Morgunblaðið - 09.08.2001, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 49
AI MBL
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.is
EÓT Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 6, og 10.
Strik.is
Dýrvitlaus og drepfyndinn
Með Rob Schneider úr Deuce Bigalow: Male Gigolo
Sýnd kl. 8 og 10.
ATH. myndin er sýnd
óklippt. B. i. 16.
( )
Sýnd kl. 6.Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Forsýning kl. 8. Miðasala opnar kl. 5.15.
Almenn forsýning
Stærsta grínmynd allra tíma.
Stanslaust grín og hasar.
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15. Vit 255.
ÓHT Rás2
RadioX
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3.40, 5.45, 8 og10.15. Vit nr. 261.
Varaðu hvað þú gerir í tölvunni þinni!
Pokémon 3
Sýnd kl. 3.45 Íslenskt tal.
Vit nr. 231
Spot
Sýnd kl. 4 . Vit 236
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
B. i. 16 ára. Vit 247.
Samkeppnin í tölvugeiranum er orðin
gríðarlegur og þar er svifist einskis.
Spennumynd með þeim Ryan Phillippe
(Cruel Intentions), Tim Robbins
(Shawshank Redemption) og Rachel
Leigh Cook
Hinn margverðlaunaði japanski
snillingur Takeshi Kitano kemur hér með
meistaraverk í anda Pulp Fiction og
Resevoir Dogs og kynnir þig fyrirofbeldi
í sinni grimmustu mynd sem mun skilja
þig eftir agndofa.
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10,15. Vit 255.Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B. i. 16 ára. Vit 247.
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com
RadioX
Varaðu hvað þú gerir í tölvunni þinni!
Sýnd kl. 5.45, 8 og10.15. Vit nr. 261.
www.sambioin.is
Hraðlestrarnámskeið
Lestur er undirstaða alls náms og mjög mikilvægur við flest störf.
Því hraðar sem þú lest, þeim mun meiri verða afköstin. Er ekki
kominn tími til að þú aukir afköstin? Lestrarhraði þátttakenda
fjórfaldast að jafnaði á námskeiðunum. Við ábyrgjumst að þú
nærð árangri. Næsta námskeið hefst 22. ágúst.
Skráðu þig strax í síma 565-9500
HRAÐLESTRARSKÓLINN
w w w. h r a d l e s t r a r s k o l i n n . i s
HELGINA 9.–13. ágúst bregður
Filmundur sér um það bil fimmtán
ár aftur í tímann og sýnir nokkrar af
ástsælustu kvikmyndum níunda ára-
tugarins. Hver man ekki eftir mynd-
um á borð við Flashdance, Foot-
loose, Dirty Dancing, Desperately
Seeking Susan, Beverly Hills Cop,
Absolute Beginners og Top Gun?
Margir fá eflaust fiðring í fæturna
við endurminningarnar, en þessar
myndir sjást afar sjaldan á hvíta
tjaldinu nú orðið og ættu allir sem
minnast þessara tíma með gleði í
hjarta að nýta þetta einstaka tæki-
færi og eyða helginni í bíó með
Filmundi.
Látum dansinn duna!
Það má segja að umrætt tímabil
hafi fengið uppreisn æru undanfarið
og verið áhrifavaldur í söngleikja-
uppsetningum, dagskrárgerð og
tískustraumum, svo eitthvað sé
nefnt. Það er því vel við hæfi að sýna
þessar myndir nú, svo að yngri kyn-
slóðir fái að njóta þeirra.
Það er óhætt að segja að dans-
myndir hafi komið sterkar inn á
þessum tíma og á þessi kvikmynda-
grein þrjá verðuga fulltrúa á hátíð-
inni. Hátíðin verður sett með stór-
myndinni Flashdance, sem kostaði
foreldra ungra stúlkna ómældar
upphæðir í formi djassballetttíma.
Segja má að Flashdance hafi verið
hápunkturinn á ferli Jennifer Beal,
sem hefur síðan einbeitt sér að sápu-
óperum í sjónvarpi, en leikstjórinn
Adrian Lyne gerði síðar m.a. Nine
and ½ Weeks og Fatal Attraction. Í
dag má sjá áhrif frá Flashdance í
öðru hvoru myndbandi á MTV, þar
sem byggt er á hinu fræga atriði þar
sem Alex fer í mikla og erfiða dans-
prufu – og stenst raunina, eftir mis-
heppnaðar tilraunir.
Önnur vinsæl mynd var Footloose,
með Kevin Bacon í aðalhlutverki, en
hún fjallar um tilverurétt dansins,
hvorki meira né minna, en Kevin
flytur ásamt fjölskyldu sinni til smá-
bæjar þar sem dans- og rokktónlist
er bannvara. Hann heldur í kross-
ferð gegn þessum óréttlátu viðhorf-
um og flækjast málin verulega þegar
hann verður ástfanginn af dóttur
prestsins sem hefur komið þessum
reglum á. Mun dansinn sigra? – það
er spurningin.
