Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, segir að samstaða um
sjávarútvegsmál náist aðeins með
málamiðlun þannig að menn sættist
á skynsamlegt veiðigjald. Hann
segir viðskiptahallann mikinn og
verðbólgu of háa sem síðan leiði til
okurvaxta sem ekkert fær staðist.
Þetta kom fram í máli formannsins í
setningarávarpi fundar miðstjórnar
Framsóknarflokksins í Hraunholti í
Hafnarfirði í gær.
Sjávarútvegsmálin, Ríkisútvarpið,
velferðarkerfið og Evrópumálin
settu sterkan svip á ræðu formanns
Framsóknarflokksins. Hann sagði
að Evrópumarkaður hefði lengi verið
og myndi áfram verða mikilvægasta
markaðssvæði Íslendinga og því yrði
að tryggja hagsmunina á því svæði.
„Við höfum bærilegan aðgang að
mörkuðum ESB með EES-samn-
ingnum en ESB er í stöðugri þróun á
meðan EES-samningurinn er það
alls ekki,“ sagði hann. Hann sagði að
allt kapp væri lagt á að treysta og
uppfæra EES-samninginn þannig að
hann tryggði okkar hagsmuni. Það
hefði ekki gengið nægilega vel, en
það væri þó ekki fullreynt enn.
Halldór sagði ennfremur að þró-
unin yrði að leiða í ljós hvenær
Framsóknarflokkurinn vildi taka
frekari skref í Evrópumálunum. Það
sem líklega myndi hafa mest áhrif á
stöðuna væri evran sem færi senn í
umferð. Hún yrði gjaldmiðill á innri
markaði Evrópu sem við værum
fullgildir aðilar að og kepptum á.
„Að standa utan við þetta sam-
starf en lúta jafnframt samkeppnis-
reglum innri markaðarins getur orð-
ið okkur þungbært. Stýrivextir hér á
landi eru 10,1%, þeir eru 3,75% í
evrulöndum og 2% í Bandaríkjunum.
Augljóst má vera að mikill vaxta-
munur hér á landi umfram önnur
lönd rýrir lífskjör og vaxtarmögu-
leika.
Það er pólitísk stefna Íslendinga
að vera aðilar á innri markaðnum.
Það er pólitísk stefna að fyrirtæki og
heimili búi við jafnræði í þessu um-
hverfi. Það er umfram allt pólitísk
stefna að viðhalda stöðugleika,“
sagði Halldór og sagði það frum-
skyldu Seðlabankans við þessar að-
stæður að gera ítarlega úttekt á
þessu máli og meta hvort við getum
skapað fyrirtækjum og heimilum líf-
vænleg vaxtakjör. „Hann verður
jafnframt að svara þeirri erfiðu
spurningu hvort við getum með sjálf-
stæðri íslenskri krónu varðveitt
nauðsynlegan stöðugleika á innri
markaði þar sem einn gjaldmiðill er
ráðandi.“
Ná verður almennri samstöðu
um sjávarútvegsmálin
Halldór rakti í ræðu sinni vinnu
sjávarútvegshóps flokksins sem gert
hefur úttekt á kostum og göllum
helstu leiða við gjaldtöku af nýtingu
fiskveiðiauðlindarinnar. Hann gæti
séð fyrir sér mismunandi leiðir að
sameiginlegu marki og hefði ekki
viljað útiloka neinar meginleiðir,
hvorki veiðigjaldsleið né fyrningar-
leið. „Það hefur einnig komið fram af
hálfu Framsóknarmanna að eðlilegt
sé að líta á innheimtu auðlindagjalda
almennt í framtíðinni, en ekki aðeins
á slíka gjaldtöku af einni atvinnu-
grein umfram aðrar.“
Hann sagði að miðað við um-
ræðuna í Framsóknarflokknum al-
mennt virtist sér það liggja ljóst
fyrir að samstaða næðist aðeins með
málamiðlun þannig að menn sættust
á skynsamlegt veiðigjald.
„Ég sé þessa einu leið til að sam-
eina þá sem helst vilja enga sérstaka
gjaldtöku yfirleitt og hina sem frek-
ast myndu kjósa fyrningarleiðina,“
sagði Halldór.
Formaður Framsóknarflokksins við upphaf miðstjórnarfundar í gær
Vill málamiðlun um
skynsamlegt veiðigjald
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
ÝMSAR furðuverur arka þessa
dagana um götur borgarinnar,
brosmildar og reifar. Þær virðast
miklar félagsverur, halda sig í
hópum og vekja mikla athygli
hvar sem þær koma fyrir glað-
værð og létta lund. Þarna eru
reyndar ekki á ferð jafnframandi
lífverur og halda mætti í fyrstu,
heldur útskriftarnemendur fram-
haldsskóla að gera sér glaðan
dag, rétt áður en síðasta próf-
törnin skellur á. Framhalds-
skólaárin munu þó væntanlega
seint gleymast þeim enda búið að
innsigla gleði og gáska þeirra á
eftirminnilegan hátt með glensi
og grímuklæðnaði sem mun lík-
lega kalla fram bros á vör í fjar-
lægri framtíð.
