Morgunblaðið - 09.08.2001, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 09.08.2001, Qupperneq 42
DAGBÓK 42 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Vædderen, Mánafoss og Frank koma í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss fór í dag, Dala Rafn kom í dag. Fréttir Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, opinn þriðjud. og fimmtud. kl. 14–17. Félag frímerkjasafn- ara. Opið hús laug- ardaga kl. 13.30–17. Mannamót Árskógar 4. Kl. 9–12 baðþjónusta, opin handavinnustofan, bók- band og öskjugerð, kl. 9.45–10 helgistund, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13–16.30 opin smíðastofan, kl. 10–16 púttvöllur opinn. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8 hárgreiðsla, kl. 8.30 böðun, kl. 9–16 almenn handavinna og fótaað- gerð, kl.9.30 morgun- kaffi/dagblöð, kl. 11.15 matur, kl. 15 kaffi. Fimmtudaginn 23. ágúst kl. 8 verður skoðunarferð, Hrauneyjarfossvirkjun og nágrenni. Heimsækj- um Þjóðveldisbæinn, Vatnsfellssvæðið, Hrauneyjarfossvirkjun og Sultartangastöð, komið við hjá Hjálp- arfossi. Hádegisverður, kjöt og kjötsúpa, snæddur í Hálend- ismiðstöðinni. Hlýr klæðnaður og nesti. Upplýsingar og skrán- ing í síma 568-5052 eigi síðar en mánudaginn 20. ágúst. Félagsstarf aldraðra, Dalbraut 18–20. Kl. 9 böðun og hárgreiðslu- stofan opin. Félagsstarf aldraðra, Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð- un, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 10 hársnyrting, kl. 11.20 leikfimi, kl. 11.30 matur, kl. 13 föndur og handa- vinna, kl. 15 kaffi. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ. Fótaaðgerðir mánu- og fimmtudaga. Uppl. í síma 565-6775. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Púttæfingar á Hrafn- istuvelli á morgun föstudag kl. 14 til 16. Félagsheimilið Hraun- sel verður opnað aftur eftir sumarfrí starfs- fólks mánudaginn 13. ágúst með félagsvist kl. 13.30 og kynningarfundi Pragfara kl. 15. Þor- steinn Magnússon kynnir ferðina og tekur við lokagreiðslum. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er opin alla virka daga frá kl. 10–13. Matur í há- deginu. Í dag fimmtu- dag: brids kl. 13 og verðlaunaafhending fyrir stigamótið. Dags- ferð 18. ágúst. Fjalla- baksleið syðri í sam- vinnu við FEB og Ferðaklúbbinn Flæki- fót. Brottför frá Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn Pálína Jónsdóttir o.fl. Dagsferð 28. ágúst. Veiðivötn – Hrauneyjar. Brottför frá Glæsibæ kl. 8. Leiðsögn Tómas Ein- arsson. Silfurlínan er opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10-12 fh. í síma 588- 2111. Upplýsingar á skrifstofu FEB kl. 10– 16 í síma 588-2111. Félagsstarfið Hæð- argarði 31. Kl. 9–11 morgunkaffi, kl. 9–16 sjúkraböðun, kl. 9–12 hárgreiðsla, kl. 11.30–13 hádegisverður, kl. 15– 16 eftirmiðdagskaffi. Gerðuberg, félagsstarf. Sund- og leikfimiæf- ingar á vegum ÍTR í Breiðholtslaug á þriðju- dögum og fimmtudög- um kl. 9.30. Púttvöll- urinn er opin virka daga kl. 9–18, kylfur og bolt- ar til leigu í afgreiðslu sundlaugarinnar. Allir velkomnir. Veitingabúð Gerðubergs er opin mánudaga til föstudaga kl. 10–16. Félagsstarfið lokað vegna sumarleyfa frá 2. júlí–14. ágúst. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnnustofan op- in, leiðbeinandi á staðn- um kl. 9.30–15. Hraunbær 105. Kl. 9 fótaaðgerðir, opin vinnustofa, bútasaum- ur, kortagerð og perlu- saumur, kl. 9.45 boccia, kl. 14 félagsvist. