Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 27
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 27
Framtíðin hefst ....núna!
Borgartúni 28 • S: 562 2901 & 562 2900 • www.ef.is
Super A
nti-Alia
s Filter
540 lín
ur
TOSHIBA DVD • SD 100
er af 5. kynslóð DVD mynddiskaspilara, með betri
myndgæðum og mun fullkomnari en aðrir bjóða!
TOSHIBA eru fremstir í tækniþróun. Hönnuðir Pro-Logic heimabíókerfisins, Pro-Drum mynd-
bandstækjanna og DVD mynddiskakerfisins.
Önnur TOSHIBA tæki fást í
stærðunum frá 14“-61“
29“-33“ eða 37“
100HZ
DIGITAL SCAN
TOSHIBA
heimabíó
Nýjasta og fullkomnasta
tækni á einstöku verði!
• Super-5 Digital Blackline myndlampi
• 180-300W magnari
• 3 Scarttengi að aftan
• 2 RCA Super VHS/DVD
tengi að aftan
Super VHS, myndavéla- og
heyrnartækjatengi að framan
• Barnalæsing á stöðvar
• Glæsilegur skápur m/glerhurð
og 3 hillum
• 6 framhátalarar
• 2 bassahátalarar
• 2 x 2 bakhátalarar
Vill ibráðarhlaðborð
jólasveinsins
Hótel Glymur Hvalfjarðarströnd
Eftirréttagallerí að hætti Glyms - Verð fyrir einstakling 3.600 kr.
Borðapantanir í síma 430 3100
Þorláksmessa: Skötuveisla að hætti Strandamanna.
Sjón er sögu ríkari - vertu velkomin
sími 430 3100, símbréf 430 3101, gsm 899 9358
www.hotelglymur.is info@hotelglymur.is
HG
• Síldarsena
• Ristuð risahörpuskel
• Laxatríó
• Ostagratíneraðar gellur
• Lynglegið lamb
• Sleðadregið hreindýr
• Villitryppafile
• Kryddlegnar svartfuglsbringur
• Hólsfjallahangikjöt
• Puruklædd svínasteik
• Fylltar kjúklingarúllur
Stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins boðar til auka-
fundar fyrir sjóðfélaga, fimmtudaginn 22.
nóvember kl. 17.00. Fundurinn verður
haldinn í Gullfossi, fundarsal Kaupþings,
Ármúla 13, 4. hæð.
Dagskrá:
1. Tillögur að breytingum á samþykktum
sjóðsins
2. Kynning á nýjum fjárfestingarleiðum
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Fyrirhugaðar samþykktabreytingar munu
liggja frammi á skrifstofu Kaupþings
tveimur vikum fyrir fund þar sem sjóð-
félagar geta kynnt sér þær.
Allir félagar eru hvattir til að mæta.
Stjórnin
Til sjóðfélaga í
Frjálsa lífeyrissjóðnum
Ármúli 13, 108 Reykjavík
sími 515 1500
www.kaupthing.is
PER-Kristian Foss, fjármálaráð-
herra hinnar nýju samsteypustjórn-
ar borgaraflokkanna í Noregi, hefur
það sem eitt af sínum forgangsmál-
um að lækka skatta á áfengi. Ástæð-
an er sú, að áfengisverslunin er að
flytjast úr landi til Evrópusam-
bandsríkisins Svíþjóðar og raunar
önnur verslun líka.
Vegna aðildar Svía að Evrópu-
sambandinu hafa þeir orðið að
lækka tolla á áfengi og 1. desember
næstkomandi munu tollar á léttum
vínum enn lækka um 19%. Foss seg-
ir í viðtali við Aftenposten, að við
þetta eða þann mikla mun, sem er á
áfengisverðinu í Noregi og Svíþjóð,
verði ekki unað enda sé öll áfeng-
isstefna norskra stjórnvalda í upp-
námi af þessum sökum. Hann við-
urkennir þó, að þótt tollar verði
lækkaðir í Noregi, muni þeir ekki
verða nándar nærri jafn lágir og í
Svíþjóð.
Heimasalan dregst
saman ár frá ári
Salan í norsku áfengiseinkasöl-
unni sýnir vel þróunina. Hún minnk-
ar ár frá ári, um 5,8% í léttum vínum
á síðasta ári miðað við september og
um 8,9% í sterkum vínum. Áfeng-
issalan í Strömstad í Svíþjóð, rétt
við norsku landamærin, hefur aftur
á móti aukist um 62% á fyrstu níu
mánuðum þessa árs. Ekki mun hún
minnka þegar Svíar lækka tollana
enn frekar 1. desember nk.
