Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 20

Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 20
20 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ H LUTVERK Auðar í krafti kvenna er að nýta enn betur þann auð sem í konum býr með því að auka þátttöku þeirra í at- vinnusköpun og stuðla þannig að auknum hagvexti á Íslandi. Á vegum verkefnisins er árlega haldið leiðtoganámskeið ætlað konum í leiðtogastöðum. Þar fá þær tækifæri til að efla hæfileika sína sem leiðtogar og er gefinn kostur á að styrkja tengslanet sín á milli. Jafnframt er markmiðið að þessar konur verði öðr- um konum stuðningur og fyrirmynd, að því er fram kemur á upplýsingavef Auðar í krafti kvenna, www.ru.is/aud- ur/. Á þeim tveimur leiðtoganámskeið- um sem Auður í krafti kvenna hefur staðið fyrir hefur Gunnila Masrellez- Steen, sálfræðingur og eigandi ráð- gjafarfyrirtækisins Kontura interna- tional, leiðbeint. Einungis eitt leiðtoganámskeið er eftir og verður það haldið á komandi hausti en verkefnið Auður í krafti kvenna er til þriggja ára. Óhætt er að segja að þrátt fyrir að jafnrétti sé tryggt með lögum þá er víða pottur brotinn í þeim málum. Samkvæmt nýlegri könnun sem jafn- réttisráð hefur kynnt munu 114 ár líða þar til tekjur karla og kvenna á Íslandi verða þær sömu ef mið er tek- ið af þeim breytingum sem orðið hafa á þessum vettvangi á síðustu tveimur áratugum 20. aldarinnar. Ef litið er til fjölmiðla er mun al- gengara að viðmælendur séu karlar en konur, a.m.k. í þeim málaflokkum sem teljast til harðari mála til að mynda í viðskiptaumfjöllun. Helsta skýringin á því hve sjaldan er talað við konur í viðskiptalífinu er sú að fá- ar konur eru í stjórnunarstöðum í ís- lensku viðskiptalífi. Á það ekki síst við um aðalstjórnendur fyrirtækja þrátt fyrir að ýmislegt hafi áunnist í þessum málum undanfarinn áratug. En betur má ef duga skal og því ákváðu aðstandendur Auðarverkefn- isins að kynna konur í stjórnunar- stöðum hverja fyrir annarri á leiðtoganámskeiðum. Því það er oft ansi kalt á toppnum. Mjög mörg fyrirtæki hafa sent konur í stjórnunarstörfum á nám- skeiðin hingað til. Má þar meðal ann- arra nefna Eimskip, Össur, Íslands- póst, Seðlabanka Íslands, Skeljung, Búnaðarbanka Íslands, Kaupþing, Flugleiðir, Granda, MP-Verðbréf og Landsvirkjun. En er gagn af námskeiðum sem þessum og hvers vegna eru þau að- eins fyrir konur? Til þess að svara þessum spurning- um tóku fimm einstaklingar sem hafa setið leiðtoganámskeið á vegum Auð- ar í krafti kvenna þátt í hringborðs- umræðum um námskeiðin og hlut kvenna í stjórnunarstöðum. Þátttak- endur í hringborðinu voru: Halldóra Matthíasdóttir, markaðsstjóri Op- inna kerfa, Heiðrún Jónsdóttir, for- stöðumaður upplýsinga- og kynning- armála Landssíma Íslands, Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkur, Sólrún Halldórsdóttir, tryggingasérfræðingur hjá Sjóvá-Al- mennum og Una Steinsdóttir, útibús- stjóri Íslandsbanka í Keflavík. Hvað fannst ykkur um að taka þátt í leiðtoganámskeiði sem þessu? Lára: „Ég hafði bæði mikið gagn og gaman af námskeiðinu og eigin- lega miklu meira gagn en ég átti von á. Þó svo að það sé ekki nema tæpur mánuður síðan hef ég notað heilmikið af þeim upplýsingum og ráðlegging- um sem ég fékk þar. Ég hef farið á mörg námskeið af þessu tagi en ég held að þetta hafi verið eitt það besta. Eins var ómet- anlegt að kynnast þessum konum sem einnig tóku þátt í því. Ég var elst í hópnum og það var alveg nýtt fyrir mig að hitta allar þessar ungu konur úr viðskiptalífinu því ég er að vinna í opinbera geiranum og er vön því að vinna meira með konum en körlum ólíkt því sem konur í stjórnunarstöð- um í einkageiranum eru vanar. Að upplifa einkageirann í gegnum þessar konur og sjá að þær eru að berjast fyrir því sama og við þurftum að gera hér áður sem erum eldri í hettunni. Það skýrist væntanlega aðallega af því að þær eru að vinna í umhverfi sem einungis karlar voru í áður.