Dansinn sigrar svo sannarlega í
Dirty Dancing, en sú mynd kom af
stað miklu æði og sérnámskeiðum í
dansskólum landsins – „dirty danc-
ing“ var meira að segja kenndur í
leikfimitímum í Menntaskólanum í
Reykjavík. Eins og flestir muna
gengur sá dans út á að parið dansar
þétt hvort upp við annað og nuddar
mjöðmunum saman og var því að
margra mati á mörkum velsæmis.
Þessi dansaðferð verður tæki í
ákveðinni stéttabaráttu sem á sér
stað í sumarbúðum, þar sem yfir-
stéttarstúlkan Baby verður ástfang-
in af danskennaranum og lágstétt-
arfolanum Johnny. Hann sýnir henni
engan áhuga fyrr en hún kemst í þá
stöðu fyrir röð tilviljana að dansa
með honum í sýningu. Með því að til-
einka sér dónalega alþýðudansinn
tekst henni loks að ná athygli John-
nys og allt fer vel að lokum. Dirty
Dancing kom Patrick Swayze á
stjörnuhimininn, en hann varð ákaf-
lega vinsæll í kjölfarið og lék í mynd-
um á borð við
Ghost. Þó að vin-
sældir hans hafi
dalað nokkuð er
óhætt að segja að
hann hafi verið
einn af aðalhjarta-
knúsurum níunda
áratugarins.
Löggur og
flugkappar
Á hátíðinni má
einnig sjá frum-
raun Madonnu í
kvikmyndum, en
það er hin ágæta
Desperately Seeking Susan. Í
huga margra er hér um að
ræða langbestu mynd
Madonnu, en kvikmyndaferill
poppstjörnunnar hefur verið
þyrnum stráður, eins og
kunnugt er. Shanghai Sur-
prise, Who’s That Girl og The
Next Best Thing gerðu sig
einfaldlega ekki alveg. Leik-
stjórinn Susan Seidelman hef-
ur aðallega unnið í sjónvarpi
undanfarin ár, en hún hefur
meðal annars leikstýrt sjón-
varpsþáttunum Sex and the
City.
Madonna er ekki eina popp-
stjarnan sem kemur við sögu
á hátíðinni; David Bowie leik-
ur í Absolute Beginners en sú mynd
er hópdýrkuð í dag (e. „cult“). Hún
byggist á samnefndri skáldsögu Col-
ins MacInnes og lýsir lífinu í London
á sjötta áratugnum. David Bowie sér
um tónlistina, og má segja að mynd-
in sé tónlistarútfærsla á skáldsög-
unni. Leikstjórinn Julian Temple
hefur aðallega unnið að tónlistar-
myndum og gerði meðal annars hina
frábæru heimildarmynd The Filth
and the Fury sem fjallar um Sex
Pistols og Filmundur sýndi einmitt
fyrir um það bil ári.
Beverly Hills Cop-myndaröðin,
með Eddie Murphy í hlutverki hins
mjög svo óhefðbundna rannsóknar-
lögreglumanns Axels Foleys, hefur
notið gríðarlegra vinsælda, og verð-
ur fyrsta myndin í seríunni sýnd á
hátíðinni, en hún verður að teljast
langbest, að hinum ólöstuðum, eins
og verða vill með fyrstu myndir í
svona myndaröðum. Eddie Murphy
er án efa einn af vinsælustu gam-
anleikurum seinni tíma; þegar mað-
ur heldur að hann sé búinn að vera
rís hann alltaf upp á ný, nú síðast í
hlutverki Klump-fjölskyldunnar í
Nutty Professor-myndunum.
Síðast en ekki síst sýnir Filmund-
ur stórmyndina Top Gun með Tom
Cruise í aðalhlutverki. Það er óhætt
að segja að sú mynd hafi skotið hon-
um upp á stjörnuhimininn, en þar
hefur hann átt nokkuð öruggt sæti
síðan. Flugkappinn Maverick kemst
að því að árennilegar konur geta ver-
ið vélaverkfræðingar, en það er að-
eins ein af fjölmörgum uppgötvunum
á þroskaferli Mavericks í Top Gun.
Hátíðin hefst með hátíðarsýningu
á Flashdance fimmtudaginn 9. ágúst
í Háskólabíói, en nánari dagskrá má
finna á kvikmyndasíðum dagblað-
anna.
Filmundur með
sítt að aftan
Filmundur sýnir nokkur af meistaraverkum níunda áratugarins
Tom Cruise byrstir sig í Top Gun.
Madonna í hlutverki sínu í Desperately
Seeking Susan.