Morgunblaðið - 09.08.2001, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 43
DAGBÓK
EDDIE Kantar kemur víða
við í skrifum sínum. Hér hef-
ur hann dregið fram spil úr
frönsku móti, þar sem sagn-
hafi fékk fjóra slagi á hjarta-
litinn í þremur gröndum –
K9 í blindum á móti 10873
heima!
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ KG104
♥ K9
♦ Á1098
♣ Á65
Vestur Austur
♠ D9875 ♠ 62
♥ ÁDG62 ♥ 54
♦ G2 ♦ D7643
♣ 9 ♣ D7643
Suður
♠ Á3
♥ 10873
♦ K5
♣ K10742
Vestur Norður Austur Suður
2 grönd * Dobl Pass 3 grönd !?
Pass Pass Pass
Opnun vesturs á tveimur
gröndum lýsir veikum spil-
um með hálitum eða láglit-
um. Þessi opnun var í tísku
fyrir nokkrum árum, en er á
hröðu undanhaldi af skiljan-
legum ástæðum. Hér áttu
NS kost á 1.100 í þremur
hjörtum eða spöðum dobluð-
um, en suður nennti ekki að
eltast við vestur og sagði
þrjú grönd. Keppnisformið
var tvímenningur og hann
vildi ekki „spila á móti saln-
um“. Kantar segir þetta um
þriggja granda sögnina:
„Ekki benda á mig – ég er
bara sögumaður.“
Og þá er það sagan: Út
kom laufnía, sem er vissulega
undarlegur byrjunarleikur,
en í anda spilsins. Sagnhafi
tók gosa austurs með kóng,
spilaði laufi á ás og aftur laufi
að tíunni. Austur tók á
drottninguna og skipti yfir í
hjartafimmu. Vestur lét gos-
ann og kóngurinn átti slag-
inn. Ekkert undarlegt við
það. Sagnhafi tók næst
spaðaás og svínaði gosanum.
Fór svo heim á tígulkóng til
að spila tveimur frílaufum:
Norður
♠ KG
♥ 9
♦ Á
♣ –
Vestur Austur
♠ D9 ♠ –
♥ Á2 ♥ 4
♦ – ♦ D76
♣ – ♣ –
Suður
♠ –
♥ 10873
♦ 5
♣ –
Vestur hafði þegar séð
hvað var í aðsigi og í viðbún-
aðarskyni losaði hann sig við
hjartadrottninguna. Í þess-
ari stöðu spilaði suður tígli á
ásinn. Ef vestur hendir
hjartatvisti, fær hann næsta
slag á hjartaás og verður að
gefa fría svíningu í spaða. En
vestur ætlaði ekki að láta
endaspila sig og þeirri von að
austur ætti hjartatíu, henti
hann hjartaásnum í tígulás-
inn! Sagnhafi hafði húmor
fyrir því að skilja spaðakóng-
inn eftir í borði og yfirtaka
hjartaníuna, enda ekki á
hverjum degi sem fjórir slag-
ir bjóðast á slíkan lit.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbarn dagsins:
Þú átt auðvelt með að
bregða þér í allra kvikinda
líki og aflar þér vinsælda
með þeim hæfileika.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú þarft að hafa sérstakar
gætur á fjármálunum og skalt
varast fjárfestingar, sem
minnsta áhætta er samfara.
Trygging og traust eru lyk-
ilorðin nú.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú stendur frammi fyrir viða-
mikilli ákvörðun og verður að
gefa þér góðan tíma til þess
að kanna allar hliðar mála.
Flas er ekki til fagnaðar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Margir sækjast eftir vináttu
þinni. En þótt gaman sé að
nýjum vinum, skaltu fara þér
hægt í að velja þá og enn hæg-
ar í að hleypa þeim að þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að huga vandlega að
þeim skuldbindingum sem þú
hefur undirgengist. Athugaðu
hvort ekki má einfalda málin
og skrifaðu ekki undir fleiri í
bili.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú virðist eiga erfitt með að
einbeita þér þessa dagana svo
þú skalt reyna að eiga eins
létta daga og þú frekast get-
ur, þar til breyting verður á.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Gefðu því gaum sem þú lætur
ofan í þig og reyndu að halda
þig við það sem er hollt. Heils-
an er nefnilega öðru dýrmæt-
ari svo þú skalt gæta hennar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú verður að geta tekið utan-
aðkomandi áreiti, því annars
áttu á hættu að missa tökin á
hlutunum. Gerðu þér grein
fyrir því hvert þú vilt stefna.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Vita máttu að alltaf kemur að
skuldadögum í lokin svo þú
skalt varast að reisa þér hurð-
arás um öxl. Athugaðu vel
þinn gang. Betri er krókur en
kelda.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt erfitt með að athafna
þig vegna utanaðkomandi
þrýstings svo þú verður að
kaupa þér tíma til þess að
geta undirbúið þig vandlega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það skiptir sköpum að þú
hagir málflutningi þínum svo
að fólk þurfi ekki að velkjast í
vafa um fyrirætlanir þínar.
