Morgunblaðið - 09.08.2001, Page 13
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 13
HANDVERKSHÁTÍÐIN Hand-
verk 2001 hefst á Hrafnagili í Eyja-
fjarðarsveit í dag, fimmtudaginn 9.
ágúst og stendur í fjóra daga. Hand-
verkshátíðin er sú níunda í röðinni á
jafn mörgum árum og er orðin að
föstum og ómissandi lið í tilveru ís-
lensks handverksfólks.
Aðsókn að sýningunum hefur ver-
ið einstaklega góð allt frá byrjun og
sækja þær milli sex og átta þúsund
gestir árlega víðs vegar af landinu.
Hátíðin er því einn stærsti viðburður
í ferðaþjónustu á Norðurlandi á
hverju ári.
Samtals er sýningarsvæðið um
1.700 fermetrar í íþróttahúsi og
kennsluhúsnæði Hrafnagilsskóla.
Einnig er sýnt í útibásum. Á sýning-
arsvæðinu verða bæði sölu- og
vinnubásar handverksfólks og gefst
gestum tækifæri á að sjá handverks-
fólk að störfum Þema sýningarinnar
að þessu sinni er „sauðkindin“. Leit-
ast verður við að móta umgjörð sýn-
ingarinnar og dagskrá með þemað
að leiðarljósi. Margt verður til af-
þreyingar á sýningunni, s.s. spuna-
keppni, bæði fyrir einstaklinga og
lið, tískusýning, þar sem megin-
áhersla verður lögð á föt úr ull og
vinnubás verður fyrir börn þar sem
þau geta fengið að spinna og þæfa.
Ær, lömb og hrútar verða á svæðinu.
Laugardag og sunnudag verður boð-
ið upp á gæslu fyrir yngstu börnin.
Ýmsir athygliverðir gestir koma á
hátíðina og má þar nefna ættfræð-
inginn Odd Helgason sem rekur ætt-
ir fólks langt aftur, Grænlendinginn
Gideon Qeqe sem sker út í rostungs-,
hvala- og náhvalstennur, hreindýra-
horn og austur-grænlenskan tálgu-
stein. Einnig kemur sænski lista-
maðurinn Knut Östgård og verður
hann með bás á sýningunni þar sem
hann sýnir tálgaða listmuni sína.
Laugardaginn 11. ágúst verður hann
með fyrirlestur um handverksmann-
inn Hjalmar Edqvist þar sem sýnt
og sagt er frá því hvernig hann hegg-
ur og tálgar skeiðar og sleifar sínar í
ferskt birki. Dagana eftir sýningu
þ.e. 13.–15. ágúst, verður Knut með
námskeið í tálgun.
Í tengslum við Handverk 2001
verður komið upp útitjaldi og torgi
þar sem seldar verða veitingar og
þar verða einnig sölubásar þar sem
megináhersla er lögð á afurðir heim-
ilanna. Á laugardagskvöldinu verður
skemmtikvöld í tjaldinu sem ber yf-
irskriftina Skemmtidagskrá í sauða-
litunum, þar sem ýmis skemmtiatriði
verða á boðstólum og veittar verða
viðurkenningar til handverksfólks.
Þessi dagskrárliður er í boði menn-
ingarmálanefndar Eyjafjarðarsveit-
ar.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra setur hátíðina í dag kl. 16 og
verður opið til kl. 21. Á morgun,
föstudag og á laugardag verður opið
frá kl. 13 til kl. 21 en sunnudaginn 12.
ágúst verður opið frá kl. 13 til kl.18.
Heimasíða Handverkshátíðarinn-
ar er www.skyggnir.is/handverk.
Handverkshátíðin Handverk 2001 á Hrafnagili
Ómissandi þáttur í tilveru
íslensks handverksfólks
FRIÐARATHÖFN verður við
tjörnina fyrir framan Minjasafnið
við Aðalstræti á Akureyri í kvöld,
fimmtudaginn 9. ágúst, til að minn-
ast fórnarlamba kjarnorkusprengj-
anna á Japan 1945.
Þetta er fjórða árið í röð sem at-
burðanna er minnst með þessum
hætti á Akureyri. Athöfnin hefst kl.
22.30 með stuttu ávarpi Þórarins
Hjartarsonar. Eftir það verður kert-
um fleytt og verða flotkerti seld á
staðnum.
Kertafleyt-
ing við
Minjasafnið
NORSKI predikarinn Gunnar
Hamnöy talar á samkomu hjá
KFUM og K í Sunnuhlíð á Ak-
ureyri í kvöld, fimmtudaginn 9.
ágúst.
Gunnar Hamnöy hefur í mörg
ár verið starfsmaður Kristni-
boðssambandsins í Noregi og
hefur haft mikil áhrif víðs vegar
í heimalandi sínu. Hann hefur
nokkrum sinnum komið til Ís-
lands og hefur þá einnig heim-
sótt Akureyri.
Samkoman hefst kl. 20.30 og
verður mál Hamnöy túlkað á ís-
lensku. Boðið verður upp á
molasopa eftir samkomuna. All-
ir eru hjartanlega velkomnir.
Kristni-
boðssam-
koma í
Sunnuhlíð