Morgunblaðið - 24.11.2001, Blaðsíða 2
Njarðvík og Keflavík
mætast í úrslitaleik/B3
Valsmenn komnir í topp-
sæti 1. deildar/B2
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Á LAUGARDÖGUM
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sérblöð í dag www.mb l . i s
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir bæklingur
frá Landssam-
bandi slökkvi-
liðs- og sjúkra-
flutningamanna,
Slökkviliðsmað-
urinn. Blaðinu
verður dreift um
allt land.
Með Morgun-
blaðinu í dag
fylgir auglýs-
ingablað frá
Pennanum-Ey-
mundssyni.
Blaðinu verð-
ur dreift um
allt land.
LETTINN sem handtekinn var á
Dalvík á fimmtudagsmorgun, grun-
aður um aðild að tveimur morðum í
Lettlandi, var í gær úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur.
Aðspurður um hvers vegna manni
sem grunaður er um tvö morð var
hleypt inn í landið bendir Smári Sig-
urðsson, yfirmaður alþjóðadeildar
ríkislögreglustjóra, á að hann hafi
ekki verið eftirlýstur þegar hann
kom til landsins.
Þá hafi hann komið inn á Scheng-
en-svæðið í Svíþjóð. Við komuna
þangað var leitað að upplýsingum
um hann í svokölluðu SIS-kerfi, sem
er sameiginlegt upplýsingakerfi
Schengen-landanna, en engar upp-
lýsingar var að finna um hann þar.
Þar með var maðurinn kominn inn á
Schengen-svæðið og því hefur vænt-
anlega ekkert verið grennslast fyrir
um hann þegar hann kom til Kefla-
víkur fyrir skömmu.
Smári bendir ennfremur á að
lettnesk yfirvöld hefðu ekki verið
búin að gefa út handtökuskipun fyrr
en eftir að maðurinn var kominn til
landsins. Jafnvel þó lettnesk yfirvöld
hefðu verið búin að gefa út hand-
tökuskipunina, væri ólíklegt að það
hefði nokkru breytt, enda gætu að-
eins Schengen-lönd sett upplýsingar
inn í SIS-kerfið. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær barst beiðni
frá Lettlandi um að handtaka mann-
inn á miðvikudagskvöld.
Átti eftir að ganga frá forms-
atriðum varðandi atvinnuleyfi
Alþjóðadeild ríkislögreglustjóra
hefur m.a. aðgang að gagnagrunn-
um Interpol, Europol og upplýsinga-
kerfi Schengen. Aðspurður um hvort
Útlendingaeftirlitið geti fengið að-
gang að þessum gagnagrunnum seg-
ir Smári að það sé ekki heimilt þar
sem Útlendingaeftirlitið sé borgara-
leg stofnun.
Aðspurður um hvort til greina
komi að lögregla fari yfir umsóknir
um atvinnu- og dvalarleyfi og beri
þær saman við þá gagnagrunna sem
hún hefur aðgang að, segir Smári að
sér sé ekki kunnugt um að sá mögu-
leiki hafi verið ræddur.
Aðspurður um hvort útlendinga-
eftirlitið hafi ekki haft einhver gögn
um feril mannsins í Lettlandi þegar
mál hans kom til meðferðar þar, seg-
ir Georg Kr. Lárusson, forstjóri Út-
lendingaeftirlitsins, að stofnunin
hafi einungis takmarkaðan aðgang
að SIS-kerfinu og þá einvörðungu að
því er lýtur að þeim sem hafa verið
dæmdir fyrir afbrot inni á eða verið
vísað brott af svæðinu. Upplýsingar
um manninn hafi ekki verið að finna
í kerfinu. Að öðrum kosti hefði hon-
um verið neitað um að koma til
landsins.
