Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 1
270. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 24. NÓVEMBER 2001
VLADÍMÍR Pútín, forseti Rúss-
lands, skoraði í gær á Atlantshafs-
bandalagið að koma á nánu samstarfi
við Rússa og hét því að þeir myndu
ekki notfæra sér það til að grafa
undan bandalaginu.
„Annars vegar vil ég taka fram að
Rússar bíða ekki eftir því að fá aðild
að NATO en á hinn bóginn eru þeir
tilbúnir að ganga eins langt í því að
þróa tengslin og Atlantshafsbanda-
lagið vill,“ sagði Pútín eftir fund með
Robertson lávarði, framkvæmda-
stjóra NATO.
Robertson lagði áherslu á að Pútín
hefði lofað að Rússar myndu ekki
skipta sér af mikilvægum ákvörð-
unum og starfsemi NATO ef tillögur
Breta um nánara samstarf banda-
lagsins við Rússa yrðu samþykktar.
Í tillögunum er meðal annars gert
ráð fyrir því að stofnað verði sérstakt
ráð fulltrúa allra aðildarríkja NATO
og Rússlands. „Í máli Pútíns kom
skýrt fram að Rússar líta hvorki á
þetta sem leið til að fá inngöngu bak-
dyramegin í NATO né aðferð til að
skipta sér af, fresta eða beita neit-
unarvaldi gegn ákvörðunum NATO,“
sagði Robertson.
Hann sagði þó við fréttamenn í
fyrrakvöld að hægt væri að draga þá
ályktun af tillögum Breta að Rússar
kynnu að fá neitunarvald í ákveðnum
málum sem varða samstarf þeirra við
NATO. „Það myndi vera undir því
komið hvaða málefni er um að ræða,“
sagði Robertson án þess að útskýra
það frekar. Hann lagði áherslu á að
tillögurnar væru ekki fullmótaðar og
enn væri óljóst hver ætti að ákveða
hvenær NATO ætti að hafa samráð
við Rússa.
Samstarf í baráttunni
gegn hryðjuverkum
Robertson sagði í fyrradag að með-
al annars væri rætt um að haft yrði
samráð við Rússa „á jafnréttisgrund-
velli“ um ákveðin mál, til að mynda
starfsemi hryðjuverkasamtaka.
Robertson og Pútín ræddu ýmsar
hugmyndir um nánara samstarf í
baráttunni gegn hryðjuverkum og út-
breiðslu gereyðingarvopna og friðar-
gæslu á Balkanskaga.
Robertson kvað samband NATO
og Rússlands hafa gerbreyst eftir
hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11.
september. „Við eigum nú sameigin-
legan óvin,“ sagði hann og bætti við
að ef tillögurnar yrðu samþykktar
myndu þær valda straumhvörfum í
samskiptum NATO og Rússlands.
Viðræður í Moskvu um nánara samstarf NATO og Rússa
Fá hugsanlega neitunar-
vald í ákveðnum málum
Moskvu. AFP, AP.
SÓKN Norðurbandalagsins gegn
hersveitum talibana í Kunduz, síð-
asta vígi talibana í norðurhluta Afg-
anistans, hélt áfram í gær og naut
bandalagið liðsinnis B-52 sprengju-
flugvéla Bandaríkjamanna. Virtist
sem uppgjöf talibana væri yfirvof-
andi. Fyrr um daginn höfðu full-
trúar alþjóða Rauða krossins lýst
áhyggjum af því að eftir fall borg-
arinnar kæmi til fjöldamorða á um
tvö þúsund erlendum liðsmönnum
al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna
sem barist hafa með talibönum í
Kunduz.
Abdul Rashid Dostum, hershöfð-
ingi í her Norðurbandalagsins, sagði
í gærkvöld að samningar við talib-
ana væru frágengnir. Þeir myndu
hætta allri mótstöðu á sunnudag.
„Við munum fara inn í Kunduz og
afvopna hermennina en Mullah
Fazil [leiðtogi talibana] hét því að
þeir myndu gefast upp og láta hina
erlendu hermenn af hendi,“ sagði
Dostum.
Staðfesti leiðtogi talibana í borg-
inni seint í gær að þeir væru reiðu-
búnir til að gefast upp. Mohammad
Daoud, annar hershöfðingi úr röðum
Norðurbandalagsins, sagði hins veg-
ar að Kunduz myndi falla þegar í
dag.
