Morgunblaðið - 19.06.2001, Qupperneq 27
LISTIR
28 ÞRIÐJUDAGUR 19. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
BÓKMENNTAVERÐLAUN Hall-
dórs Laxness, sem Vaka-Helgafell
stofnaði til í samráði við fjölskyldu
skáldsins, verða veitt í fimmta sinn í
haust. Efnt var til samkeppni um
besta handritið að skáldsögu eða
safni smásagna og var skilafrestur
til 1. maí sl. Dómnefnd um verðlaun-
in hefur nú lokið störfum. Alls bárust
hátt í tuttugu handrit í keppnina og
voru þau merkt dulnefni en rétt nafn
höfundar látið fylgja með í lokuðu
umslagi. Úrslit verða tilkynnt í
haust, sama dag og verðlaunahand-
ritið kemur út. Verðlaunin nema
500.000 krónum en venjuleg höfund-
arlaun bætast við þá upphæð. Þá fær
höfundurinn að auki sérstakan verð-
launapening og skrautritað verð-
launaskjal.
Formaður dómnefndar var Pétur
Már Ólafsson, bókmenntafræðingur
og útgáfustjóri Vöku-Helgafells, en
með honum í nefndinni sátu Ármann
Jakobsson íslenskufræðingur og
Kolbrún Bergþórsdóttir bókmennta-
gagnrýnandi.
Laxness-verðlaun
Dómnefnd
lýkur störfum
FIMMTÁNDU tónleikar Jörgs E.
Sondermanns þar sem hann flytur
orgelverk Johanns Sebastians Bach
verða í Breiðholtskirkju í kvöld kl.
20:30. Aðgangseyrir, kr. 900, rennur
til Hjálparstarfs kirkjunnar.
Á efnisskrá að þessu sinni eru:
Kontrapunktur I og XI (úr Kunst
der Fuge, BWV 1080), sex sálmfor-
leikir (úr Neumeister Sammlung),
Fantasía in Organo pleno um sálma-
lagið Komm, Heiliger Geist Herre
Gott (BWV 651), sálmforleikur á 2
Clav. et Pedale um sálmalagið
Komm, Heiliger Geist Herre Gott
(BWV 652), sálmforleikur in Organo
pleno um sálmalagið Komm, Gott
Schöpfer, Heiliger Geist (BWV 667)
og Prelúdía og fúga í h-moll (BWV
544).
Bach í Breið-
holtskirkju
TÓNLEIKARÖÐIN Bláa kirkjan á
Seyðisfirði fer nú af stað fjórða sum-
arið í röð. Fyrstu tónleikarnir verða
á morgun, miðvikudag, kl. 20.30, en
þá munu „heimamennirnir“ Einar
Bragi Bragason, saxófón og flautu,
Aðalheiður Borgþórsdóttir, söng-
kona, Ágúst Ármann Þorláksson,
hljómborð og harmonika og Jón
Hilmar Kárason, gítar, leika íslenska
djass- og popptónlist, o.fl.
Tónleikar á
Seyðisfirði
Á SUMARTÓNLEIKUM í Lista-
safni Sigurjóns Ólafssonar í kvöld
koma fram þær Gerður Bolladótt-
ir sópransöngkona og Júlíana
Rún Indriðadóttir píanóleikari.
Þær flytja sönglög eftir Samuel
Barber, þar á meðal verkið
„Knoxville: Summer of 1915“ sem
er þekktasta söngverk þessa dáða
bandaríska tónskálds, Þrjú lög
ópus 2 og 4 lög ópus 13 en að
auki flytja þær sex sönglög eftir
Jórunni Viðar.
Gerður Bolladóttir lauk burt-
fararprófi undir handleiðslu Sig-
urðar Demetz Franssonar árið
1995. Frá árinu 1995 til ársloka
2000 stundaði hún nám í við Há-
skólann í Boomington í Indiana í
Bandaríkjunum, þar sem aðal-
leiðbeinandi hennar var Klara
Barlow.
Júlíana Indriðadóttir lauk ein-
leikaraprófi árið 1989 frá Tón-
skóla Sigursveins D. Krist-
inssonar þar sem aðalkennari
hennar var Brynja Guttorms-
dóttir. Á árunum 1989–94 stund-
aði hún framhaldsnám í Berlín
undir leiðsögn prófessors Georg
Sava. Eftir tveggja ára dvöl hér-
lendis hélt Júlíana til náms til
Bloomington, þar sem þær Gerð-
ur hófu að vinna saman. Þar var
Júlíana undir handleiðslu Jerem-
ys Denks og Edwards Auers og
lauk meistaragráðu árið 1998.
Í dag vinnur Júlíana við
kennslu, undirleik og kórstjórn í
Reykjavík, en árið 1995 hreppti
hún Tónvakaverðlaun Ríkis-
útvarpsins.
Hugljúf kímnigáfa
einkennir tónskáldin
Gerður Bolladóttir segir gaman
að fást við lög Jórunnar Viðar og
Samuels Barbers. „Þau eru bæði
20. aldar tónskáld og bæði mjög
melódísk í verkum sínum. Við
Júlíana vorum báðar við nám í
Bloomington, Indiana og hlökkum
til að flytja hér amerísk sönglög.