Morgunblaðið/RAX
Dimmiterandi menntskælingar á heimleið til að undirbúa dansleik kvöldsins eftir skemmtun í miðbænum.
Fjörlega skreyttir
framhaldsskólanemar
MIKIL viðskipti hafa verið með
hlutabréf í Íslandsbanka í vikunni
eða alls fyrir 3.178 milljónir króna.
Hefur verð bréfanna hækkað úr
3,79 á mánudagsmorgni í 3,91 sem
var lokaverð félagsins á Verðbréfa-
þingi Íslands í gær.
Miklar vangaveltur hafa verið
um hverjir standa á bak við við-
skiptin en engin tilkynning um
flöggun hafði borist Verðbréfaþingi
Íslands eftir lokun þingsins í gær.
Meðal þeirra sem hafa átt við-
skipti með bréf Íslandsbanka í vik-
unni eru Sjóvá-Almennar trygging-
ar hf. sem hafa keypt 20 milljóna
króna hlutafé að nafnverði, sem er
0,2% hlutur, í Íslandsbanka hf. á
verðinu 3,9. Kaupverðið nam því 78
milljónum króna. Eftir kaupin á
Sjóvá-Almennar 369 milljónir
króna að nafnvirði í Íslandsbanka.
Íslandsbanki vænlegur
fjárfestingarkostur
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, sem situr
jafnframt í stjórn Íslandsbanka,
segir aðeins um góða fjárfestingu
að ræða. „Við teljum að verð hluta-
bréfa í Íslandsbanka sé hagstætt
um þessar mundir og þar af leið-
andi að þetta sé vænlegur fjárfest-
ingarkostur fyrir félagið.“
Í fyrradag og á miðvikudag voru
viðskipti með hlutabréf Íslands-
banka fyrir alls 1.967 milljónir
króna, þau stærstu upp á 391 millj-
ón króna, þ.e. 100 milljónir að
nafnverði á genginu 3,91 á mið-
vikudag. Viðskiptin í fyrradag
námu rúmum 420 milljónum króna
og á miðvikudag námu þau tæpum
1.547 milljónum króna.
Í gær voru viðskipti með bréf Ís-
landsbanka fyrir 1,2 milljarða og
var lokaverð félagsins eins og áður
sagði 3,91.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur Kaupþing átt veru-
leg viðskipti með bréf Íslands-
banka í vikunni en ekki hefur
fengist staðfest um hve stóran hlut
er að ræða.
Hreinn Loftsson, stjórnarfor-
maður Tryggingamiðstöðvarinnar,
segir að Tryggingamiðstöðin hafi
ekki keypt neitt í Íslandsbanka í
vikunni en fyrir á Tryggingamið-
stöðin rúman eins prósents hlut í
bankanum.
Hann segir Íslandsbanka vera
mjög vænlegan fjárfestingarkost
þannig að það sé ómögulegt að
segja til um hvort um frekari kaup
verður að ræða í framtíðinni.
Skráð hlutafé bankans er 10
milljarðar króna og sé miðað við
lokagengi í gær er markaðsvirði
bankans nú 39,1 milljarður króna.
3.178 milljóna viðskipti með Íslandsbanka
Engar flaggan-
ir þrátt fyrir
mikil viðskipti
GENGI íslensku krónunnar veiktist
enn í gær. Gengisvísitala krónunnar
hækkaði um 0,8% og endaði í 151
stigi.
Krónan styrktist nokkuð í gær-
morgun og fór vísitalan niður í
149,30 stig en veiktist aftur í kjölfar
talsverðra gjaldeyriskaupa á mark-
aðnum og fór vísitalan hæst í 151,10
stig. Viðskipti dagsins námu 3,3
milljörðum króna sem er nálægt
meðallagi.
Gengis-
vísitalan
í 151 stig
ALLS bárust um 40 tillögur í sam-
keppni um skipulag Faxaskála, þar
sem fyrirhugað er að reisa tónlistar-
og ráðstefnuhús. Ekki er vitað hvað-
an hugmyndirnar koma. Að sögn
Árna Þórs Sigurðssonar, formanns
skipulags- og bygginganefndar
Reykjavíkurborgar, er þó vitað að
einhverjar hugmyndanna komi frá
útlöndum en hversu margar er ekki
hægt að dæma um. Búist er við að
dómnefnd skili niðurstöðum í sam-
keppninni í janúar næstkomandi.
Góð þátttaka
í hugmynda-
samkeppni
40 hugmyndir/14
♦ ♦ ♦