Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 19
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 19
Tungumál
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
Áhersla á talmál
Kennt er í byrjenda -
framhalds - og
talæfingaflokkum
ENSKA
Enska I
Enska I frh
Enska II
Enska II frh
Enska III
Enska tal og leshópur
DANSKA
Danska I - II
NORSKA
Norska I - II
Norska tal og leshópur
SÆNSKA
Sænska fyrir
tvítyngd börn 9 - 12 ára
Sænska I - II
FRANSKA
Franska I
Franska II
ÍTALSKA
Ítalska I
Ítalska II
SPÆNSKA
Spænska I
Spænska I frh
Spænska II
Spænska III
ÞÝSKA
Þýska I
Þýska II
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
Byrjendur
10 vikna námskeið
20 kennslustundir
ÍSLENSKA
fyrir útlendinga
Lengra komnir:
8 vikna námskeið
16 kennslustundir
BÓKBAND
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GLERLIST
10 vikna námskeið
40 kennslustundir
GLER - OG
POSTULÍNSMÁLUN
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
HAUSTKRANSAGERÐ
Unnið úr íslenskum jurtum
4 kennslustundir
KÁNTRÝ - FÖNDUR
Engill - 6 kennslustundir
Kertakassi - 4 kennslust.
Teppastandur- 4
kennslustundir
LEIRMÓTUN
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
SKRAUTRITUN
7 vikna námskeið
21 kennslustundir
LJÓSMYNDATAKA
3 vikna námskeið
9 kennslustundir
PAPPÍRSMÓTUN
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
TRÉSMÍÐI
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
TRÖLLADEIG
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
TRÖLLADEIG
Jólaföndur
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
ÚTSKURÐUR
9 vikna námskeið
36 kennslustundir
FRÍSTUNDAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
VATNSLITAMÁLUN
8 vikna námskeið
32 kennslustundir
VIDEOTAKA
1 viku námskeið
14 kennslustundir
BÚTASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
BÚTASAUMSTEPPI
Kántrýstill
4 vikna námskeið
16 kennslustundir
FATASAUMUR
6 vikna námskeið
24 kennslustundir
ÖRYGGI Í UMHVERFI
Lífsleikni
3 vikna námskeið
18 kennslustundir
TÖLVUNÁMSKEIÐ:
WORD OG WINDOWS
fyrir byrjendur
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
WORD II
4 vikna námskeið
20 kennslustundir
EXCEL
fyrir byrjendur
3 vikna námskeið
20 kennslustundir
INTERNETIÐ OG
TÖLVUPÓSTUR
1 viku námskeið
8 kennslustundir
FINGRASETNING
OG RITVINNSLA
8 vikna námskeið
16 kennslustundir
BÓKHALD
smærri fyrirtækja
4 vikna námskeið
24 kennslustundir
FRÖNSK
matargerð
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
GÓMSÆTIR
bauna - pasta - og
grænmetisréttir
3 vikna námskeið
12 kennslustundir
SPENNANDI BÖKUR
OG INNBAKAÐIR
VEISLURÉTTIR
2 vikna námskeið
8 kennslustundir
NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2001
Starfsmenntunarsjóðir ýmissa stéttarfélaga styrkjafélagsmenn sína til náms í Kvöldskóla Kópavogs,t.d.
BSRB, BHMR,Efling - stéttarfélag,VR og Starfsmannafélag Kópavogs.
Fyrstu námskeiðin hefjast 24. september
Innritun og upplýsingar um námskeiðin 10. - 20. september kl. 17 - 21 í símum 564 1507,
564 1527 og 554 4391 og á skrifstofu Kvöldskólans í Snælandsskóla.
Netfang: kvoldskoli@kopavogur.is Vefsíða: kvoldskoli.kopavogur.is
HÖRÐUR Áskelsson
orgelleikari heldur tón-
leika í Hjallakirkju í
dag, sunnudag, kl. 17.
Á efnisskrá eru prel-
údía og fúga í h-moll og
orgelkórallinn O
Mensch bewein Dein
Süde gross eftir J.S.
Bach og Sinfonia archt-
andriae eftir Kjell-
Mörk Karlsen. Síðast-
nefnda verkið er til-
einkað Herði. Hefst
það á Tvísöng og síð-
asti kaflinn er yfir
Liljulag.
