Morgunblaðið - 17.07.2001, Page 22

Morgunblaðið - 17.07.2001, Page 22
ERLENT 22 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ HELIOS, langur og mjór fljúgandi vængur sem ætlað er að fljúga hærra en nokkur ómönnuð flugvél hefur flogið, komst í rúmlega 76 þúsund feta hæð (22,8 km) í til- raunaflugi sl. laugardag. Var þetta í fyrsta sinn sem vélin flýgur knúin sólarorku. Vélinni var fjarstýrt og gekk fyrir rafhlöðum í aðfluginu, að sögn Johns Hicks, verkefnisstjóra hjá Dryden flugrannsóknarmiðstöðinni skammt frá Los Angeles. Var vél- inni flogið frá bækistöð bandaríska hersins á Barking Sands á Hawaii í Kyrrahafi. Það tók vélina 10 klukkustundir og 17 mínútur að komast hæst. Von- ast er til að seinna í sumar verði hægt að koma henni í 30 km hæð, eða 98,500 fet, sem yrði methæð fyr- ir ómannað flug og yfir þrefalt hærra en farþegaflugvélar fljúga að jafnaði. Núverandi hæðarmet er 79 þúsund fet, eða 24 km. Innbyggðar sólarrafhlöður Helios er 74,1 m langur vængur, og aðeins 2,4 metrar eru á milli frambrúnar hans og afturbrúnar. Tveir flugmenn fjarstýra honum frá jörðu niðri með hjálp tveggja tölva. Á vængnum eru 14 hreyflar sem knúnir eru af litlum rafmagnsmót- orum sem fá orku frá sólarrafhlöð- um sem þekja yfirborð vængsins. Framleiða þær um 40 kílóvött af rafmagni. Flugvélin var smíðuð í samstarfi Bandarísku geimvísindastofnunar- innar (NASA) og fyrirtækisins AeroVironment í Kaliforníu, sem smíðað hefur margar nýstárlegar flugvélar. Kostnaður við smíðina er um 15 milljónir Bandaríkjadollara, eða um einn og hálfur milljarður króna. Á fréttavef BBC er haft eftir Hicks að er fram líði stundir eigi vélin að geta verið á lofti í marga mánuði samfleytt, þegar búið verði að koma fyrir í henni rafgeymum þannig að hún geti geymt umfram- sólarorku til notkunar á nóttunni. Gæti nýst í hernaði Þar eð vélin þarf ekki að vera á sporbaug eins og gervitungl þurfa að vera er auðvelt að færa hana nið- ur til lendingar svo hægt sé að gera við hana og skipta um farm. Þá get- ur hún ennfremur verið á sama stað yfir jörðinni í langan tíma. Segir Hicks að þessir eiginleikar vélarinnar geri hana að einskonar „gervitungli fyrir fátæka“ og sé hægt að nota hana til að sjá af- skekktum svæðum fyrir símasam- bandi og sjónvarpssendingum. Einnig væri hægt að nota hana til að fylgjast með fiskveiðum, skóg- nytjum, fellibyljum, hvirfilbyljum og eldgosum og meta hvort uppskera sé tímabær. Þar sem vélin kemur ekki fram á radarskjám gæti hún einnig nýst í hernaði, segir Hicks. Fyrsta sólarknúna tilraunaflug nýrrar ómannaðrar flugvélar gengur áfallalaust Getur verið á flugi í marga mánuði AP Helios skömmu eftir flugtak frá Barking Sands á Hawaii. Barking Sands á Hawaii. AP. BÖGGLASPRENGJA sprakk í gær í lögreglustöð í ítölsku borginni Genúa þar sem leið- togafundur átta helstu iðnríkja heims verður haldinn síðar í vikunni. Engin hreyfing lýsti tilræðinu á hendur sér en ítalskir fjölmiðlar sögðu að lög- reglan hefði yfirheyrt ungan mann sem var í lögreglustöð- inni þegar sprengjan sprakk. Mikill viðbúnaður er í Genúa vegna leiðtogafundarins. Graham þungt haldin KATHARINE