Morgunblaðið - 01.11.2001, Side 67

Morgunblaðið - 01.11.2001, Side 67
FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2001 67 < Laugavegi 89, s. 511 1750 PARTÍDAGAR fimmtudag-laugardag Tískusýning í dag kl. 17.00 JD Sóley PARTÍ tilboð Langur laugardagur FRÍAR veitingar Heppnir fá fría boli Nice Girl peysur Laura Aime bolir Suchita peysur Urban gallapils Diesel gallabuxur Trend Design skór Stelpu r 2990 900 1990 2990 5990 3990 ÞÓTT KLINK hafi verið meðal hljómsveita sem ruddu harðkjarnan- um braut bar lítið á sveitinni framan af, þrátt fyrir að hún hafi sent frá sér kynningardiska. Þeir sem sáu Klink á tónleikum vissu þó að þar fór hörkuhljómsveit sem hefur smám saman verið að mjaka sér í fremstu röð í íslenskum harðkjarna þar sem hún er í dag; stendur vaktina frammá bakka á rokkfleytunni með Mínusi. 666 gráður norður er fyrsta eig- inlega útgáfan sem frá Klinki kemur, þ.e. efni sem tekið er upp í þokkalegu hljóðveri og hljóðblandað og unnið fyrir útgáfu. Það er og tími til kominn því platan, þótt stutt sé, sýnir að Klink er ekki bara mögnuð tónleika- sveit, henni fer líka vel að hamast á plasti. Upphafslag disksins, „Death by Auto“, þekkja menn af tónleikum, geysilega gott og þungt lag með skemmtilegum gítarfrösum og Frosti fer á kostum á trommurnar. Rödd- unin, sem er eitt af helstu einkennum Klinks, kemur vel út. Gaman er að heyra bjögunina sem sker sig inn í lagið þegar liðnar eru af því 2:40 mín- útur ... vonandi viljandi gert, því hún smellpassar. „SexualIdentityCrisis“ er ekki síð- ur gott lag og alltaf fæ ég gæsahúð er ég heyri gítarhnallþóruna snemma í laginu og ekki síður þegar skipt er um hraða ríflega hálfri mínútu síðar. Stílbrigðin í „Inbreeder“ brjóta lagið skemmtilega upp og verður að segj- ast að raddir eru frábærlega notaðar í laginu, hvort sem það er kvakið í upphafi eða rífandi öskur inni í því. Lokalag diskins, „Musicmakes- meyousick“, kemur óneitanlega skemmtilega á óvart. Það er reyndar erfitt að lýsa því á einfaldan hátt; einskonar blanda af ambient-tónlist, harðkjarna, hávaðalist og tilrauna- mennsku – harðkjarnasýra nær því kannski best. Tónlist Skemmtileg harðkjarnasýra TÓNLIST Geisladiskur 666 GRÁÐUR NORÐUR 666 gráður norður, stuttskífa með hljóm- sveitinni Klink. Hljómsveitina skipa Þröstur og Agnar sem leika á gítara, Frosti sem leikur á trommur, Árni sem leikur á bassa og Guðni sem syngur og orgar. Lögin, sem eru fjögur, eftir Klink- félaga utan eitt sem þeir semja með Birgi Erni Thoroddsen. Lilja Birgisdóttir leggur til raddir í því lagi og Hrafn Ás- geirsson leikur á saxófón. Birgir sá um upptökur. Hitt Records / Edda – miðlun og útgáfa gefur út. Árni Matthíasson Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Klink á Gauknum á Airwaves- hátíðinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.