Morgunblaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 16
VIÐSKIPTI 16 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ FJÓRÐUNGUR hlutafjár Lands- símans var auglýstur til sölu í Fin- ancial Times í síðustu viku. Í auglýs- ingunni kemur fram að PricewaterhouseCoopers annist söl- una fyrir hönd íslenska ríkisins og að frestur til að skila inn tilboðum renni út 14. september. Þar kemur einnig fram að leitað sé eftir kjölfestufjár- festi, þ.e. fjárfesti sem sé einnig væn- legur samstarfsaðili Landssímans. Almennt útboð 19.–21. september Að sögn Óskars Jósefssonar hjá PricewaterhouseCoopers hefur nú þegar borið á viðbrögðum við auglýs- ingunni. „Þetta er bara fyrsti þátt- urinn í kynningu þessarar sölu. Nú er þetta mál farið af stað og við finn- um fyrir áhuga á fyrirtækinu, það þykir álitlegur fjárfestingarkostur,“ segir Óskar. Hann segist þó ekkert geta sagt um hvaða aðilar það eru sem þegar hafa sýnt áhuga á Sím- anum. Auk fjórðungshlutarins sem boð- inn er erlendum fjárfestum verða 24% hlutafjár seld hér á landi í tveimur útboðum sem Búnaðarbank- inn hefur umsjón með. 14 % verða seld til starfsmanna og almennings í almennu útboði sem fram fer 19.–21. september og 10% fara í tilboðssölu. Skarphéðinn Berg Steinarsson, starfsmaður framkvæmdanefndar um einkavæðingu, segir að undir- búningsvinna fyrir sölu hlutafjárins sé vel á veg komin. „Við búumst við miklum áhuga almennings á sölu Landssímans. Vefsíða Búnaðar- bankans verður notuð til að safna áskriftum og við gerum ráð fyrir að hún geti tekið við miklum fjölda áskrifta. Þá mun útboðslýsing liggja frammi í útibúum bankans og sölu- skrifstofum Símans fyrir þá sem ekki hafa aðgang að Netinu,“ segir Skarphéðinn. Hvað tilboðssöluna varðar segir Skarphéðinn að verið sé að vinna í að semja skilmála en upp- haflega hafi verið gert ráð fyrir að hver kaupandi gæti keypt 2–3% eignarhlut. Sala 25% hlutafjár í Landssímanum Tilboðsfrestur til 14. september Í hlutafjárútboði Landssíma Íslands í september gefst almenningi kostur á að skrá sig fyrir hlutabréfum á Netinu. HEILDARTAP Íslenska hugbún- aðarsjóðsins hf. nam 203 milljón- um króna fyrstu sex mánuði árs- ins. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu síðastliðinn laugardag nam óinnleyst gengislækkun á skráðum hlutabréfum í eigu félagsins tæp- um 176 milljónum króna. Innleyst tap félagsins nam tæpri 31 milljón króna á tímabilinu. Í fréttatilkynningu kemur fram að það sé álit forráðamanna sjóðs- ins að staða fyrirtækja í eignasafn- inu sé mjög traust og að félagið komi vel undan miklun lækkunum sem orðið hafa á fyrirtækjum í upplýsingatækni á tímabilinu. Helstu eignir sjóðsins eru: 21,43% hlutur í Doc.is, Gagarín 34,41%, Form.is 19,4%, GoPro Landsteinar 22,8%, Hugvakinn 37,3%, Menn & mýs 21,7%, Netverslun Íslands 20%, Softa 25,19%, Teymi 20%, Tölvumiðlun 25,6% og Þekkingar- hús 20%. Engin viðskipti voru með bréf Íslenska hugbúnaðarsjóðsins á Verðbréfaþingi Íslands í gær en síðustu viðskipti með félagið voru á genginu 3,65. Frá áramótum hef- ur gengi sjóðsins lækkað um rúm 54%, en lokagengi 29. desember síðastliðinn var 8,0. Íslenski hugbúnaðarsjóðurinn           !" #!$ % ##"# # !" #!% ##"# # &% !"      &% %% '%%(#!)#*#"#* +% , % #"#%%(#!)#    ! " #  # $ # %  $ &"#$ " &" $ &"#$ "                                #  # ' %     '$                                   - !)#%#   &+. #!)#%#    !% / $!% - ! / ! '%%! / !        Innleyst tap 31 milljón króna SAMKVÆMT upplýsingum frá Verðbréfaþingi Íslands óskaði VÞÍ þegar sl. föstudag eftir skýringum á þeim frávikum sem komið hafa fram frá því að útboðslýsing Ís- landssíma var gefin út. Skýringar þurfi að vera ítarlegri en komi fram í afkomuviðvöruninni. Íslandssími hefur um viku til að skila þessum upplýsingum til þingsins. Sam- kvæmt upplýsingum frá VÞÍ leggur þingið ekki mat á forsendur útboðs- lýsingar sem slíkrar. Verðbréfa- þingið fari hins vegar yfir allar út- boðslýsingar með það í huga að öll atriði sem reglum samkvæmt þarf að fjalla um, séu í lýsingunni. Því sé