„Þetta eru fyrstu
tónleikarnir sem ég held í Hjalla-
kirkju og það sem meira er, þetta er
í fyrsta skipti sem ég held tónleika á
orgel sem Björgvin vinur minn
Tómasson hefur smíðað. Það var
tími til kominn. Björgvin er búinn
að smíða hátt í tuttugu orgel. Ég hef
raunar leikið á þau flest en aldrei
haldið staka tónleika. Þetta er sögu-
leg stund fyrir mig,“ segir Hörður.
Hann lýkur lofsorði á orgelið,
segir að það hljómi vel og hljóm-
burður sé ágætur í kirkjunni. „Þess-
ir tónleikar leggjast ljómandi vel í
mig.“
Tónleikar í Evrópu
Hörður var nýverið á tónleikaferð
í Evrópu, þar sem hann hélt tón-
leika í Brussel og Gävle í Svíþjóð.
„Tónleikarnir í Brussel fóru fram
í dómkirkjunni og
voru eitt af stóru
augnablikunum á mín-
um ferli. Mér var boð-
ið að spila á orgelviku í
tengslum við vígslu
nýs orgels þarna í
fyrra en þá átti ég
ekki heimangengt.
Þess í stað var mér
boðið að spila í sum-
artónleikaröðinni
núna. Þetta var mjög
gaman og margt
manna á tónleikunum.
Maður situr þarna í
hæstu hæðum og
gnæfir yfir stórt rými.
Þetta var hreint út sagt meiriháttar.
Mikil upplifun.“
Síðan hélt Hörður til Gävle, þar
sem hann tók þátt í orgelviku, hélt
tónleika og flutti fyrirlestur um ís-
lenska orgeltónlist.
Þar með lýkur ekki að segja af
ferðum Harðar því í byrjun október
heldur hann til Þýskalands og kem-
ur þar fram á þrennum tónleikum í
Düsseldorf og nágrenni.
„Stærstu tónleikarnir verða í
Düsseldorf þar sem ég mun leika á
splunkunýtt stórt orgel.“
Af verkum sem Hörður flytur á
ferðum sínum má nefna verk Karl-
sens, sem hann segir mjög ánægju-
legt að hafa í farteskinu út um allar
jarðir, og íslensk verk, meðal annars
eftir Jón Nordal, Jónas Tómasson
og Jón Hlöðver Áskelsson.
Söguleg stund
Hörður Áskelsson í Hjallakirkju
Hörður Áskelsson
Finnsk
teiknimynd
í Norræna
húsinu
FINNSKA teiknimyndina
Urpo og Turpo sem gerð er eft-
ir samnefndum sögum finnsku
skáldkonunnar Hannele Huovi,
verður sýnd í Norræna húsinu í
dag, sunnudag, kl. 14. Myndin
er ætlið börnum 3ja til 8 ára.
Urpo og Turpo búa í bóka-
hillunni í barnaherberginu og
lesa sígildar bækur. Samtímis
fylgjast þau með öllu sem ger-
ist hjá fjölskyldunni.
Með á bókahátíð
Hannele Huovi mun taka
þátt í norrænu barna- og ung-
lingabókahátíðinni sem haldin
verður í Norræna húsinu 10.–
14. október.
Aðgangur á kvikmyndasýn-
ingarnar er ókeypis.
BLÁR gámur lætur lítið yfir sér
fyrir utan Listasafn Færeyja, en
ekki er allt sem sýnist. Þarna er
kominn hluti listsýningar fær-
eyska listamannsins Trónds Pæt-
urssonar sem nú stendur yfir í
safninu. Einnig stendur yfir sýn-
ing á verkum listamannsins í
Norðurlandahúsinu í Færeyjum.
Tróndur er fjöllistamaður sem
málar og vinnur í gler og járn.
Gáminn hefir hann innréttað úr
glermósaíkplötum og þegar geng-
ið er inn í hann er sem áhorfand-
inn sé kominn í óravíddir al-
heimsins.
Verkið heitir „Kosmiskrúm“ og
hlaut viðurkenningu þegar það
var fyrst sýnt á Löngulínu árið
1996 þegar Kaupmannahöfn var
menningarborg Evrópu.
Sjónrænn blekk-
ingargámur
Morgunblaðið/Sigga
Gengið inn í hinn sjónræna
blekkingarheim spegilsins.
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
ÍÞRÓTTIR
mbl.is