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 böðun, fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 13 handavinna. Mosfellingar, Kjalnes- ingar og Kjósverjar 60 ára og eldri. Halldóra Björnsdóttir íþrótta- kennari er með göngu- ferðir á miðvikudögum, lagt af stað frá Hlað- hömrum: Ganga 1: létt ganga kl. 16–16.30. Gönguhópur 2: kl. 16.30. Tómstundastarf eldri borgara í Reykja- nesbæ. Tómstunda- starfið á haustönn er að fara af stað. Byrjað er með bingói á þriðjudög- um í Hvammi kl 14. Einnig verða boccia- æfingar á þriðjudögum og föstudögum kl 9 í Heiðarskóla þangað til skólarnir byrja, þá verða æfingarnar í kjallara Sund- miðstöðvar. Nánari auglýsingar verða þeg- ar líður nær mán- aðamótunum. Vesturgata 7. Kl. 9 dag- blöð og kaffi, fótaað- gerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15–12 aðstoð við böðun, kl. 9.15–15.30 al- menn handavinna, kl. 10 boccia, kl. 11.45 matur, kl. 13–14 leikfimi, kl. 14.30 kaffi. Hálfsdags- ferð miðvikudaginn 15. ágúst, lagt af stað kl. 13, ekið um Hellisheiði og Grímsnes að Ljósafoss- virkjun. Þar verður skoðuð tréútskurð- arsýning á vegum Þjóð- minjasafns Íslands. Ek- ið um Grafning til Þingvalla að Hótel Val- höll. Glæsilegt kaffi- hlaðborð. Fræðslu- fulltrúi Þjóðgarðsins, Einar A.E. Sæmunds- son, tekur á móti hópn- um. Fræðsla um stað- hætti og Þingvallakirkja skoðuð. Leiðsögumaður Nanna Kaaber. Upplýsingar og skráning í síma 562- 7077. Ath. Takmark- aður sætafjöldi. Á morgun dansað við lagaval Halldóru, rjómaterta með kaffinu. Vitatorg. Kl. 9 smiðjan, hárgreiðsla, kl. 9.30 morgunstund og al- menn handmennt, kl. 10 boccia og fótaaðgerðir, kl. 11.45 matur, kl. 13 frjálst spil, kl. 14 létt leikfimi, kl. 14.30 kaffi. Ga-fundir spilafíkla eru kl. 18.15 á mánudögum í Seltjarnarneskirkju (kjallara), kl. 20.30 á fimmtud. í fræðsludeild SÁÁ, Síðumúla 3–5 og í Kirkju Óháða safnaðar- ins við Háteigsveg á laugard. kl. 10.30. Minningarkort Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrif- stofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofutíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimersjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holts- apóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavík- urapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdóttur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 frá kl 13– 17. Eftir kl. 17 í s. 698- 4426, Jón, 552-2862, Óskar eða 563-5304, Nína. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540-1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró- og kred- itkortagreiðslur. Í dag er fimmtudagur 9. ágúst, 221. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Og Móse skrifaði upp kvæði þetta þann hinn sama dag og kenndi það Ísraelsmönnum. (5. Mós. 31, 22.) VIÐ viljum koma á fram- færi innilegum þökkum til ferðaskrifstofunnar Sam- vinnuferða-Landsýnar fyrir frábærlega vel skipulagða ferð til Skotlands í júní sl. Sérstakar þakkir til farar- stjórans Lilju Hilmarsdótt- ur fyrir ljúfa og elskulega stjórn ásamt einstökum fróðleik um land og þjóð. Við hlökkum til næstu ferð- ar með Samvinnuferðum- Landsýn. Auður og Jón Stefáns- son, Stekkjarnefi, Hrísey. Ekki barnabær OKKUR finnst Mosfells- bær ekki vera barnabær. Börnum er einungis leyft að koma hálfan daginn á gæsluvelli og er synjað að- komu