Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 43

Morgunblaðið - 01.11.2001, Page 43
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 43 SUÐURLANDSBRAUT 54 (BLÁA HÚSIÐ Á MÓTI SUBWAY) SÍMI 533 3109 ATH! Nýr opnunartími: Mán.-fös. kl. 12-18, lau. kl. 10-16 FIMMTUDAGSTILBOÐ á barna kuldaskóm frá Margar tegundir t.d.... Teg.: ROCR-3733 Stærðir: 23-30 Litir: Svartir og rauðir Verð áður 4.995 Verð nú 2.995 Teg.: ROCR-3877 Stærðir: 30-40 Litir: Svartir og brúnir Verð áður 5.495 Verð nú 2.995 Á undanförnum miss- erum hefur umfjöllun um séreignasparnað farið vaxandi og glæst- ar auglýsingar talið fólki trú um að það „fái borgað fyrir að spara“. Til áréttingar þessu kerfi segja sölumenn (nefndir ráðgjafar í kynningu) að aðilar vinnumarkaðarins hafi samið um greiðslur í séreignasjóði. Laun- þeginn greiðir allt að 4% af launum á móti allt að 2% frá atvinnurek- anda og ríkið leggur fram 0,40% í formi afsláttar af trygg- ingagjaldi. Þetta er allt saman satt og rétt, en hvað hangir á spýtunni? Er bakslagið strax byrjað? Nú ætlar rík- ið að taka afsláttinn til baka með því að hækka tryggingagjaldið um 0,77%! Þessari hækkun mótmælir mið- stjórn ASÍ réttilega og bendir á að með því að hækka tryggingagjald um 0,77% væri tekið frá fyrirtækjum svigrúm til hækkunar launa. Sem sagt hækkun á tryggingagjaldi hefur áhrif á launaliði og viðbótarlauna- kostnaður fyrirtækja fer út í verðlag- ið. Á sama hátt má halda því fram að 2% viðbótarkostnaður vegna greiðslu í séreignasjóði muni hafa áhrif á aðra launaliði, t.d. yfirborganir og þessi viðbótarkostnaður fer út í verðlagið! Því má spyrja: Hver græðir á sér- eignasparnaði? Það kemur í ljós eftir allt að 44 ár þegar sparendur fá aurana til baka, ef neikvæð ávöxtun verður ekki búin að éta sparnaðinn upp til agna. Ef eitt- hvað verður eftir þá gæti ríkið tekið allt að 60% af upphæðinni í formi tekjuskatts! Hverjir reka áróður fyrir þessum sparnaði? Í fyrsta lagi eru það lífeyrissjóðir, sem aðilar vinnu- markaðarins stjórna. Reyndar er stórfurðulegt að menn skuli leggja út á þá braut að búa til annað lífeyris- sjóðskefi við hliðina á því sem fyrir er. Hvað kostar að reka tvöfalt lífeyris- sjóðskerfi og hver ætlar að borga framkvæmdina? Hvað „týnast“ margar milljónir á hverju ári vegna skorts á efirliti og gjaldþrots fyrir- tækja? Greiðir Ábyrgðasjóður launa tjón launþegans við gjaldþrot fyrirtækja? Í öðru lagi eru það fjárfestingarsjóðir, sem fá „þægilegt“ fjármagn í veltuna. Ekki er hægt að taka út sparnaðinn fyrr en eftir marga ára- tugi og engin ávöxtun- arskylda hvílir á þeim. Þegar kostnaður við framkvæmd kerfisins fer að sýna sig í alvöru, þá er sjálfsagt að láta vextina borga. Þessi staðreynd áréttar að ávöxtun á séreignareikningum verður slök þegar fram líða stundir. Í þriðja lagi er það markmið op- inberra aðila að losna við framfærslu- skyldu. Þess vegna borgar ríkið í dag 0,40% í púkkið til þess að fá fólk til að ánetjast þessari hugmyndafræði. En ríkið ætlar ekki að „gefa“ neitt – það sannar 0,77% fyrirhuguð hækkun á tryggingagjaldi. Launþegar ættu að hafa í huga að það á eftir að greiða tekjuskatt af sparnaðinum – og líka tekjuskatt af vöxtunum, ef vextir verða ekki alltaf neikvæðir og restin fer ekki í kostnað við framkvæmd á kerfinu! Það má færa rök fyrir því að tekju- skattur verði sá sami á Íslandi í fram- tíðinni og í Danmörk og Svíþjóð. Í dag eru um 11% þjóðarinnar á eftirlaun- um en á komandi áratugum mun þessi tala hækka í um 18%. Til þess að standa undir samfélagsþjónustunni veður ríkari þörf á að hækka tekju- katt. Það verður skrítinn svipurinn á liðinu sem hefur ánetjast auglýsing- um Íslandsbanka og heldur að það eigi 18,7 milljónir. Árið 1988 var tekjuskattur 35,2% en er í dag 38,76% og hátekjuskattur er 45%. Í framtíð- inni verða tekjur skattlagðar í skatt- þrepum, eins og í Danmörku og Sví- þjóð, þess vegna gæti sparandinn í Íslandsbanka átt eftir að greiða 11 m eða meira í sameinglega sjóði sam- félagsins – gott hjá honum. Með séreignasjóðum er verið að þvinga sparnað í ákveðinn farveg, sem skerðir ráðstöfunarrétt launþeg- ans yfir sparifé sínu. Á 16 ára laun- þegi að treysta því að hann fái eftir 44 ár það sem lofað er í dag? Er ekki launþeginn að taka áhættu og ef hann hættir sparnaði efir 10 ár, þá þarf hann að bíða í 34 ár eftir því að fá að taka út eigur sínar. Ég er undrandi á því að ekki sé gerð fræðileg úttekt á kostum og göll- um séreignasjóða. Hvar eru