Morgunblaðið - 09.08.2001, Síða 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 21
K
O
R
T
E
R
SAMTÖK indíána á Amazon-svæð-
inu í Kólumbíu fara nú fram á að eit-
urúðun, sem styrkt er af Banda-
ríkjastjórn, á uppskeru bænda, er
rækta kókalauf og valmúa á svæð-
inu, verði hætt. Talsmenn samtak-
anna segja að illgresiseyðirinn sem
sprautað er á uppskeruna sé hættu-
legur heilsu fólks sem býr á svæð-
inu.
Eiturlyfin kókaín og heróín eru
unnin úr kókalaufum og valmúa.
Bændur og samtök fylkisstjóra frá
suðurhluta Kólumbíu hafa jafnframt
krafist þess að úðun verði hætt og
hafa fylkisstjórarnir jafnvel heim-
sótt Bandaríkjaþing til að færa rök
fyrir máli sínu. Herferðin hefur á
undanförnum vikum fengið aukinn
stuðning fólks sem segir úðunina
ekki einungis hættulega heilsu íbú-
anna heldur einnig menga eitt
frjósamasta vistkerfi heims. Þá hafa
kólumbískir fjölmiðlar jafnframt
gagnrýnt eiturúðunina vegna þess
að hún eyðileggi uppskeru fátækra
bænda hverra lífsviðurværi er rækt-
un valmúa og kókaplöntu.
Úðun stöðvuð tímabundið
Þann 27. júlí sl. skipaði dómari í
borginni Bogota í Kólumbíu fyrir um
að úðun illgresiseyðisins yrði stöðv-
uð tímabundið á landi indíána á
Amazon-svæðinu vegna fullyrðinga-
samtaka þeirra. Samkvæmt dómar-
anum, Gilberto Reyes, stöðvaði hann
úðunina til að indíánarnir fengju
tækifæri til að sanna framburð sinn.
Í kjölfarið lét sendiherra Banda-
ríkjanna í Kólumbíu, Anne Patter-
son, hafa eftir sér að stöðvun úðun-
arinnar gæti haft það í för með sér
að aðstoð Bandaríkjanna við eitur-
lyfjabaráttu kólumbískra yfirvalda
verði hætt. „Ég efast ekki um að
ýmsar raddir á Bandaríkjaþingi
muni nú fara fram á að aðstoð við
Kólumbíu verði hætt,“ sagði Patter-
son í viðtali við kólumbíska dagblað-
ið El Tiempo.
Gustavo Socha hershöfðingi, yfir-
maður eiturlyfjadeildar kólumbísku
lögreglunnar, sagði í viðtali við AP-
fréttastofuna sl. laugardag að um
samsæri eiturlyfjasala gegn eiturúð-
uninni væri að ræða en þeir hafa tap-
að hundruðum milljóna króna vegna
hennar. „Eiturlyfjasalar komu af
stað upplognum orðrómi [um úð-
unina] og þeir neyða fólk til að
breiða hann út,“ sagði Socha. Hann
sagði jafnframt að dreifingaraðilar
eiturlyfja neyddu bændur til að bera
ljúgvitni fyrir dómi um að úðunin
valdi veikindum, án þess að þeir geti
nefnt tiltekin dæmi um slíkt.
Eiturúðunin á uppskeru bænda er
stór þáttur í baráttu bandarískra yf-
irvalda við að hafa hemil á eiturlyfja-
framleiðslu í Kólumbíu en frá engu
öðru landi berst jafnmikið magn af
kókaíni og heróíni til Bandaríkjanna.
Úrskurður felldur úr gildi
vegna ónógra sannana
Síðastliðinn mánudag úrskurðaði
Reyes dómari að halda mætti eitur-
úðuninni áfram. Að sögn aðstoðar-
manns dómarans, Jaime Ardila,
felldi hann tímabundna stöðvun úð-
unarinnar úr gildi þar sem indíán-
arnir gátu ekki fært sönnur fyrir því
að hún væri skaðleg heilsu manna.
Jorge Rojas, talsmaður „Paz Kól-
umbía“, óháðra kólumbískra sam-
taka, sagði að úrskurðinum yrði
áfrýjað.
Í kjölfar úrskurðarins sagði-
bandaríski sendiherrann að eyðing
eiturlyfjauppskeru væri lykillinn að
áframhaldandi stuðningi Washing-
ton-stjórnarinnar við baráttu stjórn-
valda í Kólumbíu gegn eiturlyfjum.
Hún sagðist hafa áhyggjur af því að
ef „eiturúðun heldur ekki áfram
munum við ekki geta veitt Kólumb-
íustjórn þá aðstoð sem hún þarf á að
halda.“
Frá því að skipulögð eiturúðun
hófst í desember fyrir tilstilli kól-
umbískrar áætlunar sem beint er
gegn fíkniefnaframleiðslu í landinu
hafa um 50.000 hektarar lands, þar
sem kókaplantan er ræktuð, verið
úðaðir. Markmið áætlunarinnar er
að árið 2002 verði búið að úða 80.000
hektara lands.
Indíánar í Kólumbíu
mótmæla eiturúðun
Uppskera kókaplöntu og valmúa í Kól-
umbíu er úðuð með eiturefnum til að
sporna við framleiðslu eiturlyfja í landinu.
Andstæðingar úðunarinnar segja hana
hættulega heilsu manna auk þess sem
hún spilli vistkerfinu.
Bogota, Kólumbíu. AP.
AP
Flugvél úðar ólöglegan valmúaakur í Kólumbíu með illgresiseyði.