Morgunblaðið - 01.11.2001, Side 29

Morgunblaðið - 01.11.2001, Side 29
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 29 annarrar slíkrar afþreyingar. Ýmsar sjónvarpsstöðvar hafa sýnt þessum hugbúnaði mikinn áhuga og fyrirtæki, sem standa fyrir keppni af ýmsu tagi, eru þeg- ar farin að nota hann. Barátta tveggja liða Einn af fyrstu tölvuleikjunum af þessu tagi, Half-Life, snýst um til- raunir vísindamannsins Gordons Freemans til að sleppa út úr rann- sóknastöðinni Black Mesa. Þar hafa farið fram tilraunir, sem enda með ósköpum, og stöðin er orðin yfirfull af hinum skelfilegustu skrímslum. Þessi leikur kom fyrst á markað 1998 og hefur verið mjög vinsæll vegna þess, að hann gefur leikendum kost á að berjast hver við annan. Tvö lið geta til dæmis skipt þannig með sér verkum, að annað er hryðjuverkamenn en hitt þeir, sem reyna að stöðva þá. Með nýja hugbúnaðinum er síðan unnt að leyfa tugþúsundum áhorfenda að fylgjast með viðureigninni. Nú er stefnt að því, að um 25.000 manns geti fylgst með heimsmeist- arakeppninni í tölvuleikjum í des- ember næstkomandi, en líklega verður það aðeins byrjunin á af- þreyingu, sem að lokum mun ná til áhorfenda um allan heim. ÞEIR, sem gaman hafa af tölvu- leikjum, sitja oftast nær einir og yfirgefnir yfir þessu áhugamáli sínu inni í lokuðu herbergi en hugsanlegt er, að á því sé að verða breyting. Það er nefnilega ekki útilokað, að því er fram kemur á vefsíðu BBC, breska ríkisútvarps- ins, að tölvuleikir eigi eftir að komast í hóp þeirra íþrótta, sem draga að sér flesta áhorfendur. Auðvelt er að gleyma sér í tölvuleikjum, komast inn í annan heim þar sem mönnum er umbun- að strax fyrir færni sína á lykla- borðinu eða með stýripinnann, en gallinn er bara sá, að öll þessi leikni er á svo fárra vitorði. Jafn- vel í leikjum þar sem leikendur eða stjórnendur eru tveir eða fleiri er aðdáenda- og áhorfendahópurinn mjög lítill. Þetta er þó allt að breytast. Tölvuframleiðendur eru nú að setja á markað hugbúnað, sem fært getur tölvuleiki, sem margir taka þátt í, til þúsunda og tug- þúsunda áhorfenda. Ekki er óhugsandi, að á næstunni muni menn gera sér ferð á krána á laugardegi til að horfa á tölvu- leikjakeppni í stað ballskákar eða Eignast tölvu- leikir áhorfendur um allan heim? Eitt af skrímslunum í Half-Life.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.