Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 24
ERLENT
24 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DANSKA stjórnin stefnir að því að
samþykkt verði ný lög sem auðveldi
lögreglunni að berjast gegn hryðju-
verkum, að sögn Berlingske Tid-
ende. Sum ákvæði tillagnanna eru
mjög umdeild. Andstæðingar þeirra
segja að allt of langt sé gengið í að
minnka persónuvernd og hryðju-
verkaógnin sé notuð sem yfirskin til
að létta allt starf lögreglunnar.
Einkum fara hugmyndir Karen
Jespersen, innanríkisráðherra og
jafnaðarmanns, um skerðingu á
réttindum útlendinga og umsækj-
enda um landvist fyrir brjóstið á
Sósíalíska þjóðarflokknum (SF).
Ráðherrann segist samt vera viss
um að lögin fari í gegn með stuðn-
ingi hægriflokkanna.
Meðal þess sem Jespersen leggur
til er að gert verði auðveldara að
vísa útlendingum úr landi vegna til-
lits til „öryggis og velferðar ríkisins,
samfélagsins og borgaranna“. Einn-
ig fær lögreglan leyfi til að sam-
keyra án dómsúrskurðar gagna-
grunna með fingraförum grunaðra
glæpamanna við grunna með
fingraförum útlendinga í landinu og
nota afraksturinn sem sannanir
þegar um gróf afbrot er að ræða.
Heimildir til að fella úr gildi dval-
arleyfi eða neita fólki um slíkt leyfi
vegna grófra afbrota verða rýmk-
aðar.
„Mér finnst ekki þörf á að herða
lögin um innflytjendur vegna bar-
áttunnar gegn hryðjuverkum. Menn
fara alveg á ystu nöf þess sem hefð-
in mælir fyrir um og það er alger-
lega ónauðsynlegt,“ segir Holger K.
Nielsen, leiðtogi SF, en flokkurinn
styður að jafnaði minnihlutastjórn
jafnaðarmannsins Pouls Nyrups
Rasmussens forsætisráðherra. Niel-
sen segir að Jespersen grípi nú
tækifærið og herði ákvæði í innflytj-
endalögunum sem hún hafi einnig
viljað breyta áður en hryðjuverkin
11. september voru framin í Banda-
ríkjunum.
Stuðningur við hryðjuverka-
menn varðar fangelsi
Frank Jensen dómsmálaráðherra
hefur einnig sett fram sínar tillögur
til lagabreytinga með tilliti til bar-
áttunnar gegn hryðjuverkum en
hann er flokksbróðir Jespersen.
Hugtakið hryðjuverkamaður er þar
skilgreint sem maður sem af ásettu
ráði veldur miklu tjóni á pólitískum,
efnahagslegum eða félagslegum
innviðum þjóðfélagsins, fyrst og
fremst með það í huga að hræða al-
menning. Hægt verður að dæma
fólk í lífstíðarfangelsi fyrir slík af-
brot.
Hægt verður að dæma þann sem
á aðild að hópi sem fremur hryðju-
verk eða hyggst fremja slíkan
verknað í allt að tíu ára fangelsi. Á
þetta einnig við um þá sem beint
eða óbeint veita slíkum hópi fjár-
hagslegan stuðning. Sé um veru-
legan peningastuðning að ræða er
skilyrðið fyrir sekt ekki að hópurinn
hafi brotið gegn „hryðjuverkalög-
unum“, eins og nýju lögin eru al-
mennt kölluð, heldur dugar að hóp-
urinn hafi sannanlega ætlað sér að
grafa undan skipulagi samfélagsins.
Hægt er að fangelsa í allt að sex
ár þann sem hvetur með einum eða
öðrum hætti til aðgerða er brjóta
gegn nýju lögunum. Lögreglan mun
fá víðtækari heimildir til leynilegra
rannsókna, til dæmis þegar fengist
er við brennuvarga, sprengjumenn,
flugræningja og þá sem eitra mat
eða drykkjarvatn. Hún fær einnig
upplýsingar um leyninúmer hjá
símafyrirtækjum, greiðari aðgang
að upplýsingum hjá þeim og net-
þjónustufyrirtækjum, leyfi til að
hlera símtöl og fylgjast með ferðum
einstaklinga ef mál sem varða
hættuleg vopn eru til rannsóknar.
Lög gegn hryðjuverka-
hópum hert í Danmörku
Tillögur gagnrýndar fyrir að
skerða að óþörfu rétt innflytjenda
Reuters
Íbúar í borginni Kandahar í Afganistan grafa í rústum húss sem þeir sögðu hafa eyðilagst í loftárásum Banda-
ríkjamanna snemma í gærmorgun. Eigandi hússins sagði að húsvörðurinn og tvær dætur hans hefðu særst.
