Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 55
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 55
Guðjón Óskarsson nam söng í
Reykjavík og á Ítalíu. Hann var
fastráðinn við Norsku óperuna í
Ósló á árunum 1990–1996 en
síðustu árin hefur hann sungið
ýmis hlutverk við helstu óperu-
hús Evrópu. Hann hefur tekið þátt
í fjölmörgum uppfærslum Íslensku
óperunnar, nú síðast í La Bohème
sl. vetur.
Guðrún Ingimarsdóttir stundaði söngnám í
Reykjavík, London og Stuttgart, auk þess sem hún
hefur sótt söngnámskeið hjá Siegfried Lorenz,
Robin Bowman og Elly Ameling. Guðrún starfar
nú í Þýskalandi en hlutverk næturdrottningarinnar
er frumraun hennar á sviði Íslensku óperunnar.
Tryggðu þér miða! Sími miðasölu: 511 4200
á sviði Íslensku óperunnar
Sérstakar fjölskyldusýningar verða sunnudagana 30. sept., 14. okt. og 28. okt., þar sem
Papagenó (Ólafur Kjartan Sigurðarson) kynnir verkið fyrir yngri áhorfendum áður en
sýning hefst. Kynningin hefst kl. 16 og sýningin kl. 17. Óbreytt miðaverð en aðgangur
að kynningunni er ókeypis fyrir gesti sýningarinnar.
Tónlist: Wolfgang Amadeus Mozart
Texti: Emanuel Schikaneder
Íslensk þýðing: Þrándur Thoroddsen, Böðvar Guðmundsson
og Þorsteinn Gylfason. Gunnsteinn Ólafsson endurorti að hluta
og þýddi óbundið mál.
Einvalalið ungra listamanna stendur að sýningunni:
Hljómsveitarstjóri: Gunnsteinn Ólafsson
Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason
Leikmynd og búningar: Vytautas Narbutas
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
Söngvarar: Guðjón Óskarsson, Finnur Bjarnason, Hanna Dóra Sturludóttir /
Auður Gunnarsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Xu Wen, Guðrún Ingimarsdóttir /
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Snorri Wium, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir / Sigrún Jónsdóttir / Sigríður Aðalsteinsdóttir, Loftur Erlingsson,
Skarphéðinn Þór Hjartarson, Árný Ingvarsdóttir, Regína Unnur Ólafsdóttir og
Dóra Steinunn Ármannsdóttir.
Kór Íslensku óperunnar og Hljómsveit Íslensku óperunnar
Frumsýning 22. september
NÆTURDROTTNINGIN SARASTRÓ
Í lausu lofti
(Freefall)
S p e n n u m y n d
Leikstjóri: Mario Azzopardi. Hand-
rit: Ken og Jim Wheat. Aðal-
hlutverk: Bruce Boxleitner, Chad
Everett, Jaclyn Smith.
Bergvík. (90 mín.)
Bönnuð innan 16 ára.
VIÐ rannsókn á skelfilegu flug-
slysi vakna grunsemdir hjá Renee
Brennan, starfsmanni Þjóðarörygg-
isráðs Bandaríkj-
anna, um að ekki
sé allt með felldu.
Kemur í ljós að
hryðjuverkamaður
nokkur hefur það
fyrir stafni að
skemma flugvélar
ákveðins flug-
félags. Söguþráð-
urinn sem slíkur
stendur undir sér en útlit mynd-
arinnar er þeim annmörkum háð að
spegla svo um munar takmörkuð
fjárráð framleiðenda. Brellur eru
einkar ósannfærandi og helstu leik-
arar eru útbrunnir sjónvarps-
myndaleikarar sem kunna að fátt
annað en að brosa Colgate-brosinu
sínu. Það er ekkert að því að gera
ódýra mynd en það eru mistök að
gera ódýra mynd um hrinu flug-
slysa sem sýna þarf í miklum smá-
atriðum.
Heiða Jóhannsdótt ir
Hryðjuverk
í háloftum
Alltaf í gríninu
(Kiss My Act)
G a m a n m y n d
Leikstjórn Duane Clark. Aðal-
hlutverk Camryn Manheim, Scott
Cohen, Dabney Coleman. (91 mín.)
Bandaríkin 2000. Skífan. Öllum
leyfð.
ÞETTA er ein af þessum myndum
þar sem maður lætur fara alltof mik-
ið í taugarnar á sér hvaðan fyrir-
myndirnar koma – hvert hugmynd-
irnar eru sóttar. Þótt ýmislegt gott
megi um hana segja getur maður
ekki fellt sig við hana vegna þess
hversu ófrumleg hún er.
Fer ágætlega af stað. Jú, minnir
svolítið á Punchline, uppistandarar
sem eru að reyna að koma sér á
framfæri og einhver ástríða í spilinu.
Þá kemur inn í spilið alveg sláandi
Cyrano de Bergerac flétta, aðalper-
sónan orðheppna en sjálfstraustss-
nauða finnur stóru ástina. Sem fellur
fyrir nautheimskum vininum. Sem
leitar aðstoðar aðalpersónunnar.
Sem fellst á að hjálpa með því að
skiptast á tölvupósti við ástina sína.
Þá erum við allt í einu stokkin inn í
You’ve Got Mail-pakka. Vá. Svo eru
þær allar til staðar, klisjulegu auka-
persónurnar úr rómantísku gaman-
myndunum, vinir aðalpersónunnar.
Homminn sem alltaf er svo fyndinn
og sérvitur, gamli lærimeistarinn og
föðurímyndin, heyrnalausa vinkonan
sem á von á barni. Hér er allt hráefn-
ið í ekta rómantíska gamanmynd. En
það þarf líka að kunna að elda úr því.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Grínað
fyrir salti
í grautinn
TÓNLISTARHÁTÍÐ til styrktar
bændum sem orðið hafa fyrir
barðinu á gin- og klaufaveikifar-
aldrinum hræðilega, hefur verið af-
lýst.
Hátíðin átti að hefjast 27. októ-
ber og átti að fara fram á Þúsald-
arleikvanginum í Cardiff. Fjölmarg-
ir listamenn höfðu boðað þátttöku
sína, þ.á m. Coldplay, Ash, Top-
loader og Reef.
Skipuleggjandi hátíðarinnar var
Michael Eavis, maðurinn á bak við
Glastonbury-hátíðirnar, en sjálfur
er hann bóndi.
Skýringin er hin sama og á flestu
öðru sem aflýst hefur verið í
skemmtanaheiminum síðustu daga,
hryðjuverkin í Bandaríkjunum. Í
fréttatilkynningu sem send var út
síðdegis á föstudag segir að það sé
erfitt fyrir listamenn að einbeita
sér að viðburði eins og Farm Aid
eftir að slíkar hörmungar hafa dun-
ið yfir. Þeir muni, líkt og aðrir,
þurfa langan tíma til að jafna sig og
betra sé að beina kröftum sínum að
því að græða sár þeirra sem misstu
ástvini.
Aðstandendur segjast harma
mjög að geta ekki stutt, enn sem
komið er, við bakið á bændum, sér-
staklega í ljósi þess að faraldurinn
virðist enn ekki vera í rénun.
Bændahjálp aflýst
Morgunblaðið/Jim Smart
Íslandsvinirnir í Coldplay ætluðu að sýna bændum stuðning sinn í verki.
♦ ♦ ♦