Morgunblaðið - 16.09.2001, Blaðsíða 18
LISTIR
18 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Heimildakvikmyndir Jorge Ulla hafa unnið til verðlauna víða um heim.
Fáir vita að hann er flóttamaður.
Ein af 50 milljón afrekssögum flóttamana.
Jorge Ulla
kvikmyndaleikstjóri
50 mil l jón afrekssögur
FYRSTU Tíbrártónleikar í nýrri
kammertónleikaröð Salarins verða í
dag, sunnudag, kl. 16.30. Á efnis-
skránni eru verk eftir Ludwig van
Beethoven í flutningi Kammerhóps
Salarins, Sigrúnar Eðvaldsdóttur,
Auðar Hafsteinsdóttur, Bryndísar
Höllu Gylfadóttur, Peter Máté og
Miklos Dalmay.
Kammerhópur Salarins var stofn-
aður í ársbyrjun þessa árs að frum-
kvæði píanóleikaranna Peter Máté
og Nínu Margrétar Grímsdóttur en
stofnmeðlimir eru 11 og allir úr
fremstu röð íslenskra tónlistar-
manna. Að sögn Nínu Margrétar er
ætlunin með tónleikaröð Kammer-
hópsins í vetur að kynna á hverjum
tónleikum verk eins höfuðtónskálds
kammertónlistar og síðan beina sjón-
um að tónlist ákveðinna landa og
verður frönsk, rússnesk, tékknesk og
bandarísk tónlist á dagskrá í vetur.
Af öðrum tónskáldum en Beethoven
sem tónleikar verða helgaðir má
nefna Mozart, Schubert, Mendelsohn
og Schumann. Á efnisskrá fyrstu tón-
leikanna nú á sunnudaginn eru Són-
ata fyrir píanó og fiðlu í C moll, op. 30
nr. 2. Síðan leika þau Peter Máté og
Bryndís Halla sjö tilbrigði fyrir píanó
og selló úr Töfraflautunni op. 66.
Tónleikunum lýkur með Tríói fyrir
píanó, fiðlu og selló í c moll op. 1 nr. 3
í flutningi Nínu Margrétar, Auðar
Hafsteinsdóttur og Bryndísar Höllu.
Tónleikaspjall og
matargerðarlist
Í tengslum við tónleikaröð Kamm-
erhóps Salarins í Kópavogi í vetur
verður efnt til tónleikaspjalls fyrir
hverja tónleika þar sem gestum
býðst tækifæri til að fræðast um
verkin sem verða flutt, höfund þeirra
og tímabil. Í vetur verður tónleika-
spjallið í höndum tónskáldanna Atla
Heimis Sveinssonar, Þorkels Sigur-
björnssonar og Mistar Þorkelsdótt-
ur. Að sögn forsvarsmanna Salarins
er þetta vel þekkt erlendis sem að-
ferð til kynningar á klassískri tónlist
og hefur gefist vel til að auka áhuga
og skilning almennings. Nína Mar-
grét segir þetta eiga sér forsögu í
spjalli Jónasar Ingimundarsonar á
undan tónleikum þar sem hann hafi
unnið ómælt brautryðjandastarf
mörg undanfarin ár. „Nýjungin er
fólgin í því að það er ekki flytjandinn
sjálfur sem kynnir verkin og höfund-
ana og þessu er gefinn ákveðinn tími
á undan tónleikunum. Eftir tón-
leikana er gestum síðan gefið tæki-
færi til að kynnast matargerðarlist
og það er veitingastaðurinn Austur-
Indíafélagið sem ríður á vaðið á
sunnudaginn með kynningu á austur-
lenskri matargerð.
Tónleikarnir standa í klukkustund
án hlés og í allt er dagskráin tvær
klukkustundir með blöndu af
fræðslu, góðri tónlist og kynningu á
góðum mat. Við vonum að gestum
okkar eigi eftir að líka þetta vel og
þetta hljóti góðar undirtektir,“ segir
Nína Margrét Grímsdóttir píanóleik-
ari.
Morgunblaðið/Golli
Kammerhópur Salarins, sem leikur á fyrstu tónleikunum, ásamt Nínu Margréti Grímsdóttur.
Fyrstu tónleikar Kammerhóps Salarins í Kópavogi
Nýjung í tónlistarlífinu
FRÆÐSLUDEILD Listasafns
Reykjavíkur hlýtur Íslensku safn-
averðlaunin í ár en þau voru veitt í
annað sinn á fimmtudag. Verðlaunin
eru veitt safni sem þykir hafa skarað
fram úr í starfi sínu. Að verðlauna-
veitingunni standa Félag íslenskra
safna og safnamanna og Íslandsdeild
alþjóðaráðs safna, ICOM. Valgerður
Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, afhenti verðlaunin og fór
athöfnin fram á Húsavík.
Fræðsludeildin á Listasafni
Reykjavíkur hefur, að mati val-
nefndar, náð framúrskarandi ár-
angri í starfi sínu. „Fræðslan er mið-
uð við allan almenning og skólafólk á
öllum aldri. Deildinni hafa verið
sköpuð þau starfsskilyrði að hún er
starfi sínu megnug en hún hefur frá-
bæru starfsfólki á að skipa.“
Eiríkur Þorláksson, forstöðumað-
ur Listasafns Reykjavíkur, veitti
verðlaununum viðtöku.
Farskóli íslenskra safnamanna
var haldinn á Húsavík í vikunni. Til
hans koma safnamenn hvaðanæva af
landinu einu sinni á ári. Að þessu
sinni var umfjöllunarefnið starf ein-
yrkjans og var fjallað um það hugtak
út frá heimspekilegum, sögulegum
og sálfræðilegum staðreyndum.
Ný lög um starfsemi safna
Samþykkt hafa verið á Alþingi ný
lög um starfsemi safna og koma þau
til með að hafa víðtæk áhrif, að mati
Lilju Árnadóttur hjá Þjóðminjasafn-
inu, sem þátt tók í skólastarfinu.
„Þátttakendur farskólans í ár líta
vonaraugum til þess að hin nýju
safnalög verði til þess að efla og sam-
hæfa störf safna og auka skilvirkni
við fjárveitingar.“
Aðalfundur félagsins er ævinlega
haldinn í tengslum við farskólann og
nú var lögum félagsins breytt í þá
veru að nú geta stofnanir gerst fé-
lagar og því var nafni félagsins
breytt.
Fræðsludeild Listasafns Reykjavíkur
Hlýtur Íslensku
safnaverðlaunin
Morgunblaðið/Pétur
Eiríkur Þorláksson, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur, tekur við
verðlaununum úr hendi Valgerðar Sverrisdóttur viðskiptaráðherra.