Morgunblaðið - 09.08.2001, Qupperneq 1
TBL. 89. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 9. ÁGÚST 2001
FRAKKAR og Þjóðverjar hafa farið þess á leit við
Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna (SÞ), að hann hlutist til um að samið verði um
alheimsbann við einræktun manna, að því er
franska utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær.
„Þetta er mikilvægt mál fyrir allt mannkyn og
þess vegna eru SÞ viðeigandi vettvangur,“ sagði
Bernard Valero, talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins. Frakkar halda því fram að sátt um bann við
einræktun, eða klónun, á fólki hafi verið fólgin í
allsherjaryfirlýsingu um „genamengi mannsins og
mannréttindi“, sem Menningarmálastofnun SÞ
(UNESCO) hafi samþykkt 1997. „Á því skjali hlýt-
ur öll umræða um lífsiðfræði að byggjast,“ segir í
tilkynningu utanríkisráðuneytisins.
Frakkar og Þjóðverjar hafa farið fram á að bann
við einræktun manna verði rætt á næsta fundi alls-
herjarþings SÞ, sem hefst í New York í septem-
ber. Málaleitan þeirra kemur í kjölfar yfirlýsingar
ítalska fósturfræðingsins Severinos Antinoris sl.
þriðjudag um að hann hygðist brátt hefja tilraunir
til að klóna fólk með því að beita svipuðum aðferð-
um og notaðar voru við að einrækta kindina Dollý.
Áður en Antinori hafði tilkynnt fyrirætlanir sín-
ar voru Hubert Vedrine, utanríkisráðherra
Frakklands, og Joschka Fischer, utanríkisráð-
herra Þýskalands, byrjaðir að þreifa fyrir sér um
að koma á banni við einræktun á mönnum. Eftir að
þeir funduðu í Berlín í júní sl. létu þeir í ljósi mikl-
ar áhyggjur vegna málsins.
„Í anda Hitlers“
Antinori og samstarfsmenn hans vilja með til-
raunum sínum reyna að koma til hjálpar barnlaus-
um pörum sem ekki geti orðið foreldrar eftir hefð-
bundnum leiðum. Haft var eftir Antinori að hefja
ætti tilraunirnar innan fárra vikna. Mun einrækt-
uðum fósturvísum verða komið fyrir í legi allt að
200 kvenna, sem verða valdar úr hópi sjálfboða-
liða. Fullyrða Antinori og samstarfsmenn hans að
hægt verði að sía út gallaða fósturvísa sem verði til
í einræktunarferlinu.
Fyrirætlanir Antinoris hafa verið gagnrýndar
víða, og sagði bandarískur vísindamaður m.a. að
engin leið væri að tryggja að einhver tiltekinn
klónaður fósturvísir yrði gallalaus. Í Páfagarði
sagði kardínálinn Joseph Ratzinger að áætlanir
Antinoris væru í anda fyrirætlana Hitlers um að
koma upp fullkomnum kynþætti. Ítölsk yfirvöld
hafa hótað að svipta Antinori læknisleyfi.
Antinori vakti fyrst á sér athygli árið 1994 þegar
hann hjálpaði 63 ára gamalli konu að eignast barn.
Hann segir að sú gagnrýni sem komið hafi fram
varðandi áætlanir hans sé „heimskuleg“ og að hún
muni ekki stöðva sig. Hann segir ennfremur að
ekki standi til að búa til börn sem séu fullkomin
eftirlíking foreldranna, heldur sé ætlunin að skapa
„læknisfræðilega fullkomin“ börn.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lét í
gær í ljósi áhyggjur af þessu máli. Fulltrúi stjórn-
arinnar sagði að jafnvel þótt ESB væri andvígt
einræktun gæti það ekki gripið fram fyrir hend-
urnar á Antinori. Í Réttindaskrá sambandsins sé
tekið svo til orða að einræktun á mönnum sé bönn-
uð, en þar sé einungis um að ræða yfirlýsingu um
siðferðilega afstöðu, ekki lagaleg ákvæði.
SÞ leggi alheimsbann
við einræktun manna
París, Washington. AFP.
FLOKKAR Makedóna og albanska
minnihlutans í Makedóníu náðu í gær
samkomulagi um friðarsamninga,
sem fyrirhugað er að undirrita nk.
mánudag. Samkomulagið náðist þrátt
fyrir að áhrifamikill flokkur Make-
dóna hefði fyrr um daginn dregið sig
tímabundið út úr viðræðunum, eftir
að tíu makedónskir stjórnarhermenn
féllu í fyrirsát albanskra skæruliða í
gærmorgun.
François Leotard, sendimaður
Evrópusambandsins í Makedóníu,
sagði að unnið yrði að nánari útfærslu
friðarsamkomulagsins fram á mánu-
dag, þegar það yrði undirritað, en
haft var eftir embættismönnum að
fulltrúar stjórnmálaflokkanna hefðu í
gær skrifað undir drög að samkomu-
laginu. Þetta er í fyrsta sinn sem
helstu flokkar Makedóna og Albana
undirrita slíka pappíra. Skæruliðar
áttu hins vegar ekki aðild að viðræð-
unum og því er óttast að samkomu-
lagið reynist gagnslítið. „Við teljum
ekki kjúklingana fyrr en þeir klekjast
úr eggi,“ sagði Richard Boucher, tals-
maður bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins, og kvað of snemmt að fagna.