Óttast fjöldamorð á erlendum
hermönnum talibana
Virtist sem deilur væru komnar
upp í röðum Norðurbandalagsins
um hvernig staðið skyldi að töku
Kunduz. Sagði talsmaður talibana
hermennina í Kunduz milli tveggja
elda, viðræður hefðu staðið yfir við
Dostum um uppgjöf en á sama tíma
hefði Daoud og hersveitir hans blás-
ið til sóknar úr austurátt.
Erlendu talibanarnir, sem aðal-
lega eru Pakistanar, arabar og
Tsjetsjenar, eru sagðir óttast um ör-
lög sín, falli þeir í hendur Norður-
bandalagsins. Hefur verið leitt
getum að því að þeir muni berjast
fram í rauðan dauðann enda hafi
þeir litlu að tapa. Áhyggjur þeirra
virtust í gær réttmætar en þá var
haft eftir einum hermanna Norður-
bandalagsins að hinir erlendu „gest-
ir“ yrðu allir drepnir.
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði hins vegar að allt
yrði gert til að koma í veg fyrir blóð-
bað í Kunduz en Straw átti í gær
fund með Pervez Musharraf, forseta
Pakistans, í Islamabad.
Ráðstefnu SÞ frestað
um einn dag
Talibanar báru í gær til baka
fregnir þess efnis að Mohammad
Omar, andlegur leiðtogi þeirra,
hefði flúið Kandahar í Suður-Afgan-
istan, sem enn lýtur yfirráðum talib-
ana, og haldið til fjalla. Þeir sögðust
ekkert vita um íverustað Osama bin
Ladens, höfuðpaurs al-Qaeda sam-
takanna, en ekkert hefur til hans
spurst um nokkurt skeið.
Tilkynntu fulltrúar Sameinuðu
þjóðanna að ráðstefnu sem halda á
um framtíð Afganistans yrði frestað
um einn dag, en ráðgert hafði verið
að hún hæfist í Bonn í Þýskalandi á
mánudag. Á sama tíma greindu
fulltrúar Matvælahjálpar SÞ frá því
að flogið hefði verið með mikið magn
vista frá Úzbekistan til bágstaddra í
Afganistan. „Klukkan tifar, vetur er
genginn í garð og við þurfum að
koma matvælum eins fljótt og auðið
er til þeirra svæða í norðausturhluta
Afganistans, sem hætta er á að ein-
angrist í verstu vetrarhörkunum,“
sagði Bukhard Oberle, talsmaður
Matvælahjálparinnar.
Vandasöm staða/25
Fall Kunduz talið
líklegt um helgina
Khanibad, Kabúl, Bangi. AP, AFP.
Sókn Norðurbandalagsins í Kunduz heldur áfram
TVEIR baskneskir lögreglumenn
voru skotnir til bana í gær í bænum
Beasain nærri borginni San Sebast-
ian í Baskalandi og þótti líklegt að
aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA,
hefði staðið á bak við ódæðið. Voru
lögreglumennirnir tveir, kona og
maður, við umferðarstjórn í miðbæ
bæjarins þegar tveir byssumenn,
einnig kona og maður, að sögn sjón-
arvotta, komu aðvífandi og hófu
skothríð. Komust þau síðan undan á
flótta.
ETA hefur einnig verið kennt um
sprengjuárás, sem gerð var í Bilbao
á þriðjudag, en þar særðust tveir
lögreglumenn.
Reuters
Myrtu tvo
baskneska
lögreglumenn
ÍSRAELSHER skaut palestínskan
dreng til bana þegar til átaka kom á
Gazasvæðinu í gær eftir að fimm
drengir, sem féllu á fimmtudag, voru
bornir til grafar. Þá féllu þrír liðs-
menn Hamas-hreyfingarinnar her-
skáu þegar Ísraelsher skaut flug-
skeytum að bifreið þeirra á Vestur-
bakkanum, m.a. helsti leiðtogi sam-
takanna, Mahmud Abu Hannud. Hafa
Ísraelsmenn lengi viljað hafa hendur í
hári hans. Þá fórust tveir liðsmenn
Fatah-hreyfingar Yassers Arafats,
forseta heimastjórnar Palestínu-
manna, í sprengingu, en ekki var
vitað hvað olli henni. Loks lést palest-
ínskur leigubílstjóri á Gazasvæðinu
eftir skothríð Ísraelsmanna og særð-
ust fimm aðrir í sömu árás. Fleiri Pal-
estínumenn hafa ekki látist á einum
degi frá því 26. október sl. þegar tíu
féllu í átökum við ísraelska herinn.
Reuters
Þúsundir manna fylgdu fimm drengjum sem fórust í fyrradag til grafar.
Fullyrt að/26
Sjö Palestínu-
menn felldir
Gaza, Nablus. AFP.