ef þau óska að mæta á völlinn bæði fyrir og eftir hádegi. Eins fá börn sem eru fædd ’97 ekki aðgang að vellinum. Börn vilja vera úti að leika sér á sólríkum degi og í öruggu umhverfi en þó að það séu aðeins 1–20 börn á vellinum fá þau samt ekki aðgang. Maður spyr hvort þessar gæslukonur vallar- ins séu í áskrift að launum hjá bænum? Er réttlætan- legt að koma svona fram við börnin? Þetta þekkist hvergi í öðrum bæjarfélög- um. Nokkrar mæður í Mos- fellsbæ. Góð þjónusta ÉG vil koma á framfæri ánægju minni og þökkum fyrir góða þjónustu á nudd- stofu Jia Rui í Hamraborg- inni. Ánægður viðskiptavinur. Babysam ELÍN hafði samband við Velvakanda og spyr hún hvort einhver geti sagt sér hvenær og þá hvar barna- vöruverslunin Babysam verði opnuð? Notuð gleraugu BIRNA hafði samband við Velvakanda og segist hún eiga mikið safn af notuðum gleraugum. Spyr hún hvort einhver taki að sér að koma notuðum gleraugum til þurfandi. Birna er í síma 557-6180. Einhvers staðar verða vondir að vera ÉG er sammála Sverri Björnssyni í grein hans „Einhvers staðar verða vondir að vera“ sem birtist í Morgunblaðinu 2. ágúst sl. Tel ég að borgarstjóri eða þeir sem ráða þessum mál- um ættu að gaumgæfa þessa hugmynd, þ.e. félags- miðstöð drykkjumanna þar sem hlúð er að þessu ógæfu- fólki. Hvet ég fólk til að lesa þessa grein. Guðrún Jóhannsdóttir, Túngötu 20, Bessast.hr. Hvers á Kristín Rós að gjalda? NÝLEGA hafa tveir af okk- ar fremstu sundmönnum, Örn Arnarson og Kristín Rós, verið að vinna til verð- launa á erlendum stórmót- um. Í fréttum er varla minnst á Kristínu Rós en mikil umfjöllun hefur verið um Örn. Hvers vegna er ekki fjallað meira um henn- ar afrek? Eru hennar afrek síðri en Arnar? Er það vegna þess að hún er fötluð? Eða er það vegna þess að hún er kona? Ein fötluð. Góð stund í Planet Pulse VIÐ konur í klúbbnum Geysi viljum koma á fram- færi kærri þökk til Jónínu Benediktsdóttur íþrótta- frömuðar fyrir að bjóða okkur að eiga stund í bað- húsinu hennar 27. júlí sl. Einnig viljum við koma á framfæri þökkum til starfs- fólks baðhússins. Aðstaða var einstaklega glæsileg og áttum við ánægjulega stund þar og gengum við endur- nærðar aftur út í lífið. Enn og aftur ástarþakkir. Konur í Klúbbnum Geysi. Tapað/fundið GSM-sími týndist SVARTUR Nokia 3210 með tígrisfronti týndist aðfara- nótt 29. júlí sl. í miðbæ Reykjavíkur. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 551-7331 eftir kl. 18. Fund- arlaun í boði. Seðlaveski týndist GRÁTT seðlaveski týndist annaðhvort í strætó eða í Jaðarseli eða nágrenni. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 690-1368. Dýrahald Kettlinga vantar heimili TVEIR 10 vikna kettlingar óska eftir góðu heimili. Uppl. í síma 567-2422 eða 868-1889. Þrjá kettlinga vantar heimili ÞRÍR kisustrákar óska eftir góðu heimili. Þeir eru sjö vikna og kassavanir. Upp- lýsingar í síma 694-8186. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Vel skipu- lögð ferð Víkverji skrifar... STANGAVEIÐI og golf eruíþróttagreinar sem margir stunda. Stundum fær Víkverji á til- finninguna að enginn sé maður með mönnum nema hann stundi annað- hvort veiðar eða golf. Víkverji, sem er að komast á miðjan aldur, hefur lengi ætlað sér að byrja í golfi og hefja stangaveiði. Um síðustu helgi lét Víkverji loks verða af því að leggja fyrir sig stanga- veiði. Það var ekki síst fyrir þrýsting frá ungum syni Víkverja að af þessu varð. Fyrir valinu varð Brúará, sem reyndar er ekki meðal þekktustu lax- veiðiáa landsins, en þykir hins vegar ágæt til að drekkja biskupum, eins og Jón Gerreksson Skálholtsbiskup fékk að kynnast. Víkverji er ekki vel birgur af veiði- græjum en það kom ekki að sök því að tengdafaðir Víkverja er áhugamaður um veiðigræjur, en þær hafa árum saman legið lítið notaðar í geymslu. Nokkurn tíma tók fyrir son Vík- verja að draga föður sinn af stað en áhugi hans á veiðinni var það mikill að loks þegar Víkverji var kominn í stíg- vélin var sonurinn búinn að draga fram veiðistangir, þræða þær og flækja girnið. Veiðin hófst því á því að greiða úr girninu. Tók það drjúga stund, en síðan var gengið niður að á. Þegar þangað kom og veiðimenn höfðu komið sér þar fyrir var girnið aftur orðið flækt. x x x NÚ var tekið til við að þræða ormaupp á öngul, en það er hræðileg vinna og ekki fyrir ung börn eða við- kvæmt fólk. Að því búnu hófst hin eiginlega veiði. Ekki reyndist auðvelt að koma önglinum út í ána, m.a. vegna þess að hann vildi festast í njólabreiðunum sem þöktu árbakk- ann. Í hvert skipti sem tókst svo að koma önglinum út í ána leitaði hann aftur heim að bakkanum. Var engu líkara en að helsærður ormurinn synti í land í örvæntingarfullum til- raunum til að bjarga eigin lífi. Þegar veiðimennirnir höfðu áttað sig á því að best var að kasta ekki á móti straumnum og þegar ormurinn var örugglega drukknaður tók við löng bið eftir því að einhverjir fiskar létu sjá sig. Veiðimennirnir reyndu að vekja áhuga þeirra með því að kasta sem víðast um ána. Nauðsynlegt reyndist að skipta um orma því að þeir vildu detta af, sérstaklega þar sem oft kom fyrir að öngullinn dróst eftir jörðinni og reif og tætti nálæga njóla. Að áliðnum degi var mjög farið að sneyðast um orma og gróður á ár- bakkanum var orðinn sár og tættur. Þótti veiðimönnum sýnt að engir fisk- ar myndu skila sér á land. Sonur Vík- verja, sem hafði haldið í veiðiferðina fullur spennu og tilhlökkunar, sagði loks: „Eigum við ekki bara að fara heim? Við gætum kannski farið í golf á morgun!“ x x x VÍKVERJI skoðaði um helginarústirnar á Stöng í Þjórsárdal. Kristján Eldjárn, forseti Íslands, rannsakaði þær á sínum tíma og í framhaldi af því var byggður svokall- aður Þjóðveldisbær neðar í dalnum. Eftir að uppgreftri á Stöng lauk var byggt yfir rústirnar og frá þeim gengið þannig að almenningur gæti skoðað þær. Sú bygging er orðin yfir 30 ára gömul og er farin að láta á sjá. Eins skortir allar merkingar á rúst- unum. Engar merkingar eru heldur við kirkjuna, smiðjuna og fjósið, en rústir af þessum húsum eru við bæ- inn. LÁRÉTT: 1 nístandi vindur, 4 eklu, 7 sjúga, 8 svikull, 9 mis- kunn, 11 brún, 13 vex, 14 fiskinn, 15 skordýr, 17 verkfæri, 20 mann, 22 gjálfra, 23 jarðlífið, 24 hásum, 25 fugl. LÓÐRÉTT: 1 gegn, 2 hænan, 3 skelin, 4 stígur, 5 fuglar, 6 lifir, 10 tunnuna, 12 skepna, 13 op, 15 falleg, 16 áköf- um, 18 píluna, 19 týna, 20 sorg, 21 lokuð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 tónsmíðar, 8 skæri, 9 túlka, 10 gær, 11 reisa, 13 aumum, 15 stóll, 18 kagar, 21 íma, 22 svört, 23 laufs, 24 snillings. Lóðrétt: 2 ónæði, 3 seiga, 4 ístra, 5 aulum, 6 ósar, 7 faðm, 12 sel, 14 una, 15 sess, 16 ósönn, 17 lítil, 18 kalsi, 19 grugg, 20 ræsa. K r o s s g á t a 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.