Morgunblaðið - 21.10.2001, Side 47
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2001 47
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Víðir Kári Kristjánsson 434 1148
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Jón Ragnar Gunnarsson 451 3333
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Stella Steingrímsdóttir 892 3392 894 8469
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Valdimar Ingi Auðunsson 486 1136
Mos./ Teigahv. Jóna M. Guðmundsdóttir 566 6400
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 866 7958 466 2575
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Agnieszka Szczodrowska 465 1399
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/868 0920/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey Jónsdóttir 452 2879 868 2815
Stokkseyri Halldór Ásgeirsson 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Gunnhildur Eik Svavarsdóttir 456 4936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
ÁHANGENDUR Jesú skiptu
hundruðum. En þegar hann dag
einn tók fyrir alvöru að boða
Guðs ríki, um 30 ára gamall,
kallaði hann tólf úr þeim stóra
hópi til fylgdar við sig. Þeir voru
kallaðir lærisveinar eða postular.
Í því vali fór hann ótroðnar slóð-
ir, eins og reyndar gjarnan áður
og síðar, og ef maður hefði verið
uppi á þessum tíma og fylgst
með atburðum hefði verið næsta
auðvelt að efast um að dóm-
greind hans og skynsemi væri
þar í lagi. Því flestir hinna tólf
útvöldu voru nefnilega óheflaðir
púlsmenn og hinir dálítið vafa-
samir fírar, að því er í fljótu
bragði virtist.
Við skulum líta aðeins nánar á
lærisveinana tólf, eins og þeir
oftast eru nefndir, en með því
fororði að ekki er mikið um þá
alla vitað og um suma nánast
ekkert.
Byrjum á Símoni Pétri. Hann
kom upphaflega frá Betsaída og
var fiskimaður, átti hlut í útgerð
með bróður sínum, Andrési, og
Jakobi og Jóhannesi Sebedeus-
arsonum. Hann var skapmikill
og meira en lítið hvatvís.
Þennan mann gerði Jesús að
foringja lærisveinanna.
Andrés, bróðir Péturs, var líka
fiskimaður.
Þá koma bræðurnir og fiski-
mennirnir Jakob og Jóhannes.
Um Jakob, sem oft er nefndur
hinn eldri, er fátt vitað. Hann
mun hafa dáið fyrstur allra læri-
sveinanna, liðið píslarvætt-
isdauða árið 44. Jesús kallaði
bræðurna „þrumusyni“, vegna
skapferlis þeirra.
Um Tómas og hina næstu er
sömuleiðis lítið vitað. Á guð-
spjöllunum má þó sjá, að hann
var ákaflega gætinn maður og
varkár. Þekktust er líklegast
frásögnin af því, að hann vildi
ekki trúa því að Jesús væri upp-
risinn nema hann fengi að sjá
eitthvað því til staðfestingar.
Hann er því gjarnan nefndur
efasemdamaðurinn í lærisveina-
hópnum. Og ef hratt er farið yfir
sögu var Jakob Alfeusson (Jakob
yngri) einhverra hluta vegna
kallaður „hinn litli“. Júdas Jak-
obsson var einnig nefndur
Taddeus eða Lebbeus. Filippus
var, eins og Pétur og Andrés, frá
Betsaida og er oft nefndur fyrsti
trúboði heiðingjanna, eftir að
hann boðaði manni frá Eþíópíu
hina nýju trú og skírði hann.
Bartólómeus var frá Kana og
það var Filippus sem kynnti
hann fyrir Jesú. Margir telja að
Bartólómeus sé hinn sami og
Natanael.
Matteus, sem einnig er nefnd-
ur Leví, var tollheimtumaður
Rómverja og illa þokkaður af
fólki. Um Símon vandlætara hef-
ur ekkert varðveist, en hitt er
kunnugt, að vandlætarar eða
selótar voru þjóðernissinnaður
flokkur manna, sem var mjög í
nöp við tollheimtumenn Róm-
verja!
