Christinu Aguileru
og Britney Spears en í sam-
starfsverkefninu, plötu með
félögum hans úr hverfinu,
sem gengur undir nafninu
D12, slær hann sjálfum sér
gjörsamlega við.
Þar tekur hans sig til og
rakkar niður, auk vinkvenna
sinna Aguileru og Spears,
Whitney Houston, Everlast,
DJ Lethal, Justin Timberlake
kærasta Spears, Ben Affleck
og meira að segja gömlu vini
sína í Limp Bizkit og það
meira að segja í einu og sama
laginu! Umrætt lag heitir
„Ain’t Nuttin’ But Music“ og
er unnið í samstarfi við Dr.
Dre.
Reuters
Sannur mannvinur.
Eminem
við sama
heygarðs-
hornið