Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 49
Í TILEFNI af grein sem ég
birti í Morgunblaðinu 31.8.
2001 barst mér samdægurs
elskulegt vefbréf frá Sævari
Sigurgeirssyni, svo látandi:
„Sæll Þorgeir, það er vert
að þakka pistil þinn í Morg-
unblaðinu í morgun. Vissu-
lega er rétt að stjórnar-
skráin er ekki sérlega
aðgengileg almenningi en
þó kom mér á óvart að sjá í pistl-
inum að starfsfólk bókabúða ræki
upp stór augu þegar spurt væri um
hana.
Vaka-Helgafell gaf nefnilega
stjórnarskrána út í ritröð sem heitir
„Smábækur Vöku-Helgafells“ fyrir
nokkrum árum (líklega 1995 eða
1996) og hefur mér vitanlega ekki
selst í stóru upplagi, en gæti auðvit-
að hugsanlega verið uppseld síðan
ég yfirgaf bókabransann. Þú fyrir-
gefur vonandi framhleypnina, en
mig langaði bara til að láta þig vita
af þessu.
Með bestu kveðju.
Sævar Sigurgeirsson“.
Ég þakka upplýsingarnar, sem
bárust mér raunar víðar að þennan
sama dag. Mér þótti gleðiefni að
heyra um framtak VH svo ég skakk-
lappaðist undireins í næstu bókabúð
til að kaupa mér stjórnarskrá.
Og mikið rétt:
Strax og maður hættir að tala um
stjórnarskrána við bókabúðarfólkið
og spyr eftir smáritum VH er manni
vísað á sérstaka hillu með þeim góðu
ritum. Þar leitar maður um stund og
finnur enga stjórnarskrá.
Hvernig stendur á því? Er hún
kannski uppseld?
– Nei, segir verslunarstýran,
mjög einbeitt á svipinn. Okkur dett-
ur bara ekki í hug að selja þetta á
750,- krónur fyrst hægt er að fá það
ókeypis í Stjórnarráðinu.
– En mig langar að eiga þessa út-
gáfu, segi ég.
– Það er alveg sami textinn í
stjórnarskránni þó hún fáist ókeyp-
is, segir konan með þjósti.
– En mig langar til að fá þessa
bók keypta, ítreka ég.
– Ég get svosem pantað eintak
fyrir þig. Það verður til á
þriðjudagsmorgun.
– Takk.
Nú á maður því ekki að
venjast að bókabúðarfólk
ráðleggi kúnnunum að fara
annað til að spara sér út-
gjöld. Hvers vegna er það
svona andsnúið því að
stjórnarskráin sé metin til
fjár?
Veit það kannski, að 9 af
hverjum 10, sem koma í Stjórnar-
ráðið að betla sér stjórnarskrá þeir
fá enga úrlausn erinda sinna og fara
stjórnarskrárlausir heim?
Er hér á ferðinni dulvituð sann-
færing forræðishyggjunnar um það,
að þjóðin hafi ekkert með stjórn-
arskrá að gera?
Vafalaust fullnægir það sjálfs-
ánægju útgefandans að hafa prentað
stjórnarskrána. Vafalaust er gaman
að eiga upplag hennar óselt á lager
því til sönnunar. En sættir útgef-
andinn sig við þessa virku andstöðu
bóksalans gegn því að selja ritið?
Mætti ekki brjóta þá andstöðu á bak
aftur með því að auglýsa stjórnar-
skrána fyrir svo sem 1% af þeirri
upphæð, sem fór í að auglýsa smá-
sögur forsætisráðherrans?
Mundi sá peningur ekki nægja til
að bókabúðirnar sýndu stjórnar-
skránni fulla virðingu? Spyr sá, sem
ekki veit.
ÞORGEIR ÞORGEIRSON,
rithöfundur, Bókhlöðustíg 6b, 101
Reykjavík.
Fáein orð í viðbót um
útgáfu stjórnarskrárinnar
Frá Þorgeiri Þorgeirsyni:
Þorgeir
Þorgeirson
...ferskir vindar í umhirðu húðar
Gættu að því sem þú átt
og fáðu til baka
það sem hefur tapast.