Eins og fyrr segir er Útlendinga-
eftirlitið borgaraleg stofnun og því
hefur hún ekki aðgang að þeim
gagnagrunnum sem standa lögreglu
til boða en Georg telur nauðsynlegt
að Útlendingaeftirlitið fái aðgang að
þessum gagnabönkum.
Aðspurður um hvort Útlendinga-
eftirlitið fari fram á afrit af sakavott-
orði segir Georg að sú vinnuregla
hafi verið tekin upp í október.
Í frétt Morgunblaðsins í gær var
ranglega greint frá því að maðurinn
hefði tilskilin atvinnu- og dvalarleyfi.
Samkvæmt upplýsingum frá Út-
lendingaeftirlitinu hafði fiskvinnslu-
fyrirtæki á Dalvík sótt um atvinnu-
og dvalarleyfi fyrir manninn og
veitti Vinnumálastofnun samþykki
sitt fyrir þeim 27. október sl. Enn
átti þó eftir að ganga frá ýmsum
formsatriðum sem vörðuðu umsókn
hans og því hafði Útlendingaeftirlit-
ið ekki afgreitt umsóknina. Smári
Sigurðsson, yfirmaður alþjóðadeild-
ar ríkislögreglustjóra, staðfesti á
hinn bóginn í gær að maðurinn hefði
starfað hjá fiskvinnslufyrirtækinu.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur lögregla haft til at-
hugunar fleiri mál sem tengjast út-
lendingum sem starfa hér á landi er
grunur leikur á að hafi gerst sekir
um alvarlega ofbeldisglæpi en slopp-
ið undan réttvísinni í heimalandi
sínu.
Lettinn sem handtekinn var á Dalvík vegna gruns um aðild að tveimur morðum
Úrskurðaður í tveggja
vikna gæsluvarðhald
SÍÐASTI malarkaflinn á leiðinni frá
Höfn í Hornafirði til Reykjavíkur
var malbikaður í gær og er þar með
lagningu bundins slitlags allrar leið-
arinnar lokið.
Í tilefni áfangans afhjúpaði Sturla
Böðvarsson samgönguráðherra
koparskjöld og opnaði formlega
veginn við athöfn í Suðursveit. Þetta
er þriðji koparskjöldurinn sem sett-
ur er upp við ný vegamannvirki á
vegum Vegagerðarinnar, sá fyrsti
var settur upp við Öxnadalsheiði
þegar lagningu slitlags til Akureyr-
ar lauk og annar var settur á Vatna-
leiðinni og nú síðast við Höfn.
Rögnvaldur Jónsson, forstöðu-
maður tæknisviðs Vegagerðarinnar,
segir lagningu vegarins marka
tímamót þar sem þrjátíu ár eru liðin
frá því verkið hófst. „Við fengum
lán hjá Alþjóðabankanum 1971 og
þá var lagður Suðurlandsvegurinn
austur á Selfoss. Svo það var upp-
hafið að lokahnykknum sem gerður
var í gær, þrjátíu árum síðar, þegar
síðustu þrír kílómetrarnir voru mal-
bikaðir,“ sagði Rögnvaldur.
Morgunblaðið/Guðrún Ingimundardóttir
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra afhjúpaði koparskjöldinn við hátíðlega athöfn í Suðursveit í gær.
Lagningu slitlags lokið
ERFINGJAR Einars Sigurðssonar,
útgerðarmanns í Vestmannaeyjum,
hafa verið krafðir um greiðslu á þeim
mun sem er á verði húss sem Samtök
um kvennaathvarf keyptu undir
starfsemi sína og markaðsverði
hússins, en munurinn er 4,5 milljónir
að mati dómskvaddra matsmanna.
Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður Samtaka um kvennaathvarf,
segir að málið verði sótt fyrir dómi ef
þess þurfi. Erfingjarnir hafa krafist
þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
að Samtök um kvennaathvarf verði
borin út úr húsinu, en erfingjarnir
fengu í haust forkaupsrétt sinn að
húsinu viðurkenndan í Hæstarétti.