fræði- menn Háskóla Íslands eða Háskólans í Reykjavík? Eru allir fræðimenn að skrifa leyniskýrslur fyrir þá sem reka áróður fyrir séreignareikningum? Hvað kostar það launþegann að koma með skuldabagga á bakinu inn á eft- irlaunaaldurinn og hvað greiddi hann í dráttarvexti og kostnað, vegna þess að ráðstöfunartekjur voru skertar, þegar hann þurfti mest á þeim að halda. Kannski greiðir hann skuldirn- ar með restinni af 18,7m, sem ekki fóru í tekjuskatt og kostnað við fram- kvæmd á kerfinu! Í lokin má benda á að launþegi, sem greiðir í aukalífeyr- issjóð gæti átt von á lakari launakjör- um eða hann fengi bara ekki vinnuna, vegna þess að annar umsækjandi, sem ekki er í aukalífeyrissjóði væri meðal umsækjenda. Í Kristnihaldinu gefur biskupinn Umba ráð áður en hann leggur í sína miklu ferð. „Gleymið ekki að fáir eru líklegir til að segja nema soldið satt; enginn mjög satt, því síður hreina satt.“ Hvernig væri að fara að segja saklausum sparendum, sem eru að leggja af stað út í lifið – hreina satt! Hver borgar og fyrir hvern er sparað? Sigurður B. Oddsson Viðbótarlífeyrir Með séreignasjóðum, segir Sigurður B. Odds- son, er verið að þvinga sparnað í ákveðinn far- veg, sem skerðir ráð- stöfunarrétt launþegans yfir sparifé sínu. Höfundur er skrifstofumaður. EINHVERN tíma var haft á orði um þorp eitt úti á landi að þar hefði fólk að mestu lifi- brauð sitt af því að versla hvert við annað og farnaðist þar þó flestum vel. Þeir sem hversdags- legir voru í sálinni áttu alla tíð örðugt með að skilja á hverju velsæld þorpsbúa stóð fótum. Eins og endranær var ekki öllum gefið að skilja hin æðri fjár- málavísindi. En það sem því olli að mér kom þessi gamla sögn í hug var að mér barst í hendur Neytendablaðið rétt í þann mund og ég sá þess getið í öllum fjöl- miðlum landsins að reist hefði verið í Kópavogi forógnarstórt mannvirki, ætlað til þess að tryggja höfuðborg- arbúum viðunandi úrval af varningi. Í blaðinu því var, eina ferðina enn, vakin athygli á þeirri staðreynd að vöruverð á allflestum lífsnauðsynjum hér á landi er um það bil tvöfalt hærra en í „þeim löndum er við helst berum okkur saman við“. Þar voru skýringar jafnt stjórn- valda sem forsvarsmanna verslunar- innar á því að áðurnefnd mismunun stafaði aðallega af flutningskostnaði og misháum tollum dregnar mjög í efa. Það er kannski orðin full ástæða til þess að velta vöngum yfir hugtakinu verslunarþol. Hvert er verslunarþol Íslendinga? Vex það ef til vill með fjölgun verslana, jafnvel óendanlega? Geti verslun á Íslandi lagt, í nafni frelsisins, fram milljarða á milljarða ofan í nýtt og æ rishærra verslunar- húsnæði í Kringlum og Lindum hver ætli sé þá orsök þess að ekki er með nokkru móti hægt að lækka, t.d. í nafni hins óþekkta kaupanda, risið á álagningu seljanda? Er kannski minna, þegar allt kem- ur til alls, betra? Ég dreg svo sem ekki í efa að margir telji það til lífsgæða, sem all- mikið megi borga fyrir, að geta ranglað um sýningarsali þeirrar of- gnóttar varnings sem stór hluti þjóðarinnar á engan kost á að njóta svo sem sá hluti þjóð- arinnar sem aka verður langveg til næstu sölu- búðar, að ég nú ekki tali um þann sívaxandi hóp sem velta þarf fyrir sér hverri krónu í þverr- andi góðæri og ekki síst aldraða og öryrkja, en á okkur brennur nú áleit- in spurning þeirra um það hvernig við ætl- umst til þess að þeir geti lifað mannsæm- andi lífi á þeim skorna skerf sem við látum þeim í té. Við hér á Íslandi búum við þá und- arlegu þversögn að hér eru vextir u.þ.b. þrem sinnum hærri en hjá ná- grönnum okkar, verð á nauðsynjum a.m.k. tvöfalt hærra þótt laun séu mun lægri. Verslunarrými á hvern einstakling er hins vegar meira og vöruúrval að líkindum sambærilegt ef ekki álitlegra. Þótt ég óski að sjálfsögðu öllum þeim er sitja við niðandi smáralindir velmegunarinnar alls hins besta get ég ekki varist því að fyllast efa um að við höfum efni á þessum glæsileika. Nú þegar lífskjör launafólks fara versnandi, verðbólga vex og mis- skipting lífsgæða verður með hverj- um degi æ meira áberandi er kvíð- vænlegt að vita að fenginni reynslu að við lifum ekki til lengdar á því að versla hvert við annað. Milljarða- reikningurinn fyrir alla dýrðina verð- ur sendur mér og þér. Lindir velmegunar? Sigríður Jóhannesdóttir Höfundur er þingmaður Samfylking- arinnar í Reykjaneskjördæmi. Verzlun Hvert, spyr Sigríður Jóhannesdóttir, er verslunarþol Íslendinga?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.