um formyfirferð að ræða en ekki sé lagt mat á forsendur lýsingarinnar. Það sé fyrst og fremst hlutverk fjárfesta þegar þeir taka ákvörðun um að fjárfesta í félaginu. Pétur Pétursson, upplýsinga- og kynningarstjóri Íslandssíma, segir að ekki sé tímabært að tjá sig um málið fyrr en greinargerð hafi verið send til Verðbréfaþingsins. Félagið starfi samkvæmt reglum þingsins og samkvæmt þeim verði allt að fara fyrst í gegnum Verðbréfaþing- ið, upplýsingar teljast fyrst opin- berar þegar þær hafa borist þinginu. Lokaverð Íslandssíma var 4,05 á Verðbréfaþingi í gær. Útboðsgengi bréfa Íslandssíma til almennings var 8,75. Lækkunin jafngildir 53,7% frá útboðsgengi fyrirtækisins. Íslandssími skilar greinargerð til VÞÍ FLUGLEIÐIR hafa selt öll hluta- bréf sín í fjarskiptafyrirtækinu France Telecom fyrir um 287 millj- ónir króna. Bókfært virði hlutabréf- anna var um 2 milljónir króna og er söluhagnaður því 285 milljónir króna. Um 61 þúsund hluti í France Telecom var að ræða. Sala Flugleiðabréfanna í France Telecom var hluti af sölu á hluta- bréfum fleiri flugfélaga í fyrirtæk- inu. Flugleiðir eignuðust þessi hlutabréf þegar France Telecom keypti fjarskiptafyrirtækið Equant sem Flugleiðir áttu hlut í. France Telecom greiddi Flugleiðum og öðr- um flugfélögum fyrir Equant með eigin bréfum. Fjarskiptafyrirtækið Equant var dótturfyrirtæki SITA, fjarskipta- fyrirtækis flugfélaga, og flugfélög eignuðust hlut í Equant í hlutfalli við viðskipti sín við SITA á tilteknu árabili. „Að okkar mati er það ekki hlut- verk Flugleiða að vera fjárfestar í alþjóðahátæknifyrirtækjum og þess vegna var tekin sú ákvörðun að selja bréfin í France Telecom,“ seg- ir Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri hjá Flugleiðum, í samtali við Morgunblaðið. Hagnaður af sölu varahluta Þá hafa Flugleiðir gengið frá sölu flugvélavarahluta með 230 milljóna króna hagnaði. Fyrst og fremst er um að ræða sölu á hreyfli í Boeing 737-400 flugvél fyrir 190 milljónir króna. „Við erum að gera stefnubreyt- ingu í flugrekstrinum og erum að fara yfir í einsleitan 757-flota í millilandaflugi. Nú höfum við selt allar 737-flugvélarnar og afhendum síðustu tvær vélarnar á næsta ári. Af þessum sökum erum við að draga verulega úr varahlutabirgð- um. Í ákveðnum hluta varahlutala- gersins er eign umfram bókfært virði hlutanna og langmest í um- ræddum varahreyfli,“ segir Einar Sigurðsson. Flugleiðir selja öll bréf sín í France Telecom VERÐBRÉFAÞING Íslands birti tilkynningu á föstudag þar sem sagt var frá því að ákveðið hefði verið að lokagengi bréfa Útgerðarfélags Ak- ureyringa yrði lækkað hinn 29. júní síðastliðinn. Dagslokaverð ÚA hinn 29. júní verður 3,20 í stað 4,0 eins og áður. Spurður um ástæður þessa segir Finnur Sveinbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Verðbréfaþings Ís- lands, að það séu ákveðin viðskipti með bréf ÚA þennan dag sem ástæða þyki til að kanna nánar. At- hugun Verðbréfaþingsins beinist að einum aðila og viðskiptum honum tengdum. Verð bréfanna hefði hækkað um 25% úr 3,2 í 4,0 en við- skipti hafi verið með bréfin upp á rúmar 2,4 milljónir króna. Það sem Verðbréfaþingið er fyrst og fremst að horfa til er misnotkun á kerfi VÞÍ. Ekki megi nota kerfið í óheið- arlegum tilgangi eða gefa villandi mynd af verðmyndun bréfa. Fleiri mál í athugun hjá VÞÍ Í lögum um verðbréfaviðskipti eru ákvæði sem banna markaðs- misnotkun og svo gæti farið að Fjármálaeftirlitið myndi einnig fara í saumana á þessum viðskiptum. Finnur vill taka fram að rannsóknin beinist ekki að neinu leyti gegn félaginu, Útgerðafélagi Akureyr- inga. Finnur segir að það séu fleiri mál í athugun sem svipar til þessa máls. Þessi dagur, 29. júní, er síðasti upp- gjörsdagur fyrir hálfs árs uppgjör og getur lokaverð hlutabréfa á þessum degi haft áhrif á niðurstöð- ur hálfs árs uppgjöra fyrirtækja. Finnur segir að þetta tiltekna mál sé komið hvað lengst hjá þinginu en fleiri mál af svipuðum toga séu til athugunar. Gengi ÚA hinn 29. júní lækkað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.