Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 17
RYÐFRÍ
SÉRSMÍÐI
STÁLBORÐ
STÁLVASKAR
STÁLKLÆÐNINGAR
HEIMILI
MÖTUNEYTI
SÖLUTURNAR
VEITINGASTAÐIR
Ofnasmiðjan
Flatahrauni 13
220 Hafnarfirði
Leitið tilboða
hjá okkur.
Sími 555-6100 Fax 555-6110
NÝLEGA kom út geislaplata í Dan-
mörku með einleiksverki fyrir selló
eftir Atla Heimi Sveinsson í flutn-
ingi Erlings Blöndals Bengtssonar.
Verkið heitir Dal regno del silenzio
(Úr þagnarheimi) og var samið sér-
staklega að beiðni Erlings Blöndals
árið 1989.
„Við Erling
kynntumst seint
en þeim mun bet-
ur fór á með okk-
ur eftir að kynni
tókust. Hann bað
mig að semja fyr-
ir sig og til varð
þetta verk.
Seinna bað hann
mig að semja
sellókonsert fyrir
sig sem ég og
gerði og sá kons-
ert er að koma út
í flutningi Er-
lings og Kamm-
ersveitar Reykja-
víkur,“ sagði
tónskáldið Atli
Heimir Sveinsson
í samtali við
Morgunblaðið.
Útgefandi í Danmörku er Danacord
en Kammersveit Reykjavíkur stend-
ur að útgáfu sinnar geislaplötu sjálf.
Að sögn Atla Heimis hafa fleiri
sellóleikarar flutt einleiksverkið og
Bryndís Halla Gylfadóttir hljóðrit-
aði það fyrir nokkrum árum. „Erling
var bara ánægður með það þegar
hann heyrði það enda er hann ein-
stakur öðlingur og mikill listamaður.
Það er mikil hlýja og listfengi yfir
öllu sem hann tekur að sér að
flytja.“
Atli Heimir
Sveinsson
Erling Blöndal
Bengtsson
Erling Blön-
dal spilar
Atla Heimi
Bjarna eru Vísirósir í A1-stærð sem
hengdar eru upp á veggi kaffistof-
unnar og verk undir gleri sem lista-
maðurinn kallar vísi að næsta sjón-
þingi. Ekki veit ég hvort vísirósirnar
á veggnum tilheyra þessum vísi en
rósirnar á veggnum eru greinilega
vísir að nýjum og frjálslegri vinnu-
brögðum. Svo virðist sem Bjarni sé
farinn að leyfa áhorfendum að kynn-
ast persónunni Bjarna eilítið og mað-
ur finnur meira fyrir hönd lista-
mannsins. Ennfremur notar hann
orð sem ekki eru eins vélrænt upp-
sett og hingað til, þ.e. hægt er að lesa
úr þeim persónulega tjáningu. Í
einni mynd eru t.d. einungis 2 orð:
Búið spil. Jafnframt eru á sumum
Bjarni H. Þórarinsson er afkasta-
mikill listamaður. Í Reykjavíkuraka-
demíunni við Hringbraut stendur nú
yfir 12. sjónþing hans, en svo nefnir
hann myndlistarsýningar sínar.
Bjarni er á heimavelli í akademíunni
því hann er með skrifstofu í húsinu.
Síðasta sjónþing hans í Nýlistasafn-
inu í fyrra var mikið að vöxtum og
vel heppnað. Sjónþingið í Reykjavík-
urakademíunni er jafnframt efnis-
mikið, svo efnismikið að halda mætti
að um yfirlitssýningu á ævistarfi
listamannsins væri að ræða.
Öll verk Bjarna eru vandvirknis-
lega unnar teikningar þar sem orð
og orðasamsetningar leika stórt
hlutverk. Verkin eru öll eins upp-
byggð í grunninn og minna á tvívíða
mynd af hnetti á borði. Teikningarn-
ar, sem flestar eru reyndar prent-
aðar út úr tölvu á pappír eða striga,
eru allar áþekkar í útliti og eiga
þannig margt sameiginlegt með
snjókornum. Teikningin í snjókorn-
um minnir á teikningar Bjarna, snjó-
korn eru mörg og þau eru öll svipuð
að sjá við fyrstu sýn en ekkert þeirra
er eins þegar nánar er að gáð.
Tugir ef ekki hundruð teikninga
eru á sýningunni og eru þær hengd-
ar þétt upp á göngum fjórðu hæðar
og inni í kaffistofu. Bjarni lætur ekki
þar við sitja heldur hengir stórar út-
prentaðar strigamyndir af vísirósum
í loftið og fyrir gluggana, sjálfsagt í
þeim tilgangi að leggja undir sig
rýmið með afgerandi hætti. Mér
fannst þetta fullmikið af því góða og
hefði þarna mátt draga mörkin.
Það athyglisverðasta á sýningu
verkunum frjálslega skrifaðar at-
hugasemdir til hliðar við rósirnar,
nokkuð sem maður er ekki vanur að
sjá á myndum hans. Það er athygl-
isvert að Bjarni tileinkar sér þá að-
ferð kvikmyndaiðnaðarins að gefa
áhorfendum vísbendingu um það
sem væntanlegt er í sýningarsali.
Kannski ættu aðrir myndlistarmenn
að taka Bjarna til fyrirmyndar í
þessu.
Ég ætla ekki að reyna að útskýra í
þaula út á hvað verk Bjarna ganga,
það hefur hann oft gert sjálfur í fjöl-
miðlum, en margir eiga erfitt með að
skilja hvert hann er að fara. Ann-
aðhvort er hugmyndafræði hans of
flókin eða svo skelfilega einföld að
fólk skilur hana ekki. Hvort sem
menn skilja list Bjarna eða ekki
standa þó alltaf upp úr fallegar lita-
samsetningar hans, einstök teikni-
gáfa og hin sjónræna heild sem tek-
ur sífelldum breytingum.
Vísir að rósum
Morgunblaðið/Þóroddur
Frá Sjónþingi Bjarna
H. Þórarinssonar.
MYNDLIST
R e y k j a v í k u r -
a k a d e m í a n
Opið virka daga kl. 9–17.
Til 1. október.
TEIKNINGAR
BJARNI H.
ÞÓRARINSSON
Þóroddur Bjarnason