VITA-A-KOMBI
dag- og næturkrem
Mikill árangur á skömmum tíma
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Switzerland
Útsölustaðir:
Snyrtideildir Hagkaups, Lyf og heilsa, Lyfja, Apótekið hf.,
Hringbrautar Apótek, Borgar Apótek, Rima Apótek, Árbæjar Apótek,
Garðs Apótek, Laugarnes Apótek, Salon Ritz, Björt-Bæjarhrauni, Lyfja
Grindavík, Húsavík og Egilsstöðum, Myrra Selfossi, Apótek Keflavíkur,
Borgarness Apótek, Apótek Vestmannaeyja, Apótek Ólafsvíkur,
Stúdíó Dan - Ísafirði, Apótek Blönduóss, Sauðárkróks Apótek,
Siglufjarðar Apótek, Hafnar Apótek og Nes Apótek.
Stækkun Kröfluvirkjunar
um 40 MW
Mat á umhverfisáhrifum
Opið hús Mývatnssveit
Landsvirkjun mun kynna niðurstöður skýrslu um mat á
umhverfisáhrifum stækkunar Kröfluvirkjunar þriðjudaginn
18. september milli kl. 17 og 21 í Hótel Reynihlíð í Mývatns-
sveit. Einnig verður kynnt tillaga að deiliskipulagi jarðhita-
réttindasvæðis Landsvirkjunar við Kröflu. Fulltrúar verkefn-
isstjórnar mats á umhverfisáhrifum og tillögu um deiliskipu-
lag munu veita upplýsingar og svara fyrirspurnum gesta.
Fulltrúar Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf., Rann-
sóknasviðs Orkustofnunar og Landslags ehf. munu kl. 17 og
19 flytja stutt erindi um framkvæmdina, niðurstöður mats á
umhverfisáhrifum, matsferlið og tillögu að deiliskipulagi.
e
Jóhannes S. Kjarval
Verið velkomin að skoða verkin í Galleríi Fold, Rauðarárstíg 14-16,
í dag kl. 12.00-17.00.
Seld verða um 100 verk, þar á meðal fjölmörg verk gömlu meistaranna.
Hægt er að nálgast uppboðsskrána á netinu: www.myndlist.is
Rauðarárstíg 14-16
sími 551 0400
LISTMUNAUPPBOÐ
Í KVÖLD KL. 20.00 Á HÓTEL SÖGU
Rafvörur:
Tenglar
Rofar
Kaplar
Snúrur
Spennur
Rafmagnsarnar
Handklæðaofnar
ISDN símar
ISDN símstöðvar
Símar
Borvélar
Ljós
Öryggiskerfi
Vinnustaðabúnaður:
Hillukerfi - FAMI
Fataskápar
Vinnuborð
Bílainnréttingar
Loftkefli
Rafmagnskefli
Plastkistur - RAACO
Rafmagnsbrautir
Loftbrautir
Skrúfur og tappar
Verkfæri
Hamarshöfða 1 - Sími 511 1122
verslun
SPARI-DAGAR
HÓTEL ÖRK
í hjarta og sinni á Örkinni
Lykilhótel Örk • 810 Hveragerði
Sími 483 4700 • Fax 483 4775
Fyrir alla eldri borgara
Sparidagarnir hefjast 21. október, þegar Gunnar Þorláksson
skemmtanastjóri mætir til leiks og stjórnar dagskránni.
Að venju verður í boði fjölbreytt dagskrá, m.a.: Morgun-
hreyfing, félagsvist, gönguferðir, bingó, danskennsla, leikja-
námskeið, ferðalag og svo öll tómstundaaðstaða hótelsins,
auk kvöldskemmtana með söng og dansi á hverju kvöldi.
Verð fyrir manninn er 18.500 kr.
Innifalið er: Gisting í fimm nætur, m.v. tvíbýli, morgunverður,
þríréttaður kvöldverður ásamt skemmtidagskrá alla daga.
Tvö tímabil eru í boði:
21. okt.–26. okt.
28. okt.–2. nóv.
Kynningarkvöld í Neskirkju
mánudaginn 24. september kl. 19
Alfa er 10 vikna námskeið um kristna trú og tilgang lífsins. Hvert
kvöld hefst á léttum kvöldverði. Að honum loknum er fyrirlestur,
umræðuefni útskýrt og rætt í hópum. Einu sinni á námskeiðinu
er farin helgarferð.
Áætlað er að á þessu ári verði haldin 20.000 námskeið í meira
en 120 löndum.
Verð: Námskeið, vinnubók, helgarferð með fæði
og létt máltíð öll kvöldin 8.900 kr.
Skráning í Neskirkju í síma 511 1560,
á netfanginu neskirkja@neskirkja.is
og á kynningarkvöldinu.
Fyrirlesari séra Örn Bárður Jónsson.
Alfa-námskeið
í Neskirkju