Morgunblaðið - 09.08.2001, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti fund með Colin Powell,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í
Washington í gær þar sem sameig-
inleg hagsmunamál þjóðanna voru
til umræðu, m.a. varnarsamstarfið,
samstarf innan NATO og tvíhliða
viðskiptamál. Var þetta fyrsti tví-
hliða fundur ráðherranna frá því að
Colin Powell tók við embætti. Sverr-
ir Haukur Gunnlaugsson, ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu, og
fleiri embættismenn úr utanríkis-
þjónustunni sátu einnig fundinn
ásamt sendiherrum ríkjanna, þeim
Jóni Baldvini Hannibalssyni og Bar-
böru J. Griffiths, sem fór gagngert
vestur um haf til að vera viðstödd.
Halldór Ásgrímsson sagði við Morg-
unblaðið að fundi loknum að engar
nýjar áherslur eða óskir hefðu kom-
ið fram af hálfu Bandaríkjamanna
aðrar en þær að þjóðirnar eigi áfram
náið og gott samstarf í varnarmál-
um. Halldór sagðist ekki hafa merkt
neina stefnubreytingu í máli Powells
gagnvart varnarsamstarfinu við ís-
lensk stjórnvöld, þrátt fyrir stjórn-
arskiptin í Bandaríkjunum.
Halldór segir að fundurinn hafi
verið vinsamlegur og mikilvægur
undanfari þeirra viðræðna ríkjanna
sem halda á áfram í haust um varn-
arsamning Íslands og Bandaríkj-
anna, sem rann út í apríl sl.
„Við ræddum allítarlega varnar-
samstarf Íslands og Bandaríkjanna í
gegnum tíðina og stöðu þeirra mála.
Ég fór yfir okkar áherslur í þeim
efnum, sem eru þær helstar að við
viljum ekki sjá miklar breytingar.
Við teljum að starfsemin á Keflavík-
urflugvelli sé á því stigi að þar sé um
að ræða lágmarksvarnir fyrir land-
ið. Bandaríkjamenn hafa verið að
skera niður framlög til varnarmála á
síðustu árum og alltaf er eitthvað í
gangi í því sambandi,“ sagði Hall-
dór.
Aðspurður hvort rætt hefði verið
að hafa orustuþotur og björgunar-
sveit áfram í Keflavík sagði Halldór
það ekki hafa verið rætt sérstak-
lega. Hann hefði fyrst og fremst lýst
þeirri skoðun Íslendinga að sá við-
búnaður sem væri á Keflavíkurflug-
velli í dag væri lágmarksviðbúnaður.
Íslensk stjórnvöld hefðu ekki uppi
óskir um breytingar þar á og Banda-
ríkjamenn hefðu ekki heldur lagt
fram óskir um breytingar.
Ánægja með friðargæslu-
hlutverk Íslendinga
Málefni NATO komu einnig til
umræðu sem og væntanlegur vor-
fundur utanríkisráðherra banda-
lagsins í Reykjavík á næsta ári.
Halldór sagði Colin Powell líta til
fundarins með tilhlökkun. Stækkun-
arferli Atlantshafsbandalagsins
hefði komið til tals og þar væru
þjóðirnar með svipaðar áherslur.
„Við ræddum einnig ítarlega um
friðargæslu Sameinuðu þjóðanna og
friðargæsluhlutverk Íslands. Það
hefur vakið almenna ánægju okkar
bandamanna að við ætlum okkur að
efla starf á því sviði og leggja meira
af mörkum. Powell var ánægður að
heyra að við úr utanríkisráðuneyt-
inu værum að fara til Kosovo í
næstu viku til að kynna okkur að-
stæður og hvernig best verður stað-
ið að friðargæsluhlutverkinu,“ sagði
Halldór.
Auðlindamál komu til tals á fundi
Halldórs og Powells í gær. Vaxandi
áhugi er fyrir nánu samstarfi við Ís-
land á sviði orkumála, sér í lagi nýt-
ingar jarðhita. Að sögn Halldórs fór
sendinefnd frá Íslandi til Kaliforníu
í þessu skyni og fulltrúar þaðan hafa
einnig heimsótt Ísland. Þá var rætt
um hvalveiðimál á fundinum.
Halldór Ásgrímsson átti fund í gær með utanríkisráðherra Bandaríkjanna
Powell kynnti engar
áherslubreytingar
Ljósmynd/Friðrik Jónsson
Vel fór á með þeim Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
í Washington í gær. Þetta var fyrsti tvíhliða fundur þeirra eftir að Powell tók við embætti. Powell var boðið að
skoða Ísland í tengslum við vorfund utanríkisráðherra NATO-ríkja í Reykjavík á næsta ári.
TALIÐ er að gjaldskrárhækkun, sem
Eimskip hefur þegar ákveðið, muni
skila félaginu 200 milljónum króna
fram að áramótum.
Ákveðið hefur verið að gjaldskrá
flutningsgjalda í sjóflutningum hækki
um 9,7% hinn 12. ágúst næstkomandi.
Fyrirhugað er að taka upp sérstakt
gjald í for- og áframflutningum innan-
lands. Áður var þessi kostnaður inni-
falinn í sjóflutningstekjum, að sögn
Ingimundar Sigurpálssonar, for-
stjóra Eimskipafélags Íslands.