Leyfðu sköpunargleðinni að
blómstra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að hafa það á hreinu
hvað til þíns friðar heyrir.
Láttu ekki ganga á hlut þinn
og vertu alls óhræddur við að
verja það sem er þitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er allskonar draugagang-
ur á ferðinni í kring um þig.
Best væri ef þú gætir látið
hann sem vind um eyru þjóta,
því honum linnir fyrr en varir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
Háfjöllin
Þú, bláfjalla geimur með heiðjöklahring,
um hásumar flý ég þér að hjarta.
Ó, tak mig í faðm. Minn söknuð burt ég syng
um sumarkvöld við álftavatnið bjarta.
Þín ásjóna, móðir, hér yfir mér skín
með alskærum tárum kristals dagga.
Und miðsumars himni sé hvílan mín.
Hér skaltu, Ísland, barni þínu vagga.
Hér andar guðs blær, og hér verð ég svo frjáls,
í hæðir ég berst til ljóssins strauma,
æ lengra, æ lengra að lindum himinbáls,
unz leiðist ég í sólu fegri drauma.
Steingrímur Thorsteinsson
STAÐAN kom upp í A-flokki
skákhátíðarinnar í Pardu-
bice í Tékklandi er lauk fyrir
skömmu. Alexander Moroz
(2512) frá Úkraínu hafði
svart gegn Joerge Wegerle
(2273) 65...Rd3! 66. Kxc2
Rb4+ 67. Kd2 Rxc6
68. Ke2 Re7 69. f3 f4
70. e4 Kd4 71. Kf2
Rg6 72. Ke2 Re5 og
hvítur gafst upp.
Lokastaða efstu
manna í A-flokki
varð þessi: 1. Matth-
ias Womacka (2469)
7 ½ vinning af 9
mögulegum.
2.-6.Vladimir Bur-
makin (2593), Dani-
els Fridman (2562),
Denis Yevseev
(2530), Valery Neve-
rov (2564) og Bartosz Socko
(2559) 7 v. 7.-21. Sergey Sol-
ovjov, Alexei Gavrilov, Ev-
geny Tomashevsky, Vladim-
ir Belov, Marek Vokac,
Alexander Moroz, Krishnan
Sasikiran, Vladimir Sergeev,
Evgeny Vorobiov, Andrei
Cioara, Vladimir Potkin,
Vlastimil Babula, Bogdan
Lalisc, David Navara, Pavel
Jaracz og Aleksey Shestope-
rov 6½ v.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Árnað heilla
Ljósmynd/Myndrún/FM
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. júlí sl. í Akureyr-
arkirkju af sr. Svavari A.
Jónssyni Fjóla Sveinmars-
dóttir og Ingvar Ívarsson.
Heimili þeirra er í Dan-
mörku.
Ljósmynd/Myndrún/RÞB
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 21. júlí sl. í Illuga-
staðakirkju af sr. Pétri Þór-
arinssyni Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir og Jóhann
Tryggvi Arnarson. Heimili
þeirra er í Seljahlíð 11a, Ak-
ureyri.
Jonathon Foster Williams
BRÚÐKAUP. Hinn 14. júlí
sl. voru Aðalbjörg Stefanía
Helgadóttir og Heiðar Ingi
Svansson gefin saman í
Laugarneskirkju af séra
Bjarna Karlssyni og Jónu
Hrönn Bolladóttur. Heimili
þeirra er Laugarnesvegur
86 í Reykjavík.
Ljósmynd/Bonni
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. apríl sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Þóri Haukssyni,
Birna Jónsdóttir og Sigfús
Ásgeir Kárason. Heimili
þeirra er í Berjarima 9,
Reykjavík.
Sjúkdómsgreining: Sjón-
varpssendirinn datt út
þegar átti að fara að
sýna „Friends“.