Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 31

Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 31 ÞAÐ er ekkert smá spennandi að sjá bestu leikara þriggja kynslóða, Brando, De Niro og Norton samein- ast í einni kvikmynd. En því miður er útkoman ekki jafn spennandi. Og þar má einfaldlega kenna handritinu um. De Niro er veraldarvanur bófi, eigandi djassklúbbs í Montréal sem rænir sunnan við landamærin. Nú vill hann koma sér út út glæpaheim- inum til að geta verið með elskunni sinni, sem Angela Basset leikur, en tekur að sér allra seinasta verkefnið. Brando leikur gamlan ríkan karl sem fær De Niro til að ræna fyrir sig og Norton er ungi og hæfileikaríki bófinn á uppleið. Ásamt De Niro ætla þeir að ræna veldissprota úr tollhúsi Montréal. Rosa flókið. De Niro er fínn í sínu hlutverki, ósköp hógvær, sem hentar vel því sem hann er að gera. Norton klikkar ekki heldur, sýnir góða takta í hlut- verki Jack sem þykist vera hinn and- lega og líkamlega fatlaði Brian sem fær ræstivinnu í tollhúsinu. Býsna gott. Brando er feitur og ljótur og sorglegur. Þótt maður hætti að vera fallegur, þá þarf maður ekki að hætta að kunna að leika. Hann kall- aði víst leikstjórann Svínku á upp- tökutíma, þar sem hann talaði fyrir hana í prúðuleikurunum, en príma- donnan Brando ætti bara að líta í spegil. Angela Basset fær leiðinlegt smáhlutverk og er leiðinleg í því. En svo er það sagan. Eða frekar handritið, því hugmyndin að flétt- unni er alls ekki svo slæm og end- irinn kom mér býsna á óvart. Hins vegar tekst ekki að útfæra þetta nógu vel. Upplýsingum er haldið frá áhorfendum og maður veit ekki yfir hverju maður á að vera spenntur, eða hvernig aðaltrixið í endann er framkvæmt. Á hinn bóginn er þetta alls ekki neinn ekta glæpahasar. Þetta verðist eiga að vera eitthvert sambland af tilvistarkreppu bófans, og glæpa- sögu. Það hefði svo sem verið frekar sniðugt ef borin hefði verið á borð áhugaverð dýpt við sálarlíf bófans, en svo er ekki. Ekki er útlit myndarinnar heldur sérlega skemmtilegt, og þessi til- gerðarlega rökkurlýsing er ekki að mínu skapi. Augljóslega er ekki nóg að hafa þrjá toppleikara og góða hugmynd til að gera góða mynd. Huga þarf að mörgu, mörgu fleiru. Óneitanleg vonbrigði KVIKMYNDIR L a u g a r á s b í ó Leikstjóri: Frank Oz. Handrit: Daniel E. Taylor og Kario Salem. Aðalhlutverk: Robert De Niro, Edward Norton, Angela Basset og Marlon Brando. 124 mín. Para- mount Pictures 2001. THE SCORE VEL á annað hundrað manns hef- ur skráð sig á námskeiðið Hvað ert þú tónlist? hjá Endurmennt- unarstofnun Háskóla Íslands sem hefst mánudaginn 22. október. Á námskeiðinu sem er haldið í sam- starfi við Salinn í Kópavogi mun Jónas Ingimundarson píanóleik- ari leiða þátttakendur inn í heim tónlistarinnar í tali og tónum. Jónas segist leggja áherslu á að leiðbeina þátttakendum við að hlusta á tónlistina, með því að leika einstök dæmi, ræða um þau og velta yfir þeim vöngum. „Ég ætla ekki að flytja fyrirlestra um tónlistarsöguna, eða bakgrunn verka, heldur ætla ég fyrst og fremst að halda mig við sjálfa tónana, staldra við einstaka kafla og leitast við að sýna gestum inn í þann undravef sem tónlistin er.“ Hverju námskeiðskvöldi lýkur með tónleikum þar sem fólki gefst kostur á að njóta verkanna í heild og þar munu gestir úr röðum íslenskra tónlistarmanna leggja Jónasi lið. Á dagskrá námskeiðsins til jóla verða verk eftir Beethoven, Schubert og Chopin auk þess sem tekin verða fyrir sýnishorn íslenskrar tónlist- ar. Námskeiðið er haldið fjögur kvöld á tveggja vikna fresti í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs. „Þegar hefur á annað hundrað manns skráð sig, en Salurinn tek- ur 300 manns, þannig að enn er pláss,“ segir Jónas. Frekari upplýsingar um nám- skeiðið er að finna á vefsíðunum www.endurmenntun.is og þar er jafnframt hægt að skrá sig. Innsýn í undravef tónlistarinnar Jónas Ingimundarson Hildur Loftsdótt ir DAGSKRÁ um bandaríska leik- skáldið Edward Albee verður í Listaklúbbi Leikhússkjallarans annaðkvöld, mánudagskvöld, kl. 20.30. Albee var eitt þekktasta og áhrifamesta leikskáld Bandaríkj- anna á síðustu áratugum. Melkorka Tekla Ólafsdóttir fjallar um Albee. Leiklesin verða brot úr nokkrum verkum Albees sem sýnd hafa verið á Íslandi. Þau eru Saga úr dýra- garðinum og Þrjár konur stórar. Einnig verða flutt atriði úr sýningu Þjóðleikhússins á leikritinu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? Jónas Kristjánsson fjallar um þýðingu sína á leikritinu. Kjartan Ragnars- son leikstjóri, leikararnir Lilja Guð- rún Þorvaldsdóttir, Pálmi Gestsson, Inga María Valdimarsdóttir og Rúnar Freyr Gíslason spjalla um uppsetningu leikritsins. Edward Albee í Listaklúbbnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.