Morgunblaðið - 24.11.2001, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 9
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ gerir
athugasemdir við nýbirta hagvaxt-
arspá Efnahags- og framfarastofn-
unar Evrópu, OECD, og segir hana
svartsýna en stofnunin spáir 0,6%
samdrætti landsframleiðslu hér á
landi á næsta ári. Einnig gerir fjár-
málaráðuneytið athugasemdir við
það mat OECD að ríkissjóður verði
rekinn með halla á næsta ári.
Fjármálaráðuneytið spáði því í
fjárlagafrumvarpinu að 1% hagvöxt-
ur yrði hér á landi á næsta ári. Í
nýju vefriti segir ráðuneytið að það
sé ljóst að efnahagshorfur hafi
versnað umtalsvert á alþjóðavett-
vangi frá því að fjárlagafrumvarpið
var lagt fram. Það sama gildi um
verðbólguhorfur innanlands í kjölfar
lækkandi gengis. Hvort tveggja
dragi úr hagvexti hér á landi til
skamms tíma litið.
Á móti vegi hins vegar áhrif skatt-
kerfisbreytinganna sem nú eru til
meðferðar á Alþingi, en þær muni
án nokkurs vafa verða til þess að
glæða hagvöxt þegar á næsta ári.
Sömuleiðis muni gengislækkunin
örva starfsemi útflutningsfyrirtækja
og auka útflutningstekjur.
Þá segir ráðuneytið, að í spá
OECD sé ekki gert ráð fyrir jafn-
mikilli vaxtalækkun og Seðlabank-
inn hefur nýlega ákveðið, hvað þá
frekari lækkunum á næstunni. Þessi
atriði geti skipt sköpum um þróun
efnahagsmála hér á landi á næsta
ári og stuðlað að meiri hagvexti en
ella. Að mati fjármálaráðuneytisins
sé hagvaxtarspá OECD fyrir næsta
ár því í svartsýnna lagi.
„Hins vegar er spá OECD fyrir
árið 2003 mjög jákvæð þar sem gert
er ráð fyrir að íslenskt efnahagslíf
taki hressilega við sér á nýjan leik.
Meðal annars er spáð 3% hagvexti,
minnkandi verðbólgu og viðskipta-
halla. Þessi spá er fyllilega í takt við
hugmyndir fjármálaráðuneytisins
og reyndar annarra aðila, svo sem
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins o.fl,“ seg-
ir fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið
segir hagvaxtarspá
OECD of svartsýna
RÁN var framið í söluturni á
gatnamótum Ránargötu og Ægis-
götu í vesturbæ Reykjavíkur síð-
degis á fimmtudag. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík var
þjófurinn hettuklæddur og vopn-
aður barefli. Ógnaði hann tveimur
afgreiðslustúlkum áður en hann
tæmdi afgreiðslukassa og hljóp á
brott.
Að sögn lögreglu hafði þjófurinn
þó ekki mikið upp úr krafsinu. Mál-
ið er til rannsóknar hjá lögregl-
unni.
Rán í
söluturni
TVEIR karlmenn á þrítugsaldri
hafa í Héraðsdómi Reykjavíkur ver-
ið dæmdir í fjögurra mánaða fangelsi
hvor fyrir að hafa brotist inn á bif-
reiðaverkstæði og stolið þaðan verð-
mætum upp á um sjö hundruð þús-
und króna sem og að hafa tekið
bifreið í heimildarleysi og ekið henni
af vettvangi með þýfið. Þriðji karl-
maðurinn, félagi hinna tveggja, sem
er rétt tæplega tvítugur, var auk
þess dæmdur í fimm mánaða fang-
elsi fyrir sömu brot, en hann var á
skilorði þegar brotin voru framin.
Í dómnum kemur fram að menn-
irnir hafi játað brot sín „hreinskiln-
islega,“ eins og það er orðað og er
það virt þeim til refsilækkunar. Þar
kemur einnig fram að þeir hafi allir
áður hlotið refsidóma fyrir ýmis
hegningarlagabrot svo sem fyrir
þjófnað, nytjastuld og umferðarlaga-
brot.
Fjórir mán-
uðir fyrir
þjófnað
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Sam-
herja hf. til að greiða fyrrum stýri-
manni á loðnuskipi tæpar 3,6 millj-
ónir í bætur vegna slyss sem hann
varð fyrir þegar hann vann við þrif í
lest skipsins.
Stýrimaðurinn féll niður úr stiga
og var slysið rakið til vanbúnaðar
stigans, því gripkjálkar hans hefðu
ekki hentað á hált lestargólfið. Mað-
urinn krafðist tæplega 11 milljóna
króna bóta en Hæstiréttur taldi að
hann bæri sjálfur sök á slysinu að 2/3
hlutum, þar sem hann var þaulkunn-
ugur aðstæðum um borð eftir átta
ára starf.
Héraðsdómur hafði áður sýknað
Samherja af bótakröfunni.
Bætur vegna
slyss við
lestarþrif
Meðgöngufatnaður
fyrir mömmu
og allt fyrir litla krílið.
Þumalína, Pósthússtr. 13, sími 551 2136
ÓTRÚLEGT VERÐ!
Hagkvæm
verksmiðjuinnkaup
betra verð
• Fatnaður • Jólavörur • Gjafavara •
Snyrtivörur • Ljós • Sælgæti o.fl. o.fl.
Austurhrauni 3, Gbæ/Hf.
(við Kaplakrika) Sími 555 2866
Verslunin
Kays - Argos póstverslun
Pantið tímanlega fyrir jólin - Pöntunarlistar á 1/2 virði
KAYS
Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
allar stærðir
Mikið úrval af brúðarfatnaði til leigu
Efnalaug og fataleiga
Garðabæjar Opið alla daga frá kl. 10-19,
laugardaga frá kl. 10-14.Garðatorgi 3, s. 565 6688
15% afsláttur
af öllum jólafatnaði
✭
Dragtir - dress - kjólar
sjöl - jakkar - pils og toppar
Nýjar vörur - frábær gæði
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—15.00.
Líttu við í tilefni dagsins
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag frá kl. 10-14
Hressing á staðnum
Við erum 16 ára
Afmælistilboð
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
Ótrúlegt úrval. Öðruvísi klukkur, styttur, lampar,
veggskraut, kertastjakar, handunnin rúmteppi,
dagdúkar, púðaver, sjöl, leirvasar og ljós.
Ekta pelsar jólagjöfin í ár!
Opið virka daga kl. 11–18, laugard. kl. 11–16.
Nýjar vörur
á nýjum og gömlum, handhnýttum austurlenskum
gæðateppum á Grand Hóteli við Sigtún
gsm 861 4883
10%
staðgreiðsluafsláttur
Í dag, laugardag 24. nóv. kl. 12-19 og
á morgun, sunnudag 25. nóv. kl. 13-19
Glæsilegt úrval
Gott verð
Síðasta
söluhelgi
fyrir jól
Úlpur kr. 8.900
Síðir velúrkjólar kr. 9.500
Stakir jakkar frá kr. 6.500
Ljósakrónur Kertastjakar
Íkonar Skatthol
www.simnet.is/antikmunir
Ný sending
af íkonum
Opið til kl. 18.00
Antíkmunir, Klapparstíg 40, sími 552 7977.
0-12 ára
Jólafötin
eru komin
BASIC
Laugavegi 63, sími 551 4422
GERRY
WEBER
dragtirnar
grunnurinn í
fataskápnum
4 snið af
jökkum
2 snið af
pilsum
3 snið af
buxum
stærðir 36-48
Pantanir
óskast sóttar