Það er líka gaman að taka þessa
tvo höfunda saman, því þau eru
ekkert svo ólík, til dæmis er hug-
ljúf kímnigáfa einkennandi fyrir
þau bæði.“ Gerður var í sex ár í
Bloomington og tók þátt í upp-
færslum í óperustúdíói skólans.
Þar söng hún meðal annars hlut-
verk greifynjunnar í Brúðkaupi
Fígarós; Margarítu í Faust og
Sieglinde í Valkyrjunni. Ekki
verður hægt að segja annað en að
þetta sé óvenju fjölbreytt verk-
efnaval og hlutverkin ólík. „Rödd-
in er smám saman að leiðast út í
að verða dramatísk. Kennarinn
minn söng mikið Wagner og hafði
áhrif á mig með það. Hún vildi að
ég færi í út í óperusöng að námi
loknu, en mér finnst ég meira
vera að færast yfir í ljóðasönginn
og hef alltaf haft mjög mikinn
áhuga fyrir honum. Ég fór í leið-
sögn í ljóðasöng hjá Alan Bennett
sem er vel þekktur í þeirri grein í
Bandaríkjunum. En kennarinn
minn vildi ekki hlusta á ljóð; bara
óperu. Ég er mjög ánægð með
mig núna að halda ljóðatónleika,
það er það sem mér þykir
skemmtilegt að gera og sér-
staklega gaman að geta sungið
verk eftir amerískt tónskáld á Ís-
landi.“
Gerður kom til landsins úr
námi í nóvember í fyrra og er
rétt búin að koma sér fyrir í ís-
lensku samfélagi aftur. „En nú er
kominn tími til að kynna sig hér
heima. Annað verkefni í sumar
verður að syngja á Hólahátíð í
ágúst og þar ætla ég meðal ann-
ars að syngja sönglög eftir
Grieg.“
Tónleikarnir í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar hefjast klukkan
20.20 í kvöld og standa í um
klukkustund, en kaffistofa safns-
ins er opin að tónleikum loknum.
Gaman að syngja
amerísk sönglög
Morgunblaðið/Arnaldur
Júlíana Rún Indriðadóttir píanóleikari og Gerður Bolladóttir sópran.
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Í DAG kl. 15 verður hleypt af stokk-
unum röð myndlistarsýninga í hús-
næði Kvennasögusafns Íslands í
Þjóðarbókhlöðu. Um er að ræða
samstarfsverkefni Kvennasögu-
safnsins, Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns og 13 starfandi
myndlistarkvenna.
Hver sýning stendur í einn mánuð
og er tvískipt. Annars vegar á
Kvennasögusafninu sem er til húsa á
fjórðu hæð í Þjóðarbókhlöðunni og
hins vegar í anddyri Þjóðarbókhlöð-
unnar.
Fyrst til að sýna er Alda Sigurð-
ardóttir. Hún lauk myndlistarnámi
frá MHÍ árið 1993.
Aðrar listakonur sem taka þátt í
Fellingum eru Magnea Ásmunds-
dóttir, Erla Þórarinsdóttir, Kristín
Reynisdóttir, Harpa Björnsdóttir,
Björg Örvar, Eygló Harðardóttir,
Gerla, Hafdís Helgadóttir, Kristveig
Halldórsdóttir, Guðrún Vera Hjart-
ardóttir, Ólöf Nordal og Ósk Vil-
hjálmsdóttir.
Opnunartíma Kvennasögusafns-
ins er milli klukkan 9 og 17 alla virka
daga. Lokað verður vikuna 22. júní –
2. júlí vegna sumarleyfis.
Sýning í
Kvenna-
sögusafni
NORRÆNI menningarsjóðurinn
samþykkti á fundi sínum í Umeå í
Svíþjóð á dögunum úthlutun 11,6
milljóna danskra króna, eða jafnvirði
136,9 milljóna íslenskra króna til
norrænna menningarverkefna.
Þetta er fyrri úthlutun sjóðsins í ár
og skiptist hún á 112 verkefni á
Norðurlöndum og annars staðar.
Íslensku verkefnin sem fá styrk að
þessu sinni eru: Vestur-Norðurlönd
2002 – farlistasýning. Listasafnið á
Akureyri fær 2,6 millj. kr. „Ungir
lesendur – norrænir bókmenntadag-
ar fyrir börn og unglinga“ – verða
haldnir í Reykjavík nk. október, 1,5
millj. kr. „Börn í sögunni“ börn
semja myndasögur, 1,7 millj. kr.
„Hátíðatónleikarnir Ríma“ – Kamm-
ersveit Reykjavíkur. Hátíðartón-
leikar í tilefni 60 ára afmælis Hafliða
Hallgrímssonar í janúar 2002. 1,1
millj. kr. „Listaverkefni fyrir börn
og unglinga“ í Norður-Finnlandi, á
Akureyri og Grænlandi. 2,9 millj. kr.
„Norræn ráðstefna um höfundar-
rétt“ verður haldin á Akureyri í
ágúst. 900 þús. kr.
Norrænir
menningar-
styrkir
til Íslands
♦ ♦ ♦