Hann segir að enginn bilbugur sé á
félaginu vegna fyrirhugaðrar bygg-
ingar 19.300 fermetra vöruhótels á
Sundabakka. Framkvæmdir séu ekki
hafnar en deiliskipulagi á lóðinni hef-
ur verið breytt og búið er að sækja
um byggingarleyfi. Væntanlega verð-
ur ákvörðun um útboð verksins tekin
á næstu vikum eða mánuðum.
Eimskipafélagið
Gjaldskrár-
hækkun
skilar 200
milljónum
Áhugavert/C6
UM 100% verðmunur var á milli
Bónuss og Nýkaups þegar Morgun-
blaðið kannaði verð á íslensku græn-
meti í verslunum á höfuðborgar-
svæðinu sl. þriðjudag.
Um 106% verðmunur var á
grænni papriku, ódýrust var hún í
Bónus á 339 kr. en dýrust í Nýkaupi
og Nóatúni á 699 kr.
Verð á grænni papriku hefur lít-
illega lækkað frá því á sama tíma í
fyrra en að sögn Guðmundar Sig-
þórssonar, skrifstofustjóra í land-
búnaðarráðuneytinu, hafa tollar á
henni lækkað um þriðjung. „Sú tolla-
lækkun ætti að skila sér í lægra verði
á grænni papriku, íslenskri eða inn-
fluttri, sé sú staðhæfing rétt að toll-
arnir haldi uppi verðinu til framleið-
enda um sumartímann þegar
framleiðslan er hvað mest.“
Um 100%/17
Mikill verð-
munur á
grænmeti
SÍÐUSTU tólf mánuði hafa þrír
sjúklingar komið á bráðamóttöku
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
Fossvogi eftir neyslu smjörsýru,
sem hefur verið mikið í um-
ræðunni í kjölfar atburða versl-
unarmannahelgarinnar.
Curtis P. Snook, bráðalæknir
með sérmenntun í klínískri eitur-
efnafræði sem starfar á bráðamót-
tökunni, segir að þar af hafi tveir
verið hætt komnir vegna neyslu á
efninu. Sjúklingarnir voru lagðir
inn á gjörgæslu í öndunarvél og
segir Snook að öndun hefði líklega
stöðvast hefðu þeir ekki komið til
meðferðar. Hann veit ekki til að
sjúklingar hafi látist hér á landi
eftir neyslu efnisins, en segir að
nokkrir einstaklingar látist á
hverju ári í Bandaríkjunum vegna
neyslu smjörsýru.
Falla í djúpan svefn
eftir neyslu efnisins
Snook telur að meirihluti þeirra
sem koma á gjörgæslu hér á landi
eftir neyslu smjörsýru hafi verið
að prófa efnið til að komast í vímu.
Hann segir að fólk komist aftur á
móti ekki í vímu við inntöku lyfs-
ins, heldur verði það mjög syfjað
og falli í djúpan svefn.
Snook segir að erlendis sé nokk-
uð um að íþróttamenn taki inn
smjörsýru í sama tilgangi og stera
og einhverjir taki lyfið til að hjálpa
sér til að sofna. Einnig er þekkt að
kynferðisbrotamenn byrli fórnar-
lömbum sínum lyfið þannig að þau
falli í djúpan svefn sem auðveldi
brotamönnunum að vinna voða-
verk.
Snook segir að stundarfjórðungi
eða hálftíma eftir inntöku efnisins
falli fólk í djúpt dá, sem vari í um
tvo klukkutíma. Síðan vakni það
skyndilega, eins og upp af vondum
draumi.
Erfitt að færa sönnur
á notkun lyfsins
Eyrún Jónsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur á neyðarmóttöku fyrir
nauðganir, sem starfrækt er á
sjúkrahúsinu í Fossvogi, segir að
síðustu ár hafi komið upp þó nokk-
ur mál þar sem grunur hafi leikið
á að fórnarlömbum kynferðisglæpa
hafi verið byrlað lyf. Hún segir þó
að þar sem öll merki um neyslu
smjörsýrunnar hverfi á tólf tímum
eftir inntöku efnisins hafi aldrei
verið hægt að færa sönnur á að
það hafi verið notað.
Eyrún segir að miðað við lýs-
ingar stúlkna sem var nauðgað á
útihátíðinni Eldborg um síðustu
helgi gæti efnið hafa verið notað í
tveimur tilfellum og segir hún að
sterkur grunur leiki á um notkun
efnisins í einu tilfelli. Hún segir að
blóðsýni hafi verið tekin úr þeim
stúlkum og að væntanlega skýrist
í næstu viku hvort efnið hafi fund-
ist í sýnunum.
Tveir voru hætt komnir
vegna neyslu smjörsýru
JEPPI með tveimur mönnum
valt á Kaldadal í námunda við
Þórisjökul í gærkvöldi. Hvorug-
an sakaði en draga þurfti jepp-
ann mikið skemmdan til byggða
með kranabíl. Mennirnir voru
með tökuliði frá Þýskalandi sem
var á ferð á nokkrum jeppum
um hálendið til að gera auglýs-
ingamynd á vegum B&L.
Vegfarandi, sem átti leið um
Kaldadal en tilheyrði ekki töku-
liðinu, tilkynnti um bílveltuna til
lögreglunnar í Borgarnesi þeg-
ar hann var kominn í símsam-
band með þeim orðum að þrír
væru alvarlega slasaðir. Í ljósi
þeirra upplýsinga var óskað eft-
ir því að þyrla Landhelgisgæsl-
unnar yrði í viðbragðsstöðu, en
þegar frekari fregnir bárust af
slysstað var beiðnin afturkölluð.
Jeppi
valt á
Kaldadal