Í Noregi er ástandið þannig, að
almennt starfsfólk áfengiseinkasöl-
unnar er farið að hafa áhyggjur af
framtíðinni. Það er þó líklega
ástæðulaust en hins vegar blasir það
við stjórnvöldum, að þau eru að
missa alla stjórn á viðskiptum með
og neyslu á áfengi.
Smyglið blómstrar
Áfengisverðið í Noregi veldur því
líka, að landið er hreinasta gullnáma
fyrir smyglara, og Foss segir, að við
því sé ekki nema eitt svar, að lækka
tollana. Áfengisverð í Svíþjóð er nú
helmingi lægra en í Noregi og mun
síðan eins og fyrr segir lækka enn
eftir mánuð.
Svíar urðu að lækka áfengisverðið
til að geta haldið í ríkiseinkasöluna,
sem þeir leggja mikla áherslu á, og
breyta um leið þeim reglum, sem
gilda um innflutning einstaklinga á
áfengi frá öðrum ESB-ríkjum. Eftir
næstu áramót má hver Svíi koma
með tvo lítra af sterku víni og 32
lítra af léttu víni frá öðru ESB-ríki
og frá 2004 10 lítra af sterku víni og
110 lítra af léttu. Norðmenn þurfa
ekki að gera sér neinar vonir um
eitthvað þessu líkt svo lengi, sem
þeir eru utan ESB.
Önnur verslun
á sömu leið
Norðmenn leita til margra borga
og bæja í Svíþjóð í innkaupaferðum
sínum en mest til Strömstad. Áætl-
að er, að áfengiskaup Norðmanna
þar séu nú rúmlega 3,5 milljarðar
ísl. kr. árlega og þá er ótalin öll önn-
ur verslun þar, til dæmis mikil mat-
arinnkaup, og annars staðar í
sænsku landamærahéruðunum. Í
Svíþjóð er fasteignaverð auk þess
verulega hagstæðara en í Noregi og
það hefur leitt til þess, að nú er risið
heilt hverfi í Strömstad, sem er
næstum eingöngu byggt Norð-
mönnum. Húsakaup þeirra í öðrum
sænskum héruðum í grennd við
landamærin aukast líka stöðugt.
Nýr fjármálaráðherra í Noregi vill lækka tolla á áfengi
Eru að missa versl-
unina til Svíþjóðar
ÖRYGGISLÖGREGLA
réðist til inngöngu á skrif-
stofur helstu einkareknu
sjónvarpsstöðvarinnar í
Georgíu, Rustavi-2, að því
er greint er frá á fréttavef
BBC. Stöðin nýtur mikill-
ar virðingar í landinu og
er kunn af gagnrýni sinni
á Eduard Shevardnadze
forseta, og fullyrðingum
um spillingu og aðra vald-
níðslu af hálfu yfirvalda.
Shevardnadze fullyrti að hann
myndi verja tjáningarfrelsi og
kvaðst hafa skipað fyrir um rann-
sókn á réttmæti aðgerða lögregl-
unnar. Öryggismálaráðherra
landsins, Vakhtang Kutateladze,
hefur sagt af sér vegna málsins.
Starfsmenn stöðvarinnar sögðu
að lögreglumennirnir sem
réðust inn á skrifstofurn-
ar hefðu haft dómsúr-
skurð um að rannsaka
skyldi bókhaldsgögn
stöðvarinnar. Voru lög-
reglumennirnir að leita
vísbendinga um skattsvik.
Stjórnendur stöðvarinnar
fullyrtu aftur á móti að
nýleg athugun á bókhald-
inu hefði leitt í ljós að ekk-
ert væri athugavert við það, og
sökuðu ríkisstjórnina um að beita
opinskátt pólitískum þrýstingi.
Öryggismálaráðuneytið sagði að
engar pólitískar ástæður væru fyr-
ir lögregluaðgerðunum, en forseti
georgíska þingsins fullyrti að þær
væru ekkert annað en „pólitísk
hefndaraðgerð“.
Óttast um
tjáningarfrelsið
Eduard
Shevardnadze