“ Halldóra: „Ég verð nú bara að segja að mér fannst námskeiðið miklu skemmtilegra og árangursríkara en ég átti von á og það var örugglega út af því hvað hópurinn náði vel saman. Ég lærði mikið af þeim eldri og reyndari og held að það eigi eftir að nýtast mér vel í starfi. Það sem var líka gott og betra en önnur námskeið sem ég hef sótt var þessi áhersla sem Gunnila lagði á hópavinnu. Fyrsta daginn var ég far- in að halda að Gunnila myndi ekki fara yfir neitt af glærunum úr möpp- unni og fannst lítið fara fyrir fyrir- lestrum hennar. Heldur vorum við í stöðugri hópavinnu og alltaf að skipta um hópa. En að sjálfsögðu var þetta skipulagt hjá henni: bæði kynntist maður öllum hópnum og um leið fór- um við yfir það efni sem var á glær- unum – á okkar hátt. Á námskeiðinu ríkti fullkominn trúnaður þannig að allar gátu tjáð sig um erfiðleika sem þær mættu á sínum vinnustað og fengið ráð frá öðrum sem kannski höfðu lent í svipuðum aðstæðum. Því það er nú einu sinni þannig að mjög margir kvenstjórnendur mæta sömu erfiðleikum á vinnustað.“ Sólrún: „Ég hef nú ekki haft hátt um að hafa farið á kvennanámskeið og satt best að segja þá hef ég varla sagt nokkrum frá því fyrr en núna en ég var mjög ánægð með námskeiðið. Til að mynda lét Gunnila okkur setja upp raunveruleg dæmi úr okkar starfi. Þannig að þetta voru ekki ein- hverjir ímyndaðir þröskuldar sem við þurftum að yfirstíga. Ég held að þetta hefði verið öðruvísi ef um blandaðan hóp hefði verið að ræða. Samkenndin er einhvern veginn öðruvísi meðal kvenna.“ Lára: „Gunnila sendi okkur heim með mjög mörg ráð sem eru einlæg og hún var ekkert hrædd við að gefa okkur hagnýt ráð í stað þess að marg- ir leiðbeinendur vilja alltaf að maður svari eigin spurningum. Hver kann- ast ekki við að fá svarið: „Hvað finnst þér?“ Heiðrún: „Ég verð að viðurkenna að ég hoppaði ekki hæð mína í loft upp þegar það var hringt í mig og mér boðið að taka þátt í námskeiðinu í fyrra og það var aðallega vegna þess að þetta var bara námskeið fyrir kon- ur. Ég var sannfærð um að þetta yrði einhver rauðsokkusamkoma þar sem litið væri á karlmenn sem óvininn. Því ég reyni að lifa eftir því að karlar og konur hafi jöfn tækifæri. Það sem vanti upp á sé að konur keyri sig meira áfram og hafi trú á sjálfum sér. En sem betur ber þá lét ég vaða og mætti í Mývatnssveit. Umræðan var síður en svo karlfjandsamleg, heldur eingöngu verið að ræða um þau vandamál sem við eigum við að glíma, og umræðan var okkur holl. Ekki spillti fyrir að við fórum úr okkar dag- lega umhverfi og vorum einangraðar úti í sveit.“ Sólrún: „Ekki var það nú alveg hægt því ég varð að svara ansi mörg- um símtölum og eins að flýta heimför vegna starfsins því á sama tíma sögðu tryggingafélögin upp samningum við flugfélög vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum hinn 11. september sl.“ Halldóra: „Ég viðurkenni það hér og nú að ég sagði engum frá því áður en ég fór að námskeiðið sem ég væri að fara á væri kvennanámskeið í Mý- vatnssveit.“ Heiðrún: „Ég tek undir það að ég var ekkert að auglýsa það. Fannst það pínuhallærislegt svona innst inni. Í dag er ég hins vegar hæstánægð og þá ekki síst fyrir að hafa kynnst öllum þessum frábæru konum.“ Una: „Ég er stolt af að hafa verið boðið á þetta námskeið. Frábært að kynnast öllum þessum konum og mynda með okkur þessi tengsl, sem ekki er vanþörf á og ég myndi segja að hafi verið megnintilgangur nám- skeiðsins. Ég er af Suðurnesjum og þó að það sé ekki stærra svæði þekki ég því miður fáar stallsystur mínar þar, sem sýnir aftur hversu illa við konur ræktum þennan þátt sem tengslanet er og er svo mikilvægt í að ná góðum árangri. Námskeiðið styrkti mig í þeirri trú að við konur værum að gera rétt og við ættum að halda áfram að stjórna á okkar eigin forsendum. Við vorum þrjár frá Íslandsbanka, ég, Hulda Dóra Styrmisdóttir og Vil- borg Loftsdóttir, sem sátum leiðtog- anámskeiðið í fyrra. Eftir að við kom- um aftur til vinnu ákváðum við að miðla fróðleiknum til fleiri á vinnu- staðnum með minni útgáfu af því fyrir kvenstjórnendur hjá Íslandsbanka. Við fórum því í gegnum námskeiðið aftur þar sem við bjuggum til svipað uppbyggt námskeið fyrir konur í stjórnunarstöðum og hjá Íslands- banka. Þetta tókst mjög vel og var vel sótt af konum í bankanum. Þetta jók ákveðna vitund í hópnum og ég held hleypti krafti í þær. Þessar konur hittast reglulega í dag.