Júdas Ískaríot var sá eini sem
ekki var frá Galíleu; hann var
(e.t.v.) frá Keriot, sem var bær í
Júdeu. Eftir brotthvarf hans
komu þeir ellefu saman og völdu
annan til að fylla í skarðið. Þeir
vörpuðu hlutkesti um tvo, Jústus
og Mattías, og hinn síðarnefndi
varð svo tólfti postulinn.
Af þessari upptalningu má
ráða, að umræddur hópur var
stórgallaður, að ekki sé fastar að
orði kveðið. Því verður bara ekki
neitað. Hitt er jafnframt deg-
inum ljósara, að þetta var svo út-
pælt hjá Jesú, að velja þessa
samsetningu en ekki einhverja
aðra, sem hefði litið betur út á
pappírnum, að maður verður
orðlaus af undrun og aðdáun.
Um þá snilld hans ber kirkja nú-
tímans vitni, stærstu trúarbrögð
heims, með þriðjung alls mann-
kyns innan vébanda sinna, tvo
milljarða af um sex milljörðum
jarðarbúa. Þetta eigum við eink-
um og sér í lagi kjarki og dugn-
aði hinna óhefluðu púlsmanna að
þakka. Þeir fóru út um heiminn,
alls óhræddir, eftir fyrsta páska-
dag, og lögðu grunninn, sem aðr-
ir byggðu síðan á, allt til þessa
dags. Allir, nema Jóhannes, liðu
þeir píslarvættisdauða; fyrir
honum átti það að liggja að færa
mannkyninu hið stórfenglega
guðspjall, sem við hann er kennt.
Þeir tólf eru hetjur.
Hvað kennir þetta okkur, hin-
um kristnu, sem jörðina byggj-
um 2000 árum síðar? Jú, annars
vegar það, að við erum mik-
ilvægari í þessari baráttu en við
oft höldum; að við skiptum óend-
anlegu máli við útbreiðslu trú-
arinnar með því að vera til og
benda með líferni okkar á þann,
sem við erum helguð í skírninni.
Hins vegar megum við af
þessu læra, að ávallt er best að
leyfa meistaranum að halda um
stjórnvölinn, því hann veit alltaf
hvar best er að fara, þótt eitt-
hvað sýnist öðruvísi í fyrstu.
Hann mun vel fyrir sjá.
Lærisveinarnir
tólf og við hin
Lærisveinarnir tólf voru ekki beint
skrautfjaðrir á meistaranum, heldur
flestir eða allir dálítið óheflaðir náungar,
skapmiklir, hvatvísir og fullir efasemda,
að því er lesa má af guðspjöllunum.
Sigurður Ægisson gluggar hér
í sögu þeirra.
saeson@islandia.is
FRÉTTIR
FYRSTA Nokia-farsímaverslunin á
Íslandi verður opnuð formlega í
Smáranum miðvikudaginn 24. októ-
ber kl. 17, segir í fréttatilkynningu.
Í versluninni verður auk farsíma og
fylgihluta úrval af Nokia tískuvarn-
ingi auk þess sem viðgerðarþjón-
ustuaðili frá fyrirtækinu verður á
staðnum.
Kynnt verða sérstök opnunar-
tilboð á farsímum, fylgihlutum,
símkortum og áfyllingarkortum.
Tal opnar
Nokia-verslun
í Smáranum
Tal opnar NOKIA-verslun í Smáranum.
GUÐMUNDUR Hálfdanarson
sagnfræðingur heldur fyrirlestur í
hádegisfundaröð Sagnfræðinga-
félags Íslands, sem hann nefnir
„Hugmyndir Herders um þjóðina og
endalok menningarlegrar þjóðar“,
þriðjudaginn 23. október kl. 12.05–13
í stóra sal Norræna hússins.
Fyrirlesturinn byggist á niður-
stöðum rannsókna fyrirlesara á sögu
og forsendum íslenska þjóðríkisins.
Hann er opinn öllu áhugafólki um
sögu og menningu.
Um endalok menn-
ingarlegrar þjóðar
BRUNAMÁLASTOFNUN og
Brunatæknifélag Íslands halda
morgunverðarfund um brunavarnir
vegganga 23. október frá kl. 8–10 í
blómasal Hótels Loftleiða.