NOKKRIR þingmenn í Washington hafa gagn-
rýnt þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar og alrík-
islögreglunnar, FBI, að gefa út viðvörun við
hugsanlegum hryðjuverkum fyrr í vikunni. Þeir
segja viðvörunina frekar til þess fallna að
magna ótta almennings en að vernda hann.
„Í hvert sinn sem almennar viðvaranir eru
gefnar út veit fólkið ekki hvað það á að gera og
við vitum ekki hvað við eigum að ráðleggja
því,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Rich-
ard J. Durbin eftir fund með Tom Ridge örygg-
ismálaráðherra. „Menn velta því fyrir sér hvað
ávinnist með slíkum viðvörunum, annað en að
valda enn meiri ótta.“
Nokkrar öryggisstofnanir í Bandaríkjunum
juku viðbúnað sinn eftir að stjórnin og FBI
vöruðu við hugsanlegum hryðjuverkum í vik-
unni á blaðamannafundi sem boðaður var í
skyndi í Washington á mánudagskvöld. Banda-
ríska flugmálastjórnin (FAA) bannaði til að
mynda flug yfir 86 kjarnorkumannvirkjum.
Aðrar stofnanir segjast hins vegar hafa verið
með hámarksviðbúnað vikum saman og vita
ekki hvað þær geti aðhafst frekar. Lögreglan í
Los Angeles dró reyndar úr viðbúnaði sínum á
þriðjudag eftir að hafa metið viðvörunina.
„Mikill gauragangur,
en fátt skýrðist“
Ljóst er að viðvörunin vakti ugg meðal
margra Bandaríkjamanna sem hafa ekki enn
jafnað sig á þeim óhug sem sló á þjóðina við
hryðjuverkin 11. september og miltisbrands-
árásirnar. Lögreglustöðvar út um öll Bandarík-
in höfðu varla við að svara fyrirspurnum frá
fólki sem vildi fá að vita hvernig bregðast ætti
við viðvöruninni, hvort óhætt væri að ferðast
eða sækja viðburði eins og íþróttaleiki.
Nokkrir þingmenn sögðust styðja þá ákvörð-
un stjórnarinnar að gefa út viðvörunina en
aðrir sögðu að hún hefði verið of óljós til að
koma að gagni. Öldungadeildarþingmaðurinn
Christopher J. Dodd sagði að þingmenn hefðu
látið Ridge fá það óþvegið á fundi í þinghúsinu í
Washington. „Viðvörunin olli miklum gaura-
gangi, en fátt skýrðist. Þetta er óheppilegt,“
sagði hann.
FBI sagði að viðvörunin byggðist á „trúverð-
ugum“ upplýsingum um að hætta væri á árás-
um hryðjuverkamanna í vikunni en ekki væri
vitað hvar eða hvaða dag þær yrðu gerðar.
Bandarísk yfirvöld óttast að stuðningsmenn
Osama bin Ladens leiki enn lausum hala í
Bandaríkjunum og séu ef til vill að undirbúa
fleiri árásir. Öryggisyfirvöld hafa fylgst grannt
með tölvusamskiptum hugsanlegra hryðju-
verkamanna, skipst á upplýsingum við erlendar
leyniþjónustur og haft samband við fyrrverandi
samstarfsmenn al-Qaeda, samtaka bin Ladens.
Alríkislögreglan vildi ekki skýra frá því hvað-
an hún fékk upplýsingarnar en Ridge sagði á
þriðjudag að heimildirnar væru „margháttað-
ar“.
Viðvörun FBI gagnrýnd
Washington. Los Angeles Times.
LEIÐTOGAR múslímaríkja
leggja nú fast að Bandaríkja-
stjórn að gera hlé á loftárás-
unum á Afganistan yfir föstu-
mánuð múslíma, ramadan, þótt
hann hafi sjaldan aftrað músl-
ímum frá því að berjast sín á
milli.
Einn af helstu ráðgjöfum
Egyptalandsforseta hefur sagt
að það væri lítilsvirðing við
múslíma að halda loftárásunum
áfram þegar ramadan gengur í
garð. Pervez Musharraf, for-
seti Pakistans, sem hefur stutt
árásirnar, skoraði einnig á
Bandaríkjastjórn að gera hlé á
árásunum yfir föstumánuðinn.
Þessi þrýstingur virðist hafa
borið árangur. Donald H.
Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, hafnaði því að
gert yrði hlé á árásunum á
blaðamannafundi fyrir nokkr-
um dögum og sagði að talib-
anar myndu þá nota tækifærið
til að styrkja herafla sinn.
Hann virtist hins vegar ljá
máls á þessum möguleika á
þriðjudag þegar hann sagði að
Bandaríkjastjórn skildi að
þetta væri viðkvæmt mál fyrir
leiðtoga múslímaríkjanna og að
tekið yrði tillit til viðhorfa
þeirra.
Ramadan hefur aldrei orðið
til þess að íslömsku stríðs-
mennirnir, sem barist hafa í
borgarastríðinu í Afganistan,
hafi lagt niður vopn.
Reyndar telja margir
Bandaríkjamenn það tvískinn-
ung af múslímum að biðja um
hlé á árásunum yfir föstumán-
uðinn. Þeir benda t.a.m. á að
ramadan aftraði aldrei Írökum
og Írönum frá því að berjast
þegar stríð þeirra geisaði á ár-
unum 1980–88. Egyptar gerðu
ekki heldur hlé á hernaðarað-
gerðum sínum í Jemen yfir
ramadan-mánuðinn á árunum
1963–67 þegar þeir beittu sinn-
epsgasi gegn Jemenum.
Egyptar og Sýrlendingar
hófu einnig stríð við Ísraela í
föstumánuði múslíma árið 1973
og á einum helgasta degi gyð-
inga, friðþægingardeginum,
Yom Kippur.
Múslímar
hafa oft
barist yfir
ramadan
Washington. AP.
FIMMTÁN af hryðjuverkamönnun-
um 19, sem stóðu að árásunum í
Bandaríkjunum 11. september sl.,
fengu vegabréfsáritun til Bandaríkj-
anna í Sádi-Arabíu. Var það haft eft-
ir bandarískum embættismönnum í
fyrradag.
Bandarískar ræðismannsskrif-
stofur í Sádi-Arabíu höfnuðu aðeins
3% umsækjenda um vegabréfsáritun
á fjárlagaárinu 2000 til 2001 en þar
tíðkast að afhenda umsóknirnar á
ferðaskrifstofum. Þær eru síðan
samþykktar flestar án þess, að rætt
sé við umsækjendur.
Til samanburðar má nefna, að til
jafnaðar eru 25% umsókna um
bandaríska vegabréfsáritun hafnað
um allan heim og í löndum eins og
Írak og Íran, sem eru á lista banda-
ríska utanríkisráðuneytisins yfir
ríki, sem styðja hryðjuverkamenn,
verða umsækjendur að bíða vikum
og mánuðum saman meðan verið er
að grafa upp allt, sem vitað er um þá.
David Mack, fyrrverandi starfs-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins, segir að talin hafi verið lítil
hætta samfara því að veita Sádi-
Aröbum vegabréfsáritun enda ekki
líklegt, að þeir hygðust fara að vinna
fyrir sér sem ólöglegir innflytjendur.
Annað mál væri með fólk í fátækum
löndum eins og Egyptalandi en 1999
var 38% umsókna þar í landi hafnað.
FBI, bandaríska alríkislögreglan,
telur hugsanlegt, að átta hryðju-
verkamannanna hafi verið frá Sádi-
Arabíu og sumir bandarískir emb-
ættismenn telja ekki útilokað, að 12
þeirra eða fleiri hafi verið þaðan.
Samkvæmt gögnum bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins fengu 15 mann-
anna vegabréfsáritun í Sádi-Arabíu
sem sádi-arabískir borgarar þótt
eins víst sé, að einhverjir þeirra hafi
framvísað fölskum skilríkjum.
Of litlar leyniþjón-
ustuupplýsingar
Í Bandaríkjunum hefur utanríkis-
ráðuneytið verið gagnrýnt fyrir lé-
legt eftirlit en þar á bæ er því vísað á
bug. Bent er á, að nöfn allra hryðju-
verkamannanna 19 hafi verið könnuð
án þess, að nokkuð fyndist athuga-
vert. Það vekur aftur upp spurning-
ar og gagnrýni á leyniþjónustuna,
sem margir saka um andvaraleysi og
allt of litla upplýsingaöflun í löndum
eins og Sádi-Arabíu.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
vinnur nú að því að herða á öllu um-
sóknaferlinu en það hefur þó ekki
leitt til þess, að fleiri umsóknum
Sádi-Araba en áður hafi verið hafnað
eftir hryðjuverkin 11. september.
Flestir
fengu árit-
un í Sádi-
Arabíu
Washington. Los Angeles Times.
Bandaríska utanríkis-
ráðuneytið gagnrýnt
fyrir slakt eftirlit