“ Heiðrún: „Það hefur komið fram í mörgum könnunum að konur eru ekki síður góðir stjórnendur en karl- menn. Við höfum nokkra eðlislæga þætti sem henta vel í stjórnun, s.s. næmi, yfirsýn, sveigjanleika o.fl. Um- ræðan snýst hins vegar of oft um að draga fólk í dilka eftir kynferði í stað þess að beina athyglinni að styrkleik- um og veikleikum einstaklinga.“ Halldóra: „Ég er mjög ánægð með það að hafa uppgötvað að stjórnunar- stíll liggur í genunum. Og svei mér þá ég er mjög stolt af því að vera kona í því samhengi.“ Lára: „Síðan er það algengur mis- skilningur að þetta sé veikleiki kven- stjórnenda, til að mynda mýktin.“ Una: „Já, þetta er nefnilega ekki veikleiki heldur það sem við viljum að einkenni stjórnanda 21. aldarinnar, mýkt, sveigjanleiki, skilningur og næmni, og þar skiptir kynið engu máli. Þetta eru þau atriði sem þykja hvað eftirsóknarverðust í fari nútíma- stjórnenda í dag.“ Sólrún: „Við höfum alltaf haft karl- menn sem fyrirmyndir í stjórnun því fyrir nokkrum árum voru kvenstjórn- endur teljandi á fingrum annarrar handar. Að sjálfsögðu höfum við séð þeim fjölga jafnt og þétt undanfarið bæði í einkageiranum og þeim opin- bera. Það eru því ekki lengur einung- is kvenskörungar Íslendingasagn- anna og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti, sem við getum horft til.“ Halldóra: „Við megum heldur ekki gleyma konum eins og Rannveigu Rist, forstjóra ÍSAL, sem hefur held- ur betur sýnt okkur að það er hægt að samhæfa einkalíf og vinnu. Eitthvað sem hefur haldið mörgum konum frá stjórnunarstörfum. Það að treysta sér ekki til þess að fórna fjölskyld- unni fyrir vinnuna og láir þeim það enginn.“ Heiðrún: „Þetta með skilin milli einkalífs og vinnu er mikilvægur punktur og örugglega eitthvað sem allar konur á vinnumarkaði velta fyrir sér. Að mínu áliti hefur þetta orðið mun auðveldara eftir að fyrirtæki bjóða í auknum mæli upp á tölvuteng- ingu heim. Að vísu er maður þá alltaf í vinnunni en það er sama. Maður er þó heima hjá sér og getur unnið eftir að börnin eru sofnuð. Auðvitað hef ég glímt við samviskubit út af syninum og vinnunni. Þetta er hins vegar mitt val og eitthvað sem ég geri upp við sjálfa mig. Það var mjög gott á leið- toganámskeiðinu að sjá að við vorum allar að velta þessu fyrir okkur og gátum því stappað stálinu í hver aðra.“ Lára: „Þetta er heldur ekki lengur kynbundið því ég heyri það á ungum karlstjórnendum að þeir eru farnir að gera kröfur um að geta sinnt fjöl- skyldunni í meiri mæli en áður tíðk- aðist. Þetta er heldur ekki bundið við Ísland því sömu viðhorf heyrast frá ungum stjórnendum alls staðar og Halldóra Matthíasdóttir: Ég við- urkenni að ég sagði engum frá því að ég væri að fara á kvennanámskeið. Lára Björnsdóttir: Það er stutt síðan að eitthvað fór að gerast í þessum málum innan opinbera geirans. Una Steinsdóttir: Fyrir 10–15 árum hefði aldrei komið til greina að senda konur saman á leiðtoganámskeið. Sólrún Halldórsdóttir: Við höfum alltaf haft karlmenn sem fyrirmyndir í stjórnunarstörfum. Heiðrún Jónsdóttir: Ég reyni að lifa eftir því að konur og karlar hafi jöfn tækifæri. Morgunblaðið/Golli Ein af strákunum? Nei, takk! Á vordögum 2000 fór verk- efnið Auður í krafti kvenna af stað. Um 800 konur hafa tek- ið þátt í því, þar af tæplega 50 konur í tveimur leiðtoga- námskeiðum fyrir konur í stjórnunarstörfum. Guðrún Hálfdánardóttir sat það fyrra og ræddi við nokkrar konur sem einnig tóku þátt í þeim.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.