Fjallað verður um nýjustu bruna-
rannsóknir í veggöngum ásamt því
að varpað verður ljósi á hvað er að
gerast í Hvalfjarðargöngum varð-
andi þessi mál.
Erindi flytja: Björn Karlsson,
Haukur Ingason, Guðmundur Gunn-
arsson og Hrólfur Jónsson. Fyrir-
spurnir og umræður. Fundarstjóri
verður Gunnar H. Kristjánsson.
Fundur um bruna-
varnir vegganga
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Jónasi
Þórissyni, framkvæmdastjóra
Hjálparstarfs kirkjunnar, og Sig-
rúnu Árnadóttur, framkvæmda-
stjóra Rauða kross Íslands.
„Á meðan ófriðarbál logar í Afg-
anistan þjást saklausir íbúar lands-
ins af hungri og vosbúð. Konur, börn
og gamalmenni eru á barmi örvænt-
ingar eftir tuttugu og tveggja ára
ófrið og þriggja ára uppskerubrest.
Sprengjur falla.
Vetur nálgast. Rauði kross Ís-
lands og Hjálparstarf kirkjunnar
telja það skyldu Íslendinga og sam-
félags þjóðanna að hjálpa. Einungis
þannig getum við komið í veg fyrir
víðtækar hörmungar sem nú ógna
milljónum manna.
Alþjóðasamtök Hjálparstarfs
kirkjunnar og Rauða krossins
þekkja vel aðstæður í Afganistan
enda hafa bæði félögin starfað þar
að neyðaraðstoð í tuttugu ár. Þau
hafa fyrir löngu varað við því sem nú
er komið á daginn.
Heimurinn þarf að hlusta og
bregðast við. Hjálpin þarf að berast
núna ef ekki á að skapast sama
skelfingarástand og t.d. í Rúanda
þegar allar viðvaranir voru hunds-
aðar. Þá létu 800 þúsund manns lífið.
Allt kapp þarf að leggja á að
draga úr flótta með því að hjálpa
fólki heima, þar sem það er. Fólk
þarf að fá tjöld, teppi, mat og lækn-
isaðstoð.
Það getur ekki treyst á neitt ann-
að en neyðaraðstoð hlutlausra hjálp-
arstofnana. Íslendingar geta stuðlað
að því að bjarga mannslífum í Afg-
anistan.
Hjálparstarfið í Afganistan snýst
um að hjálpa sárþjáðu fólki í mikilli
neyð. Rauði krossinn hjálpar sam-
kvæmt markmiðum sínum um
mannúð, hlutleysi og óhlutdrægni.
Hjálparstarf kirkjunnar starfar með
múslímskum félagasamtökum jafnt
sem kristnum. Trúarbrögð skipta
hér engu máli, frekar en litarháttur,
stjórnmálaskoðanir eða hverjir sitja
við stjórnvöl í landinu.
Ríkisstjórnin hefur lagt fram 10
milljónir króna. Landsmenn geta
hjápað með því að taka þátt í söfnun
Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða
kross Íslands sem nú stendur yfir
fyrir Afganistan. Söfnunarsíminn er
907 2003. Með því að hringja leggur
viðkomandi fram 1.000 krónur af
næsta símreikningi.“
Yfirlýsing
Rauða kross-
ins og Hjálp-
arstarfs
kirkjunnar
Reiknast ekki til aflamarks
Í frétt um frumvarp sjávarút-
vegsráðherra um breytingu á lögum
um stjórn fiskveiða í Morgunblaðinu
í gær, laugardag, var hluta setn-
ingar um afla í veiðiferð ofaukið.
Umrædd setning átti að vera sem
hér segir: Loks er lagt til að heimilt
verði að koma með 5% af afla hverr-
ar veiðiferðar og reiknast ekki til
aflamarks veiðiskips enda renni
andvirði þess afla til Hafrannsókna-
stofnunarinnar. Í fréttinni var rang-
lega sagt að þetta ákvæði væri skil-
yrt tegundum sem bátarnir ættu
ekki aflamark í.
LEIÐRÉTT