Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 28

Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 28
ERLENT 28 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ SPÆNSKI dómarinn Baltasar Garzon lét handtaka 13 manns í gærmorgun er ráðist var inn á heimili og skrifstofur félaga í baskneska stjórnmálaflokknum Batasuna. Þeir, sem voru hand- teknir, eru grunaðir um að vera félagar í ETA, aðskilnaðarsam- tökum Baska, en litið er á Bat- asuna sem stjórnmálaarm hreyfingarinnar. Meira en 800 manns hafa fallið í valinn í hryðjuverkabaráttu ETA fyrir sjálfsákvörðunarrétti Baska- lands á rúmlega 30 árum. Handtökurnar koma í kjölfar þess, að um síðustu helgi gaf ETA í skyn, að samtökin myndu ekki fara að dæmi IRA, Írska lýðveldishersins, og afvopnast nema spænska stjórnin féllist á að leyfa Böskum að kjósa um sjálfstæði. Talið er, að helming- ur tveggja milljóna íbúa Baska- lands vilji sjálfstæði eða aukið sjálfræði en ríkisstjórn Jose Maria Aznars hefur aftekið að eiga viðræður við ETA eða hreyfa nokkuð við ríkismynd- inni. Garzon dómari tók sjálfur þátt í aðgerðunum í gærmorgun en hann er kunnastur fyrir það, að rannsóknir hans urðu til þess, að Augusto Pinochet, fyrr- verandi einræðisherra í Chile, var í stofufangelsi í London í 16 mánuði. Bætur fyrir þorskastríð BRESKA stjórnin hefur ákveð- ið, að meira en 1.000 sjómenn, aðallega skoskir, sem misstu at- vinnuna vegna þorskastríðanna við Íslendinga, skuli fá bætur. Bætast þeir við þann hóp, sem áður hefur þegið bætur fyrir at- vinnumissinn. Skoskir sjómenn hafa barist fyrir því lengi, að ríkið bæti þeim skaðann, sem þeir urðu fyrir með samningunum við Ís- land, en þeir urðu að miklu leyti útundan er breska stjórnin sam- þykkti bætur til sjómanna á síð- asta ári. Þá fengu aðeins 37 fyrr- verandi sjómenn í Aberdeen bætur og var mikið um það deilt hverjir hefðu rétt á þeim að því er fram kemur í BBC, breska ríkisútvarpinu. Nú hefur verið ákveðið að slaka nokkuð á reglunum og því bæt- ast um 1.000 sjómenn í þann hóp, sem áður hefur fengið ein- hverjar bætur. Þær hafa áður runnið til sjómanna í Aberdeen, Hull, Grimsby, Fleetwood, Blackpool, Cleethorpes, New- castle og West Yorkshire. 23 saknað í Sviss YFIRVÖLD í Sviss segja að 23 sé saknað eftir slysið í Gotthard- göngum en ellefu manns hefðu fundist látnir. Sérfræðingar segja að enn sé hætta í þeim hluta ganganna sem mestar skemmdir urðu á og því þarf enn að fresta leit að fleiri fórn- arlömbum. Í lok liðinnar viku höfðu aðstandendur tilkynnt að um 100 manna væri saknað en fjöldinn var sagður 23 á mánu- dagsmorgun. Unnið hefur verið að því að setja upp stálgrindur til að lyfta klæðningu sem hrundi úr lofti og af veggjum í þeim hluta ganganna þar sem hitinn komst upp í 1.200 gráður í bálinu sem kviknaði við árekst- ur tveggja vöruflutningabíla. STUTT Handtökur í Baska- landi POUL Nyrup Rasmussen, forsætisráðherra Dan- merkur, ætlar að boða til kosninga fyrr en ráð hafði verið gert fyrir eða 20. nóvember nk. Er það fjórum mánuðum áður en núverandi kjörtímabil rennur út. Rasmussen hefur stýrt minnihlutastjórn Jafnaðar- mannaflokksins en hann sagði í gær, að eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin þyrfti ríkis- stjórnin endurnýjað umboð kjósenda. „Alþjóðleg barátta gegn óöryggi, ótta og hryðju- verkum tengist náið okkar starfi hér í Danmörku,“ sagði Rasmussen. Hann sagði að kosningabaráttan myndi þó ekki snúast um þau mál heldur um vel- ferðarkerfið, heilbrigðiskerfið og innflytjendamál. „Þjóðfélagið okkar er hús, sem flestum finnst gott að búa í. En nú þurfum við að endurnýja það og laga þar sem nauðsyn krefur,“ sagði Rasmussen. Forsætisráðherann gekk á fund Margrétar Þór- hildar Danadrottningar og tilkynnti henni þessa ákvörðun. Þetta verður í fyrsta skipti í sögu Dan- merkur sem kosið er til þings sama dag og sveit- arstjórnarkosningar fara fram. Skoðanakannanir að undanförnu hafa bent til þess að jafnaðarmenn fái yfir 30% fylgi í kosningum nú. Flokkurinn fékk 36% fylgi í síðustu kosningum en fylgið dalaði í skoðanakönnunum næstu misseri á eftir. Nú hefur fylgið verið að aukast á ný. Þetta er talið tengjast því að Nyrup Rasmussen hefur verið mjög áberandi frá því hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin og hefur hann hvatt mjög til þess opinberlega að Danir standi þétt að baki Bandaríkjamönnum og Bretum í baráttunni gegn hryðjuverkum. Stjórnarandstaðan hefur á meðan haldið sig nokkuð til hlés og stutt ríkisstjórnina heilshugar í því máli. Nyrup boðar kosningar í Danmörku 20. nóvember Kaupmannahöfn. AFP. Reuters Poul Nyrup Rasmussen á fréttamannafundi í gær þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.