Graham, fyrr- verandi stjórnarformaður The Washington Post Company, var í gær á gjörgæsludeild sjúkrahúss í Idaho eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð. Að sögn lækna var hún í lífshættu. Graham gekkst undir skurð- aðgerðina eftir að hafa hrasað á göngu í Sun Valley þegar hún sótti þar ráðstefnu fjölmiðla- manna um helgina. Graham tók við rekstri The Washington Post Comp- any þegar eiginmaður hennar lést árið 1963. Hún var stjórn- arformaður fyrirtækisins í tuttugu ár, 1973-93, og gerði það að fjölmiðlastórveldi. Haldið upp á 20 ára valda- afmæli UM ÞAÐ bil 25.000 manns snæddu í gær saman kvöldverð í Malacca, elstu borg Malasíu, til heiðurs Mahathir Mohamad forsætisráðherra í tilefni af því að hann hefur verið við völd í tvo áratugi. Skipuleggjendur hátíðarinnar sögðu þetta stærstu veislu í sögu landsins. Mahathir er 75 ára og hefur verið lengur við völd en nokkur annar þjóðarleiðtogi í Asíu. STUTT Sprengju- tilræði fyrir leið- togafund Katharine Graham ÞINGFLOKKUR breskra íhalds- manna velur í dag þá tvo frambjóð- endur til leiðtogaembættisins í flokknum sem almennir flokksmenn greiða svo atkvæði um í póstkosn- ingu. Iain Duncan Smith, talsmaður Íhaldsflokksins í varnarmálum, þykir hafa styrkt stöðu sína, en hallað hefur undan fæti fyrir Michael Portillo, talsmanni í ríkisfjármálum. Michael Ancram, sem gaf kost á sér til leiðtogaembættisins en féll út í annarri umferð kosningar þingflokks- ins á fimmtudag, lýsti í gær yfir stuðningi við Duncan Smith. Það hafði David Davis, sem dró framboð sitt til baka á föstudag, þegar gert. Breskir stjórn- málaskýrendur gerðu því skóna í gær að atkvæði þeirra sem áður studdu Ancram og Davis myndu skiptast á milli Duncan Smith og Kenneth Clarke, fyrrverandi fjár- málaráðherra, en Portillo nyti ekki góðs af. Því var búist við að Duncan Smith fengi flest atkvæði í kosning- unni í dag en að Clarke og Portillo bit- ust um annað sætið. Jafnvel þótti útlit fyrir að Portillo biði lægri hlut, þrátt fyrir að hann hafi verið efstur í fyrri umferðunum tveimur í síðustu viku. Hallar undan fæti fyrir Portillo Michael Portillo var fyrstur til að gefa kost á sér í leiðtogaembættið og var lengst af talinn sigurstranglegast- ur. Í lok síðustu viku virtist hins vegar sem farið væri að halla undan fæti fyrir honum og um helgina komu upp tvö mál, sem reyndust óþægileg fyrir hann. The Sunday Telegraph birti frétt um að Margrét Thatcher, fyrrverandi flokksleiðtogi og forsætisráðherra, styddi Portillo á bak við tjöldin og teldi Duncan Smith ekki hafa nægi- lega reynslu til að takast á við leið- togaembættið. Thatcher sendi hins vegar snarlega frá sér yfirlýsingu þar sem hún vísar þessu á bug og þóttu hörð viðbrögð hennar áfall fyrir Por- tillo. Þá sakaði fyrrum blaðafulltrúi Williams Hagues, fyrrverandi flokks- leiðtoga, stuðningsmenn Portillos um að hafa grafið undan Hague í kosn- ingabaráttunni í vor. Hague sagði þetta hins vegar af og frá og kvað Portillo hafa sýnt sér fulla tryggð. Leiðtogaslagurinn í breska Íhaldsflokknum Duncan Smith styrkir stöðu sína Iain Duncan Smith

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.