Mannskæðasta árásin
Að sögn yfirvalda féllu tíu stjórn-
arhermenn í gærmorgun í fyrirsát
albanskra skæruliða á vegi utan við
höfuðborgina Skopje. Árásin var sú
mannskæðasta síðan átök stjórnar-
hersins og skæruliða hófust fyrir
hálfu ári.
Nokkur hundruð manns tóku þátt í
mótmælum í Skopje vegna morðanna
og ráðist var á moskur og verslanir í
eigu Albana í Prilep, heimabæ
margra af hermönnunum sem féllu.
Samkomulagi náð
þrátt fyrir mannfall
Ohrid. AFP, AP.
JAPANIR hafa nú fundið upp
nýtt tæki sem þeir segja geta
hjálpað gæludýraeigendum að
skilja tilfinningar og þrár dýra
sinna. Sagt er að þýðingartækið
geti snarað gelti, urri og væli
hunda yfir í algengar mannlegar
tilfinningar eins og vonbrigði,
ótta, hungur, gleði og sorg.
Að því er fram kemur í viðtali
á netútgáfu breska dagblaðsins
The Daily Telegraph við sálfræð-
inginn Roger Mugford, sem sér-
hæfir sig í samskiptum manna og
dýra, er tækið byggt á traustum
vísindalegum grunni.
Tæknin felst í örsmáum hljóð-
nema sem komið er fyrir á hálsól
hundsins. Hljóðneminn sendir svo
hljóðin sem dýrið gefur frá sér
yfir í lófastórt tæki, sem notar
víðtækan orðaforða til að þýða
þau yfir í þarfir og tilfinningar
hundsins. Þannig birtast setn-
ingar eins og „ég er einmana,
leiktu við mig,“ á skjá tækisins
og skýra líðan hundsins á hverj-
um tíma fyrir eigandanum.
Reuters
Japönsk kona sýnir nýja þýðing-
artækið á hundinum sínum.
Tækið kemur til með að kosta
um 10.000 íslenskar krónur.
Hunda-
líðan
túlkuð
UMBÓTASINNINN Mohammad
Khatami, sem var endurkjörinn
forseti Írans í júní, sór embættis-
eið í gær. Í ávarpi sínu lagði hann
meðal annars áherslu á nauðsyn
þess að fjölmiðlar fengju frelsi til
að starfa óáreittir í landinu, en
nokkrum klukkustundum eftir
embættistökuna létu klerkayfir-
völd loka einu þekktasta dagblaði
umbótasinna.
Khatami hét því í ávarpi sínu að
halda áfram að þrýsta á um lýð-
ræðisumbætur og gagnrýndi harð-
línuöflin í landinu fyrir að hunsa
vilja þjóðarinnar. Hann hvatti til
umburðarlyndis í samfélagsmálum
og sagði nauðsynlegt að málfrelsi
væri virt.
Síðan Khatami var fyrst kjörinn
forseti árið 1997 hafa klerkayfir-
völd staðið í vegi fyrir flestum um-
bótatilraunum hans.
Dagblaði lokað eftir gagnrýni
á yfirmann dómskerfisins
Dagblaðið Hambasteghi, sem
írönsk dómsmálayfirvöld skipuðu í
gær að hætta starfsemi, hafði í
gærmorgun birt forsíðuviðtal við
umbótasinnaðan stjórnmálamann
sem gagnrýndi yfirmann dóms-
kerfisins, Ayatollah Mahmoud
Shahroudi. Shahroudi hefur und-
anfarið staðið í deilum við umbóta-
sinna á þingi um skipun manna í
hið áhrifamikla byltingarráð.
Æðsti klerkur landsins, Ayatollah
Khamenei, úrskurðaði loks Sha-
hroudi í hag, en deilan tafði emb-
ættistöku Khatamis um þrjá daga.
Khamenei réðst á síðasta ári til
atlögu við fjölmiðla umbótasinna,
sem hann kallaði „bækistöðvar
óvinarins“. Síðan hefur starfsemi
að minnsta kosti sextán dagblaða
verið stöðvuð, auk nokkurra tíma-
rita. Fjöldi blaðamanna hefur ver-
ið tekinn höndum.
Khatami
sver emb-
ættiseið
Teheran. AFP.
GEORGE W. Bush Bandaríkja-
forseti sést á myndinni ræða við
fréttamenn eftir að hafa tekið
þátt í að reisa íbúðarhús í góð-
gerðarskyni í bænum Waco í Tex-
as.
Húsbyggingin er liður í átaki
sem 25 þjóðarleiðtogar taka þátt í
og ber kjörorðið „Bústað fyrir
mannkynið“. Bush dró ekki af sér
við byggingarvinnuna og meiddist
lítillega á vísifingri vinstri handar
í hamaganginum. Gantaðist for-
setinn með að hann hefði „úthellt
blóði við sjálfboðaliðastörf“.
Forsetafrúin Laura Bush er til
hægri á myndinni, en milli for-
setahjónanna stendur Bubba Ev-
ans, sem mun senn flytja inn í
húsið ásamt móður sinni og syst-
ur.
Reuters
Bush
byggir hús
Waco í Texas. AFP.