Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 47

Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 47 MAGNAÐ BÍÓ Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Myndin sem manar þig í bíó Sýnd. 6 og 8.  Kvikmyndir.com  Hausverk.is Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Ghostbusters! Sýnd. 6, 8 og 10. betra en nýtt Dýrvitlaus og drepfyndinn Sýnd kl. 6. Síðasta sýning.Sýnd kl. 8 og 10 Nýr og glæsilegur salur Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sími 461 4666 samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ Sýnd kl. 8. Vit nr 243. Sýnd kl. 6. Íslenskt tal. Vit nr. 245 Sýnd kl. 10. Enskt tal Vit nr. 244 www.sambioin.is Sýnd kl. 6, 8 og 10. Vit nr. 261. Keflavík - sími 421 1170 - samfilm.is FYRIR 990 PUNKTA FERÐU Í BÍÓ www.sambioin.is Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8 Ísltal.Vit 245Sýnd kl. 10. Vit nr 255 Sýnd kl. 8 Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Ævintýrið góða sem aldrei var sagt frá …fyrr en nú.  DV Mbl Sýnd kl. 4 og 6. Íslenskt tal. l Kvikmyndir.com Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú gætir drepist úr hlátri... aftur! Hláturinn lengir lífið. VARÚÐ! Þú g tir drepist úr hlátri... aftur! Meira miskunnarleysi. Meiri ósvífni. Myndin sem manar þig í bíó Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Ný eyja. Nýjar tegundir. Nýjar hættur. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i.10 ára. Allt er þegar þrennt er. Myndin opnaði með þvílíkum látum í Bandaríkjunum nú fyrir stuttu. Júragarðurinn 1&2 var aðeins upphitun. Nú hefst rússíbanaspennan fyrir alvöru og af fullum krafti. Besta Júragarðsmyndin til þessa. Með Sam Neill (Jurassic Park, Event Horizon), William H. Macy (Fargo, Boogie Nights), Téa Leoni (The Family Man, Bad Boys), Alessandro Nivola (Face/Off) og Trevor Morgan (The Patriot). Leikstjóri: Joe Johnston (Jumanji, Honey, I Shrunk The Kids, The Rocketeer). Sýnd kl. 8 og 10. Dýrvitlaus og drepfyndinn Strik.is www.laugarasbio.is SÖNGKONAN Sheryl Crow hefur nú þurft að fresta tveimur tónleikum á tónleikaferð sinni um Bandaríkin vegna þess að hún gekkst nýverið undir aðgerð. Ekki hefur verið gefið upp af hvaða toga umrædd aðgerð var en að sögn talsmanna hennar var þetta „óumflýjanlegt sjúkdóms- ástand“. Crow er ætlaður bati á tveimur vikum og er ástand hennar að sögn ekki alvarlegt. Það er annars að frétta af söngkonunni að hún er að vinna að annarri plötu sinni en hún gaf út The Globe Sessions árið 1998. Sheryl Crow undir hnífinn Reuters Sheryl Crow Tónleikum frestað HLJÓMSVEITIN Jón forseti hefur starfað saman í núverandi mynd í rúm tvö ár en hefur í raun verið til í ein 12 ár. Þrátt fyrir stutt samstarf segjast þeir Þröstur og Ari þó alls engir nýgræðingar þegar að tónlist kemur. „Ég er frá Akureyri og hef verið í hljómsveitum þar síðustu tuttugu árin,“ segir Ari. „Svo var ég í Danmörku um tíma og spilaði þar með kántríhljóm- sveit.“ – Hvernig kom nafngiftin á hljóm- sveitina til? „Bara eins og nöfn verða til,“ svarar Þröstur. „Þetta var viðurnefni á sínum tíma sem festist síðan við okkur. Engin sérstök saga á bakvið það.“ – Geislaplatan Öldin er liðin leit dagsins ljós fyrr í sumar. Var þar að rætast gamall draumur? „Það er ekki hægt að neita því að þetta hefur verið gamall draumur,“ segir Ari. „Ég held að það hljóti að vera draumur allra tónlistarmanna að gefa út disk,“ samsinnir Þröstur. „Ég hef reyndar staðið í því áður að gefa út disk og það gekk ágæt- lega.“ – Er meira efni væntanlegt í framtíðinni? „Alveg örugglega,“ svarar Ari og bætir við: „Við eigum nóg af efni ef þetta fær athygli og fólk vill hlusta á þetta, ég tala nú ekki um að kaupa. Þetta er talsvert dýrt og það heldur aftur af manni.“ Aðspurðir segjast þeir þó ekkert hafa fylgst með hvernig platan hefur gengið í sölu enda hafi hún aðeins verið á markaðnum í tæpan mánuð. Óhátíðlegir Hvernig skilgreinið þið þá tónlist sem þið spilið? „Þetta er létt tónlist fyrir fullorðið fólk,“ svarar Ari að bragði. „Við tökum okkur ekki hátíðlega. Þetta er í raun það sem okkur finnst skemmtilegast og það sem hentar best fyrir okkar aldurshóp. Það virð- ist ekki vera mikið framleitt af full- orðinstónlist. Það gengur allt út á krakkana og þessa ungdómsdýrkun. Það vantar eitthvað fyrir fullorðna fólkið.“ Þeir Þröstur og Ari segjast að- spurðir nýfarnir að blanda sínum eigin lögum inn í dagskrána þegar þeir koma fram. „Við spilum bara það sem fólk vill heyra í það og það skiptið,“ segir Ari. „Við erum með mörg hundruð lög sem hægt er að velja úr. Það er því hægt að setja saman dagskrá sem hentar við hvaða tækifæri sem er. Á efnisskránni okkar er t.d. fullt af kántrílögum og alltaf hægt að biðja um það ef fólk vill.“ Kántrísinnaðir „Við erum mjög kántrísinnaðir, það er ekkert hægt að neita því. Enda er diskurinn kántrílitaður,“ játar Þröstur. „Ég hef verið að benda á að kántrítónlist sé svo risastór pró- senta í tónlistarheiminum. Í Banda- ríkjunum er kántrí 81,3% af þeirri tónlist sem framleidd er. Almenn- ingur hlustar miklu meira á kántrí en hann gerir sér grein fyrir.“ – Er mikið að gera hjá ykkur í spilamennsku? „Já, við erum búnir að spila um hverja einustu helgi, bæði föstudaga og laugardaga,“ svarar Þröstur. „Aðallega spilum við á höfuðborg- arsvæðinu en við höfum farið nokkr- um sinnum út á land.“ Jón forseti sendir frá sér hljómplötu Tónlist fyrir fullorðið fólk birta@mbl.is Dúettinn Jón forseta skipa Ari Baldursson og Þröstur Harðarson. Þeir félagar sendu á dögunum frá sér geisla- diskinn Öldin er liðin. Birta Björnsdóttir tók þá tali. Morgunblaðið/Ásdís Þröstur og Ari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.