Krafðir
um 4,5
milljónir
Krefst/6
ALÞJÓÐASAMTÖK fatlaðra harma
í nýútgefinni yfirlýsingu reglu þá í
flugrekstrarhandbók Flugleiða sem
kveður á um að fatlaðir eða hreyfi-
hamlaðir farþegar skuli nefna fylgd-
armann eða ábyrgðarmann við kaup
á farseðlum í millilandaflugi. Þá hef-
ur Flugmálastjórn farið fram á að
Flugleiðir skýri reglur félagsins um
flutning fatlaðra.
Alþjóðasamtökin telja að um brot
á mannréttindum geti verið að ræða.
Munu þessi mál verða sérstaklega
rædd á næsta fundi samtakanna þar
sem áskorun til Flugleiða um að
draga til baka breytingar í handbók-
inni er varða ferðalög fatlaðra verð-
ur lögð fram.
Í yfirlýsingunni kemur ennfremur
fram að málið hafi verið tekið upp á
fundi Evrópusambands flugumferð-
arstjóra í vikunni, en Flugleiðir eiga
aðild að sambandinu. Var þar ákveð-
ið að rannsaka reglur sem koma
fram í handbókinni í samráði við
Samband evrópskra flugfélaga.
Öryrkjabandalag Danmerkur tek-
ur í sama streng, en innan banda-
lagsins eru 350.000 meðlimir. Lýsir
bandalagið furðu sinni á því að nor-
rænt flugfélag geri með reglum
þessum að engu þá jákvæðu þróun
sem átt hafi sér stað í málefnum fatl-
aðra um allan heim.
Flugmálastjórn hefur komið
ábendingum á framfæri við Flugleið-
ir um að orðalag ákveðinna atriða
reglunnar um flutning hreyfihaml-
aðra verði gert skýrara. „Það voru
ákveðnir hlutir sem okkar fólki
fannst stangast á og að orða þyrfti
betur,“ sagði Heimir Már Pétursson,
upplýsingafulltrúi Flugmálastjórn-
ar.
Samtök fatlaðra í útlöndum
Undrast regl-
ur Flugleiða
FJÁRMÁLARÁÐHERRA hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp til
laga um breytingar á lögum um
bindandi álit í skattamálum.
Samkvæmt gildandi lögum skal
ríkisskattstjóri taka gjald fyrir út-
gáfu bindandi álita. Með frumvarpi
ráðherra er annars vegar lagt til
að grunngjald fyrir hvert álit verði
hækkað úr 10.000 kr. í 50.000 kr.
og hins vegar að ákvæði laganna
um hámarksgjald, 40.000 kr., verði
afnumið.
Að því er fram kemur í athuga-
semdum með frumvarpinu, hefur
komið í ljós við framkvæmd lag-
anna að hvert álit er tímafrekara
en gert var ráð fyrir í upphafi þar
sem þau mál sem óskað er bind-
andi álita um verða sífellt flóknari
og umfangsmeiri.
Lögð til
hækkun
á gjaldi
♦ ♦ ♦
ÖKUMAÐUR jeppabifreiðar slapp
ómeiddur þegar bifreið hans fór út
af veginum í Norðurárdal í Borg-
arfjarðarsýslu rétt fyrir klukkan
níu í gærkvöld. Að sögn lögregl-
unnar í Borgarnesi má að öllum
líkindum rekja óhappið til hálku
og hvassviðris.
Bifreiðin var á suðurleið og fór
út af veginum þar sem er snar-
bratt niður. Ökumanninum tókst
með snarræði að stýra bílnum nið-
ur brekkuna þannig að hann slapp
við veltu. Tvö hjól undir bílnum
umfelguðust við útafaksturinn.
Slæmt veður var á Holtavörðu-
heiði, vindur um 18 m/s. og élja-
gangur.
Bifreið út af í
Borgarfirði
♦ ♦ ♦